Dagur - 21.08.1992, Blaðsíða 4

Dagur - 21.08.1992, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Föstudagur 21. ágúst 1992 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFT KR. 1200ÁMÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ KR. 110 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir), ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR (Sauðárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25689 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF, SÍMFAX: 96-27639 Hreinsanir í Sjálístæöisílokknum Alþingi kom saman síðastliðinn mánudag þótt miður ágúst- mánuður sé óvenjulegur tími til þinghalds hér á landi. Þing- ið var kallað saman nú vegna þess að fyrir liggur að fjalla um stórt og erfitt mál, sem er samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið. Eins og gefur að skilja hefur sitt sýnst hverjum um samninginn eins og ætíð þegar um jafn viða- mikið mál er að ræða. Stjórnmálamenn og aðra landsmenn greinir á um áhrif hans á efnahagslífið og í raun og veru þjóðlífið allt og það sem alvarlegra er að löglærða menn greinir á um hvort tiltekin samningsákvæði brjóti í bága við stjórnarskrá íslenska lýðveldisins frá 1944. Vegna þess hversu víðtækur EES-samningurinn er og snertir marga þætti íslensks þjóðlífs hafa komið fram ákveðnar kröfur um að hann verði borinn undir þjóðar- atkvæði. Þrátt fyrir að landsmenn eigi fullan rétt til þess að láta álit sitt í Ijós með atkvæðagreiðslu og hafa áhrif á hvort við tengjumst Evrópska efnahagssvæðinu með þeim hætti sem samningurinn kveður á um er ljóst að stjórnarflokkarn- ir ætla að láta öll slík tilmæli sem vind um eyru þjóta. Einnig er ljóst að ríkisstjórnin ætlar að hraða meðferð málsins á Alþingi og freista þess að þagga niður þau sjónarmið að samningurinn brjóti í bága við stjórnarskrána. Um afstöðu þingmanna Alþýðuflokksins þarf vart að efast. Kratar hafa barist manna harðast fyrir aðild íslands að Evrópska efnahagssvæðinu og forsvarsmenn flokksins margsinnis ítrekað að þjóðaratkvæðagreiðsla komi ekki til greina. Þingmenn hins ríkisstjórnarflokksins - Sjálfstæðis- flokksins - greinir hinsvegar nokkuð á um samninginn og hefur sá ágreiningur þegar valdið átökum innan þingflokks- ins. í síðustu viku kom í ljós að forystumenn stjórnarflokk- anna voru farnir að ræða breytingar á formennsku í þing- nefndum. Eftir því sem lengra leið kom fram að fyrirhugaðar hrókeringar formanna nefnda beindust fyrst og fremst að formennsku í utanríkismálanefnd. Sitjandi formaður nefnd- arinnar, Eyjólfur Konráð Jónsson, hafði lýst nokkrum efa- semdum um viðkvæma þætti EES-samningsins og látið hafa eftir sér á opinberum vettvangi að ýmis atriði þyrftu nákvæmrar athugunar við. Sú ákvörðun forsvarsmanna og meirihluta þingflokks Sjálfstæðisflokksins að hafna formennsku Eyjólfs Konráðs og jafnframt setu hans í utanríkismálanefnd sýnir ekkert annað en berja á niður raddir og áhrif þeirra manna sem ekki eru í einu og öllu sáttir við texta þess samnings sem undirritaður hefur verið um aðild íslands að Evrópska efna- hagssvæðinu með fyrirvara um samþykki Alþingis. í þessu sambandi kom einnig til sterkt tilkall Björns Bjarnasonar til setu í utanríkismálanefnd, en Björn náði ekki kjöri í hana á síðasta þingi þrátt fyrir augljósan áhuga forsætisráðherra og hluta þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Með tilkomu Björns Bjarnasonar í stað Eyjólfs Konráðs í utanríkismálanefnd Alþingis hefur ákveðinni hindrun vegna EES-samningsins verið rutt úr vegi. Björn er ötull talsmaður Evrópuhyggjunnar og hefur látið í ljósi skoðanir nm að EES-samningurinn sé hugsanlega aðeins áfangi á lengri leið - leiðinni til inngöngu í sjálft Evrópubandalagið. Að sjálfstæðismenn skuli beita hreinsunum vegna umfjöllunar Alþingis um EES-samninginn sýnir hvað málið er viðkvæmt og einnig að engin undanbrögð á að líða frá því að veita gjörningnum brautargengi. ÞI Hver kírkja a sma klukku - ávarp flutt við árlega messu í Ábæjarkirkju 2. ágúst 1992 Um aldaraðir hefur kirkja staðið á bakkanum við Ábæjará. Fróðir menn telja að fyrst hafi kirkja verið reist þar á elleftu öld. Saga þessarar kirkju er óljós og dauf vegna þess að kirkju- sóknin er í „afskektinni". Þar hefur líka verið mannfátt löngum. Þó virðist að Ábæjar- sókn hafi verið einskonar lénsríki innan kirkjunnar með nokkurt eigið sjálfræði. Til þess bendir gamall samningur, sem bændur í Ábæjarsókn gerðu við prestinn í Goðdölum, að messa á Ábæ sex messur á ári. Á 18. öld voru sjö bæir í Ábæj- arsókn: Merkigil, Miðhús, Ábær, Tinnársel, Nýibær og vestan ár Skatastaðir og Skuggabjörg. í Móðuharðindunum 1785 skrifaði Jón Sveinsson prestur í Goðdöl- um bréf til biskups og kvartar um að tekjur sínar hafi stórminnkað því Ábæjarsókn sé öll komin í eyði. En það stóð ekki lengi. Eft- ir tvö eða þrjú ár voru jarðir í Ábæjarsókn aftur komnar í byggð, nema Skuggabjörg er þá voru sameinuð Skatastöðum. Það er fróðlegt að líta yfir manntöl í Ábæjarsókn á liðinni tíð. Árið 1703 voru 35 manns í sókninni á sex býlum. Árið 1801 var tveimur fleira í sókninni eða 37 manns á fimm býlum. Árið 1845 hefur enn fjölgað og eru þá 44 á manntali á fimm býlum. Frá 1850 til 1880 að Nýibær fór í eyði voru oftast um 40 manns í Ábæj- arsókn á fjórum býlum. 1920 voru 26 manns heimilisfastir í Ábæjarsókn á þremur býlum. Á 19. öld bjó Guðmundur Guðmundsson lengi á Ábæ, frá 1825 til 1873. Móðir hans var Helga Sveinsdóttir. Hún var tví- gift og átti Guðmund milli manna með Guðmundi Jónssyni lausa- manni og bónda á Bústöðum. Seinni maður Helgu Sveinsdóttur var Stefán Guðmundsson í Flata- tungu, einn af meiriháttar bænd- um í héraðinu. Á uppvaxtarárum var Guðmundur Guðmundsson í Flatatungu með móður sinni og seinni manni hennar. Þegar Guð- mundur komst á legg hóf hann verferðir suður með sjó og réri hjá nafna sínum Guðmundi Jóns- syni dannebrogsmanni, bónda í Skildinganesi og Lágafelli. Guðmundur frá Flatatungu og Valgerður dóttir Guðmundar á Lágafelli felldu hugi saman, en Guðmundur faðir Valgerðar vildi ekki samþykkja þann ráðahag, að líkindum vegna þess að Guð- mundur að norðan var félaus. Þetta mál endaði þannig, að Guðmundur fór með Valgerði frá Lágafelli að Flatatungu árið 1818 án vitundar föður hennar og í fullkominni ósátt við hann. Sagt er að Guðmundur á Lágafelli hafi gert dóttur sína arflausa, en síðar hafi komist á sættir milli þeirra fyrir milligöngu Péturs prófasts á Víðivöllum. Valgerður var myndarkona og vel gefin, en varð ekki gömul. Afkomendur hennar og Guð- mundar bjuggu á Ábæ til 1929. Guðmundur á Ábæ var hraust- menni að burðum, oft skjótráður og hafði að orðtaki „strax eða ekki“. Hann var búmaður góður, hygginn og framsýnn og meiri umbótamaður en flestir samtíð- armenn hans. Hann hóf búskap með lítil efni. Fyrstu búskaparár Guðmundar á Ábæ var tíund hans svipuð og Bólu-Hjálmars er þá bjó á Nýjabæ, aðeins örfá lausafjárhundruð, en honum græddist fé þegar árin liðu og varð þá vel efnaður. Guðmundur byggði bæinn og flutti heim timbur í nýja kirkju laust eftir 1840. Á tíma Guð- Björn Egilsson. mundar á Ábæ var Sauðárkrókur ekki til sem verslunarstaður. Þá var Hofsós verslunarstaður við Skagafjörð. Ýmsir bændur í inn- héraðinu versluðu við Akureyri og þótti þar meira úrval af vörum. Guðmundur á Ábæ versl- aði við Akureyri og kaupstaðar- leið hans lá vetur og sumar yfir Nýjabæjarfjall, sem er mikill fjallvegur. Þar sem fjallið er hæst heitir Miðás. Þar er hæðartala merkt á korti og er þessi staður tveimur metrum lægri yfir sjó en Mælifellshnjúkur. í Vísitasíubók Skagafjarðar- prófastsdæmis er sagt frá Ábæ á þessa leið: „Ár 1842 þann 24. febrúar var prófastur í Skaga- fjarðarsýslu Halldór Jónsson til staðar að Ábæ til þess að yfirlíta kirkjuna og tala við sóknarbænd- ur um endurbyggingu hennar. Viðstaddir voru presturinn til Goðdala og Ábæjar séra Jón Benediktsson og undirritaðir bændur Ábæjarsóknar. Kirkjan er á lengd 8V2 alin milli þilja í fjórum stafgólfum - á breidd fjórar álnir og níu þumlungar milli stafa. Ónýtt fjalagólf í kór og ekkert í framkirkju. Kirkjan er undir súð, sum herbergi ýmist eru ónýt og grautfúin. Kirkjan yfirhöfuð er orðin lítt brúkanleg og óhæfileg til sinnar ákvörðun- ar.“ Við svo búið var ekki látið standa. Það kom í hlut Guð- mundar á Ábæ að sjá um endur- byggingu kirkjunnar. Hann fékk kirkjuviðinn á Akureyri og lét flytja hann um vetur yfir Nýja- bæjarfjall og menn drógu viðinn á sleðum yfir fjallið. Kirkja Guð- mundar á Ábæ stóð þar nær 80 ár. Um 1920 var hún búin að enda sitt skeið eins og aðrar kirkjur á undan henni. Þá var rætt um að Ábæjarkirkju mætti leggja af að skaðlausu, því fólkið á þessum þremur bæjum í sókninni gæti sótt kirkju að Goðdölum og/ eða Silfrastöðum. Af hálfu Ábæj- arsafnaðar kom það ekki til mála undir neinum kringumstæðum að leggja kirkjuna niður og bygging þeirrar kirkju sem nú stendur á Ábæ var hafin sumarið 1921 og lokið árið eftir. Og það var ekki umtalsvert þó byggingarefni væri flutt á klökkum frá Sauðárkróki, en bílar komu ekki í Skagafjörð fyrr en fjórum árum seinna, 1926. Afkomandi Guðmundar á Ábæ, Ólafur Kristjánsson smiður, sá um byggingu kirkj- unnar. Árið 1920 voru fimm bændur í Ábæjarsókn á þremur jörðum. Á Merkigili Egill Stein- grímsson og Finnbogi Bjarnason, á Ábæ Hrólfur Þorsteinsson og bræður hans tveir á Skatastöð- um, Guðjón og Björn. Ábæjarkirkja var vígð þann 6. ágúst á 16. sumarhelgi 1922 að viðstöddu fjölmenni. Prófastur- inn séra Hálfdán Guðjónsson vígði kirkjuna og þakkaði söfnuðinum fyrir trúnað við sið feðranna. Hann lét þess getið að Austdælir hefðu ekki getað til þess hugsað að jafna við jörðu það altari sem feður þeirra og mæður hefðu kropið fyrir í blíðu og stríðu mann fram af manni. Þeir hefðu viljað heyra hljóm kirkjuklukkunnar kalla til tíða enn sem fyrr. í gerðarbók prófasts er skráð: „Kirkjuvígsla á Ábæ. Ár 1922 sunnudaginn 6. ágúst fór fram kirkjuvígsla á Ábæ í Skaga- fj arðarprófastdæmi. Kirkj uvígsl- una framkvæmdi prófastur Hálfdán Guðjónsson á Sauðár- króki. Við vígsluna aðstoðuðu sóknarpresturinn séra Tryggvi H. Kvaran og séra Lárus á Miklabæ. Við athöfn þessa var staddur til- tölulega mikill mannfjöldi, um hálft annað hundrað manns.“ Þá eru tilgreindar ritningargreinar sem prófastur og sóknarprestur lögðu út af. Svo undarlega vill til að ég var við þessa Ábæjarmessu. Ég var þá á Mælifelli 17 ára gamall og fór með séra Tryggva frameftir. Þeir munu ekki vera margir á lífi nú, sem þar voru. Það voru fleiri fyrirmenn utan úr Krók en séra Hálfdán. Ég man eftir Jóni Björnssyni skólastjóra og föður hans Birni Jónssyni hreppsstjóra frá Veðramóti, sem þá var kom- inn á áttræðisaldur. Veður var milt og gott þennan dag, loft skýjað. Jökulsá eystri er oftast sundvatn yfir sumarið. Hestarnir voru sundreknir norðan við kláf- inn og þeir voru ekki hikandi að fara út í ána, því hestar voru van- ir vatnsföllum á þeirri tíð. Ábæjarmessur eru sérstætt og merkilegt fyrirbæri í skagfirskri sögu á þessari öld. Þar hefur ver- ið messað einu sinni á hverju sumri í 70 ár og oftast á vígslu- degi kirkjunnar. Til samanburðar hafa mér stundum dottið í hug krossferðir á fyrri öldum. Það er eins og þeir sem koma til Ábæjar- kirkju séu að verja sína Jerúsalem. Þeir bera þó ekki sverð og bagal, heldur fara með friði og góðum hug. Á liðnum árum hafa Ábæj- arkirkju borist margar góðar gjafir, svo hún er ekki blásnauð fremur en Strandarkirkja. Halldór Laxness skrifaði bók sem heitir íslandsklukkan. Bók þessi hefst með þessum orðum: „Sú var tfð, segir í bókum, að íslenska þjóðin átti aðeins eina sameign sem metin varð til fjár. Það var klukka. Þessi klukka hékk fyrir gafli Lögréttuhússins á Þingvöllum við Öxará fest við bjálka uppí kverkinni. Henni var hringt til dóma og á undan aftök- um.“ Þessi klukka var tákn hins veraldlega valds. En fleiri klukk- ur eru til fjöldamargar. Það eru kirkjuklukkur. Þær hafa aðra vís- bendingu, önnur markmið en klukka landsins í kverkinni á Þingvöllum. Kirkjur standa vítt og breitt um landið út við strönd og inni í dal. Hver kirkja á sína klukku og allar sem ein mega þær kallast sameign þjóðarinnar. Fyrir 70 árum hafði Ábæjar- söfnuður það á valdi sínu, að enn þann dag í dag er kirkjuklukku hringt á Ábæ í Austurdal, þar sem er svipmikið landslag og tign býr í tindum. Björn Egilsson frá Sveinsstöðum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.