Dagur - 22.05.1992, Page 16
mm
Akureyri, föstudagur 22. maí 1992
Smiðjan um helgina
5 rétta
helgarseðillinn okkar
á aðeins kr. 3.100
Um síðustu helgi spiluðu Gunnar
Gunnarsson og Jón Rafnsson dinner-jazz
fyrir matargesti. Þeir endurtaka það núna á
föstudags- og laugardagskvöld.
Pantið borð tímanlega.
Atvinnurekendur vilja fækka starfsfólki:
Ástandið skárra á lands-
byggðinni en í borginni
Garðyrkjustöðin á Grísará:
Bamaskólanemendur í fræðsluheimsókn
Atvinnuástandið á landinu
endurspeglast Ijóslega í könn-
un Þjóðhagsstofnunar sem
gerð var í aprflmánuði síðast-
liðnum. Þar kemur fram að
atvinnurekendur vilja fækka
starfsmönnum um 500 á land-
inu öllu og er þetta mesta
fækkun sem mælst hefur á
þessum árstíma og raunar hafa
atvinnurekendur aðeins einu
sinni áður viljað fækka starfs-
fólki á landinu öllu í aprfl, það
var um 100 manns árið 1989.
Ástandið er mun verra á
höfuðborgarsvæðinu en á lands-
byggðinni. Þar vildu atvinnurek-
endur fækka um 440 manns eða
0,8% af mannafla, en á lands-
Lágheiði:
Veginum lokað
Vegurinn um Lágheiði er lok-
aður allri umferð og þungatak-
markanir hafa víða tekið gildi
á vegum á Norðurlandi.
„Vegurinn um Lágheiði heldur
ekki hundi,“ sagði talsmaður
Vegagerðar ríkisins, en aðfara-
nótt miðvikudags var veginum
lokað vegna aurbleytu. Þunga-
takmarkanir eru í gildi í Skíða-
dal, Sölvadal og á Bakkavegi í
Arnarneshreppi. Þar er miðað
við 7 tonna öxulþunga sem og á
Mývatnsheiði, Mývatnsöræfum
og Möðrudalsöræfum. Á Fljóts-
heiði eru þungatakmarkanir mið-
aðar við tveggja tonna öxul-
Þunga._________________ój_
Safnahúsið á Húsavík:
Guðni í starf
forstöðumanns
Guðni Halldórsson hlaut
afdráttarlausa kosningu í stöðu
forstöðumanns Safnahússins á
Húsavík á fundi stjórnar
Safnahússins sl. miðvikudag.
Alls bárust 12 umsóknir um
stöðuna.
Guðni er með BA próf í sagn-
fræði og bókmenntafræði, m.a.
þjóðháttafræði, byggðasögu og
þjóðfræði. Hann stundaði m.a.
nám við University of Alabama.
Hann hefur starfað sem kennari,
framkvæmdastjóri og safnvörð-
ur. Hann var framkvæmdastjóri
landsmóts UMFÍ á Húsavík
1987, starfaði síðan sem fram-
kvæmdastjóri HSÍ og síðustu árin
hjá Fróða hf.
Guðni er 38 ára, fæddur og
uppalinn á Húsavík. Hann er
kvæntur Önnu S. Kristinsdóttur
og eiga þau þrjú börn.
Aðspurður sagði Guðni að það
legðist ákaflega vel í sig að koma
norður til starfa við Safnahúsið,
þessa menningarmiðstöð í sýsl-
unni.
Á þriðjudag ákvað stjórn
Bókasafns Suður-Þingeyinga að
mæla með ráðningu Hrefnu Jóns-
dóttur í stöðu forstöðumanns
bókasafnsins. Bókasafnið er
einnig til húsa í Safnahúsinu, svo
þar verða yfirmannaskipti á öll-
um hæðum í sumar. IM
byggðinni vildu þeir fækka um 70
manns eða 0,2% af mannafla. Á
sama tíma var atvinnuleysi 2,6%
á höfuðborgarsvæðinu sem er
mesta atvinnuleysi í apríl sem
mælst hefur frá upphafi.
Atvinnurekendur vildu fækka í
nær öllum atvinnugreinum nema
í fiskvinnslu á landsbyggðinni, en
þar vildu þeir fjölga um 70 manns
og um 20 manns á sjúkrahúsum á
landsbyggðinni.
Af einstökum atvinnugreinum
vildu atvinnurekendur fækka
mest í byggingastarfsemi eða um
180 manns, um 130 manns í iðn-
aði, um 110 manns í þjónustu,
um 100 manns í verslun og veit-
ingastarfsemi og um 70 manns í
samgöngum.
Þessar niðurstöður og aðrar
nýlegar upplýsingar um atvinnu-
ástandið benda til þess að spá
Þjóðhagsstofnunar um 2,6%
atvinnuleysi að meðaltali á þessu
ári séu í Iægri kantinum og líklegt
sé að það nálgist 3%.
Betur horfir með sumarafleys-
ingastörf er fram kom í atvinnu-
könnun í janúar. Atvinnurek-
endur töldu þörf fyrir 12.400
sumarafleysingastörf á landinu
öllu, 8.900 á höfuðborgarsvæðinu
og 3.500 á landsbyggðinni. SS
Pétur Pétursson, heilsugæslu-
læknir á Akureyri, lagði í gær
fram í bæjarþingi Akureyrar
greinargerð sína í meiðyrða-
máli því sem Olafur Sigurgeirs-
son, lögfræðingur í Reykjavík,
höfðaði fyrr í vor á hendur
honum. Olafur stefndi Pétri
vegna ummæla sem hann hafði
uppi í fjölmiðlum I vetur og
taldi hann hafa haft uppi
ummæli til þess fallin að lækka
sig í áliti „almennings og valda
þannig röskun á stöðu og
högum,“ eins og segir í stefn-
Nemendur í Barnaskóla Akur-
eyrar luku fræðslu sinni um trjá-
gróður í vetur með því að heim-
sækja Garðyrkjustöðina á Grís-
ará í Eyjafjarðarsveit í gær og
skoða plönturnar þar. Að sögn
Jónu Sigrúnar Sigurðardóttur á
unni.
Pétur Pétursson, samdi sjálfur
greinargerðina sem hann lagði
fram í bæjarþingi í gær. Óvana-
legt er að stefndi semji sjálfur
sína greinargerð en í samtali við
blaðið í gær sagði Pétur að mála-
tilbúningur Ólafs sé svo ómerki-
legur að ekki sé ástæða til að
eyða tíma löglærðra manna í
svona mál. Pétur segir að með
greinargerðinni frá í gær sé sín-
um afskiptum af þessu máli lokið
og hann muni ekki mæta til
réttarhaldanna enda telji hann
tíma sínum mun betur varið til
Grísará er kominn sá tími að
óhætt er að planta út bæði skó-
garplöntum, runnum og matjurt-
um. „Samt eru einstaka tegundir,
eins og t.d. blómkál og rauðróf-
ur, sem æskilegt er að geyma
fram að mánaðamótum. En við
annarra starfa.
Pétur krefst þess í greinargerð-
inni að verða alfarið sýknaður af
öllum kröfum Ólafs. Hann rifjar
því næst upp þegar hann ræddi
um misnotkun hormóna í útvarps-
viðtali fyrir réttu ári og það mál
sem reis í framhaldinu þegar
Ólafur stefndi honum fyrir hönd
35 vaxtarræktarmanna. Það mál
er nú fyrir bæjarþingi Akureyrar
á nýjan leik, sem og meiðyrða-
málið sem Ólafur höfðaði. Og
Pétur segir:
„En nú er svo komið að með
nýrri kröfugerð í nýju máli, ef
erum byrjuð að planta út og selja
enda er jörð það vel á sig kominn
eftir veturinn," sagði Sigrún og
bætti við að þrátt fyrir að vetur-
inn hafi verið mildur hafi útplönt-
un oft verið fyrr á ferð. Mynd: Goiii
öllum óskum stefnanda beggja
mála verður fullnægt, að ég þurfi
að dúsa í tugthúsi í fjögur ár og
skuli á meðan borga um fimmtán
milljónir, ef allt er reiknað. Ekki
er nóg með þetta, heldur eru
einnig gerðar í ýmsum tilskrifum
kröfur um, að sjálfsagt sé að
svipta mig læknaleyfi og nauð-
synlegt sé að stéttarbræður mínir
refsi mér einnig grimmilega. Öll
þessi mál eru rekin með offorsi,
rangtúlkunum og jafnvel vísvit-
andi missögnum.“
Pétur segist ekki sjá nokkra
ástæðu til að ómerkja eitt einasta
orð af því sem Ólafur Sigurgeirs-
son geri kröfu um. Hann segir í
greinargerðinni að allt frá því
málareksturinn hófst hafi stefn-
andinn ofsótt sig með hótunum,
hálfsannleik, ósannindum, niðr-
andi orðum um siðferði sitt,
læknishæfileika og faglega kunn-
áttu. Og í lok greinargerðinnar
segir Pétur um framhald málsins:
„Ég mun ekki hafa frekari
afskipti af máli þessu en læt
nægja að leggja fram greinargerð
og skjöl. Skýrt er tekið fram, að
með þessu er ég ekki að óvirða
virðulegan dómara, heldur hef ég
ekki geð til að taka þátt í þessu
ómerkilega karpi stefnanda og tel
tíma mínum betur varið til ann-
arra þarfari starfa.
Mér hefur verið skýrt frá hugs-
anlegum afleiðingum sem þessari
ákvörðun geta fylgt, en ég treysti
dómara málsins til að gæta fyllsta
réttlætis og sanngirni í niður-
stöðu sinni og vísa til raka minna
allra og leggmálið í dóm.“ JÓH
Akureyri:
Hópur vísindamanna og evrópskra
þingmaima kemur í heimsókn
- Sigbjörn Gunnarsson orðinn formaður sjávar-
útvegsnefndar Evrópuráðsins
Næstkomandi þriðjudag kem-
ur til Akureyrar og Húsavíkur
um 40 manna hópur þing-
manna í sjávarútvegsnefnd
Evrópuráösins og sérfræðingar
um sjávarspendýr, sem munu
sitja ráðstefnu um sjávarspen-
dýr á Hótel Sögu í Reykjavík
nk. mánudag.
Á Akureyri og Húsavík munu
gestirnir skoða ýmis fyrirtæki,
m.a. Útgerðarfélag Akureyringa
hf. og Mjólkursamlag KEA.
Fulltrúi íslands og jafnframt for-
maður sjávarútvegsnefndar
Evrópuráðsins er Sigbjörn Gunn-
arsson, alþingismaður Norður-
landskjördæmis eystra.
Sigbjörn sagði í samtali við
Dag að ráðstefnan í Reykjvík á
mánudag væri merkileg fyrir
margra hluta sakir, t.d. hefði
ekki áður verið haldin ráðstefna
á vegum Evrópuráðsins hér á
landi. „Það hafa eins og kunnugt
er verið mikil átök um málefni
sjávarspendýra á alþjóðavett-
vangi og því þótti ráðlegt að
halda slíka ráðstefnu. Þetta verð-
ur fyrst og fremst upplýsinga-
fundur þar sem vísindamenn um
sjávarspendýr víðs vegar að úr
heiminum koma og gefa þing-
mönnum upplýsingar,“ sagði
Sigbjörn.
Sigbjörn var kosinn formaður
sjávarútvegsnefndar Evrópuráðs-
ins, sem er undimefnd landbúnað-
arnefndar Evrópuráðsins, á fundi
þess í Strassborg í byrjun þessa
mánaðar. Hann mun gegna for-
mennsku í nefndinni í að minnsta
kosti eitt ár. óþh
Meiðyrðamál Ólafs Sigurgeirssonar gegn Pétri Péturssyni heilsugæslulækni:
Læknirinn samdi sjálfur vamargreinargerð sína
- mun ekki hafa frekari afskipti af málinu né mæta til réttarhalda