Dagur - 02.06.1992, Page 5

Dagur - 02.06.1992, Page 5
Þriðjudagur 2. júní 1992 - DAGUR - 5 Helga Magnúsdóttir: Böm og trjárækt - hvernig má tengja þessa tvo vaxtarbrodda saman? Undanfarin misseri hafa augu okkar opnast æ betur fyrir því, að vellíðan mannsins byggist að miklu leyti á hreinu og gróður- ríku umhverfi. Síðastliðið vor tóku fóstrur á Akureyri upp þá nýbreytni, að fara með börn elsta árgangs skóladagheimilanna og leikskól- anna í útskriftarferðalag sem vert er að minnast. Ferðinni var heitið inn í Kjarna- skóg til þess að gróðursetja tré og njóta okkar góða útivistarsvæðis um leið og börnin voru í þann mund að kveðja skóladagheimil- ið eða leikskólann sinn. Haft var samráð við starfsmenn Skógrækt- arfclags Eyfirðinga sem tóku mjög vel á móti okkur. Bæði fyrir og eftir hádegi kom full rúta af börnum og nokkrar fóstrur og allir fengu plöntur og verkfæri til gróðursetningar. Var nú haldið meðfram niðandi læknum eftir gönguslóða gegn um skóginn að áfangastað. Eftirvænting og gleði ljómaði af hverju barni, það var svo gam- an að vera í skóginum og mark- miðið var líka hátt, það átti að „sveifla haka og rækta nýjan Úr útskriftarferðalaginu vorið 1991. skóg“. Nú er reyndar notað „prik" í stað haka. Litlu fæturnir dugðu ekki til þess að koma prik- inu nógu langt niður í jörðina, en því natnari voru hendurnar við að koma plöntunni ofan í holuna og hlúa vel að henni. Þarna vorum við líka saman á öllum aldri og samvinna kynslóðanna er nauð- synleg þegar ætlunin er að rækta skóg. Ein fóstran hafði á orði við hópinn sinn að þau skyldu tala vel við plönturnar þcgar þau væru búin að setja þær niður svo þær myndu nú dafna vel. Seinna þegar hún kom að einu barninu hjá plöntunni sinni, þá varð því að orði: „Tréð mitt getur ekki talað svo ég krossaði bara yfir það.“ Vonandi ber svo ljúfur aðbún- aður árangur, bæði fyrir íslensk- an skóg og íslenska æsku. í leik- skólunum reynum við að auka skilning ungu kynslóðarinnar á ntikilvægi ræktunar í landinu og að halda því hreinu. I lok ferðarinnar var nesti tek- ið upp og því gerð góð skil. Farið var í stóran hringleik og áður en hoppað var upp í rútuna fengu börnin öll kveðjuskírteini frá sín- um leikskóla eða skóladag- heimili. Ferðin í Kjarnaskóg tókst svo vel að ákveðið var að hafa sama háttinn á nú, þann 4. júní næst- komandi, þcgar næsti árgangur kveður leikskólann. Vertu til er vorid kallar á þig, vertu til að leggja hönd á plóg. Komdu út því að sólskinið vill sjá þig, sveifla haka og rækta nýjan skóg. Helga Magnúsdóttir. Höfundur cr leikskólastjóri í leikskólan- um Árholti á Akureyri. Fjórtán reyklausir dagar Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis hefurfarið þess á leit við Dag að blaðið birti leiðbeiningar til þeirra sem hættu að reykja á „Reyklausa daginn“ svonefnda 1. júní sl. Leiðbeiningar þessar taka tii fyrstu 14 daganna. Hér á eftir fara ráðleggingar sem gilda fyrir annan daginn, þ.e. þriðju- daginn 2. júní. Annar dagur Nú ertu laus við nikótín úr lík- amanum en að vísu ekki afleiðingarnar af reynslu þess. Nú hefst sá vandi að brjóta á bak aftur ávanann sem það hef- ur myndað og nú ferðu að læra hvernig það er að reykja ekki. Þú verður trúlega feginn því að hafa gegnið gegnum tilrauna- tímabilið. Sá tími dagsins sem þú gast áður verið án þess að reykja er nú eins og frímínútur frá reykingalönguninni. Hún hverfur skyndilega, og þá oftast á þeim tímum sem þú varst vanur að reykja ekki, og vaknar aftur þegar upp koma aðstæður sem þú varst áður vanur að fá þér reyk viö. Tilraunatímabilið hefur vænt- anlega líka kennt þér hvernig þú getur ráðið við skyndilega löngun í reyk. Sumir borða epli, aðrir gulrætur og sumir taka sér bók í hönd eða fara út á göngu. Einnig er mikil stoð í íþróttum, hljóðfæraleik, tómstundavinnu og öðru slíku sem tekur hugann allan. Það getur verið erfiðleikum bundið að einbeita sér á vinnu- stað eða við heimanám. En óþægindi þau sem gerðu vart við sig fyrsta daginn, eins og magapína, óróleiki og eirðar- leysi, fara brátt dvínandi. Sértu mjög taugaóstyrkur ættirðu ekki að aka bíl. Þeir sem tekið hafa þátt í hópum við að hætta að reykja skýra frá því að hafi menn fyrir- fram hlaðið sig rækilega af andúð gegn tóbaki, þá létti mörgum svo við að vera loksins hættir að fyrstu tveir til þrír dagarnir bjóði ekki upp á nein teljandi vandamál. Að sjálf- sögðu á þetta ekki viö alla, en langstærsti hlutinn og þar 'með taldir stórreykingamenn verða þess áskynja að annar dagur- inn verður furðu auðveldur. Eftirleiðis er ásetningurinn að hætta að reykja efst í huga manns og tiltölulega auðvelt að komast yfir þau fáu andartök sem löngunin í reyk veldur telj- andi erfiðleikum. En umfram allt er sú stað- reynd ánægjulegust að það geta liðið margar klukkustundir án þess að þú munir eftir því að þú hefir nokkurn tíma á ævinni snert á sígarettu. Bændur athugið! Tek aö mér alla girðingavinnu og ýmis smáverk. Vönduð vinna. Sanngjarnt verð. Upplýsingar í síma 11575, Jóhannes. Veiðileyfi í Hörgá Sala veiðileyfa í Hörgá Eyfjörð, sími 22275. Stjórnin. er í versluninni Breyttur afgreiðslutími Opnum kl. 10 alla virka daga Laugardaga opið kl. 10-14 Hrísalundi Stangveiðifélagið Flúðir tilkynnir: Óseld veiðileyfi í Fnjóská og Laxá á Refasveit eru til sölu hjá Eyfjörð við Hjalteyrargötu. Jafnframt viljum við minna þá á sem enn eiga ógreidda gíróseðla, að greiða þá strax. Stjórn Fiúða. Litlir bílar, stórir bílar, lyftubílar,skutlur Flytjum allt: Hvenær sem er og hvert sem er. Sendibílastöðin s/f Sími 22133.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.