Dagur - 25.05.1994, Blaðsíða 3
Mióvikudagur 25. maí 1994 - DAGUR - 3
FRÉTTIR
Mánudagsblað
Dags
Vegna sveitarstjórnarkosninganna á
laugardag kemur Dagur út á mánu-
dag.
í bla&inu veröur úrslitum kosninganna í öll-
um sveitarfélögum á Nor&urlandi ger& ítar-
leg skil, birtar tölulegar upplýsingar og vi&-
töl vi& frambjó&endur.
Skilafrestur auglýsinga í þetta mánu-
dagsblaö Dags er til kl. 14 föstudag-
inn 27. maí.
Drög aö samþykktum kynnt:
Ný samtök 26
aðildarfélaga
komi í stað Búnaðarfélags íslands og
Stéttarsambands bænda
Stéttarsamband bænda hefur sent
frá sér kynningu á drögum að
samþykktum nýrra bændasam-
taka sem til eiga að verða við
sameiningu Búnaðarfélags fs-
lands og Stéttarsambands bænda.
Eins og kunnugt er hófust um-
ræður um sameiningu þessara
samtaka á fundum bænda á síð-
asta ári, sem leiddu til þess að
stjórn Stéttarsambands bænda
óskaði eftir viðræðum við stjórn
Búnaðarfélags íslands um málið.
Þær viðræður leiddu til stofnunar
sameiningarnefndar, sem skilaði
drögum að samþykktum samein-
aðra samtaka fyrr á þessu ári.
Búnaðarþing tók mjög jákvæða
al'stöðu til sameiningarinnar og að
undanförnu hafa farið fram kynn-
ingarfundir á meðal bænda um allt
land. Skoðanakönnun um samein-
inguna á meðal bænda á að fara
fram samhliða komandi svcitar-
stjómarkosningum. Aðalfundur
Stéttarsambandsins og auka Búnað-
arþing rnunu síóan taka málið til
umtjöllunar og ákvörðunar á
grundvclli niðurstöðu þcirrar skoð-
anakönnunar.
I drögum að sameinuðum
bændasamtökum scgir mcðal ann-
ars að bændasamtökin gcgni tví-
þættu hlutvcrki. Annars vcgar að
gæta hagsmuna bændastéttarinnar
en hins vegar að annast leiðbcin-
ingaþjónustu í þágu landbúnaðar-
ins. Bændasamtökunum cr ætlað að
móta heildarstefnu í málefnum
landbúnaðarins, að vera málsvari
bændastéttarinnar gagnvart hinu
opinbera og öðrum aðilum þjóðfé-
lagsins, beita sér l’yrir nýmælum í
löggjöf og hafa vakandi auga með
afkomu bænda og almennum
rekstrarskilyrðum landbúnaðarins.
Bændasamtökunum er ætlað að
kappkosta aó tryggja bændum lífs-
kjör til samræmis við aðra þegna
þjóðfélagsins og annast í því cl'ni
samningsgcrð af hálfu bænda;
mcðal annars um framlciðslustjóm,
vcrðlagningu búvara og kjör starfs-
l'ólks í landbúnaði.
Bændasamtökunum cr cinnig
æ.tlað að vinna að framförum í
landbúnaði: mcðal annars mcö því
að ráóa til starl'a landsráöunauta cr
hafi á hcndi forystu um lciðbcin-
ingar á viðkomandi sviðum. Gcrt cr
ráð fyrir að búnaðarsamböndin
vinni á sama hátt aö framförum í
landbúnaði.
Gcrt er ráö fyrir að 26 lélaga-
samtök cigi aöild að hinum nýju
bændasamtökum, 15 búnaðarsam-
bönd í sýslum landsins auk 11 bú-
grcinalelaga. ÞI
Tónleikar The Boys:
Miðarnir rifnir út
Barnastjörnurnar Rúnar og Arn-
ar Halldórssynir í The Boys
halda tónleika í íþróttahöllinni á
Akureyri sunnudaginn 29. maí
kl. 14. Miðasala hófst í verslun-
inni Melódíu í síðustu viku og fór
hún vel af stað. Á annað hundrað
miðar seldust í vikunni.
„Viðtökurnar hafa vcrið mcð
ólíkindum," sagði Sigl'ús E. Am-
þórsson, cigandi Mclódíu og
skipulcggjandi tónlcika Thc Boys
hér á landi. „Það er mikil spcnna
og áhugi hjá krökkunum, sem cr
skiljanlcgt því þaö cr langt síðan
alvöru barnastjörnur hafa vcrið vió
líöi hcr á landi, hvað þá svona vin-
sælar stjömur og Thc Boys," sagði
Siglus.
Miðar vcrða scldir í geisladiska-
vcrsluninni Mclódíu fram á laugar-
dag og cinnig vcrður miðasala við
innganginn í Iþróttahöllinni.
Thc Boys halda fcma tónleika
hér á landi um næstu helgi, tvcnna í
Kaplakrika á laugardaginn og síðan
á Akurcyri og Egilsstööum á
sunnudaginn. SS
Samningurinn undirritaður, f.v.: Guðniundur Árni Stcfánsson heilbirgðisráðherra, Halldór Jónsson bæjarstjóri og
Friðrik Sophusson, fjármálaráðhcrra.
Samningur undirritaður um byggingu legudeildarálmu við FSA:
„Stórverkefni sem hleypir nýju
blóði í atvinnulífið“
- sagði Guðmundur Árni Stefánsson, heilbrigðisráðherra
Fulltrúar ríkisvaldsins og Akur-
eyrarbæjar undirrituðu sl. föstu-
dag samning um byggingu legu-
deildarálmu við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri. Frestur
til að skila inn tilboðum til
Framkvæmdasýslu Ríkiskaupa
rennur út 8. júní nk. en auglýst-
ur tilboðsfestur var upphaflega
til 1. júní. Fresturinn er vegna
óvissu um hvort samningurinn
þyrfti í Evrópuútboð sem svo
reynist ekki þörf á. Það voru
þeir Guðmundur Árni Stefáns-
son, hcilbrigðisráðherra, og
Friðrik Sophusson, fjármálaráð-
herra, sem undirrituðu samning-
inn fyrir hönd ríkisins, en Hall-
dór Jónsson, bæjarstjóri, af
hálfu Akureyrarbæjar.
Um cr aó ræða 4.160 fermctra
byggingu á fjórum hæðum og
hcfjast framkvæmdir væntanlcga í
sumar cn gcrt cr ráð fyrir að bygg-
ingunni vcröi að fullu lokið árið
1998. Fyrsti áfangi, barnadcild,
vcrður væntanlcga tckin í nokkun
l'yrir árslok 1997 cn vonir standa
til að cf hagstæðir samningar nást
vcrði hægt að taka barnadcildina í
notkun nokkuð fyrr. Kostnaóur
við l'yrsta ál'anga lcgudcildarálmu
cr áætlaður rúmlega 290 milljónir
króna. Hönnuðir cru húsamcistari
ríkisins, Vcrkfræðistofa Sigurðar
Thoroddscn og Raftákn hf. For-
maöur byggingancfndar cr Finnur
Birgisson, arkitekt.
„Sú stcfnumörkun ríkisstjómar-
innar cr yfirlýst að stcfna bcri aö
uppbyggingu sérhæfórar sjúkra-
húsaþjónustu á höfuðborgar- og
Eyjafjarðarsvæðinu. Þessi samn-
ingur er í samræmi vió þá stefnu
og hcfjast framkvæmdir væntan-
lega innan örl'árra vikna. Ég vona
að það stórverkefni sem hér er ver-
ið að ganga frá megi verða til þess
aó hleypa nýju blóói í atvinnulíf í
fjórðungnum enda ekki vanþörf á
á þcssum erfióu tímum," sagði
Guðmundur Árni Stefánsson, heil-
brigðisráðlicrra. GG
Góður árangur nor&lenskra
kjötiðnaðarmanna
Norðlenskir kjötiðnaðarmenn
stóðu sig vel í fagkeppni Meist-
arafélags kjötiðnaðarmanna sem
fram fór á dögunum. Auk þess
sem kjötmeistaratitilinn árið
1994 kom í hlut Páls Hjálmars-
sonar, kjötiðnaðarmanns hjá
Kjötiðnaðarstöð KEA á Akur-
eyri, voru alls níu af átján gull-
verðlaunum, sem veitt voru fyrir
kjötvörur, veitt til kjötiðnaðar-
manna á Norðurlandi.
Páll Hjálmarsson hlaut alls
fjögur gullverðlaun; l'yrir reyktan
lax, pcdcrsens salamí, úrbeinað
hangilæri og vínarpylsur, sem
hann hlaut kjötmeistaratitilinn
cinnig fyrir. Ævar Austfjörð, sem
cinnig starfar hjá Kjötiónaðarstöð
KEA, hlaut tvenn gullverðlaun;
fyrir blóðmör og fyrir sykurleg-
inn, léttreyktan hamborgarahrygg.
Olafur R. Ólafsson hjá Kjarnafæði
á Akurcyri hlaut einnig tvenn
gullverðlaun; fyrir fjallalambs-
kæfu og fyrir úrbeinað hangilæri
og Hrönn Káradóttir hjá Kjötiðju
KÞ á Húsavík hlaut gullverðlaun
fyrir úrbeinaó hangilæri. ÞI
Heimsókn ífyrirtœki á Akureyri
Ncmcndur í 5. bckk Itarnaskóla Olafsfjarðar, brugðu sér í bæjarfcrð til Akureyrar í gær og hcimsóttu m.a. nokkur
fyrirtæki, ásamt umsjónarkcnnara sínum og skólastjóra Gunnari L. Jóhannssyni og mæðrum úr forcldrafciaginu.
Krakkarnir hcimsóttu Mjólkursamlag KEA, Dagsprcnt, Ríkisútvarpið og Lindu. A lciðinni hcim var komið við í
íþróttamiðstöðinni á Þclamörk, íþróttahúsið skoðað og farið í sund. Myndin var tckin af hópnum eftir hcimsóknina í
Dagsprcnt. KK/Mynd: Robyn.
Auglýsingadeild, sími 24222.
Opib frá kl. 8 til 17