Dagur


Dagur - 27.03.1993, Qupperneq 19

Dagur - 27.03.1993, Qupperneq 19
Laugardagur 27. mars 1993 - DAGUR - 19 Sakamálaþraut Verið á undan Carter lögregluforingja að ieysa þrautina. Ykkur til aðstoðar eru teikningar með mikilvægum vísbendingum... Dauðir segja frá - eftir Francis Clarke E asteignajöfurinn Jerome Abbott lá dauður; skotinn í brjóstið þar sem hann sat við skrifborðið sitt í dagstofu glæsilegs sveitaseturs síns. „Af litlu færi, myndi ég segja,“ sagði lögreglulæknirinn við Carter lögregluforingja og Graham undirforingja þegar hann laut yfir líkið. „En hann dó sennilega ekki strax.“ Carter leit faglega á snyrtilegt skrifborðið en þar stakk í augu blekbytta sem lá á hliðinni og Abbott hafði greinilega gripið til með hægri hendi. Skammt þaðan lá opinn blekpenni. „Hann virðist hafa skrifað eitthvað herra,“ sagði Gra- ham og hallaði sér yfir skrif- borðið. „Hér er „A“, hér er „T“„ en ég sé ekki hvað stendur hér meira.“ Lögreglulæknirinn greip nú hæversklega fram í fyrir þeim. „Ja héma, meira að segja ég veit að maður þarf að lesa á þerri Þeir Ijúga aldrei Marjorie Lees greip andann á lofti: „Tom Ithell... Hjá Tom Ithell! Hann býr hér við hliðina á okkur. Frænda féll aldrei vel við hann.“ En Ithell sem var / nöldurgjarn, hvíthærður eldri maður, hæddist að aðdrótt- ununum þegar lögreglufullt- rúamarir tveir bönkuðu upp á hjá honum. „Ég hef ekki séð Abbott í hálft ár,“ rumdi hann. „Ég skil ekki hvers vegna hann leggur til að eitt- hvað undarlegt sé á seiði hjá mér.“ Lög- reglu- full- trúar- nir tveir Mannlaust herbergi Graham roðnaði, klóraði sér á kollinum og þreif þerripappírinn úr höndum mannsins en Carter lögreglu- foringi snéri sér að frænku Abbotts, fröken Marjorie Lees. En þaðan var litla hjálp að fá. Hún hafði verið í herberginu sínu þegar hún heyrði skotið og þegar hún kom niður hafði dagstofan verið mannlaus. „Reyndar átti ég í erfiðleikum með lásinn á hálsmen- inu mínu svo það kunna að hafa liðið ein eða tvær mínútur þar til ég kom,“ viður- kenndi hún. „Og þá kom Tim, ritari frænda míns, inn úr garðinum." Hinn ungi og föl- leiti Timothy Ottaway sem sat í homi her- bergisins kinkaði vansæll kolli. „Ég var í sundlauginni þegar ég heyrði skotið,“ sagði hann. „Það tók mig nokkrar mínútur að bregða mér í föt og svo hljóp ég hingað." Nú kom Graham undirforingi til yfirmanns síns úr hinu homi herbergisins. Hann var sigri hrósandi á svipinn. „Jæja ég er búinn að lesa á blaðið herra þótt ég verði að viður- kenna að ég botna nú ek- kert í þessu... auk þess hef ég þurft að geta í eyður- nar.“ Hann rétti fram blað- snepil sem hann hafði skrifað á: AT TOM IT... pappír í spegli! gengu hljóðir aftur yfir í hús Jerome Abbott. Þögnin var rofin þegar þeir hittu lögreglulækninn fyrir utan. „Já... hann getur hafa lifað í um þrjár til fjórar mínútur býst ég við,“ sagði hann. „En hann getur ekki hafa staðið upp úr stólnum áður en hann dó.“ Graham hristi höfuðið. „Ég skil þetta ekki herra. Ég held ekki að það sé Ithell gamli... en samt segja þeir að dauðir ljúgi aldrei, ekki satt?“ „Vissulega,“ sagði Carter. „Og ef Abbot laug ekki vitum við hver myrti hann, ekki satt?“ Lausn á sakamálaþraut: •SUBfSuiQJOUI UJBU BJU>JS QB QIA QI5JOJ JB§ UUBIJ UU3 JIIQE QIBp UUBIJ IQJBIJ OAS §0 QIQBjq E juioq v.T.i.o wil QBJU^JS jjoqqy iQjBq JBpuXoy •ub-sjjjs ujos uuBq b sbj So (SuipuoqsiA sofjSnB) jjddBdijJocj ijsba Bjjocj qb jijXj qbj iqjoS uuBq jbSoc[ ^jojsiui iqjoS ureqBjQ -uuiSuiqjoui jba Xembjjo Bridds Sigursveit Guðlaugs Bessasonar á Héraðsmóti HSÞ í bridds. F.v. Tryggvi Bessason, Torfi Aðalsteinsson, Guðlaugur Bessason og Óli Kristins. Á niyndina vantar Guðmund Hákonarson og Svein Aðalgeirsson. «...» Héraðsmót HSÞ í bridds, sveitakeppni: Sveit Guðlaugs Bessasonar sigraði Sveit Guðlaugs Bessasonar sigraði á Héraðsmóti HSÞ í bridds sem lauk í Ljósvetn- ingabúð fyrir skömmu. Alls tóku 9 sveitir þátt I mótinu að þessu sinni og hlaut sigursveit Guðlaugs alls 1300 stig. Sveit Gylfa Yngvasonar varð í 2. sæti með 1195 stig og í 3. sæti sveit Þórólfs Jónassonar með 1179 stig. í sigursveit Guðlaugs voru auk fyrirliðans þeir Tryggvi Bessa- son, Torfi Aðalsteinsson, Óli Kristins, Guðmundur Hákonar- son og Sveinn Aðalgeirsson. í sveit Gylfa voru auk fyrirliðans Sveinn Helgason og bræður Gylfa þeir Kristján og Yngvi Yngvasynir. í sveit Þórólfs voru auk fyrirliðans Þórhallur Her- mannsson, Þorgeir Jónsson og Hlöðver Hlöðversson. MG Hálsi/-KK íslandsmótið í sveitakeppni í bridds: Heldur slæm byrjun sveita af Norðurlandi Norðlensku briddssveitunum gekk almennt heldur illa í fyrstu tveim umferðum ís- landsmótsins í sveitakeppni í bridds, sem hófst sl. fimrntu- dag. I gær voru spilaðar tvær umferðir, en þeim var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. I A-riðli var sveit Landsbréfa með forystu eftir fyrstu tvær umferðirnar með 46 stig af 50 mögulegum. Sveit Arnars Einars- sonar (N-e) var í neðsta sæti í riðlinum. í B-riðli var sveit S. Ármanns Magnússonar frá Reykjavík með fullt hús eftir fyrstu tvær umferð- irnar, 50 stig, en í þeirri sveit eru m.a. Akureyringarnir Jakob Kristinsson og Pétur Guðjóns- son. Sveit Roche frá Reykjavík var sömuleiðis með 50 stig. Sveit Gylfa Pálssonar (N-e) byrjaði illa og náði 15 stigum út úr fyrstu tveim umferðunum. Sveit Ingi- bergs Guðmundssonar (N-v) var aðeins með 8 stig. VÍB var með forystu í C-riðli með 43 stig, en næst kom sveit Sparisjóðs Siglufjarðar með 36 stig. Sveit Sigurbjörns Þorgeirs- sonar (N-e) var með 21 stig. í D-riðli var sveit Sjóvá- Almennra með forystu með 44 stig. óþh Halldórsmót Bridgefélags Akureyrar: Sveit Sigurbjöms með ömgga forystu Að loknum 8 umferðum af 11 í Halldórsmóti Bridgefélags Akureyrar hefur sveit Sigur- björns Þorgeirssonar tekið afgerandi forystu og á nú 32 stig á næstu sveit. Sigur sveit- arinnar virðist í sjónmáli, þó allt geti gerst í síðustu 3 umferðunum. Sveit Sigurbjörns hefur hlotið 173 stig en sveit Stefáns Vil- hjálmssonar sem er í 2. sæti, er með 141 stig. Sveit Unu Sveins- dóttur er í 3. sæti með 134 stig en jafnar í 4.-5. sæti eru sveitir Kristjáns Guðjónssonar og Páls Pálssonar með 126 stig. Síðustu 3 umferðirnar verða spilaðar þriðjudaginn 6. apríl nk. kl. 19.30. Næsta þriðjudag verð- ur spiluð 2. umferð í Akureyrar- mótinu í einmenningi sem jafn- ,framt er firmakeppni félagsins. Spilarar eru beðnir að fjölmenna til keppni og mæta tímanlega til skráningar en spilamennskan hefst kl. 19.30. -KK Vístala byggingarkostnaðar: Hækkaði um 0,4% millimánaða Hagstofan hefur reiknað vísi- tölu byggingarkostnaðar eftir verðlagi um miðjan mars 1993. Vísitalan reyndist vera 190,9 stig og hækkaði um 0,4% frá febrúar sl. Þessi vísitala gildir fyrir apríl 1993. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 2,0%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 0,7% sem jafngildir 2,8% verðbólgu á heilu ári.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.