Dagur - 20.08.1992, Blaðsíða 11

Dagur - 20.08.1992, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 20. ágúst 1992 - DAGUR - 11 IÞRÓTTIR Mjólkurbikarinn: „Dagsforaiið skiptir mestu máli“ - segir Bjarni Jónsson, fyrirliði KA, um úrslitaleikinn í Mjólkurbikarnum á sunnudaginn kl. 15.00 KA og Valur leika til úrslita um Mjólkurbikar KSÍ, sunnu- daginn 23. ágúst kl. 15.00 á Laugardalsvellinum. Þetta er í fyrsta skipti sem KA kemst þetta langt í bikarkeppninni, en þess má geta að nokkrir KA-Ieikmenn spiluðu í liði IBA sem sigraði í þeirri keppni 1969. Valsmenn hafa hins veg- ar unnið Mjólkurbikarinn undanfarin tvö ár og eru því verðugir andstæðingar KA. Bjarni Jónsson, fyrirliði KA, er hvergi banginn fyrir leikinn: „Valsmenn eru með besta liðið í deildinni um þessar mundir og hafa verið að spila mjög góða knattspyrnu. í bikarkeppninni er hins vegar allt annað uppi á ten- ingnum, dagsformið skiptir þar máli en ekki staðan í deildinni," sagöi hann. Sævar Jónsson, fyrir- liði Vals, var sammála þessu og sagðist búast við hörkuleik. „KA-menn hafa lagt sterk lið að velli þannig að búast má við jöfn- um og spennandi leik á sunnu- daginn." KA stillir upp sínu sterkasta liði Gunnar Gíslason, leikmaður og þjálfari KA, kvaðst vera bjart- sýnn fyrir leikinn. „Við höfum átt við mikil meiðsl að stríða en menn eru smám saman að skríða saman þannig að ég vona að við getum stillt upp okkar sterkasta liði gegn Val. Eg vona að stuðn- ingsmenn okkar flykkist á völlinn á sunnudaginn og miðað við stemmninguna í bænum að undanförnu á ég von á a.m.k. 1000 öflugum KA-aðdáendum í stúkuna í Laugardalnum á sunnudaginn. Ingi Björn Alberts- son, þjálfari Vals, var hóflega bjartsýnn fyrir hönd sinna manna. „Við höfum titil að verja þannig að pressan er á okkur. Allir okkar leikmenn eru hins vegar heilir og við mætum því sterkir til leiks, án þess þó að vanmeta KA-liðið.“ Leikurinn getur þýtt 10 milljónir í tekjur Úrslitaleikur í Mjólkurbikar- keppninni er hápunktur knatt- spyrnuvertíðarinnar þannig að það er mikill heiður fyrir bæði liðin að komast alla leið. En sigurinn er ekki einungis mikill heiður heldur skiptir leikurinn gríðarlegu máli, fjárhagslega, fyrir félögin. Ef vel tekst til með sölu auglýsinga, og aðsókn á völl- inn verður góð, getur einn bikar- úrslitaleikur þýtt um 4-5 milljónir í tekjur fyrir hvort lið. Það lið sem síðan sigrar og kemst í Evrópukeppni bikarhafa fær í sinn hlut a.m.k. 4-5 milljónir frá Knattspyrnusambandi Evrópu. Hér getur því verið um 10 millj- óna króna dæmi að ræða fyrir þennan eina leik. Spurningunni hvort leikmenn fengju beinar greiðslur vegna þessa leiks voru formenn félag- anna, Guðmundur Kjartansson, Knattspyrna, 2. deild: Enn tapaði Leiftur fyrir Fylki - Fylkir er að tryggja sér sæti í 1. deild Leiftursmenn töpuðu sínum þriöja leik fyrir efsta liði Fylkis í sumar þegar liðin áttust við í 2. deild knattspyrnunnar í fyrrakvöld. Fvrri hálfleikur var slakur hjá Olafsfírðingum en þeir náðu að rétta úr kútnum í þeim síðari þótt ekki dygði það þeim til sigurs. Heimamenn höfðu því enn 3 stig af Leiftri og í þetta sinn með 3:2 sigri. „Þetta var slakt í fyrri hálfleik og leikurinn þá örugglega mjög leiðinlegur á að horfa. Þetta skánaði talsvert í þeim síðari og þá vorum við meira með boltann og áttum okkar færi,“ sagði Pétur Hafliði Marteinsson, leikmaður Leifturs, eftir leikinn. í fyrri hálfleik voru Fylkis- menn mun aðgangsharðari og 2. deild kvenna: Deildin búin Síðustu leikirnir í 2. deild kvenna, B, fóru fram um helg- ina og eru þá aðeins úrslitin eftir hjá KA. KA vann KS, 3:1, og mörkin fyrir KA skoruðu Vaka Óttars- dóttir, 2 og Helga Hannesdóttir, 1. Mark KS skoraði Ólöf Ásta Salmarsdóttir. Leiftur tapaði fyrir KS, 0:2, og það var Ólöf Ásta sem gerði bæði mörk KS í þeim leik. Þá unnu Dalvíkingar Tindastól 1:3 og fyr- ir Dalvík skoruðu Helga Björk Eiríksdóttir, 1, og Heba Guð- mundsdóttir, 2. SV Lokastaða: KA KS Tindastóll Dalvík Leiftur 8 8-0-0 44: 4 24 8 5-1-2 11: 7 16 8 3-1-4 12:16 10 8 3-0-5 8:12 9 8 0-0-8 2:40 0 fengu mun fleiri færi en gestirnir. Baldur Bjarnason skoraði eina márk leiksins um miðjan fyrri hálfleik. Síðari hálfleikur var mun betri hjá Leiftri og liðið náði upp tals- verðri baráttu. Leiftur komst yfir með mörkum þeirra Péturs Björns Jónssonar og Péturs Haf- liða Marteinssonar. Fyrst skoraði Pétur Björn gott mark með skoti utan úr teig en síðan skoraði Pét- ur Hafliði mark eftir sendingu frá Goran úr aukaspyrnu. Um miðjan hálfleikinn þurfti Pétur Hafliði að yfirgefa völlinn vegna veikinda eftir slæmt flug suður og litlu síðar meiddist Friðrik Einarsson fyrirliði liðs- ins og þurfti að vera utanvallar í nokkrar mínútur meðan verið 2. deild karla 14. umferð: Fylkir-Leiftur BÍ-Stjarnan Selfoss-ÍR Þróttur-ÍBK Víðir-Grindavík Staðan: Fylkir ÍBK Grindavík Þróttur R. Leiftur Stjarnan BI ÍR Víðir Selfoss 1411-1-2 14 9-4-1 7-2-5 7-1-6 5-3-6 4-5-5 3-6-5 3-5-6 2-5-7 1-4-9 14 14 14 14 14 14 14 14 3:2 1:1 4:2 2:5 2:3 32:14 34 31:14 31 26:2123 23:26 22 25:19 18 19:18 17 18:27 15 15:25 14 14:20 11 15:38 7 Markahæstir: Óli Þór Magnússon, ÍBK 14 Þorlákur Árnason, Lciftri 13 Kristinn Tómasson, Fylki 9 Þórður B. Bogason, Grindavík 9 Indriði Einarsson, Fylki 8 Kjartan Einarsson, IBK 8 Hlynur Jóhannsson, Víði 8 var að huga að meiðslum hans. Á þeim tíma skoruðu Fylkismenn sitt annað mark og bættu svo því þriðja við stuttu síðar. Baldur Bjarnason gerði tvö mörk fyrir Fylki og Þórhallur Dan Jónsson eitt. SV Val, og Sveinn Brynjólfsson, KA, ekki tilbúnir til þess að svara. Guðmundur sagði samn- inga við leikmenn vera trúnað- armál og Sveinn sagði að KA- leikmennirnir fengju a.m.k. mjólk með kaffinu og vísaði þar í að Mjólkursamsalan er aðal- styrktaraðili Mjólkurbikarkeppn- innar. Leikmenn KA halda til Reykja- víkur á laugardaginn og gista á Hótel Valhöll á Þingvöllum um nóttina. Leikmenn Vals gista á Hótel Örk þannig að greinilegt er að vel er gert við leikmenn lið- anna fyrir þennan leik. í sjón- varpinu á laugardagskvöld, strax eftir fréttir, verður sérstakur þáttur sem Mjólkursamsalan styrkir, um úrslitaleikinn og því má búast við góðri stemmningu á leiknum. Stuðningsmenn KA ætla að hittst á Kringlukránni, bæði á laugardagskvöld og á sunnudag fyrir leik. Forsala aðgöngumiða verður í KA-heimilinu frá og með degin- um í dag og í Valsheimilinu og Kringlunni í Reykjavík. AP/SV Golf: Bauta og Lacostemót - laugardag og sunnudag Tvö golfmót verða haldin að Jaðri um helgina. Á laugardag verður Lacostemótið svokall- aða en Bautamótið verður á sunnudag. Verslunin JMJ gef- ur verðlaun í fyrra mótið en í Bautinn í það síðara. í Lacoste-mótinu er keppt í einum opnum flokki, með og án forgjafar. Leiknar verða 18 holur og rennur skráningarfrestur út á föstudag kl. 19.00. í Bautamótinu verður keppt í karla- og kvennaflokki, með og án forgjafar og verða spilaðar 18 holur. Skráningarfrestur rennur út kl. 18.00 á laugardag. Fréttatilkynning Bjarni prúði. KSÍ og Vísa völdu Bjarna Sveinbjörnsson, fyrirliða Þórs, prúðasta leikmann mánaðar- ins. Þetta er gert vegna háttvísis- átaks sem er í gangi á vegum KSÍ og Vísa. Pollaknattspyrna: Króksmótið á Króknum Króksmót Fiskiðjunnar Skag- fírðings hf. í knattspyrnu polla fór fram á Sauðárkróki um helgina. Keppnislið voru 33 og komu frá 9 félögum. Alls voru leiknir 105 leikir og í þeim skoruð 533 mörk. Urslitin á mótinu eru eftirfarandi: 5. flokkur: 1. Dalvík 2. Tindastóll 3. Leiftur 6. flokkur, a-Iið: 1. Dalvík 2. Tindastóll 3. KS 6. flokkur, b-og c-lið: 1. Tindastóll, b-lið 2. KS, b-lið 3. Dalvík, b-lið 7. flokkur, a-lið 1. Leiftur 2. Völsungur 3. Dalvík 7. flokkur b-og c-Iið: 1. Völsungur, b-lið 2. Völsungur, c-lið 3. KS, b-lið Á mótinu var keppt f víta- keppni og fara hér á eftir nöfn þeirra félaga sem áttu sigur- vegara, markmann og vítaskyttu, í hverjum flokki. Því miður fylgdu ekki nöfn verðlaunahaf- anna: 5. flokkur: Vítaskytta: Hvöt Markmaður: Tindastóll 6. flokkur, a-lið: Vítaskytta: Dalvík Markmaður: Leiftur 6. flokkur, b-og c-lið: Vítaskytta: KS, b-lið Markmaður: KS, b-lið 7. flokkur, a-Iið: Vítaskytta: Leiftur Markmaður: Leiftur 7. flokkur, b- og c-lið: Vítaskytta: Völsungur, c-lið Markmaður: Völsungur, b-lið Stund milli stríða á Króksmótinu í knattspyrnu, sem var haldið á Sauðár- króki um síðustu helgi. Mynd: sþ

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.