Dagur - 25.04.1992, Page 20
Horft af „ brúnni
Mynd: Golli
Norðurland:
Slydda eða snjóél
Sumarið er gengið í garð, en
svo virðist sem veðurguðirnir
hafi ekki áttað sig á stöðu him-
intunglanna. Um helgina verð-
ur sannkölluð haust- eða
vetrarveðrátta um allt Norður-
land.
„ísland er samt við sig. Strax í
byrjun sumars skella vorhretin á
Norðlendinga. í dag verður norð-
austan strekkingur með slyddu
eða snjóéljum. Hitastig verður
um frostmark og útivistarfólk er
best komið í heimaranni. Sunnu-
dagurinn verður á sömu nóturn,"
sagði talsmaður Veðurstofu
íslands. ój
Fékk hóf í höfuðið
og var fluttur á sjúkrahús
Laust upp úr hádegi á sumar-
daginn fyrsta var Iögreglan á
Akureyri kölluð fram að
Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit.
Kaupfélag Þingeyinga:
„Afurðasalan mesta áhættan í daglegum rekstri“
- segir Egill Gústafsson frá Rauðafelli
„Lengdir gjaldfrestir gefa
óprúttnum kaupmönnum
aukna möguleika til að stofna
til mikilla skulda og jafnframt
vex hætta félagsins á veruleg-
um skakkaföllum komi til
gjaldþrota þeirra,“ sagði Egill
Gústafsson, félagskjörinn
endurskoðandi í skýrslu sinni á
aðalfundi Kaupfélags Þingey-
inga. í skýrslunni vakti Egill
athygli á nokkrum atriðum í
rekstri og hag kaupfélagsins
sem honum voru ofarlega í
huga.
Menn verði thnanlega á
ferðinni með áhurðardreifiungu
- segir Ólafur G. Vagnsson, ráðunautur hjá
Búnaðarsambandi Eyjaflarðar
Miðaö við ástand gróðurs á
Norðurlandi má gera ráð fyrir
að bændur verði fyrr á ferðinni
í ár með áburðargjöf en í með-
alári. Það ræðst þó töluvert af
því hvort hlýnar í veðri á næst-
unni. Lítill sem enginn klaki
virðist vera í jörðu og því má
ætla að ekki sé þess langt að
bíða að kartöflubændur fari að
hugsa sér til hreyfíngs.
f»að þarf ekki að hafa um það
mörg orð að sjaldan hefur verið
minni snjór á láglendi um
norðanvert landið en í ár. Gróð-
ur er þó enn sem komið er ekki
farinn að taka verulega við sér og
virðist þurfa nokkra hlýindadaga
til þess að gróðurinn lifni við.
„Ég get ekki ímyndað mér
annað en tún séu það frostlítil að
þau komi til um leið og hlýnar.
Ég hef hins vegar svolitlar
áhyggjur af því að bæði vegna
snjóleysis og frostleysis, þá muni
tún þorna óvenjulega fljótt og
Verkalýðsfélagið Eining:
Björn Snæbjömsson
verður næsti formaður
- ekkert mótframboð barst gegn
lista stjórnar og trúnaðarmannaráðs
Ekkert mótframboð barst gegn
lista stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs Verkalýðsfélagsins
Einingar vegna stjórnarkjörs á
aðalfundi félagsins, sem verð-
ur í næsta mánuði. Það er því
Ijóst að Björn Snæbjörnsson,
varaformaður Einingar, sem
stillt var upp sem formannsefni
á lista stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs, mun taka við for-
mennsku í Einingu af Sævari
Frímannssyni, sem gefur ekki
kost á sér til endurkjörs.
Aðrir í stjórn Verkalýðsfélags-
ins Einingar verða þeir Þórir
Snorrason, starfsmaður Malar og
sands hf., varaformaður, Sigríð-
ur Rut Pálsdóttir, formaður
Ólafsfjarðardeildar Einingar, rit-
ari, Erna Magnúsdóttir, starfs-
maður ÚA, gjaldkeri, Guðrún
Helgadóttir, starfsmaður Svæðis-
stjórnar um málefni fatlaðra á
Norðurlandi eystra, meðstjórn-
andi, Hilmir Helgason, formaður
bílstjóradeildar Einingar, með-
stjórnandi og Ólöf Guðmunds-
dóttir, formaður Grenivíkur-
deildar Einingar, meðstjórnandi.
óþh
því hafi þau þörf fyrir töluverða
úrkomu. Ég hygg því að menn
verði að vera tímanlega á ferð-
inni með áburðardreifingu til
þess að nýta rakann af því litla
frosti sem er í jörðu,“ sagði Ólaf-
ur G. Vagnsson, ráðunautur hjá
Búnaðarsambandi Eyjafjarðar.
óþh
Á undanförnum árum hefur
kaupfélagið ítrekað orðið fyrir
milljónatjónum vegna sölu á
framleiðsluvörum til fyrirtækja á
Reykjavíkursvæðinu sem orðið
hafa gjaldþrota. Egill segir að
mesta áhættan í daglegum rekstri
kaupfélagsins sé salan á fram-
leiðsluvörunum: „Pað er ekki að
finna kaupanda heldur að selja
ekki öðrum en þeim sem ætla og
geta borgað verð, sem skilar
framleiðslukostnaði. Ef við horf-
um á kjötsöluna og fjármögnun
birgða, þá eru tekin afurðalán á
sláturtíðinni til að greiða slátur-
kostnað og gera upp við innleggj-
endur. Afurðalánin gjaldfalla 25.
dag næsta mánaðar eftir sölu-
mánuð. Kjötkaupmenn krefjast í
vaxandi mæli gjaldfrests fram yfir
gjalddaga afurðalánanna. Slát-
urleyfishafinn mætir því ekki
nema með nýrri lántöku í ein-
hverju formi og tilheyrandi
kostnaði." . ,
IM
K. Jónsson & Co.:
Jón Þór búinn að segja upp
Jón Þór Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri hjá K. Jónsson
& Co. hf. á Akureyri, hefur
sagt upp störfum. Samkvæmt
heimildum Dags má rekja
þessa ákvörðun til samstarfs-
erfiðleika og ágreinings um
stefnu og starfshætti í fyrirtæk-
inu.
Jón Þór staðfesti í samtali við
Dag að hann hefði sagt upp störf-
um en hann vildi ekkert segja um
ástæður uppsagnarinnar né hvað
hann ætlaði að taka sér fyrir
hendur.
„Pað er rétt að ég er búinn að
segja upp. Ég hætti hjá fyrirtæk-
inu í síðasta lagi um mánaðamót-
in júní-júlí,“ sagði Jón Þór en
vildi ekki tjá sig nánar um málið.
Jón Þór tók við starfi fram-
kvæmdastjóra hjá K. Jónsson &
Co. 1. júlí á síðasta ári. SS
Sendiferðabifreið fór
útaf í Víknrhólum
Umferðarslys varð á veginum í
Víkurhólum á leið tii Greni-
víkur laust fyrir kl. 13.00 í gær.
Sendiferðabifreið af Mitsubishi
L300 gerð lenti utan vegar og er
talin ónýt. Bílstjórinn sem var
einn í bílnum er talinn mikið slas-
aður.
Lögreglumenn og sjúkrabif-
reið fóru á slysstað um leið og til-
kynning barst um óhappið. Mað-
urinn var fluttur á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri en ekki
fengust upplýsingar um líðan
hans er blaðið fór í prentun.
ój
Lögregian brá skjótt við og
sjúkrabifreið var send á
staðinn. Hestamaður er slasast
hafði var fluttur til sjúkrahúss.
Hestamenn frá Akureyri not-
uðu sumardaginn fyrsta til að
leggja á klára sína og hópur
manna hélt í útreiðartúr inn
Eyjafjörð. Við réttina að Hrafna-
gili varð það óhapp er einn hesta-
maðurinn var að stíga af baki
hesti sínum að klárinn fældist.
Þar sem hestamaðurinn var
búinn að losa um sig í hnakknum
þá skall hann í jörðina. Svo illa
tókst til að maðurinn fékk hóf í
höfuðið og lá sár eftir. Beðið var
um sjúkrabíl og maðurinn var
fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri. Auk þess að hafa feng-
ið verulegan skurð á augabrún,
sem mikið blæddi úr, var maður-
inn nef- og kinnbeinsbrotinn.
Hinn slasaði fékk að fara til síns
heima um kvöldið. Að sögn hins
slasaða verður gert að brotunum
eftir helgi er bólga minnkar og
hann sagði að líðan sín væri þol-
anleg. ój
Skagaprður:
Aning færir
út kvíarnar
Ferðaþjónustan Áning, sem
m.a. hefur starfrækt sumar-
hótel í húsnæði Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra á
Sauðárkróki undanfarin ár,
hefur nú fært út kvíarnar. Auk
starfseminnar á Sauðárkróki
ætlar Áning að þjónusta ferða-
menn að Hólum í Hjaltadal í
sumar.
Áning hefur tekið að sér rekst-
ur greiðasölu í húsnæði Grunn-
skólans á Hólum og mun einnig
verða þar með gistingu í svefn-
pokaplássi sem og möguleika á
gistingu í herbergjum.
„Við reiknum með að starfs-
fólkið á Hólum verði að mestu
leyti heimamenn, en þó munum
við koma með aukalið þangað ef
einhverjar stórveislur verða eða
slíkt,“ segir Birna Guðjónsdóttir,
hjá Áningu.
Að sögn Birnu verður rekstur
sumarhótelsins á Sauðárkróki
með svipuðu sniði og í fyrra og
hún segir bókanir aldrei hafa ver-
ið fleiri. Nýjungar í þjónustu
hótelsins verða þær helstar, að
gestir munu geta leigt sér reiðhjól
til að hjóla um nágrennið, nudd-
ari verður með aðstöðu á hótel-
inu og auk þess munu hótelgestir
geta fengið smárétti allan sólar-
hringinn.
Hótel Áning opnar á Sauðár-
króki um mánaðamótin maí/júní,
en þjónustan á Hólum verður
opnuð þann 14. júní. SBG