Dagur - 11.08.1992, Blaðsíða 11

Dagur - 11.08.1992, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 11. ágúst 1992 - DAGUR - 11 HÉR & ÞAR Hvaða drasl? Þetta er list! Skyldi listamanninn Rob Mulhol- land þyrsta eftir að hafa fullgert listaverk, sem er 300 feta langt „líkan“ af manni gert úr 300 þús- und bjór- og gosdósum úr áli? Rob gerði þetta líkan sitt skemmtigarði í Glasgow í Skot- landi og þurfti að leita á náðir ýmissa aðila til að safna þessum fjölda dósa og oftar en ekki varð hann að sækja dósirnar á bjór- stofur, skemmtistaði eða á heim- ili og því talsverðir snúningar við að útvega sér efnið til listsköpun- ar. Það er því ekki sóðaskapur og drasl sem mætir gestum þessa skemmtigarðs heldur list, eða hvað? Selst á hálfviröi Nærri400kg ogþví bjargað á lyftara! Hinn 42ja ára Kaliforníubúi, Mitch Mitchell, datt í íbúð sinni sem er á annarri hæð í sambýlis- húsi og sneri sig um hnéð þannig að hann þurfti á læknisaðstoð að halda. Það hefði ekki verið vandamál ef Mitch væri ekki 370 kg að þyngd og því þurfti að grípa til annarra aðgerða. Sjúkraliðarnir sendu því eftir vörulyftara til að ná Mitch niður úr íbúðinni og koma honum á sjúkrahús. En til þess að koma Mitch upp á lyftár- ann þurfti að fjarlægja húsgögn úr íbúðinni, síðan var honum velt upp á ábreiðu sem lögð var ofan á dýnu sem sérstaklega er hönn- uð til að flytja í þunga hluti. Skera þurfti úr járnhandriði fram við íbúðina til að koma lyftaran- um að og þá gátu átta sjúkralið- ar, tveir varðstjórar, tveir læknar og bílstjóri komið honum út úr íbúðinni. Og þessi óvenjulegi sjúkraflutningur tók „aðeins“ tvo og hálfan tíma! Það er allt reynt í bílabraskinu og ósjaldan reyna menn að prútta um verð. Heill bíll fer á einu verði hálfur bíll á helmingi lægra verði. Þessi bíll lenti í árekstri og frampartur hans eyðilagðist. Ein- hverjum glaumgosanum fannst við hæfi að setja á hann auglýs- ingu: Fæst á hálfvirði! Vinning laugard (5)( (24 ■tóiur 8. ágúst ’92 I Í6)í 8. (3) VINNINGAR VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af5 0 2.461.432.- 2. 4a7ld W 6 71.216,- 3. 4af5 117 6.299,- 4. 3af5 4.030 426,- Heildarvinningsupphæð þessa viku: 5.342.491.- BIRGIR UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI91-681511 LUKKULlNA 991002 Á AKUREYRl Kaupvangsstræti 16 auglýsir inntöku nýrra nemenda í fornámsdeild veturinn 1992-1993. Allar nánari upplýsingar veittar í síma 96-24958. Umsóknarfrestur er til 26. ágúst. Skólastjóri. Hreppsnefnd Grýtubakkahrepps auglýsir eftir hugmyndum að merki fyrir sveitarfélagið Keppnislýsing fæst afhent á skrifstofu Grýtubakka- hrepps, gamla skólahúsinu, 610 Grenivík, sími 96- 33159. Skilafrestur er til 15. október 1992. Þrenn verðlaun verða veitt, samtals að upphæð 170.000 kr. Flugið er heillandi tómstundagaman fyrir fólk á öllum aldri Getum enn bætt við nemendum. Fyrirhugað er bóklegt einkaflugmannsnámskeið í haust, ef næg þátttaka fæst. Flugskóli Akureyrar, Akureyrarflugvelli, sími 12105. Ágúst Magnússon, heimasími 11663. Framtíðarstarf Aðstoðarstúlka óskast á tannlæknastofu. Áhugasamar leggi inn umsókn í afgreiðslu Dags fyrir 20. ágúst, merkt: Jaxlar. FISKVINNSLUDEILDIN DALVÍK Framhaldsskólakennarar Sjávarútvegsdeildina á Dalvík-VMA vantar kennara í eftirtaldar greinar: Ensku, dönsku, tölvufræði, bókfærslu og rekstrar- hagfræði. Upplýsingar í símum: 96-61380 og 96-61162. Skólastjóri.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.