Dagur - 27.03.1993, Blaðsíða 8

Dagur - 27.03.1993, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Laugardagur 27. mars 1993 í bæjarstjórn Sauðárkróks eru þrjár konur, hver úr sínum flokki. Ein þeirra, Anna Kristín Gunnarsdóttir, er jafnframt eini fulltrúi síns flokks, Alþýðubandalagsins og situr nú sitt annað kjörtímabil í bæjarstjórninni. Það er áberandi fyrir áhorfanda og hlustanda á bæjarstjórnarfund- um að málflutningur þessarar konu kallar oft á mjög sterk viðbrögð, bæði fulltrúa meiri- og minnihlutans. Það er þó aldrei að sjá að henni bregði í brún, þótt oft hvessi verulega. Þetta vakti forvitni mína og löngun til að skyggnast bak við þetta rólega yfirborð. Anna Kristín Gunnarsdóttir er fædd og uppalin á Sauðárkróki og foreldrar hennar eru báðir Skagfirðingar. Faðir hennar, Gunnar Þórðarson, fyrrum bifreiðaeftirlits- maður, er frá Lóni í Viðvíkursveit, en móð- ir hennar Jófríður Björnsdóttir, verkstjóri hjá Saumastofunni Ylrúnu, er frá Bæ á Höfðaströnd. Ein af formæðrum Önnu Kristínar er Sigurlaug Gunnarsdóttir í Ási í Hegranesi, mikill félagsmálafrömuður á sinni tíð, ekki síður en afkomandinn. Anna Kristín á eina yngri systur, Birnu Þóru, sem einnig er búsett á Króknum og er ljósmóðir á Sjúkrahúsinu. Ánna Kristín tók stúdentspróf frá M.A. og lauk því árið 1972. Þá fór hún á flakk um Evrópu ásamt fjórum vinkonum. Þær ferð- uðust á bíialeigubíl í einn og hálfan mánuð og fóru ótrúlega víða. Anna Kristín fór á svipað flakk tveimur árum síðar og hún hef- ur einnig ferðast mikið bæði innanlands og utan með eiginmanni sínum, Sigurði Jóns- syni. Árið 1973 hélt hún til Frakklands og var þar í eitt og hálft ár sem au pair og við frönskunám í háskóla. Hún stundaði nám í Kennaraháskólanum árin 1976-79 og fluttist þá aftur norður á Sauðárkrók ásamt manni sínum. t>au eiga fjögur börn, Fríði Finnu 12 ára, Gunnar 10 ára, Kristínu Unu 5 ára og Sigyn Björk 3 ára. Frá því að þau hjónin fluttust norður hafa þau starfað við kennslu, en Anna Kristín minnkaði við sig þegar hún fór í bæjarstjórnina og hætti alveg þegar yngsta barnið fæddist. Pólitísk strax í menntaskóla - Ertu hugsjónamanneskja Anna Kristín? „Það vona ég. Það er stundum talað um að flokkar séu í kreppu, línur séu óskýrar og erfitt að vita hvar flokkarnir standa. Mér finnst mjög skýrt t.d. fyrir hvað Sjálfstæðis- flokkurinn og Alþýðubandalagið standa og mér finnast verkin tala sínu máli. Þó að Sjálfstæðisflokkurinn reyni að lyfta sér upp á tali um framtak einstaklingsins og að ein- staklingurinn eigi að fá að njóta sín, þá lít ég á það sem blekkingu handa litla mannin- um. Það fær ekki hvaða einstaklingur sem er að njóta sín þar, það eru þeir sem eiga peninga eða hafa eitthvað á bak við sig frá fornu fari. Alþýðubandalagið er félags- hyggjuflokkur og einstaklingurinn á ekkert erfiðara að njóta sín hjá honum nema síður væri.“ - Ólst þú upp við stjórnmálaumræðu? „Já, en ekki á þessari línu. Föðurættin eins og hún leggur sig er Framsóknarmenn, en móðurættin Sjálfstæðismenn. Ég býst við að það að vilja taka afstöðu og hafa skoðun hafi eitthvað með persónuna að gera. Ég var búin að mynda mér pólitíska skoðun í menntaskóla og tók þá þátt í baráttunni gegn Víetnamstríðinu. Það eru fyrstu virku afskiptin af pólitík, en eftir að ég kem aftur hingað norður var ég beðin að taka sæti á lista fyrir Alþýðubandalagið. Ég var ekki flokksbundin, en ég var búin að ákveða að þetta væri minn flokkur. Ég hugsaði auðvit- að málið, þetta er ákvörðun sem snerti fleiri en mig eina. Ég ræddi málin við manninn minn og þetta varð niðurstaðan." Ekki jafn áberandi á fyrra kjörtímabili Anna Kristín sat í skólanefnd á árunum 1982-6 og var í fyrsta sæti á lista Alþýðu- bandalagsins í kosningum 1986. Hún hefur setið í bæjarstjórn síðan og lýkur öðru kjörtímabili hennar næsta vor, 1994. Ég spurði hana hvort hún væri ánægð með fyrirkomulag starfsins. „í flestum tilfellum hafa menn þetta að aukastarfi, en ef að vel á að vera þarf að eyða í þetta geysimiklum tíma. Það þarf að bæta kjörin til að fólk sjái sér fjárhagslega fært að taka þátt í þessu. Ef manneskja er í bæjarstjórn, bæjarráði og héraðsráði, jafnvel í fleiri nefndum, þá þýð- ir það marga fundi á viku. Þegar ég byrjaði í þessu þá sagði ég upp einum þriðja af kennarastarfinu. Þetta er sambærilega mikil vinna og ég er þó bara í bæjarstjórn og áheyrnarfulltrúi í bæjarráði.“ - Varstu jafn virk á fyrra kjörtímabili og því síðara? „Ég var ekki jafn áberandi. Ástæður þess að ekki heyrðist eins mikið í mér á fyrra kjörtímabili voru þær að það var ekki útvarpað frá bæjarstjórnarfundum og ekki fjölmiðlun eins og nú. En fyrst og fremst að ég var óreynd og auðveldara að ná sam- komulagi við mig. Ég lét skoðanir mínar fremur í ljós á bæjarráðsfundum og gerði mér ekki ljóst hvað var mikilvægt að koma þeim á framfæri annars staðar líka. Skoðan- ir mínar komu því lítið fram á þessu kjör- tímabili og þóttu ekki merkilegar nema í flugvallarmálinu, þar var ég á öndverðum meiði við aðra bæjarfulltrúa hérna. Það voru uppi hugmyndir um lengingu á vellinum í samvinnu við NATO. Ég er algerlega á móti öllu sem tengist herflug- völlum og hernaðarbandalögum, auk þess var Sauðárkrókur að skipuleggja flugvöll inn á land sem hann átti ekki og í öðru sveit- arfélagi. Það var því óraunhæft að tala um þessa lengingu á sama tíma og vitað var að Íandeigendur vildu alls ekki selja land undir hana. Aðstæður breyttust síðan og NATO missti áhugann held ég.“ Félagsmálin eru hagsmunir allra - Eru konur nógu atkvæðamiklar í bæjar- málum? „Ja, mér finnst það nú ekki. Konurnar í bæjarstjórn eru í félagsmálaráði, umhverfis- nefnd og ferðamálaráði. Ég hugsa að bæði hafi þær áhuga á þessum málefnum, en ekki síður að karlarnir hafa ekki áhuga. Það lítur a.m.k. út fyrir að það sé auðveldara að fá konur til að taka sæti í félagsmálaráði. Þetta er dapurlegt, því félagsmálin eru hags- munamál beggja kynja. Ég held að ég geti fullyrt að kona hafi aldrei átt sæti í hafnar- stjórn og veitustjórn. Þær hafa átt sæti í félagsmálaráði, skólanefnd, íþróttaráði, en þar eru þær í miklum minnihluta." - Hver eru þín helstu áhugamál í bæjar- pólitíkinni? „Ég legg mikla áherslu á atvinnumál og félagslega þjónustu. Þessi tími sem við erum að upplifa núna gerir félagslega þjónustu, þetta öryggisnet okkar, svo miklu mikilvæg- ara en áður. Þetta er í fyrsta sinn sem fólk á mínum aldri upplifir margt sem eldra fólk hefur reynt, t.d. atvinnuleysi og öryggisleysi sjúkra og aldraðra. Málefni foreldra og barna hafa átt hug minn alla tíð. Ég hef allt- af lagt á það áherslu í bæjarstjórn að það þurfi að búa betur en nú er gert að ungum börnum hér á Sauðárkróki. Þá er ég að tala um börn á fyrstu árunum í barnaskóla. Ég álít að við séum að ávísa á komandi kyn- slóðir ef við búum ekki vel að börnunum okkar. Ég lagði fram tillögu ásamt framsóknar- mönnum um stofnun og uppbyggingu skóla- bókasafna á fyrra kjörtímabili. Það tókst að fá fjárveitingu til skólasafna við báða grunn- skólana þrjú ár í röð og því var reyndar lof- að þegar þetta var sett fram fyrst að fram- lagið yrði veglegra næst. Sem varð reyndar ekki, heldur lélegra. Þetta var svo skorið af í fyrra. Mér finnst það merkilegt að það hafi komið í minn hlut að halda þessu uppi á hverju ári, þegar tveir skólastjórar eru í bæjarstjórninni." Ekki á móti íþróttum - Þú hefur verið gagnrýnd fyrir málflutning þinn varðandi íþróttamál, ertu á móti íþróttum? „Nei, ég er alls ekki á móti íþróttum. Ég geri mér fulla grein fyrir að íþróttaiðkun er mikilvæg. Hins vegar er það staðreynd að það eru ekki allir sem hafa áhuga á íþróttum og það er eðlilegt og ákjósanlegt að fólk hafi fjölbreytt áhugamál - hollt fyrir samfélagið og einstaklingana. íþróttafólkið hefurhlotið miklu meiri athygli og stuðning af hálfu bæjarins en aðrir hópar og ástæðan er sú að það eru mjög kröftugir einstaklingar sem standa að íþróttafélaginu. En ég er að benda á að það þarf að sinna þessum rúm- lega 30% sem hafa ekki áhuga á að stunda íþróttir. Ég bendi líka á það að fólk sem ekki stundar íþróttir eða önnur áhugamál er í meiri hættu að lenda á villigötum en þeir sem hafa eitthvað til að fást við. Þannig að skyldan og þörfin er ótvíræð. Auk þess er ekki sama hvernig íþróttamálum er sinnt. Það þarf að skoða hvort á að beina kröftun- um í að ala upp afreksmenn eða hvort á að reyna að fá sem flesta til þátttöku og þá ekk- ert endilega með keppni í huga. Það er æskilegt að fá sem flesta með, en við megum ekki gleyma hinum sem hafa ekki áhuga. Það eru mjög margir sem hætta í íþróttum einmitt á þeim aldri sem fólki er allra nauðsynlegast að eiga áhugamál, þ.e. í efri bekkjum grunnskóla.“ - Heldurðu að það drepi niður áhuga barna ef þau finna að þau eiga ekki mögu- leika á keppnisþátttöku? „Mér þætti það mjög líklegt. Segjum að' tólf manna hópur æfi keppnisíþrótt og átta taki þátt í keppni. Ef reglurnar eru þannig að aðeins þeir átta bestu, að mati þjálfar- ans, fá að fara með í keppnisferðalög og burtséð frá því hvernig þeir sækja æfingar °g leggja sig fram, þá fyndist mér ekkert óeðlilegt að þeir sem aldrei fengju að fara með í ferðir misstu áhugann. Eg held að stefnumótunin sé í raun svona, þeir bestu fá að keppa en hinir verða að bíða. Þeir mega vera með á æfingum en ekki öðru. Stelpur hafa ekki notið sömu athygli og strákar og ekki staðið til boða sömu hlutir. Strákunum í 4. fl. fótboltans hefur t.d. stað- ið til boða utanlandsferð annað hvert ár, en stelpur fá ekki að fara. Tímatafla stelpn- anna í íþróttahúsinu var líka verri.“ - Hvaða ástæður heldurðu að liggi að baki því að svona dyggilega er stutt við íþróttafélögin? „Hér á árum áður voru Ungmennafélags- hreyfingin og ákveðnar pólitískar línur eig- inlega eitt og hið sama. Það er áberandi að íþróttafélögin eiga marga stjórnmálamenn í sínu forystuliði. Þeir eiga sterk pólitísk ítök.“ Óheppilegt að stóru flokkarnir ráði of miklu - Er ekki hætta á að þú fallir út við næstu kosningar eftir þá breytingu sem samþykkt var nýlega í bæjarstjórn, um fækkun full- trúa. „Það er ekki gott að segja. Ef úrslitin yrðu svipuð og áður en var fjölgað fyrir um 16 árum, þá hefði hvorki Alþýðubandalagið né K-listinn fulltrúa. Fylgi Alþýðubanda- lagsins hefur farið heldur niður á við og það þarf stórkostlega fylgisaukningu til að halda manni inni. Framsókn og Sjálfstæðisflokk- ur, hafa mjög stöðugt fylgi, sérstaklega Framsóknarflokkurinn. Það munaði ekki miklu að Framsókn næði inn fjórða manni síðast. Litlu flokkarnir hafa svona lafað inni. Auðvitað vonar maður að fylgið sé ekki algerlega fast. Betri fréttaflutningur, bæði með tilkomu fréttamanns útvarps, Dags og Feykis og sérstaklega útvarps frá fundum gefur fólki færi á að fylgjast með og meta starf bæjarfulltrúanna. Ég vona að það hafi áhrif á mat fólks, því það er auðvitað óeðli- legt að fólk meti flokka og framboð bara síðustu dagana fyrir kosningar. Slíkt mat á að byggjast á miklu lengri tíma. Mér finnst að það eigi að gera meiri kröfur til bæjar- fulltrúa um vönduð vinnubrögð." - Telurðu að starfið verði skilvirkara og markvissara við þessa breytingu? „Ég held að þetta skipti ekki nokkru máli í því sambandi. Ég er hins vegar sammála því að bæjarfulltrúar eigi að fjalla miklu markvissar um mál heldur en þeir hafa gert. Mér hefur stundum fundist áberandi að menn tala mjög langt mál um hluti sem koma dagskránni ekkert við. Þetta er spurn- ing um vinnubrögð og hvernig menn koma undirbúnir á fundi.“ - Þú hefur sagt að hætta sé á að þetta þýði tveggja flokka kerfi, eru einhver rök fyrir því? „Fækkun bæjarfulltrúa skapar hættu á að stóru flokkarnir ráði meiru en raunverulegt kjörfylgi segir til um, þar sem atkvæði minni framboða nýtast verr en hinna stærri. Það er um þriðjungur kjósenda sem fylgir litlu flokkunum og hætta á að stór hluti þess fylg- is eigi ekki fulltrúa í bæjarstjórn eftir næstu kosningar. Ég tel það mjög óheppilegt að stóru flokkarnir verði of ráðandi. Það hefur verið landlægt hér að skipta ýmsum fyrirtækjum milli Framsóknab og Sjálfstæðisflokks og því fylgt ótrúleg þröng- sýni sem hefur skaðað fyrirtækin og byggð- arlagið. Sumir telja það hlutverk ákveðinna flokka að verja hagsmuni tiltekinna fyrir- tækja umfram annarra og setja jafnframt samasemmerki á milli hagsmuna fyrirtækj- anna og stjórnmálaflokka. Þetta er fárán- legt og hættulegt. Sem dæmi má nefna Skjaldarmálið þar sem það var unnið til að selja utanhéraðs- mönnum yfirráð veiða og vinnslu til að koma í veg fyrir sameiningu þessa „Sjálf- stæðisfyrirtækis" og Fiskiðjunnar/Skagfirð- ings, sem ásamt Kaupfélaginu eru, af Sjálf- stæðismönnum, eignuð Framsókn. í áranna rás hafa margir bæjarfulltrúar verið starfs- menn Kaupfélagsins og flestir yfirmenn þess yfirlýstir Framsóknarmenn. Það orð hefur legið á að Kaupfélagið og Framsókn séu eitt og það orð þarf Kaupfélagið að hreinsa af sér, því það er fyrirtækinu og byggðarlaginu skaðlegt eins og fyrrnefnt dæmi sýnir.“ Hörð viöbrögö „Ég skar mig úr í veigamiklum málum strax í upphafi þessa kjörtímabils. Ballið byrjaði þó fyrst með sölu á meirihluta í útgerðarfé- laginu Skildi hf. til Siglufjarðar. Þá tók ég forystu í gagnrýni á störf meirihlutans, þar sém oddviti Framsóknar átti reyndar hluta að niðurstöðunni þegar til kom. Ég var síð- an eini bæjarfulltrúinn sem var á móti því tilboði sem Skarðs- og Staðarhreppi var gert um hitaveitu sem þeir höfðu óskað eftir. Til- boð bæjarins gerði að skilyrði að Skarðs- hreppur sameinaðist Sauðárkróki, en hafði í för með sér óheyrilegan kostnað fyrir bæinn, fyrir utan að margt var óljóst og allt- of margir lausir endar. Eg taldi þetta frum- hlaup og tímasetninguna fáránlega, þegar tekið er tillit til þess að bænum stendur til boða byggingarland úr Skarðshreppi og stjórnvöld stefna að sameiningu sveitarfé- laga á landsvísu. Orkumál hljóta að verða tekin til gagngerrar endurskoðunar í því samhengi. Þarna voru bæjarfulltrúar á hál- um ís gagnvart umbjóðendum sínum og það held ég að þeir hafi fundið sjálfir og því hafi viðbrögðin við gagnrýni minni verið svo sterk í það skiptið. í fyrravetur flutti ég svo tillögu um ráðn- ingu félagsráðgjafa til bæjarins. Ég undirbjó tillöguna mjög vel, fékk m.a. umsögn hjá sýslumanni, heilsugæslustöð, Fjölbrauta- skólanum og Svæðisskrifstofu fatlaðra, auk þess sem ég var með bréf frá félagsráðgjafa

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.