Dagur - 02.06.1992, Síða 15
Þriðjudagur 2. júní 1992 - DAGUR - 15
Sveitadvöl á vegum Landverndar:
„Ætti að vera eðlilegur þáttur í skólagöngu hvers bams“
- litið við í Lauftúni
Börnin skoða fíðurféð
Sveitadvöl borgarbarna er
nokkuö sem tíðkast hefur um
áratugaskeiö, en þó virðist
hafa dregið úr henni að undan-
förnu. A síðasta ári var því
hafist handa við tilraunaverk-
efni í þessum málum að til-
stuðlan Landverndar. Fjörutíu
nemendur úr Austurbæjar-
skóla í Reykjavík, á aldrinum
9-11 ára, dvöldust þá í tíu daga
á sveitarbæjum og kynntust líf-
inu eins og það gengur fyrir sig
í sveitinni. I vetur var síðan
ákveðið að halda verkefninu
áfram og á vordögum bauðst
100 krökkum í flmmta bekk
fjögurra skóla í Reykjavík, að
halda út í sveitir landsins.
Annar hópurinn úr Austur-
bæjarskóla dvaldist í átta daga
í Lauftúni í Skagaiirði og Dag-
ur leit þar við að morgni þriðja
dags dvalarinnar.
Bærinn Lauftún stendur rétt
hjá Varmahlíð og hefur verið
rekin ferðaþjónusta þar síðustu
þrjú árin. Indríður Indriðadóttir
og Jósafat V. Felixsson, ábúend-
ur í Húsey, sjá um rekstur ferða-
þjónustunnar, en Felix, sonur
þeirra og hans kona önnuðust
Landverndar-hópinn með þeim.
Lauftún var ekki eini bærinn á
Norðurlandi sem tók þátt í verk-
efninu að þessu sinni, heidur var
annar hópur í Sölvanesi í Lýt-
ingsstaðahreppi í Skagafirði.
Langskemmtilegast
á hestbaki
Pegar blaðamann bar að garði
voru tveir sprækir drengir að þvo
upp og ganga frá í eldhúsinu eftir
morgunmatinn. Hin ellefu voru
að búa sig undir að fara út og
reyta gras frá trjáplöntum við
húsið.
„Þau eru búin að sjá nýfædd
folöld og lömb, en hafa nú ekki
hitt á fæðingu ennþá. Síðan fóru
drengirnir og renndu fyrir silungi
í gærkvöld og veiddu tvo titti, en
í gær fóru þau líka á hestbak og
það þótti þeim mjög skemmti-
legt. Enn sem komið er eru þau
öll mjög áhugasöm og finnst voða
gaman.“ Sagði Nína Magnús-
dóttir, kennari krakkanna
þrettán, en einn kennari fylgdi
með hverjum hópi í sveitardvöl-
ina.
Ekki var heldur annað að
heyra á borgarbörnunum en
þeim þætti gaman í sveitinni og
sögðu þau að langskemmtilegast
væri að fara á hestbak. Þau sögð-
ust líka vera alveg sátt við að
mega ekki hlusta á vasadiskó,
horfa á sjónvarp eða borða sæl-
gæti, en allt slíkt er á bannlista
Landverndar.
Allir mjög ánægðir
„Við erum í þessu verkefni í sam-
starfi við Kennarasamband
Islands, Stéttarsamband bænda,
landbúnaðarráðuneytið og
menntamálaráðuneytið. í fyrra
fengum við styrk til þessa úr
Framleiðnisjóði, frá mennta-
málaráðuneytinu og frá Kennara-
sambandinu. Allir voru mjög
ánægðir með hvernig til tókst og í
ljósi þess langaði okkur til að
víkka þessa tilraun út, þannig að í
ár eru þetta tæplega hundrað
börn sem skiptast niður á átta
bæi. Með hverjum hópi fylgir
kennari, en heimamenn taka
einnig að sér launaða leiðsögn í
sveitinni,“ segir Svanhildur
Skaftadóttir, hjá Landvernd.
Breytt náttúrufræði-
kennsla
Að sögn Nínu Magnúsdóttir, var
náttúrufræðikennslu í Austurbæ-
jarskóla breytt í kjölfar þessa til-
raunaverkefnis Landverndar í
fyrra og skipt úr líffræði yfir í
húsdýr, fugla, fiska og plöntur.
„Það virtist ekki vera vanþörf á
að breyta kennslunni í náttúru-
fræðinni, því við fengum mörg
skringileg svör þegar við fórum
að spyrja krakkana út í húsdýrin.
Ég held þess vegna að mér sé
óhætt að fullyrða að þau græða
mikið á dvöl sem þessari í sveit-
inni, því hér kynnast þau þessu
öllu af eigin raun,“ sagði Nína.
Hafragrautur í morgunmat
Ekki virtist örla á matvendni hjá
krökkunum í Lauftúni og að sögn
þeirra fullorðnu borðuðu flest
þeirra meira að segja hafragraut í
morgunmat og sneiddu framhjá
aðkeyptu kaffimeðlæti.
„Það er mjög gaman að fá
þessa krakka hingað, því þau
sýna öllu áhuga og vilja fá að vita
allt og taka þátt í öllu. Þau borða
allt sem sett er fyrir þau og ennþá
hafa þau ekki getað látið sér leið-
ast, heldur verið virkilega
spennt. Það eina sem kemur
manni samt sérstaklega á óvart er
hversu mjög þau þreytast á að
ganga smáspöl hérna á milli
húsa,“ sagði heimilisfólkið í Hús-
ey um heimsóknina.
Merk nýjung í skólastarfi
Svanhildur hjá Landvernd segist
ekki vita hvort framhald verði á
þessari tilraun á næsta ári, en
greinilegt sé að þörfin sé fyrir
hendi.
„Þetta er náttúrlega óskaplega
dýrt, því við greiðum þetta það
mikið niður að foreldrarnir þurfa
ekki að greiða nema átta þúsund
krónur fyrir barnið í þessari átta
daga dvöl. Við vitum ekki hvern-
ig styrkjum til okkar verður hátt-
að í ár og þaðan af síður hvort
um eitthvað slíkt verður að ræða
á næsta ári. Hins vegar finnst okk-
ur hjá Landvernd að þetta ætti í
rauninni að verða eðlilegur þátt-
ur í skólagöngu hvers barns; að
þau fái tækifæri til að upplifa
sveitina og ekki síst að vori til.
Spurningin er hvort skólarnir geti
á einhvern hátt komið inn í þetta,
en við höfum að minnsta kosti
fullan hug á að halda þessu
áfram, enda höfum við fengið
þau viðbrögð frá foreldrum, að
börnin þeirra hafi lært á þessum
tíu dögum í fyrra. meira um nátt-
úru og umhverfi en á allri sinni
stuttu ævi. Ennfremur vilja for-
eldrar halda fram að þetta sé merk-
asta nýjung í skólastarfi sem
komið hefur fram um árabil. Við
viljum því gjarnan halda þessu
áfram, en allt ræðst þetta af fjár-
inagni," segir Svanhildur.
Fróðari til baka
Eftir að hafa fylgt krökkunum í
fjárhúsin í Húsey, þar sem
nýfædd lömb voru tekin í fangið
fyrir myndatöku, yfirgaf blaða-
maður þennan hressa hóp. Af
fjöri barnanna að dæma hafa þau
ekki látið sér leiðast þá fimm
daga sem eftir voru af dvölinni og
eflaust komið töluvert fróðari til
baka í höfuðborgina. Hvort þau
hafa þá byrjað á að fara í sjoppu
og kaupa sér nammi, skrúfa upp í
vasadiskóinu og setjast fyrir
framan sjónvarpið, skal ekki fjöl-
yrða um hér, en svo mikið er víst
að sveitardvölin hefur ekki gert
þeim neitt nema gott. SBG
Minning______________________________
‘jr* Björgvin Th. Jónsson
Fæddur 22. febrúar 1921 - Dáinn 4. maí 1992.
Erindi um fiiglalíf í
óshólmum Eyjaflarðar
Nú er hann farinn. Elsku afi
okkar. Það er einkennilegt til
þess að hugsa að framvegis þegar
maður kemur í heimsókn í Víði-
lund 24, kemur enginn hjólbein-
óttur afi á móti manni, með
tuskuna á lofti. Þótt Björgvin
hafi ekki verið raunverulegur afi
okkar, reyndist hann okkur samt
sem áður hinn besti afi.
Sérstaklega er okkur minnis-
stætt hve natinn hann var við
okkur sem krakka og virtist alltaf
gefa sér tíma til að leika við
okkur. Vinkonur okkar töluðu
mikið um hve heppnar við værum
að eiga svona góðan afa.
Hann virkaði á okkur sem
mjög lífsglaður maður. Var mjög
duglegur að stunda líkamsþjálfun
og hugsaði mjög mikið um að
borða hollan og næringarríkan
mat, og reyndi hann alltaf að
miðla til okkar hve gott og.heilsu-
samlegt það væri.
Einnig er okkur mjög minnis-
stætt þegar afi og amma komu í
heimsókn að hann virtist alltaf
þurfa að hafa eitthvað fyrir
stafni. Ýmist var hann að hjálpa
mömmu við heimilisstörfin eða
úti í garði að slá og klippa.
Það sem okkur þótti einna
vænst um og eigum eftir að sakna
eru vísurnar sem afi og amma
skrifuðu alltaf í afmæliskortin
okkar. En það er víst eitt af því
sem maður verður að sætta sig
við þegar ástvinir manns deyja.
En allar þessar góðu minningar
sem við eigum um afa munu
fylgja okkur gegnum lífið þar
sem hann hefur verið svo mikil-
vægur hluti af því.
Élsku amma, við vonum að
góður guð eigi eftir að veita þér
styrk, því við vitum að þú átt
margar fallegar minningar um afa
sem munu ylja þér um hjartaræt-
ur um ókomna framtíð.
Astarkveðjur,
Eva Björg Guðmundsdóttir,
Þorgerður Kristín Guðmunds-
dóttir.
Ævar Petersen, fuglafræðing-
ur, hefur mörg undanfarin ár
rannsakað fuglalíf við Akur-
eyrarflugvöll og í óshólmum
Eyjafjarðar. Ahugahópur unt
náttúrufræði hefur fengið hann
til að segja frá rannsóknum
sínum og lýsa fuglalífinu í máli
og myndum á fundi á Hótel
KEA miðvikudagskvöldið, 3.
júní kl. 20.30.
Óshólmar Eyjafjarðarár eru á
náttúruminjaskrá og hefur nokk-
uð verið rætt um að koma þar
upp friðlandi eða fólkvangi og
nýta þá bæði sem fuglafriðland
og útivistarsvæði. Fyrir nokkrum
árum efndi Umhverfisnefnd
Akureyrar til fundar með land-
eigendum um þessi mál. Ævar
Petersen er reiðubúinn að svara
fyrirspurnum um þessar hug-
myndir, einkum að því er varðar
fuglalífið, og er ástæða til að
hvetja alla þá sem hafa áhuga á
þessu svæði, að mæta á fundinn.
Aðgangur er ókeypis að öðru
leyti en því að fundarntenn
kaupa veitingar í fundarhléi.
Úrslit í bygginga-
samkeppni LEGO
Úrslit í hinni velheppnuðu bygg-
ingasamkeppni LEGO á Akur-
eyri.
1. verðlaun Líney Úlfarsdóttir,
12 ára.
2. verðlaun Hörður Þór Rafns-
son, 10 ára.
3. verðlaun Jón Geir Sveinsson,
8 mánaða.
Bestu þakkir til allra þátttak-
enda frá LEGO, Leikfangamark-
aðnum París og Vöruhúsi KEA.