Dagur - 17.06.1994, Blaðsíða 19
Fö'stu'dágur 17. júní 1994 - ÐAGUR1- 19
AFCOTUNNI
SOLEY RANNVEIC HALL6RIMSDOTTIR
Erf itt að hitta á
mig í vondu skapi
- segir Sigurður Magnússon í Centro og UFA
Erþú vaknar að morgni
ættirðu að íhuga, hvílíkt
hnoss það er að mega lifa,
draga andann og gleðjast.
(Markús Árelíus)
Ég veit ekki um ykkur, lesend-
ur góóir, en ég hef alltaf hrifist
af jákvæðu og glaðværu fólki.
Slík persónueinkenni laða
ósjálfrátt að. Fólk getur skotið
mér hátt, hátt upp til himins
með brosi og jákvæðu spjalli. -
Honum tókst oft að breyta við-
horfi mínu til andartaksins
meó framkomu sinni. Hann
heitir Sigurður Magnússon og
er verslunarstjóri í Centro.
- Er ekki erfitt að vera bros-
andi alla daga?
„Það er mjög erfitt aó hitta á
mig í vondu skapi eða fýlu.
Mér finnst ieiðinleg tilfinning
að vera í fýlu og þess vegna
geri ég það bara alls ekki.“
- Ertu þá yfirleitt jákvæður?
„Ef ég væri ekki svona já-
kvæður þá væri ég löngu bú-
inn að gefast upp á lífinu. Mér
finnst það góóur vani að sjá
það jákvæða viö hlutina áóur
en maður byrjar að kvarta og
kveina.“
- Hvað með sölumennsk-
una, þarftu ekki stöðugt að
vera í leikhlutverkinu?
„Ég er nú bara þannig týpa
að ég lýg aldrei, er mjög hrein-
skilinn og það hefur oft komiö
fólki á óvart hversu hreinskil-
inn ég er þegar það spyr mig
álits. Oft hefur fólk verið
móðgað eða farið í fýlu sem
snöggvast en skilið þetta dag-
inn eftir. Ég segi þó ekki við
kúnnana aö einhver föt fari
þeim hræðilega, heldur bendi
ég þeim á aö prófa önnur."
- Þú ert ekki mikió fyrir það
aó plata fötum inn á fólk.
„Nei, hver flík getur ekki
passaö ölium. Ég er sann-
færður um aó ef maður er
hreinskilinn vió kúnnann, segir
satt, þá kemur hann örugglega
aftur. Það er engin spurning."
Ætlum að verða sterkastir
- Er þetta þröngur hópur sem
kemur og verslar?
„Það er mikið sami hópur-
inn og þetta fólk er á aldrinum
14 ára og upp í 20, það er
stærsti hópurinn eöa um 60%
og hin 40% eru alveg upp í
fimmtugt. Megnið af vörunum í
búðinni er þó kannski fyrir
yngri kynslóðina."
- Hefur fólk ekki kvartað yfir
að allir séu í eins fatnaði og
það vanti meira vöruúrval?
„Jú, fólk talar um að það sé
mikið um sömu merki. Ástæó-
an fyrir því er einfaldleþa sú
aö allir kaupmenn á Islandi
fara á sömu staðina tll aö
versla inn og helstu borgirnar
eru London, Amsterdam og
París, en þaó er mjög erfitt að
versla inn í París og sem betur
fer nenna fáir að fara þangað.
Þetta er aðalástæóan fyrir því
að sömu merkin eru í flestum
búðunum. Síðast þegar við
vorum úti fundum vió fyrir því
að flestir voru komnir með
sömu merki og voru í búðinni
hjá okkur. Vió vildum finna
eitthvað nýtt en hafa þessi
gömlu með til að missa ekki
kúnnahópinn. Núna erum við
komin með nokkur merki sem
aðrir hafa ekki og við ætlum
okkur að verða sterkastir og
langbestir.“
Söfnunarárátta og íþróttir
Hann kom mér á óvart og
heimilió hans sagði mér í raun
margt um hann.
Þar var margt 4fS
sérkennilegt að
finna. Málverk
frá mörgum ^
löndum,
gamlir munir, úrasafnió hans.
Hann sagði mér frá Túnisferð
sem hann fór í, sýndi mér
myndir. Það var eins og ég
hefði sjálf upplifað þetta allt,
svo skemmtilega sagði hann
frá.
Siguróur á áhugamál sem
öll tengjast á einhvern hátt
íþróttum. Mig langaði að vita
meira um þau og annað.
- Ertu með einhverja söfn-
unaráráttu?
„Ég er með dellu fyrir úrum
og þegar ég fer erlendis kaupi
ég mér alltaf eitt, það er vegna
þes aö ég fæ svo fljótt leið á
þeim. Svo eru það málverkin
og blómadellan, mér finnst
nauðsynlegt að hafa blóm í
kringum mig.“
- Nú stofnaðir þú Ung-
mennafélag Akureyrar 1988.
Ertu ennþá að vinna fyrir þaö?
„Já, ég hef verið í stjórn þar
síðan og er nýorðinn formað-
ur. Við leggjum aðaláherslu á
frjálsar íþróttir, almennings-
þrautir og hlaup margskonar,
en aðalsportið mitt er listhlaup
á skautum sem ég hef stund-
aö síðan ég var 4 ára af mikl-
um krafti. Eg er kominn ansi
hátt í því og stefnan er að það
verði keppt á næsta ári. Nú,
ferðalög eru á meðal minna
áhugamála og er ég búinn að
sækja heim yfir tuttugu lönd.“
- Eitthvað að lokum, Sig-
uróur?
„Mitt aðalmottó er að vera
bjartsýnn, horfa á jákvæðu
hlutina í öllum málum, þannig
nær maður góðri líðan. Ef
maóur er ekki ánægður með
sjálfan sig og þá hluti sem
maður gerir þá er eitthvað
mikið að.“
- Takk fyrir gott inn-
legg í okkar daglega líf.
Fram kvæ m dastj ó r i
Rannsóknarráðs íslands
Staða framkvæmdastjóra Rannsóknarráðs íslands er laus til um-
sóknar.
Samkvæmt ákvæðum 5. gr. laga nr. 61/1994, um Rannsóknar-
ráð íslands, skal framkvæmdastjóri framfylgja ákvörðunum ráðs-
ins. Hann skal annast rekstur skrifstofu Rannsóknarráðs, fjár-
reiður og reikningsskil fyrir ráðið og sjóði í vörslu þess.
Framkvæmdastjóri skal hafa lokið háskólaprófi og hafa stað-
góða þekkingu á rannsóknum, stjórnun og nýsköpun í atvinnulífi.
Rannsóknarráð íslands ræður framkvæmdarstjóra til fimm ára í
senn.
Umsóknum um starfið ásamt ýtarlegum upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf skal skilað til menntamálaráðuneytisins, Sölv-
hólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 15. júlí 1994.
Menntamálaráðuneytið 15 júní 1994.
Hljómsveit
I. Eydal
leikur fyrir
dansi
laugardagskvöld
Kynnum nýjan
glæsilegan sérréttaseðil
sem inniheldur m.a.
11 nýja fiskrétti.
Bestu óskir
um gleðilega
þjóðhátíð