Dagur - 22.05.1992, Side 3
Föstudagur 22. maí 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Aðalfundur Gúmmívinnslunnar hf. á Akureyri:
Fyrirtækið hefur skilað
hagnaði öll starfsárin
búist við áframhaldandi söluaukningu endurvinnsluvara
Aðalfundur Gúmmívinnslunn-
ar hf. var haldinn í aprfl. Síð-
astliðið ár var velta fyrirtækis-
ins um 80 milljónir og skilaði
rúmlega 6% hagnaði eftir
skatta. Gúmmívinnslan hf.
hefur árlega skilað hagnaði frá
því að rekstur hófst árið 1984.
Hagnaður ársins 1991 var
minni en árið 1990, enda ytri
rekstrarskilyrði lakari. Þar ber
helst að nefna mikla hækkun
fjármagnsgjalda. Meðal starfs-
mannafjöldi fyrirtækisins var
12.
Sala endurvinnsluvara ríflega
tvöfaldaðist á síðastliðnu ári.
Þessi söluaukning er árangur
markaðsátaks sem fyrirtækið hóf
á árinu. Einnig má þakka því um
að almenningur er meðvitaðri um
mikilvægi endurvinnslu. Endur-
vinnsla stuðlar ekki aðeins að
minni sorpmengun heldur einnig
að bættri nýtingu auðlinda
jarðar. Árið 1991 endurvann
Gúmmívinnslan hf. um 100 tonn
af gúmmí og endurnýtti um 150
tonn með hjólbarðasólningu.
Undanfarin ár hefur verið unn-
ið að stækkun húsnæðisins og
endurskipulagningu fyrirtækis-
ins. Á síðasta ári lauk endur-
skipulagningu sólningardeildar-
innar og ný skrifstofuaðstaða var
tekin í notkun.
Markmið fyrirtækisins er að
stuðla að hvers kyns endur-
vinnslu og endurnýtingu. Haldið
verður áfram með vöruþróunar-
og markaðsstarf endurvinnslu-
vara. Einnig verður aukin áhersla
lögð á markaðssetningu sólaðra
hjólbarða, en hjólbarðasólning
er endurnýting.
Litið er björtum augum á kom-
andi ár. Búist er við áframhald-
andi söluaukningu endurvinnslu-
vara. Mestar vonir eru bundnar
við GV reitinn, sem notaður er
við sundlaugar, á leikvelli og á
sólpalla og GV millibobbinginn,
sem notaður er á veiðarfæri. Sala
nýrra hjólbarða á einnig eftir að
aukast. Undanfarin ár hefur fyr-
irtækið haslað sér völl á hjól-
barðamarkaðnum með hagstæð-
um innflutningi.
Austur-Húnvetningar:
Áhyggjufullir vegna stöðu
í landbúnaðarmálum
- samdrátturinn leiðir til atvinnuleysis, eignaupptöku
og fólksflótta, segir í ályktun aðalfundar
Sölufélags Austur-Húnvetninga
„Langmestur hluti umræðna á
aðalfundi Sölufélagsins snérist
um þann vanda sem nú steðjar
að atvinnulífinu hér í héraðinu
vegna áframhaldandi sam-
dráttar í landbúnaði,“ sagði
Guðsteinn Einarsson, kaupfé-
lagsstjóri á Blönduósi en á
fundinum, sem haldinn var í
síðustu viku, voru einnig til
umræðu hugmyndir um sam-
einingu Sölufélagsins og Kaup-
félags Húnvetninga. A aðal-
fundi kaupfélagsins, sem hald-
in var daginn áður, var eins og
fram hefur komið samþykkt
tillaga þess efnis að gengið
verði til viðræðna við stjórn
Sölufélagins um endurskipu-
lagningu samvinnufélaganna í
héraðinu með sameiningu fyrir
augum. Engin tillaga var sam-
þykkt á aðalfundi Sölufélags-
ins þess efnis. Guðsteinn Ein-
arsson sagði að í raun hefðu
umræðurnar á fundi Sölufé-
lagsins gengið út á að félögin
yrðu rekin áfram með óbreyttu
samstarfsfyrirkomulagi.
Á aðalfundi Sölufélags Austur-
Húnvetninga var samþykkt harð-
orð tillaga í atvinnumálum. Segir
þar meðal annars að vegna
ákvarðana um stórfelldan niður-
skurð í landbúnaði er leiði af sér
verulega fækkun framleiðenda og
um leið samdrátt í störfum við
úrvinnslu landbúnaðarafurða
bendi fundurinn á að marka verði
skýra stefnu í atvinnumálum
landsbyggðarinnar, sem leiði til
uppbyggingar landsins alls en
ekki eyðingar einstakra byggðar-
laga. Þá verði tekið tillit til ann-
arra atvinnuvega í viðkomandi
héruðum við stefnumörkun í
landbúnaði og bent á að í Aust-
ur-Húnavatnssýslu muni áfram-
haldandi fækkun framleiðenda
leiða til lokunar vinnslustöðva,
atvinnuleysis, eignaupptöku og
fólksflótta úr héraðinu.
Guðsteinn Einarsson sagði að
ástæður versnandi afkomu sam-
vinnufélaganna á Blönduósi megi
beinlínis rekja til samdráttar í
landbúnaði, sem leiði síðan til
samdráttar í almennri þjónustu
er komi fyrst og fremst niður á
veslunarþættinum. Hann sagði
að menn myndu ræðast við á
næstunni varðandi breytingar á
samstarfi sölu- og kaupfélagsins
en ekki væri unnt að segja til um
á þessu stigi hvort einhverjar
Þótt skautavertíðinni sé lokið mun íshokkídeild Skautafélags Akureyrar
halda úti starfsemi í sumar. Laugardaginn 23. maí næstkomandi mun félagiö
opna hjólaskautaleigu á skautasvæðinu. Af því tilcfni var efnt til kynningar
á svokölluðum línuskautum, nýjum hjólaskautum sem verða í leigunni, en
þetta eru víst mikil galdratæki. Mynd: Goiii
ákvarðanir yrðu teknar á næst-
unni. Menn væru verulega ugg-
andi vegna stöðunnar í landbún-
aðarmálunum því ekki sé fyrirsjá-
anlegt á hvern hátt unnt verði að
bregðast við þeim samdrætti í
atvinnulífinu sem af minnkandi
landbúnaði leiði. ÞI
Krakkar
Landsbankahlaupið fer fram
laugardaginn 23. maí 1992.
Mæting við
Landsbankann
v/Ráðhústorg
kl. 10 f.h.
Hlaupið er ætlað öllum krökk-
um fæddum árin 1979-1982.
Lúðrasveit
æskunnar leikur
fyrir og
eftir hlaupið
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
11992 útgdjon o| mest
landsins er homin út
lesnn bóh
Þú getur fengið símaskrána innbundna
fyrir aðeins 175 kr. aukagjald. Tryggðu
þér eintak á meðan upplag endist.
Símaskráin er afhent á póst- og símstöðvum
um land allt gegn afhendingarseðlum, sem
póstlagðir hafa verið til símnotenda.
Númerabreytingar sem ákveðnar hafa verið
í tengslum við útgáfu símaskrárinnar og
tilkynntar hafa verið símnotendum fara frarn
laugardaginn 23. maí. Að þeirn breytingum
loknum hefur símaskráin að fullu tekið gildi,
þ.e. frá og með 23. maí nk.
Fyrir þá sem óska verður tekið við gömlu
símaskránni á póst- ög símstöðvum á
liöfuðborgarsvæðinu og á Suður nesjum.
Þá er einnig komin út ný Götu- og
númeraskrá yfir höfuðborgarsvæðið
og kostar hún kr. 1500.-
PÓSTUR OG SÍMI
Við spörum þér sporin