Dagur - 25.05.1994, Page 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 25. maí 1994
Bætt aðstaða fyrir sjúkt aldrað fólk
Heilbrigðisráðherra undir-
ritar samkomulag um
aukinn rúmafjölda
Eitt þeirra mála sem Alþýöuflokk-
urinn leggur áherslu á í stefnuskrá
fyrir komandi bæjarstjórnarkosn-
ingar er bætt aðstaöa fyrir aldraða
og þá er ekki síst átt viö bætta aó-
stöóu fyrir þá sem sjúkir eru.
Því er þaö mikið gleðiefni aö
sl. föstudag var undirritaður samn-
ingur milli Heilbrigöisráðuneytis-
ins og Akureyrarbæjar um að
fjölga hjúkrunarrýmum á Hlíð um
10.
Þetta er búió að vera mikið
kappsmál enda nauósyn brýn og
því ánægjulegt þegar ráðherra
heilbrigóismála, Guðmundur Árni
Stefánsson, tók af skarið með
heimild til þessa.
Aðstaða aldraðra
Sem betur fer er aðstaða fyrir
aldraða á Akureyri með því besta
sem gerist hér á landi, bæði hvað
varóar heimahjúkrun og hjúkrun-
arrými.
Langlífi hefur aukist en því
fylgir þó gjarnan að þörf fyrir
hjúkrun eykst. Því verður áfram
að halda á þeirri braut hér í bæ að
veita þessu fólki góða þjónustu.
Virðum aldraða
Það er vottur um menningarstig
hverrar þjóðar hvernig búið er að
öldruðum, þeim sem lokið hafa
farsælu ævistarfi og lagt grunn að
þeirri velferð, sem við hin yngri
búum viö.
Alþýðuflokkurinn hefur á um-
liðnum árum og áratugum verið í
forystu í öldrunarmálum í bænum
og fór meó formennsku í Dvalar-
heimilastjórn. Á þeim árum var
„Það er vottur um
menningarstig
hverrar þjóðar
hvernig búið er að
öldruðum, þeim
sem lokið hafa
farsælu ævistarfí
og lagt grunn að
þeirri velferð,
sem við hin yngri
búum við.“ '
mest áhersla lögð á uppbyggingu
dvalarheimila, en svo ört breytast
aðstæður í þjóðfélaginu aó nú er
það ekki eins eftirsóttur kostur.
Hreinn Pálsson.
Því hefur orðið sú breyting að
byggingar fjölbýl ishúsa, sem sér-
staklega eru sniðin að þörfum
aldraðra hafa tekið við og á sinn
hátt stendur bæjarfélagið aó því,
m.a. með því aó kaupa ákveðinn
fjölda íbúða og tengja þjónustu-
miðstöðvar þessum byggingum
sem raunar eru ætlaðar íleirum en
þeim sem í fjölbýlishúsum búa.
*
Aherslu á aðstoð við sjúka
Eins og fyrr er sagt er það stefnu-
mál Alþýðuflokksins að leggja
megin áherslu á bætta aðstöðu fyr-
ir þá sjúku með heimahjúkrun og
fleiri hjúkrunarrýmum á stofnun-
um.
Til þess að fylgja því máli eftir
þurfa því áhrif flokksins að aukast
og slíkt gerist ekki, nema hann fái
fleiri bæjarfulltrúa kjörna.
Hreinn Pálsson.
Höfundur skipar 2. sætió á A-listu Alþýöu-
flokksins fyrir bæjarsljómarkosningarnar á Ak-
ureyri á laugardag.
Hver vill óbreytt ástand?
Mér er það bæói ljúft og skylt aó
benda kjósendum á Akureyri á
ágæti þess fólks sem nú skipar B-
listann, vegna þess hve ég þekki
þaó vel. í fjórum efstu sætum list-
ans er fólk sem hefur víótæka
reynslu af bæjarmálum og at-
vinnulífi.
Astu í bæjarstjórn
Fimmta sætið, baráttusætið, skipar
Ásta Sigurðardóttir sem hefur dýr-
mæta reynslu og þekkingu á mál-
efnum launþega, ýmissa félaga-
samtaka, auk bæjarmálefna vegna
setu í ýmsum nefndum á vegum
bæjarins.
Þaó vita allir sem Ástu þekkja
hve traust hún er og raunsæ. Ak-
ureyringar eru lánsamir aó eiga
kost á því að tryggja henni sæti í
Bæjarstjórn Akureyrar.
Þekking og reynsla
I næstu sætum listans er fólk sem
einnig hefur víðtæka þekkingu og
reynslu og hefur náð góóum ár-
angri í störfum sínum.
Þessu fólki treysti ég til að
vinna vel saman.
Þessu fólki treysti ég til aö tak-
ast á við erfióleika.
Þessu fólki treysti ég til að
vinna þau verk sem þarf af dugn-
'aói og heilindum.
Breytinga er þörf
En þetta ágæta fólk fær ekki tæki-
færi til forustu í Bæjarstjórn Akur-
eyrar ef meirihlutinn heldur velli.
Þaó skiptir engu þó Alþýðubanda-
lagið vinni mann af Sjálfstæðis-
flokknum, það þýðir cinfaldlega
óbreytt ástand.
Eru bæjarbúar ánægðir með ár-
angur þessara flokka og efndir á
kjörtímabilinu? Svarið er nei. Þess
„En trúa kjósendur
því að fólk sem
hefur haft tækifæri
í 4 ár til að láta
verkin tala skipti
um ham á kosn-
ingadaginn og
verði allt annað
og betra.“
vegna segist mcirihlutinn nú ætla
að „breyta vörn í sókn“.
En trúa kjósendur því að fólk
sem hefur haft tækifæri í 4 ár til
að láta verkin tala skipti um
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir.
ham á kosningadaginn og verði
allt annaö og betra?
Álíta bæjarbúar að Sjállstæðis-
Ilokkur og Alþýðubandalag, sem
eru ólíkastir allra flokka, séu best-
ir til samstarls í meirihluta?
Engin áhætta!
Nei, þaó er brcytinga þörf í þess-
um bæ.
Eg skora á konur á Akureyri að
hafna því sem cr og vclja til lor-
ustu flokk sem hefur þær Sigfríði
Þorsteinsdóttur og Ástu Sigurðar-
dóttur innanborðs.
Eg skora á kjósendur á Akur-
eyri að gefa B-listanum tækifæri
til áhrifa. Áhættan cr cngin, því
hver vill óbreytt ástand?
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir.
Höfundurer frúfurundi bæjarfulltrúi á Akureyri
og skipar 22. sæti ú B-listu Frumsóknurflokks-
ins viö bæjurstjórnarkosningarnar ú laugardag-
inn.
Eitt samfélag fyrir alla
Á undanfömum árum og áratugum
hafa fatlaðir krafist þeirra sjálf-
sögðu mannréttinda að fá að taka
þátt í daglegu amstri þjóðfélagsins
á sama hátt og aðrir. Til þess að
svo megi verða þarf margt að
KIPULAG RÍKISINS
Lög um mat á umhverfis-
áhrifum hafa tekið gildi
Athygli skal vakin á því að lög nr. 63/1993 um mat á um-
hverfisáhrifum tóku gildi I. maí 1994. Nú er óheimilt
að veita leyfi til framkvæmda, hefja framkvæmdir eða
staðfesta skipulagsáætlanir samkvæmt skipulagslögum nr.
19/1964, ásamt síðari breytingum, nema ákvæða laga nr.
63/1993 og reglugerðar nr. 179 hafi verið gætt.
Lögin og reglugerðin fást hjá embætti skipulagsstjóra rík-
isins. Þar er unnið að almennum leiðsögureglum, sem
einkum eru ætlaðar sveitarstjórnum, framkvæmdaaðilum
og ráðgjöfum þeirra, um tilhögun mats, tengsl við önnur
lög og reglugerðir og viðurkennda starfshætti.
Nánari upplýsingar veita Halldóra Hreggviðsdóttir og
Þóroddur F. Þóroddsson hjá Skipulagi ríkisins.
Skipulagsstjóri ríkisins.
brcytast í bæjarfélaginu og bæjar-
stjórn hefur völd til þess aó konia
á breytingum. Alþýðubandalagið
hefur ávallt staðió vöró unt félags-
legt öryggi og þjónustu og okkur
er það fullljóst aó margt þarf að
breytast til aó latlaóir, þ.e. líkam-
lega fatlaðir, geðfatlaðir og
þroskaheftir, njóti sambærilegra
réttinda og kjara á við aóra. Akur-
eyrarbær er stór vinnuveitandi og
Alþýðubandalagið vill beita sér
fyrir því að þar fái fleiri fatlaóir
störf viö hæfi en nú cr raunin. Eins
þarf að huga að umhverfi og að-
gengi þannig að líkantlega fatlaóir,
blindir og hreyfiskertir, þar nteð
taldir aldraðir og foreldrar með
ung böm, eigi auðveldara mcð að
komast lerða sinna.
Nú í júníbyrjun vcröur haldin
alþjóðleg ráðstefna um málefni
fatlaðra í Reykjavík. Þar veróa
samankomnir fatlaðir, fræðimenn
og stjómmálamenn frá 40-50 þjóð-
löndunt og eru fyrirlesarar frá öll-
um heimshornum. Yfirskrift ráð-
stefnunnar er EITT SAMFÉLAG
FYRIR ALLA en stefna og mark-
miö Sameinuðu þjóðanna í þessurn
málaflokki og nýjar grundvallar-
reglur sent Allsherjarþingiö sam-
þykkti á sl. ári veróa kynntar. Þær
reglur eru taldar vera undanfari al-
þjóóalaga um málefni fatlaðra.
Vonandi sjá bæjarstjómarmenn
ástæðu til að sækja sér þekkingu á
Sigrún Sveinbjörnsdóttir.
þessa ráðstefnu, en slíkur heims-
viðburður veröur ekki vió bæjar-
dyr okkar á næstunni, a.m.k. ekki
á næstu ntannsævi.
Stærsta réttindamál fatlaðra í
mörgum þjóólöndum er það að fá
að búa í svcitarfélagi sínu á söntu
forsendum og aðrir, þ.e. að sveit-
arfélagió beri ábyrgð á allri félags-
legri þjónustu gagnvart þeim á
sama hátt og öörum þegnurn.
Þannig krefjast fatlaóir að sveitar-
félagió þjóni ÖLLUM þegnum
sínunt en ekki bara sumum, aö all-
ir séu jafnréttháir. Þessi krafa er
„Akureyrarbær
er stór vinnuveit-
andi og Alþýðu-
bandalagið vill
beita sér fyrir
því að þar fái
fleiri fatlaðir
störf við hæfí en
nú er raunin“.
réttmæt og Samcinuðu þjóðirnar
leggja málefninu lið í æ ríkara
mæli. Alþýðubandalagið vill að
málefni fatlaðra færist ylir til
sveitarfélagsins og sér ntögulcika
á því verði Akurcyri fyrir valinu
sem tilraunasveitarfélag. Að
mörgu þarf að hyggja og auðvitað
er ekki hægt aö varða leiðina fyrir-
frarn til enda, cn Alþýðubandalag-
iö hefur kunnáttu á þessu sviði og
er óhrætt að takast á við þau verk-
efni sent bíða.
Sigrún Sveinbjörnsdóttir.
Höfundur skipar þriója sæti ú lista Alþýóu-
bandalagsins á Akureyri fyrir bæjarstjórnar-
kosningamar nk. laugardag.