Dagur - 25.04.1992, Side 8
8 - DAGUR - Laugardagur 25. apríl 1992
Stjörnuspá
Sigfús E. Arnþórsson
„An ábyrgðar
T
■H mt ur*
21. mars -19. apríl
Þetta veröur alveg einstaklega skemmtileg
helgi hjá Hrútum. Hún er aö líkindum
heppilegri til skemmtana en til einhvers
nytsamlegs, en hvað svo sem þú gerir
veröur gaman. Þínir dagar þessa vikuna
eru þó þeir miövikudagur, fimmtudagur og
föstudagur þegar allt gengur upp eins og
sniöiö eftir þínum óskum.
ö
7\)cvut
20. apríl - 20. maí
Þaö veröur rafmögnuð spenna í loftinu
núna um helgina sem spillir því andrúms-
lofti rómantíkur, vináttu og bræöralagi sem
Nautin þurfa til aö geta lifað. Á mánudag
snýst þetta alveg við þegar draumar og
fagrar listir ná yfirhöndinni og stjórna ferö-
inni fram á þriðjudagskvöld. Rauöu nauta-
banaklútarnir (fánaborg verkalýðsins) á 1.
maí minna á aö Karl Marx var naut.
n
Tvíb upap
21. maí - 20. júní
Þetta verður sérlega hagstæö helgi fyrir
Tvíbura. Vinna og skemmtun munu bland-
ast á árangursríkan hátt fyrir þig. Mánu-
dagur veröur úfinn og þriöjudagur líka meö
neikvætt slúöur í gangi. Miövikudag,
fimmtudag og föstudag veröur aftur á móti
mikið aö gerast sem höföar sterkt til þín.
Pólitík.
21. júní - 22. júlí
Mánudagur og þriðjudagur veröa hag-
stæöustu dagar vikunnar hjá Kröbbum.
Eitthvað sem tengist draumum þínum
kemur fram og yljar þér um hjartaræturnar.
Miövikudag, fimmtudag og föstudag máttu
aftur á móti sæta einhverjum ofsóknum.
Sennilegast frá fjölskyldunni, en þar hafa
veriö einhverjir samskiptaöröugleikar und-
anfarið. Þeim lýkur um næstu helgi
<íl
J—Jc>KV
23. júlí - 22. ágúst
Þetta veröur strembin helgi. Þú ert á hálum
ís og þarft aö vanda hvert fótspor. Hvert
orö, jafnvel. En miðvikudagur, fimmtudag-
ur og föstudagur veröa bestu dagar vik-
unnar meö skrautsýningu verkalýösfélag-
anna á föstudaginn sem hápunkt. Ljón eru
jú alltaf veik fyrir flottum sýningum.
WpMvi
V 23. ágúst - 22. september
Það er heldur betur logniö og blíðan á þín-
um sjó þessa vikuna. Þaö er þó allskonar
pirringur í gangi umhverfis þig, en þaö er
eins og þaö nái ekki til þín. Þú dansar ekki
meö. Þaö gæti þó soðiö uppúr í smástund,
núna á mánudag eöa þriðjudag, en aö
ööru leyti mun jöröin snúast fram á laugar-
dag án nokkurra sérstakra aögeröa af þinni
hálfu.
fyrir dagana 25. apríl til 1. maí 1992
'og
23. september - 22. október
Þetta verður árangursrík helgi fyrir Vogir.
Ekki nóg meö aö þú fáir aflokið ýmsu smá-
legu heimafyrir, sem hefur beöiö, heldur er
líka eins víst aö farir þú út að skemmta þér,
hittir þú akkúrat fólkið sem þú þurftir aö
hitta. Vinna og skemmtan munu þannig
haldast í hendur þessa heilladaga. Faröu
varlega miövikudag, fimmtudag og föstu-
dag.
%
Sporðd reki
23. október - 21. nóvember
Þetta verður frekar erfiö helgi fyrir Sporö-
dreka. í staö dulúöar páskanna er nú kom-
in einhver upplýsingastefna, sem heimtar
spilin á borðiö. Öll spilin. Sporödrekaerm-
arnar eru venjulega úttroönar af spilum og
sum þeirra veröa aldrei dregin fram í dags-
Ijósið. Þessu linnir á mánudag.
Bogmo.^ui'
22. nóvember - 21. desember
Þaö veröur heldur betur líf og fjör í kringum
Bogmenn núna um helgina. Ég ræö þér
frekar frá því að reyna aö gera eitthvaö
nýtilegt, því þaö leysist allt upp í fjöri og
fíflaskap. Mánudagur og þriðjudagur veröa
erfiöir, en miðvikudagur, fimmtudagur og
föstudagur aftur á móti einstaklega hag-
stæöir og árangursríkir.
y I SteÍKvgeit
T J 22. desember -19. janúar
Ýmislegt jákvætt gæti gerst á mánudag og
þriöjudag hjá Steingeitum. Eitthvaö sem
tengist draumum þínum. Eitthvaö sem þú
vonaöir innst inni en áttir þó alls ekki von á.
Eitthvað sem færir þér aö líkindum enga
peninga, en yljar þér þess meira um hjarta-
ræturnar. Seinnipart vikunnar máttu búast
viö einhverjum óvæntum uppákomum.
Vatusb eKÍ
vNA
20. janúar- 18. febrúar
Þetta er þín helgi og hvaöeina sem þú tek-
ur þér fyrir hendur mun ganga upp. Heilsan
er kannski ekki eins og skyldi, en ástin
blómstrar og önnur samskipti eru á réttri
leið. Miövikudagur, fimmtudagur og föstu-
dagur veröa einnig óvenju skemmtilegir.
Sérstaklega föstudagur þegar Vatnsberar
allra landa sameinast undir rauöu fánunum
hans Gaucho Marx.
K
Fiska^
19. febrúar-20. mars
Þetta verður einstaklega kyrrlát vika hjá
Fiskum. Þú hefur allt undir þinni stjórn í
vinnunni/skólanum og á mánudag og
þriöjudag verður þú í alveg einstaklega
góöu skapi og kynnir að fá miklu áorkaö.
Aö því slepptu veröur ekkert til aö hagga
jafnvægi þínu, sem er óvenju mikið um
þessar mundir.
Kirkjukór Dalvíkur ásamt Hlín Torfadóttur, stjórnanda kórsins (lengst til vinstri í ðftustu röð), einsöngvurunum
Sólveigu Hjálmarsdóttur og Michael J. Clarke (lengst til vinstri í fremstu röð) og undirleikaranum Juliet Faulkner
(við orgelið). Mynd: Bæjarpósturinn/Heimir Kristinsson
Kirkjukór Dalvíkur:
Flytur Sálumessu eftir
Fauré á Dalvík annað kvöld
Kirkjukór Dalvíkur undir
stjórn Hlínar Torfadóttur flyt-
ur verk eftir Mozart, Briickn-
er, Bernstein og Mendelsohn,
auk Sálumessu eftir Gabriel
Fauré, á tónleikum í Dalvík-
urkirkju annað kvöld, sunn-
daginn 26. apríl, kl. 20.30.
Tónleikarnir hefjast á gömlu
ítölsku lagi, Alta trinita, en aö
því loknu syngur kórinn tvö verk
eftir Mozart, Ave Verum Corpus
og Laudate Dominum. í síðar-
nefnda verkinu syngur Sólveig
Hjálmarsdóttir, sópran, einsöng
með kórnum. Því næst syngur
kórinn Locus iste eftir Briickner.
Pá syngur Michael Clarke lög úr
Messu eftir Bernstein og Elijah
eftir Mendelsohn.
Þau Michael og Sólveig syngja
bæði einsöng með kórnum í Sálu-
messu eftir franska tónskáldið
Gabriel Fauré, sem var uppi á
árunum 1845-1924. Um undirleik
í messunni sér Juliet Faulkner.
Fauré var organisti og kórstjóri
við eina af stærstu kirkjum París-
arborgar, La Madeleine, og þar
var Sálumessan fyrst flutt yfir
moldum móður tónskáldsins í
janúar 1888. Það var einnig sung-
ið við útför Fauré sjálfs. Þó verk-
ið sé samið til flutnings í stórri
kirkju þykir það ekki síður henta
minni kórum, enda sagði tón-
skáldið að messan væri „jafnblíð
og ég er sjálfur". Áherslurnar í
þessari messu eru um margt ólík-
ar því sem tíðkast í hinum vold-
ugri messum tónskálda á borð við
Beethoven og Mozart enda sagð-
ist tónskáldið ekki leggja mikið
upp úr óttanum við dauðann.
„Dauðinn er fyrir mér frelsun,
ferð á vit eilífrar blessunar, frek-
ar er sorglegur viðskilnaður,“
sagði hann.
Vortónleikar Passíu-
kórsins kL 17 á morgun
Passíukórinn á Akureyri held-
ur sína árlegu vortónleika á
morgun, 26. aprfl, kl. 17 í
Akureyrarkirkju. Á efnis-
skránni eru verkin „Oh, sing
unto the Lord“ eftir G.F.
Hándel og „Misa Criolla“ eftir
argentínska tónskáldið Aríel
Ramirez. Þar að auki mun
Michael Jón Clarke, baritón,
og Richard Simm, píanóleik-
ari, flytja tvo þætti úr „Mass“
eftir Leonard Bernstein.
Einsöngvarar með kórnum að
þessu sinni eru þau Elísabet F.
Eiríksdóttir, sópran, Guðlaugur
Viktorsson, tenór og Michael Jón
Clarke, baritón.
Stjórnandi Passíukórsins er
Roar Kvam.
„Oh sing unto the Lord“ er
samið fyrir blandaðan kór, þrjá
einsöngvara, strengi, óbó og
continuo. Textinn er 96. Davíðs-
sálmur sem er samfelldur lof-
söngur til drottins.
„Misa Criolla" er einnig trúar-
legt verk, en á fátt annað sameig-
inlegt með verki Hándels. Það er
samið árið 1963 og byggir á suð-
ur-amerískri þjóðlagahefð bæði
hvað varðar laglínur en eink-
um þó hrynjandi. Verkið er
samið fyrir blandaðan kór, þrjá
einsöngvara, slagverk, gítar,
kontrabassa og sembal eða
píanó. „Misa Criolla" náði strax
miklum vinsældum og hefur verið
flutt víða um heim. Hér á landi
hefur Kór Langholtskirkju tvisvar
flutt verkið.
Hljómsveitarstjórann og tón-
skáldið Leonard Bernstein ætti')
að vera óþarfi að kynna. Tónlistí
hans úr söngleiknum „West side
story“ er sjálfsagt þekktust af
verkum hans hérlendis. „Mass“
(messa) er mjög viðamikið sviðs-
verk fyrir söngvara, leikara,
dansara og hljómsveit. Verkið
var samið að beiðni ekkju John
F. Kennedys í tilefni af opnun
Kennedy Center í Washington
D.C. í september 1971.