Dagur - 25.04.1992, Qupperneq 13
Laugardagur 25. apríl 1992 - DAGUR - 13
Leikfélag Akureyrar 75 ára:
Hátíðarsýmng í dag
og afinælisfagnaður
- forseti íslands og fleiri góðir gestir koma
Elva Ósk Ólafsdóttir og Hallmar
Sigurðsson í Islandsklukkunni,
afmælissýningu LA. Mynd: Goiii
Upphafið rakið til
danskra kaupmanna
í viðtali í leikskrá íslandsklukk-
unnar rekur Haraldur Sigurðsson
í stórum dráttum upphafsár leik-
listar á Akureyri og birtum við
þann kafla hér á eftir:
„Það er ekki mjög þjóðlegur
blær yfir upphafsárunum. Dansk-
ir kaupmenn voru okkar skóli á
mörgum sviðum, bæði varðandi
verslun, vinnubrögð og menn-
ingu. Bernhard Steincke skarar
þar langt fram úr öðrum. Hann
kennir hér söng og er upphafs-
maður að leiklist í bænum og
ýmsum merkilegum framkvæmd-
um eins og tryggingamálum.
Leikendur á sokkabandsárum
leiklistar hér eru verslunarmenn í
bænum, hálfdanskt fólk.
1862 kemur Jakob Christian
Jensen, danskur leikari sem var
hér verslunarassistent. Hann
Frá sýningu LA seint á sjöunda áratugnum. Á myndinni eru f.v.: Marinó
Þorsteinsson, Haraldur Sigurðsson (höfundur leiklistarsögunnar), Sæmund-
ur Guðvinsson og Jóhann Ögmundsson.
hafði leikið í Kaupmannahöfn en
slasaðist þar og hætti er hann
varð haltur, en tók aftur upp
þráðinn þegar hann fluttist
hingað. Þá var nú lítil tilbreyting
í bæjarlífinu svo Jensen, Steincke
og fleiri stóðu fyrir leiksýningum.
1868 komu aftur góðir danskir
liðsmenn, Henrik Schiöth og
Anna kona hans. Þau höfðu séð
leiksýningar erlendis og hjálpuðu
til við leiksýningarnar hér. Hún
lék, sá um búninga og var einn
fyrsti leiktjaldamálari hérna.
Onnur merkiskona í upphafi
leiklistarinnar hér var Anna
Sophie Finsen, kona Finsens
læknis. Hún og Jóhann Thorar-
ensen lyfsali léku hér fyrst 1860.
Leikskrána fann ég á Þjóðskjala-
safninu. Önnur leikkona fyrstu
árin var Pálína Möller. Hún varð
seinna kona Bernhard Steincke.
Fyrsta tímabilið, 1860-1870,
réðu sem sagt Steincke og Jensen
mestu í leiklistinni hér. Um 1875
var svo stofnað Gleðileikjafélag-
ið eða Comedieselskabet. Það
félag var undir forystu Jakobs J.
Havsteen, kaupmanns á Eyrinni
og Eggerts Laxdal. Þeir verða
ráðandi í leikstússinu fram að
aldamótum, þegar Gleðileikja-
félagið fer að missa móðinn. í
millitíðinni kom fram félag sem
hét Gaman og alvara. í því voru
skólafélagar frá Möðruvöllum og
einn af þeim var Páll J. Árdal,
sem var mjög góður leikari og
leikstjóri og hafði mikil áhrif á
leikstarfið í bænum um áratuga
skeið.
1907 er eldra Leikfélag Akur-
eyrar stofnað. Það starfaði bara í
fjögur ár og var starfið frekar
dauft þó leikfélagið hefði mjög
góðum leikurum á að skipa,
þ. ám. Vilhelm Knudsen og
Guðlaugi sýslumanni sem kom í
bæinn 1904. Stefán skólameistari
var líka einn af hvatamönnunum.
Félagið koðnaði niður 1910-11.
Þá varð nokkurt hlé á starfsem-
inni. Templarar og fleiri aðilar
léku þó eitthvað.
En 1917 er Leikfélag Akureyr-
ar stofnað. Þá fer þetta allt í svo-
lítið formlegra og fastara mót.
Síðan hefur félagið haldið sínu
striki og starfsemin alltaf aukist.
Stóri vendipunkturinn í sögu
L.A. er síðan þegar það er gert
að atvinnuleikhúsi 1973.“
í þessari löngu leiklistarsögu er
margan fróðleik að finna og
skemmtileg atvik og sem fyrr seg-
ir verða fyrstu eintök bókar Har-
aldar Sigurðssonar opnuð á
hátíðardegi Leikfélags Ákureyr-
ar í dag. SS
Leikfélag Akureyrar varð 75
ára 19. apríl síðastliðinn og í
dag kl. 15 verður sérstök hátíð-
arsýning á íslandsklukkunni
eftir Halldór Laxness. Heið-
ursgestir á sýningunni verða
forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, Ólafur G.
Einarsson, menntamálaráð-
herra, og frú Auður Laxness,
auk fjölmargra gesta sem stutt
hafa Leikfélag Akureyrar fyrr
og nú.
íslandsklukkan er afmælis-
verkefni leikfélagsins og hún var
einnig sett upp til heiðurs Hall-
dóri Laxness níræðum. íslands-
klukkan er 229. verkefni LA og
hið síðasta á þessu leikári og er
óhætt að segja að hinn einstaki
skáldskapur Halldórs Laxness
hafi náð vel til áhorfenda sem
fyrr og hefur sýningin fengið mik-
ið lof og góðar móttökur.
í kvöld verður haldin vegleg
afmælishátíð í Laugarborg í
Eyjafjarðarsveit með borðhaldi,
hljóðfæraleik, skemmtiatriðum,
ræðuhöldum og dansi.
Saga leiklistar á Akureyri
kemur út í dag
Leikfélag Akureyrar var stofnað
19. apríl 1917 undir forystu
Júlíusar Havsteen, Sigurðar E.
Hlíðar og Hallgríms Valdimars-
sonar. Haraldur Björnsson var
einn helsti máttarstólpi félagsins
fyrsta áratuginn og síðan tóku við
Ágúst Kvaran, Jón Norðfjörð og
fleiri. Leikfélag Akureyrar var í
áratugi eitt atkvæðamesta áhuga-
leikfélag landsins, allt þar til það
var gert að atvinnuleikhúsi árið
1973.
Leikstarfsemi á Akureyri nær
mun lengra aftur í tímann en
saga Leikfélags Akureyrar. Um
þessa fróðlegu sögu má lesa í
hinu mikla ritverki Haraldar Sig-
urðssonar, Sögu leiklistar á
Akureyri 1860-1992, sem Leik-
félag Ákureyrar gefur út í tilefni
afmælisins. Haraldur rekur sögu
allra leiktilburða á Akureyri í
þau 132 ár sem vitað er um leik-
sýningar þar. Bókin er rúmar 400
blaðsíður að stærð og hana prýða
um 600 ljósmyndir. Fyrstu ein-
tökin verða opnuð í dag, á hátíð-
ardegi Leikfélags Akureyrar.
Bókin er mjög yfirgripsmikil
og rakin er saga allra leiksýninga
með hlutverkaskrám, útdráttum
úr blaðagagnrýni og öðrum um-
sögnum um leiksýningar. Helstu
frumkvöðla leiklistar á Akureyri
frá upphafi er getið, gestasýn-
inga, leikfélaga og alls sem við
kemur þróun leiklistar í bænum.
Gestur Einar Jónasson og Guðlaug María Bjarnadóttir í Einkalífi leikárið
1984-85.
★ Mikill afsláttur
Karlmannaskór — Kvenmannsskór
— Barnaskór — Strigaskór
- Barnastígvél o.fl. o.fl.
Skóverslun M.H. Lyngdal
Hafnarstræti 103, sími 23399.
Listasmiðja bama
★ Djazzdans fyrir
7-9 óra
★ Upphitun
★ Dans
★ Leikrœn tjáning
Djazzleikskólinn
fyrir 4-6 ára böm
★ Dans
★ Söngur
★ Leikir
★ Leikrœn
tjáning
★ Spuni
Unnið með liti
og búninga
Mjög þroskandi og
skapandi tímar
Innritun og
upplýsingor í síma
24979 fró kl. 18-20.
Tryggvabraut 22
Akureyri