Dagur - 02.06.1992, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 2. júní 1992
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
íbúðir óskast!
Viljum taka á leigu 2ja-3ja herbergja íbúðir fyrir
starfsmenn okkar.
Vinsamlega hafið samband við Vigni Sveinsson
aðstoðarframkvæmdastjóra F.S.A.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, sími 22100.
Viðskiptavinir
athugið!
Frá 1. júní verður opið í hádeginu virka
daga og laugardaga frá kl. 09.00-12.00.
UU EYFJÖRÐ
ý Hjalteyrargötu 4 - Sími 22275
Aðalftindur
SAMBANDS ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
verður haldinn föstudaginn 5. júní 1992
í Sambandshúsinu, Kirkjusandi.
Fundurinn hefst kl. 9 árdegis.
^SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
Staða framkvæmdastjóra
Kvikmyndasjóðs íslands
er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsækjendur skulu hafa háskólapróf og reynslu
af stjórnunarstörfum.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
starfsferil sendist menntamálaráðuneytinu fyrir
1. júlí 1992.
Menntamálaráðuneytið,
1. júní 1992.
Ferskar
fréttir með
morgunkaffinu
96-24222
Tónlist
Samsöngur í Akureyrar-
kírkju 24. maí 1992
„Gamlir Fóstbræður" og „Gamlir
Geysismenn“, en svo kalla þessir
kórar sig, héldu samsöng í kirkj-
unni á Akureyri sunnudaginn 24.
maí sl. Kórarnir sungu nokkur
lög hvor fyrir sig, svo og saman.
Söngstjórar voru Jón Þórarinsson
hjá Fóstbræðrum og Árni Ingi-
mundarson hjá Geysi. Sameigin-
legu lögunum stjórnuðu þeir til
skiptis. Undirleikari var Jónas
Ingimundarson og einsöngvarar
Aðalsteinn Jónsson, Kristinn
Hallsson og Örn Birgisson.
Flestir söngmanna voru vel yfir
sextugt, en einnig voru þarna
yngri menn, sem áður hafa sung-
ið með Fóstbræðrum eða Geysi,
en af ýmsum ástæðum flutt sig
yfir í „öldungadeildina“. Þeir
yngstu munu hafa verið um fer-
tugt og sá elsti 87 ára.
Karlakórar eiga nær 100 ára
hefð hér á landi, en síðustu ára-
tugi hafa þeir átt nokkuð undir
högg að sækja. M.a. er því haldið
fram að karlakór sé einhæft
hljóðfæri. Möguleikar hans til
tjáningar á tónlist séu harla tak-
markaðir. Þetta er að sjálfsögðu
rétt og er nóg til stuðnings þessari
kenningu að benda á hið tak-
markaða tónsvið, raddsvið karla-
radda. Það út af fyrir sig setur
viðfangsefnum karlakóra þröng-
ar skorður.
En það er löng leiðin til keisar-
ans og langur vegur frá rímna-
kveðandi til fjölbreytilegra tján-
ingarforma tónlistar. Sá vegur
varð ekki farinn á einum degi. Á
þeirri leið hefur fjölraddaður
söngur, og ekki síst karlakór,
verið íslendingum nauðsynlegur
skóli eða áfangi á langri vegferð.
Hann var líka hægt að stunda alls
staðar án þess að gera kröfur um
húsakynni og aðra sérstaka
aðstöðu.
Auk þess er karlakórssöngur
sérstakt, klassískt form tjáningar
á þeirri tónlist, sem karlakór hæf-
ir og í höndum þess, sem þekkir
takmörk hans. Engin ástæða er
til að fella hann alveg niður.
Hann á að geta lifað góðu lífi við
hlið annarra tónlistarforma. Og
tæpast getur ljúfari hljóm úr
neinu hljóðfæri en mannsrödd
getur verið.
Samsöngur þeirra félaga úr
Fóstbræðrum og Geysi sunnu-
daginn 24. maí sl., bar flest þau
einkenni, sem karlakórssöng geta
prýtt. Söngskráin bar glögg merki
þeirra, sem vita hvað karlakór
getur og hvað hann getur ekki.
Jafnvægi milli radda og samtök
voru í góðu lagi. Falskir tónar
eða hjáróma raddir heyrðust
ekki. Textinn var mjög hafður
með í ráðum um túlkun laganna,
bæði hljóðfall og merking orða.
Raddgæði og raddmagn hópsins
voru frábær og síðast, en þó
framar öllu, sönggleðin. Þessi
djúpa gleði og samkennd, sem
skapast við samsöng með góðum
félögum og á góðri stund.
Þessa sérstöku tilfinningu,
sönggleðina, skynja þeir og skilja
best, sem hafa sjálfir tekið þátt í
að skapa hana. Á samsöngnum
sl. sunnudag var hún til staðar í
öllu sínu veldi og duldist engum.
Hún sást, hún heyrðist, hún
fannst því að hún bókstaflega
streymdi frá söngmönnum til
áheyrenda frammi í kirkjunni.
Þegar þeim skilyrðum, sem ég
hef hér nefnt, er fullnægt getur
árangur aðeins orðið á einn veg,
sé maður á annað borð hlynntur
karlakórssöng: Sem sé ágætur.
Mér leið afskaplega vel meðan á
samsöngnum stóð, og ég hafði
það á tilfinningunni að sama gilti
um aðra áheyrendur svo og um
söngmennina sjálfa. Ég flyt
þeim, söngstjórum, einsöngvur-
um og undirleikara kærar þakkir
fyrir daginn.
Þóroddur Jónasson.
Fyrsta píanóhátíðin:
Tónleikar Kanmier-
Wjómsveitar Akureyrar
Fyrstu píanóhátíðinni, sem haldin
hefur verið á íslandi og sem stóð
á Akureyri dagana 23. til 25. maí,
lauk með tónleikum Kammer-
hljómsveitar Akureyrar mánudag-
inn 25. maí. Stjórnandi var Guð-
mundur Óli Gunnarsson og kons-
ertmeistari Anna Podhajska.
Fyrsta verkið á efnisskrá
hljómsveitarinnar var Konsertínó
fyrir píanó og hljómsveit eftir
John Speight. Einleikari á píanó
var Þórarinn Stefánsson.
Verkið skiptist í kaflana
Allegro, Sostenuto og Allegro
burlescamente. í því notar tón-
skáldið hluta úr klassískum verk-
um með skemmtilegum og fjöl-
breyttum hætti og verður úr
skemmtileg, gamansöm tónlist.
Leikur Þórarins Stefánssonar
var glæsilegur. Hann dró fram
blæbrigði verksins af öryggi og
festu og nýtti glæsilega og af
mikilli tækni getu hljóðfærisins til
túlkunar og litunar.
Strengjahlutar kammerhljóm-
sveitarinnar komu mest við sögu
í flutningi þessa verks. Auk
þeirra léku eitt enskt horn og
tvær þverflautur og skiluðu sín-
um hluta flutningsins vel.
Frammistaða strengjaleikar-
anna var með því allra besta, sem
til þeirra hefur heyrst. Gallar
voru fáir og smáir og sem næst
engir eftir fyrsta kafla verksins.
Sostenuto-kaflinn, sem er mjúk-
ur og ljóðrænn, var sérlega fal-
lega leikinn og einnig var loka-
kaflinn prýðilega leikinn, hraður
og fjörlegur.
Annað verk tónleikanna er eft-
ir Oliver Kentish og heitir
Myrkraverk. Það er skrifað fyrir
blásarasveit einungis. í því nýtir
höfundur ýmsa óvenjulega
möguleika hljóðfæranna á snyrti-
legan hátt. Uppbygging verksins
er fjörleg og leikandi og talsvert
hugmyndarík.
Blásarasveitinni tókst almennt
vel í flutningi þessa verks. Leikur
hennar var langoftast öruggur og
ákveðinn og samhæfing í góðu
lagi. Einna helst fremst í verkinu
og undir lokin skorti dálítið á, að
hljóðfæraleikararnir væru svo
samstíga sem æskilegt hefði
verið. Hljómur blásaranna var
góður jafnt í tréblásurum sem
málmblásurum og bar tæplega
skugga á.
Það var skemmtilegt að eiga
þess kost að heyra tvo höfuðhluta
kammerhljómsveitarinnar,
strengi og blásara, hvorn í sínu
lagi. Af almennri frammistöðu
þeirra má ljóslega sjá, að efnið til
góðra hluta er til í hljómsveit-
inni.
Lokaverk tónleika Kammer-
hljómsveitar Akureyrar að þessu
sinni var Recitation - Concerto
serpentinata eftir Atla Heimi
Sveinsson. í þessu verki, sem
skrifað er fyrir píanó og hljóm-
sveit, var hljómsveitin aukin að
slagverki. Einnig bættust við þrír
söngvarar, Dagný Pétursdóttir,
sópran, Þuríður Vilhjálmsdóttir,
alt, og Michael Jón Clarke,
baritón.
Einleikari á píanó var Kristinn
Örn Kristinsson. Hann skilaði
sínum hluta glæsilega og hafði þó
iðulega ekki um auðveld eða*
hefðbundin atriði að fjalla. Slíkt
virtist ekki í neinu vefjast fyrir
honum, heldur var frammistaða
hans öll fumlaus og ákveðin.
Þetta verk Atla er nær örugg-
lega það allra torveldasta, sem
Kammerhljómsveit Akureyrar
hefur tekist á við. Það er því ekki
lítið ánægjuefni að geta sagt, að
flutningur hljómsveitarinnar,
einstakra hljóðfæraleikara, sem
áttu stuttar einleiksstrófur, og
söngvaranna var góður. Innkom-
ur voru almennt þéttar og
ákveðnar, greinileg feiltök afar
fá, túlkunaratriði, svo sem
þróttur, snerpa, samhæfni og
áherslur einstakra hljóðfæra og
hljóðfæraflokka og fleira skiluðu
sér vel. Allt þetta er sagt með því
fororði, að undirritaður hefur
ekki heyrt þetta verk fyrr, var
ekki með partitúr og byggir því
einungis á þessari einu hlustun.
Guðmundur Óli Gunnarsson,
stjórnandi hljómsveitarinnar á
þessum tónleikum, var glæsilegur
í hlutverki sínu. Taktslag hans
var öruggt, ákveðið og blæ-
brigðaríkt, bendingar hans um
innkomur, brag og önnur túlkun-
ar- og flutningsatriði ákveðin og
greinileg. Að öðrum ólöstuðum
er það vafalaust, að flutningur
Kammerhljómsveitar Akureyrar
á lokatónleikum píanóhátíðar-
innar var svo góður sem raun ber
vitni ekki síst fyrir styrka hönd
hans á tónsprotanum.
Guðmundur Óli hefur verið
ráðinn skólastjóri Tónlistarskól-
ans á Akureyri og tekur við því
starfi undir lok sumars. Hann er
boðinn velkominn með von um,
að traust tök hans á Kammer-
hljómsveit Akureyrar muni
endurspeglast í stjórn hans á
skólanum.
Haukur Ágústsson.