Dagur - 06.04.1994, Síða 5
Miðvikudagur 6. apríi 1994 - DAGUR - 5
Rýkur á Hofsósí
Haukur Ágústsson
skrífar
Laugardaginn 26. mars fnjmsýndi Leikfélag Hofsóss uppsetningu
sína á leikritinu Rjúkandi ráb eftir Pir O. Man. Þetta höfundar-
nafn stendur fýrir hina landskunnu bræður, Jónas ogjón Múla Áma-
syni ásamt Stefáni Jónssyni. Leikstjóri uppsetningarinnar er Sólveig
Traustadóttir.
Undirritaður gat ekki fariö að sjá frumsýningu leíksins. Það, sem
hér er ritað, er byggt á annarri sýningu, sem
var mánudaginn 28. mars.
Óþarfi er að fara mörgum orðum um
efni þessa alkunna gamanleiks eða óper-
ettu. Híð létta skop höfundanna, sem er
byggt á kringumstæðum og orðfæri, á enn
greiða leíö um hlustir og sjónir áhorfenda,
jafnvel á þeim tímum, sem víð nú Iifum,
þegar þeir, sem skemmta þjóðinni, telja sig ekki geta náð til hlátur-
tauga hennar nema með blautlegum og iðulega hreinlega klúrum
bröndunun. Þegar til þess er hugsað, er þaö nánast léttir að sjá og
njóta skops, sem ekki byggist á kynlífi eða Iíkamshlutum því tengdu.
Leikstjórinn, Sólveig Traustadóttir, hefur unnið sinn hluta talsvert
vel. Verkið gengur allvel fýrir sig og er hnökralítiö. Fyrir kom reyndar,
að texti ruglaðist lítillega og í nokkrum tilfellum varð aö minna leik-
ara á. Þetta var þó smátt og skrifast tæplega á leikstjórann. Sviðsetn-
ing er almennt í góðu lagi. Hreyfingar um sviðíð ganga upp, en þó
ber HtíIIega á því, að einstaka uppsetningar eru ekkí alveg lausar við
að vera dálítíð vandræðalegar. Fas leikara er einnig almennt í góðu
lagi. Þó er dálítið um óþarfar hreyfingar nokkurrar flytjenda, sem
hefði mátt eyða að skaplausu.
Ýmislegt í uppsetningunni er skemmtilega unniö. Þar má nefna
það, að Ieikstjóri lætur verkið í raun hefjast neðan sviös eða í áhorf-
endasal, þar sem Kristín, þvottakona, er í óða önn að þrífa gólfið.
Eins er fýrsta söngatriðið, sem fellur í hlut Lalla Lýsóls, flutt framan
við sviðið. Gestir sitja víð borð í áhorfendasal og taka þátt í atkvæöa-
greiðslunni um fegurðardísir. Feguröarstjórinn og Peeper Rackets
fara flugferð um salinn með kátlegu látbragði til þess að aðstoða viö
hana. AUt þetta og ýmislegt annað er vel til fundið og lyftir uppsetn-
ingunni verulega jafnframt því, sem það færir hana nær áhorfend-
um.
Tónlist er mikil í Rjúkandi ráði. Hún er skemmtileg og gaman að
njóta þessara laga á ný. Útsetningar em eftir Hilmar Sverrisson, tón-
listarkennara á Sauðárkróki. Þær em Iipurlega unnar og fara vel.
Undírleikur er allur af segulbandi, og er það í góðu lagi, nema hvað
hann er heldur hátt stilltur. Það spillir einnig nokkuð, að alloft hefur
söngurinn verið tekinn upp líka, svo að heyrast tvær raddir, sem
ekki em ætíð í samfellu. Nær hefði verið að Iækka undirleikinn og
láta söngvara njóta sín.
Framsögn leikara er góð á texta. Einnig skilar sungið mál sér vel -
og best, þar sem um hópsöng er að ræða,
enda er hann ekki styrktur með bakupp-
töku.
í hlutverki Stefáns Þ. Jónssonar, veitinga-
manns, er Sigurður Sigurðsson. Hann
kemst allvel frá hlutverki sínu, en er þó
nokkuö ófimlegur á stundum í fasi sínu.
Ásdís, dóttir hans, er leikin af Hörpu
Kristinsdóttur. Ásdís kemst vel frá hlutverki sínu. Hið sama er um
Berglindu Einarsdóttur, sem fer með hlutverk Kristínar þvottakonu.
Hún er jafnan skopleg og lífleg, þó að reyndar út af bregöi einkum í
síðari hluta verksins, þar sem hún verður ívið of daufleg.
Lalli Lýsól er leikinn af Sigmundi Jóhannessyni. Hann á góða
spretti í leiknum og vekur iðulega hlátur með látbragði sfnu og orð-
um. Fyrir kemur þó, að honum bregst, ekki síst, þegar hann á að
vera orðinn mjög dmkkinn.
Lögregluþjónana tvo leika Stefán Jón Óskarsson og Kjartan Kjart-
ansson. Báðir gera allvel. Þó varð handtökuatriðið ekki svo átakmik-
ið, sem vera hefði mátt, og eins er yfirheyrslan ekki svo skopleg,
sem efni em til.
Kristján Jónsson fer með hlutverk fegurðarstjórans og gerir víða
vel og skoplega. Eins gerir Loftur Guðmundsson marga góða hluti í
hlutverki Peepers Rackets, hins ameríska útsendara.
Skarphéðínn Nilsen, strokufanga, son Kristínar, leikur Bjami Þór-
isson. Hann er tæplega nógu lifandi í túlkun sinni og nær því ekki út
úr persónunni því skopi, sem í henní býr.
Fegurðardísirnar þijár leika þær Sigurlína Guöjónsdóttir, Sandra
Dröfn Björnsdóttir og Sólveig Fjölmundsdóttír. Allar em þær glæsi-
legar á sviði og gera hlutverkum sínum vel viðhlítandi skil.
Sýning Rjúkandi ráðs mánudaginn 28. mars á Hofsósi vakti mikla
kátínu gesta. Það er að vonum. Þrátt fýrir ýmiss atriði, sem betur
hefðu mátt fara, var fjör í flutningi leikendanna, rennsli gott og fátt
um dauða punkta. Verkið skílaði því sínu og var vel virði kvöld-
stundar.
LESEN DAHORN lf>
Pappírinn í Úrvinnsluna
FÉSÝSLA
DRÁTTARVEXTIR
Mars 14,00%
Apríl 14,00%
MEÐALVEXTIR
Alm. skuldabr. lán mars Alm. skuldabr. lán apríl Verötryggö lán mars Verðtryggð lán apríl 10,20% 10,20% 7,60% 7,60%
LÁIMSKJARAVÍSITALA
Mars 3343
Aprll 3346
SPARISKÍRTEINI
RÍKISSJÓÐS
Tegund K gengi Káv.kr.
91/1D5 1,3850 4,99%
92/1D5 1,2255 4,99%
93/1D5 1,1412 4,99%
93/2D5 1,0779 4,99%
94/1 D5 1,9902 4,99%
HÚSBRÉF
Flokkur K gengi K áv.kr.
93/1 1,1561 5,25%
93/2 1,1331 5,19%
93/3 1,0062 5,19%
94/1 0,9670 5,19%
VERÐBREFASJOÐIR
Ávðxtun 1. jan umfr.
verðbölgu síðustu: (%)
Kaupg. Sðlug. 6 mán. 12 mán.
Fjárfestingarfélagið Skandia hl.
Kjarabréf 5,114 5,272 11,4 102
Tekjubréf 1,610 1,660 212 14,8
Markbrél 2,757 2,842 11,6 10,9
Skyndibrél 2,069 2,069 4,9 5,4
Fjölþjóðasjóóur 1,411 1,455 33,3 31,4
Kaupþing hf.
Einingabrél 1 7,065 7,194 5,4 4,9
Einingabréf2 4,110 4,131 14,7 11,4
Einingabrél 3 4,642 4,728 5,4 5,5
Skammlímabrél 2,509 2,509 12,8 9,8
Einingabréf 6 1,188 1,225 23,4 21,4
Verðbréfam. Islandsbanka hf.
Sj. 1 Vaxtarsj. 3,479 3,496 6,3 5,7
Sj.2Tekjusj. 2,018 2,058 14,1 10,9
Sj. 3 Skammt. 2,397
Sj.4Langt.sj. 1,648
Sj. 5 Eignask.frj. 1,602 1,626 22,0 14,9
Sj. 6 island 756 794
Sj. 7 Þýsk hlbr. 1,560
Sj. 10 Evr.hlbr. 1,588
Vaxtarbr. 2,4518 6,3 5,7
Valbr. 2,2982 6,3 5,7
Landsbréf hf.
islandsbrél 1,537 1,565 8,7 7,9
Fjórðungsbréf 1,170 1,187 9,0 82
Þingbréf 1,812 1,835 30,8 25,7
Öndvegisbrét 1,644 1,666 21,0 15,1
Sýslubréf 1,330 1,348 ú -2,3
Reiðubréf 1,499 1,499 7,9 7,4
Launabréf 1,041 1,057 22,3 15,0
Heimsbréf 1,456 1,500 12,7 18,0
HLUTABRÉF
Sölu- og kaupgengi á Verðbréfaþingi íslands:
Hagst. tilboð
Lokaverð Kaup Sala
Eimskip 3,74 3,75 3,85
Flugleiðir 1,10 1,00 1,10
Grandi hf. 1,93 1,80 1,93
islandsbanki hf. 0,83 0,82 0,83
Olís 1,97 1,98 2,06
Útgerðarfélag Ak. 3,20 2,55 3,10
Hlutabréfasj. VÍB 1,10 1,11 1.17
isl. hlutabréfasj. 1,10 1,09 1.14
Auðlindarbréf 1,03
Jarðboranir hf. 1,87 1,81 1,87
Hampiðjan 1,14 1,10 1,30
Hlutabréfasjóð. 0,84 0,85 1,02
Kaupfélag Eyf. 2,35 2,20 2,34
Marelhf. 2,69 2,50 2,65
Skagstrendingurhf. 1,60 1,60 2,00
Sæplast 2,80 2,70 2,94
Þormóður rammi hf. 1,83 1,80 1,95
Sðlu- og kaupgengi á Opna tilboðsmarkaðinum:
Alm. hlutabr.sj. hf. 0,88 0,88 0,91
Ármannsfell hl. 1,20 0,98
Ámes hf. 1,85 1,85
Bifreiðaskoðun ísl. 2,15 1,95
Eignlél. Alþýðub. 0,85 125
Faxamarkaðurinn hl.
Fiskmarkaðurinn
Haförninn 1,00
Haraldur Böðv. 2,50 2,48
Hlutabréfasj. Norðurl. 1,12 1,12 1,17
isl. útvarpsfél. 2,70
Kógun hl. 4,00
Olíufélagið hf. 4,63 4,65
Samskíp hf. 1,12
Samein. verktakar hf. 6,65 6,65 6,80
Síldarvinnslan hf. 2,40
Sjóvá-Almennar hf. 5,40 4,50 5,90
Skeljungur hl. 3,88 3,99
Softis hl. 6,50 4,00
Tollvörug. hf. 1,10 0,96 1,24
Tryggingarmiðst. hf. 4,80
Tæknival hf. 1,00
Tölvusamskipti hf. 3,50 3,00 4,00
Þróunarfélag íslands hl. 1,30 1,30
GENGIÐ
Gengisskráning nr. 121
5. aprll 1994
Kaup Sala
Dollari 72,02000 72,24000
Sterlingspund 105,53700 105,86700
Kanadadollar 51,60400 51,84400
Dönsk kr. 10,83410 10,87210
Norsk kr. 9,78450 9,82050
Sænsk kr. 9,07340 9,10740
Finnskt mark 13,11340 13,16340
Franskur franki 12,44230 12,48830
Belg. franki 2,06370 2,07190
Svissneskur franki 50,58620 50,76620
Hollenskt gyllini 37,86820 38,00820
Þýskt mark 42,52860 42,65860
ftölsk llra 0,04402 0,04423
Austurr. sch. 6,04450 6,06850
Port. escudo 0,41430 0,41640
Spá. peseti 0,52260 0,52520
Japanskt yen 0,69875 0,70095
irskt pund 101,94600 102,38600
SDR 101,17110 101,57110
ECU, Evr.mynt 81,97250 82,30250
Elísabet skrifar:
Magn sorps sem fer upp í Gler-
árdal til urðunar er ótrúlegt og er
það ekki sjaldan sem heyrst hafa
raddir fullar hneykslunar á því
hvernig farið er með þann stað.
Nú er komið tækifæri fyrir þá
sömu aðila og vonandi fleiri að
minnka um helming sorpið sem
þangaó fer.
Ég stenst ekki mátið að skrifa svo-
lítið um þessa auglýsingu sem
kemur svo oft á skjáinn að gengur
næst dömubindisauglýsingum.
Manni gæti dottið í hug að fram
að þeim tíma að þetta marg aug-
lýsta þvottaefni kom á markaðinn
hefðu blettir alls ekki náðst úr föt-
um. Ekki er það nú svo slæmt því
búin er að vera á markaðnum Sól-
skinssápa í marga áratugi sem
gefur sama árangur og sýnt er í
þessari makalausu auglýsingu. Ef
slíkt sápustykki er bleytt og nudd-
að í blettinn hverfur hann í þvotti
á fjörutíu stiga hita. Ég átti peysu
sem smurolía fór í svo eftir varð
blettur í erminni þegar búió var að
þvo hana. Konan mín tók svona
sápustykki og nuddaði í blettinn
og hann hvarf í næsta þvotti. Ég
vinn sem matreiðslumaður og fæ
mjög oft smjörlíki og aðra matar-
feiti í vinnuföt mín og þeir fara úr
með þessari ágætu sápu.
Sólskinssápan tekur þessu efni
fram af því er reynsla á mínu
heimili. Ég geng í mjög ljósri úlpu
scm er eðlilega skítsæl og þarf því
oft þvott. A henni eru vissir álags-
blettir sem óhreinindi festast
meira í enn annars staðar. Ef Yes
Ultra er borið á þessa bletti verður
ekki fullnægjandi árangur af því.
Þaó er kominn aðili í þcnnan
bæ sem vill fá þennan hluta sorps-
ins, gctur notað þaö og meira að
segja útvegaó fólki vinnu vegna
þess að vió sjáum honum fyrir
hráefni. Það er ærin ástæða til að
hugsa til Urvinnslunnar þegar við
stöndum meö blaðabunkann í
fanginu tilbúinn í Glerárdalinn.
Ég lýsi ánægju minni vegna
Ef sólskinssápa er borin á blett-
ina verður hún eins og ný eftir
þvott. Þessi ágæta sápa var í
marga áratugi notuð í uppvask á
hverju heimili og voru sérstakir
sápuþeytarar framleiddir til þess
að þeyta sápuna saman við vatnið.
Eldri húsmæður þekkja allar
kosti þessarar ágætu sápu og hér
hef ég lagt til fróðleik fyrir þær
yngri sem eru kannski búnar að
gleyma eóa hafa aldrei vitað um
tilvist þessarar ágætu sápu.
Brynjólfur Brynjólfsson.
Börnin útmökuð
í hundaskít
„Ég verð alveg öskureið þegar
ég sé hunda vera að gera þarfir
sínar héma í móunum vió veginn
inn að Golfskálanum að Jaöri,
sem er vinsælt útivistarsvæði
barna. Ég er með tvö ungabörn og
þau gera sér ekki grein fyrir því
hvað þetta er og þau koma stund-
um heim útmökuð í hundaskít. Ég
hélt að hundaeigendur þyrftu að
vera meó poka undir þennan
óþverra og eins að hafa þá í bandi
þegar verió er að viðra þá,“ sagði
ung móðir sem hefur ímugust á
hundaskít í bamafötum.
þess að loksins er okkur gert
möglcgt að flokka sorpið okkar.
Það eru nokkrar vikur síðan ég
byrjaði að safna saman því scm
Urvinnslan vill fá, þ.e. dagblöð,
skolaðar fernur og allt sem er úr
bréfi og mjúku plasti. Magnið sem
frá mér fcr síðan upp í Glerárdal
er brot af því sem áður var og fer
ég meó afganginn upp í Urvinnslu
með glöðu geði og sé ekki ástæðu
til aó fá einhverjar krónur fyrir
það.
Alþingi
íslendinga
Frá Alþingi
íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn
skv. reglum um hús Jóns Sigurðssonar
(búð fræðimanns í Kaupmannahöfn svk. reglum um
hús Jóns Sigurðssonar er laus til afnota tímabilið 1.
september 1994 til 31. ágúst 1995. Fræðimenn, sem
hyggjast stunda rannsóknir eða vinna að verkefnum í
Kaupmannahöfn, geta sótt um afnotarétt af íbúðinni,
sem er í Skt. Paulsgade 70 (örskammt frá Jónshúsi).
Hún er þriggja herbergja (um 80 fermetra), en auk
þess hefur fræðimaðurinn vinnuherbergi í Jónshúsi.
Ibúðinni fylgir allur nauðsynlegasti heimilisbúnaður og
er hún látin í té endurgjaldslaust. Dvalartími í íbúóinni
er að jafnaði þrír mánuðir en til greina kemur skemmri
tími eða lengri eftir atvikum.
Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist til skrifstofu Al-
þingis eigi síðar en 1. maí n.k.
Umsækjendur skulu gera grein fyrir tilgangi með dvöl
sinni í Kaupmannahöfn, svo og menntun og fyrri störf-
um. Þá skal tekið fram hvenær og hve lengi óskað er
eftir íbúðinni, svo og um fjölskyldustærð umsækjenda.
Tekið skal fram að úthlutunarnefnd ætlast til að dvalar-
gestir nýti úthlutaðan tíma sinn að fullu við störf (
Kaupmannahöfn.
Sérstök eyðublöð er hægt að fá á skrifstofu Alþingis í
Alþingishúsinu í Reykjavík og í sendiráði íslands í
Kaupmannahöfn.
Yes Ultra hvað?