Dagur - 11.08.1992, Blaðsíða 2

Dagur - 11.08.1992, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 11. ágúst 1992 Fréttir „Venjuleg sveitaverk í smáum stQ“ - segir Sigríkur Jónsson starfsmaður á Gauksmýri Á Gauksmýri í V-Húnavatns- sýslu hefur verið rekið sambýli fyrir þroskahefta frá ársbyrjun 1991. Þar var tekinn upp kúabúskapur í sumar og sjá vistmenn um kýrnar og vinna afurðir úr mjólkinni. Þetta hefur reynst mjög vel. Svæðisstjórn um málefni fatl- aðra á Norðurlandi vestra rekur sambýlið á Gauksmýri. Heimilið getur hýst sex vistmenn, en þessa stundina eru þeir fjórir. Þeir eru á aldrinum 17-45 ára. Starfsmenn eru fimm talsins. Sigríkur Jóns- son starfsmaður á Gauksmýri tjáði blaðinu að í vor hefði heim- ilið eignast tvær kýr og væru þær handmjólkaðar. Mjólkin er nýtt til neyslu á heimilinu, rjóm- inn fleyttur af henni og einnig unnin úr henni súrmjólk. Fengist hefur loforð fyrir skilvindu og ef til vill fylgja fleiri framleiðslutæki í kjölfarið þannig að í framtíð- inni gætu heimilismenn framleitt eigið skyr og smjör. Umhirða kúnna og afurðanna gefur vist- mönnum eitthvað til að vinna við og veitir þeim ánægju um leið. Bændur í nágrenninu hafa verið heimilismönnum innanhandar með að heyja handa kúnum. sþ Húsavíkurlögreglan: Óknvltir í bæmim - slys við Dettifoss Allmikiö var um að vera hjá lögreglunni á Húsavík um helgina. Ungmenni voru að skemmta sér með tilheyrandi látum. Þó nokkuð bar á skemmdarverkum og víða var þvotti stolið af snúrum og öðru sem hönd á festi. Síðdegis var tilkynnt um slys við Dettifoss. Þýsk kona var þar í skoðunarferð og datt hún í stór- grýti og fékk höfuðáverka. Hún var flutt með sjúkrabíl til Húsa- víkur en meiðsl hennar voru ekki talin alvarleg. Einn maður var fjarlægður úr fjörinu á Húsavík aðfaranótt sunnudags og fékk hann gistingu hjá lögreglunni. í gær valt bíll í Ljósavatns- skarði. Engin slys urðu á fólki en bíllinn, sem er nýr, skemmdist töluvert. SS Mynd: GG Nýstárleg veiði: Urriði, fylltur með mús! Helv... kötturinn étur allt, var haft eftir Bakka- bræðrum en skyldi það sama gilda um urriða? Einar Ingi Einarsson var við veiðar í Eyjafjarð- ará sl. föstudag og fékk 2 urriða og 17 bleikjur. Við vestustu brúna yfir Eyjafjarðará fékk hann annan urriðann, U/2 punda, og var hann miklu gráðugri en hinn. Þegar gert var síðan að fiskinum kom í ljós að urriðinn hafði gleypt heila mús sem ekki virtist vera farin að meltast. Hvernig leiðir músarinnar og urr- iðans hafa legið saman er sjálfsagt ærið rannsóknar- efni. GG Bflvelta við Blönduós BOvelta varð skammt frá Blönduósi á laugardag. Far- þegar sluppu ómeiddir. Bíll valt á laugardag við Hjalta- bakka sem er skammt frá Blöndu- ósi. Þrennt var í bílnum og sluppu allir ómeiddir. Að öðru leyti var helgin slysalaus að sögn lögreglunnar á Blönduósi. sþ Akureyri: Skortir múrara „Við erum nú bara að auglýsa eftir múrurum í tímabundið verk. Það er talsvert um sumarfrí hjá múrurum hér núna og þess vegna gripum við til þess að auglýsa,“ sagði Aðalgeir Finnsson bygginga- verktaki á Akureyri í samtali við Dag í gær, aðspurður um auglýsingu sem birtist í Morg- unblaðinu um helgina. Auglýst var eftir múrurum til vinnu á Akureyri sem hefði mátt teljast til tíðinda þar sem fyrir örfáum árum fréttist af því að þeir flyttu úr bænum vegna verk- efnaskorts. Aðalgeir sagði að þá hefði vantað fjórar múrara í um mánaðar tíma og fengu þeir góða svörun. „Það hefur verið hringt mikið, aðallega frá höfuðborgar- svæðinu," sagði Aðalgeir. VG Akureyri: ítarleg skiltareglugerd lítur dagsins ljós í dag kl. 10 verður almennur kynningarfundur í Húsi aldr- aðra á Akureyri um reglugerð um staðsetningu og gerð aug- lýsingaskilta á Akureyri. Að undanförnu hefur geysað „skiltastríð“ á Akureyri og sömdu bæjarlögmaður, skipu- lagsstjóri og byggingafulltrúi bæjarins reglugerðina í fram- haldi af því. I reglugerðinni er skiltum skipt upp í nokkra flokka. Þjónustuskilti svokölluð má eigandi eða umráðamaður lóðar setja upp án leyfis, enda séu þau innan leyfðra stærðarmarka. Bannað er að setja upp auglýs- ingaskilti nema á þar tilgreindum stöðum. Uppsetning svokallaðra rat- merkja er bönnuð, en þó er heimilt að setja upp leiðbeingar- kort af bænum, einstökum bæjarhlutum eða hverfum, á þeim stöðum sem byggingar- nefnd ákveður í samráði við skipulagsstjóra. Bráðabirgðaskiltum er skipt upp í tvo flokka. Annars vegar viðburðaskilti (skilti eða auglýs- ing sem tengist nákvæmlega tímasettum viðburðum) og hins vegar lausaskilti (skilti eða aug- lýsing sem ekki eru með varan- legum festingum við jörð eða mannvirki). Viðburðaskiltin er heimilt að setja upp með leyfi byggingarfulltrúa. Lausaskiltin er aðeins heimilt að setja upp á eig- in lóð. í kafla reglugerðarinnar um umsóknir og leyfisveitingu segir að hver sá sem óski leyfis til að Togarinn Frosti landaði um 60 tonnum af blönduðum afla á Slippstöðin: Bylgja seld tll írlands Slippstöðin hefur gert samning um sölu á Bylgju VE til írlands. Stöðin tók þetta skip upp í nýtt sem smíðað var fyrir Matthías Óskarsson, útgerð- armann í Vestmannaeyjum, en Bylgja skemmdist mikið í eldi á sínum tíma. hanna eða koma fyrir skilti skuli skila skriflegri og undirritaðri umsókn til byggingarfulltrúa. Eftirlit með skiltum er í hönd- um byggingarfulltrúa. Grenivík fyrir helgina. Ásgeir Arngrímsson, framkvæmda- stjóri Kaldbaks hf., segir að tekist hafi í sumar að halda uppi 8-10 tíma vinnslu í húsinu á dag þrátt fyrir að engin afla- hrota hafi komið. „Það er frekar rólegt yfir öllu. Aflinn er minni en verið hefur að sumarlagi undanfarin ár og það vantar þessa þenslu sem oft hefur komið yfir sumartímann. Fram- boðið á mörkuðunum er líka minna, t.d. á markaðnum á Dalvík, en það sem heldur því uppi er fiskur sem kemur af rækjubátunum," sagði Asgeir. Hann segir að annað slagið í sumar hafi náðst 10 tíma vinna í Skák Þau auglýsingaskilti á Akur- eyri sem sett hafa verið upp án leyfis ber hlutaðeigandi að fjar- lægja innan þriggja mánaða frá gildistöku reglugerðarinnar. óþh húsinu á dag. „Það sem af er árinu hefur þó heldur minna farið í gegnum húsið af fiski en í fyrra. Við reiknuðum með að í ár kæmi einhver aflahrota en hennar er beðið enn og menn fara að verða svartsýnir á að hún komi því oft hefur aflinn verið mun betri í kringum verslunarmannahelgina en núna.“ Þó víða hafi skólafólk mátt sætta sig við að missa vinnuna strax í ágúst segist Ásgeir ekki sjá annað en unga fólkið hafi vinnu út sumarið. „Ég held að skóla- fólk hér á svæðinu hafi fengið hér vinnu og við höfum tekið fólk af Akureyri líka. Við reynum að halda þeim dampi að þetta fólk hafi vinnu út sumarið.“ JÓH Kaldbakur á Grenivík: Næg vimia þrátt fyrir minni fisk en oft áður Utvegsmenn á Norðurlandi Útvegsmannafélag Norðurlands boðar til fundar að Hótel KEA Akureyri, miðvikudaginn 12. ágúst nk. kl. 13.00. Dagskrá: Staða útgerðar. Þingmenn í Norðurlandskjördæmi eystra og vestra eru boðaðir á fundinn. Stjórnin. Skákfélag Akureyrar: Amar efstur í göngugötumóti Að sögn Knúts Karlssonar, stjórnarformanns Slippstöðvarinn- ar, er eini fyrirvarinn í samningn- um við írska aðilann að skipið standist bolskoðun en hún fer fram nú í vikunni. Slippstöðin mun lagfæra rafmagn í skipinu áður en það verður afhent. Kaupverð segir Knútur að sé um 13 milljónir króna. Gangi allt að óskum mun stöð- in líka á næstunni selja Þórunni Sveinsdóttur til ísafjarðar en útgerðaraðilinn er þessa dagana að leysa úr úreldingarmálum þannig að af kaupum geti orðið. Hið árlega göngugötumót Skákfélags Akureyrar fór fram föstdaginn 7. ágúst sl. í blíð- skaparveðri. Tólf skákmenn tefldu eins og venja er. Teflt er um bikar sem Bókabúð Jónas- ar gaf. Keppni var mjög hörð og spennandi. Það var Arnar Þorsteinsson sem hampaði bikarnum að lokum en efstu menn urðu þessir: 1. Arnar Þorsteinsson 10>/2 v. 2. Rúnar Sigurpálsson 9'/2 v. 3. Skafti Ingimarsson 7’/2 v. 4. Smári Rafn Teitsson 7 v. 5. Bogi Pálsson 6I/2 v. Mótið þótti takast vel í alla staði og stöldruðu fjölmargir veg- farendur við skákborðin og ígrunduðu stöðuna. SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.