Dagur - 17.06.1994, Page 10
10 - DAGUR - Föstudagur 17. júní 1994
Hvað borðar íslensk æska?
Könnun á matar-
æðí skólafólks
sýnir gildi
morgunverðar
A síðastliðnu ári gekkst Mann-
eldisráð fyrir könnun á matar-
æði barna og unglinga sem var
meðal annars ætlað að svara
þeirri grundvallarspurningu
hvort börnin okkar fái nægilega
holla og góða fæðu. Niðurstöður
könnunarinnar hafa nú verið
gefnar út í lítilli bók sem nefnist:
Hvað borðar íslensk æska?
Könnun á mataræði ungs fólks
1992-1993. Þar er meðal annars
greint frá máltíðaskipan og nest-
ismálum nemenda, hversu al-
gengt er að börn og unglingar
borði morgunverð og fái heita
máltíð. Einnig kemur fram nær-
ingargildi og hollusta fæðunnar
og hvaða fæðutegundir eru áber-
andi í fæði þeirra.
Undanfarið hefur verið nokkur
umræða um matarmál skólabarna,
ekki síst í tengslum við væntan-
lega lengingu skóladags. Niður-
stöóur könnunarinnar ættu að vera
gagnlegt innlegg í þá umræðu
enda æskilegt aó hvers kyns ráð-
stafanir varðandi mat í skólum
taki mið af raunverulegum að-
stæðum íslenskra barna.
En hvernig er mataræði æsk-
unnar háttað? Það sem vekur
mesta athygli er hversu mikinn
sykur íslensk börn fá úr fæðunni
borið saman við jafnaldra þeirra í
nágrannalöndunum. Hvert bam
borðar að jafnaði 96 grömm af
hreinum strásykri daglega og jafn-
gildir það rúmum desilítra af
sykri. Er þá ótalinn sá sykur sem
er í fæðunni frá náttúrunnar hendi,
til dæmis í ávöxtum, hreinum safa
og mjólk. Svo mikil sykurneysla
hefur vart veriö skráð í nokkurri
neyslukönnun meöal nágranna-
þjóóa. Gosdrykkir og aðrir sykr-
aðir svaladrykkir eiga drjúgan þátt
í þessari miklu neyslu og lætur
næmi aó helmingur sykursins sé
innbyrtur á þennan hátt. Þótt syk-
urneyslan sé mikil aó jafnaói eru
ekki öll börn og unglingar sama
markinu brennd. Um helmingur
nemenda í 5. bekk og þriðjungur
nemenda í 7. bekk drekkur til
dæmis gosdrykki aðeins einu sinni
til tvisvar í viku og hjá þeim er
sykurneyslan mun minni en hjá
hinum sem drekka oftar gos. Þaó
er hins vegar athyglisvert að
morgunverðurinn virðist skipta
sköpum meö tilliti til hollustu
fæðunnar og sykumeyslu það sem
eftir er dags. Þeir sem borða
morgunverð flesta daga vikunnar
fá hvorki meira né minna en 50%
meira af flestum nauðsynlegum
næringarefnum en mun minni
sykur en hinir sem sjaldan borða
morgunverð. Þeir síðamefndu
borða meira af sælgæti og lélegri
fæðu og í þeirra hópi er að fínna
fleiri feitlagna unglinga en einnig
fleiri mjög granna eða jafnvel hor-
aða einstaklinga.
Bókin er fáanleg í Skólavöru-
búö Námsgagnastofnunar og á
skrifstofu Manneldisráðs Islands
og kostar 400 krónur.
Þessi mynd var tekin af prestunum níu að iokinni vígslu. Aftari röð frá vinstri: Sr. Yngvi Þórir Árnason, þjónaði á
Prestbakka í Hrútafirði, nú iátinn, sr. Róbcrt Jack, prófastur á Tjörn á Vatnsnesi, nú iátinn, sr. Trausti Pétursson,
prófastur á Djúpavogi, nú látinn, sr. Sveinbjörn Sveinbjörnsson, prófastur í Hruna, og sr. Sigmar I. Torfason, pró-
fastur á Skeggjastöðum í Bakkafirði. Fremri röð frá vinstri: Sr. Jón Árni Sigurðsson, Grindavík, nú látinn, sr. Stef-
án Eggertsson, prófastur á Þingeyri við Dýrafjörð, nú iátinn, sr. Guðmundur Guðmundsson, Útskálum, og sr. Sig-
urður Guðmundsson, vígslubiskup, lengst á Grenjaðarstað í Suður- Þingeyjarsýslu.
Halda upp á 50 ára
vígsluafmæli á morgun
Á morgun, laugardaginn 18.
júní, verða 50 ár liðin frá því að
Sigurgeir Sigurðsson, þáverandi
biskup, vígði í Dómkirkjunni í
Reykjavík níu presta til þjón-
ustu víða um land. Af þeim níu
eru íjórir á lífi og ætla þeir að
hittast ásamt ekkjum þeirra sem
látnir eru og snæða saman í veit-
ingahúsinu Perlunni í Reykjavík
á vígsluafmælisdaginn.
Sr. Sigurður Guðmundsson,
vígslubiskup, var einn þeirra níu
presta sem vígðust til þjónustu
fyrir réttum 50 árum. Hann sagði í
samtali við Dag að vissulega hafi
verið óvenjulegt aó svo margir
prestar hafi verið vígðir saman.
Svo margir prestar hafi aldrei í
annan tíma á þessari öld tekið
vígslu í sömu athöfninni og vafa-
samt sé aö það hafí nokkurn tíma
skeð. Sr. Sigurður, sr. Guðmundur
Guðmundsson og sr. Stefán Egg-
ertsson fengu sérstaka undanþágu
til vígslunnar vegna þess að þeir
voru ekki orðnir 25 ára. Undan-
þágan var veitt á fyrsta ríkisráós-
fundi forseta Islands, Sveins
Björnssonar, á lýðveldishátíðinni
áÞingvöllum 17. júní 1944.
Athyglisvert er að sex prest-
anna, sr. Jón Árni Sigurðsson, sr.
Sigurður Guðmundsson, sr. Stefán
Eggertsson, sr. Guðmundur Guð-
mundsson, sr. Sigmar I. Torfason
og sr. Trausti Pétursson, útskrif-
uóust frá Menntaskólanum á Ak-
ureyri árið 1940. óþh
Ég vil að fólk farí að tala meíra saman
- segir María Björk Ingvadóttir, fréttamaður og kaffihúsaeigandi á Sauðárkróki
Kaffi Krókur er tii húsa í Aðalgötu 16, sem Sauðárkróksbúar þckkja scm
„sýslumannshúsið“.
Ég hef búið hér á Króknum í
fimm ár og fljótlega eftir að ég
flutti hingað fékk ég hugmynd-
ina að kaffihúsi. Hér hefur ekki
verið til notalegur staður þar
sem fólk getur sest niður, fengið
sér léttar veitingar og spjallað
saman, sagði María Björk
Ingvadóttir en hún opnaði kaffí-
húsið Kaffí Krók undir lok maí-
mánaðar eða nánar tiltekið
tveimur dögum fyrir bæjar-
og sveitarstjórnarkosningarnar.
María Björk er raunar kunnari
fyrir önnur störf en veitinga
rekstur því hún hefur unnið sem
fréttamaður fyrir Ríkisútvarpið
á Sauðárkróki undanfarin ár og
því oft flutt hlustendum útvarps
og áhorfendum sjónvarps fregn-
ir af skagfirskum málefnum.
María Björk er Akureyringur
en eiginmaður hennar Omar Bragi
Stefánsson er fæddur og uppalinn
á Sauðárkróki og er því á heima-
slóöum á Króknum. María Björk
kvaðst hafa fengið augastað á
þessu húsi; það er húsinu númer
16 við Aðalgötu fljótt eftir aó hún
kom til Sauðárkróks en það er
byggt árið 1890. Húsió hefur
gengió undir nafninu Sýslumanns-
húsið því sýslumenn Skagfirðinga
bjuggu þar hver fram af öðrunr.
Fjórir sýslumenn hafa búið í hús-
inu en þar var einnig lengi versl-
unarrekstur. Frank Michelsen, úr-
smiður, verslaði þar á fyrri tíð en
síðar komst húsið í eigu Kaupfé-
lags Skagfiróinga og síðast mun
byggingavöruverslun félagsins
hafa verið þar til húsa. Afast
Sýslumannshúsinu er svonefnt
Gunnþórunnarhús; kennt viö konu
að nafni Gunnþórunn er þar bjó
og rak verslun til margra ára.
María Björk sagði að Gunnþórunn
þessi hafi verió mjög sérstök og
athyglisvcrð kona og hún hafi
meðal annars málað allt húsiö án
þess að nota pensli; þaó er að
segja með fingrunum einum sam-
an.
Já - við ákváðum að halda
garnla stílnum. Ómar maóurinn
minn er smiður og hcfur einnig
lært skreytingar þannig aö við
hönnuöum lagfæringar á húsinu
sjálf. Auk hins upprunalega stíls
lögðum við nokkuð upp úr að hafa
umhverfið alþjóðlegt og fengum
meðal annars í því sambandi dag-
blöð frá flestum heimshornum
sem við skreytum staðinn nrcð.
Þótt þetta sé fyrst og fremst kaffi-
hús þá bjóðum við einnig léttar
veitingar og vió leggjum áherslu á
fjölbreytni hvað þær varðar. Hér
starfar austur-evrópsk matreiðslu-
manneskja; kona frá fyrrum Júgó-
slavíu sem búsett er hér á Sauðár-
króki og matreiðir meðal annars
létta rétti frá heimkynnum sínum.
Aðal veitingasalurinn er í Sýslu-
mannshúsinu en í Gunnþórunnar-
húsi höfunr við innréttað einskon-
ar betri stofu; koníaksstofu, þar
sem litlir hópar geta tyllt sér niður
og átt notalegar stundir.
María Björk kvaðst ekki ein-
vörðungu ætla að sinna veit-
ingarekstrinum í kaffihúsi sínu því
hún hefur ákveðió að efna til
myndlistarsýninga og listkynninga
í Kaffi Króki. Vió opnuðunr kaffi-
húsið með sýningu á verkum
Sossu, myndlistarkonu sem býr
hér á Sauðárkróki, en í framtíðinni
er ætlunin að bjóða myndlistar-
fólki að sýna verk sín hér í hús-
inu.“
„Já - ég vona aó fólk taki við
sér og notfæri sér þessa þjónustu
sem svo lengi hefur vantað. Þótt
reynslan sé stutt þá lofar aðsóknin
góðu. Nú fer ferðamannatíminn
einnig í hönd þannig að ég býst
við aó sjá eitthvað af aðkomu-
fólki. Við hér á Sauðárkróki crunr
alltaf að berjast við að fá feróafólk
til aö koma á Krókinn; fara þessa
20 kílómetra leið frá Norðurlands-
vegi. En umfram allt; ég vil að
fólk fari að tala meira saman og
hvar er huggulegra að hitta vini og
kunningja og rabba við þá en á
kaffihúsi," sagði María Björk og
var síðan þotin til þess að taka
fréttaviðtal fyrir Ríkisútvarpið. ÞI
María Björk Ingvadóttir, sem fiestir þckkja seni fréttamann útvarps og
sjónvarps, hefur nú ásamt eiginmanni sínum, Ómari Braga Stefánssyni,
opnað kaffihús á SauAárkróki. Myndir: Þi