Dagur - 13.08.1994, Side 2
cji irNAn
k nn i- +<
P h ni ir\r l-v
2 - DAGUR - Laugardagur 13. ágúst 1994
FRÉTTIR
Mánaðarlaun norðlenskra verkalýðsforingja:
Jón Karlsson trónir á toppnum
Undirbúningur að umræðum milli verkalýðsfélaganna
og atvinnurekenda um kaup og kjör eru nú að hefjast
en samningstími flestra kjarasamninga rennur út um
næstu áramót.
Stíf fundarseta og miklar vökur er nokkuð sem virðist
óumflýjanlegur fylgiflskur og undanfari þess að skrifað er
undir nýja kjarasamninga. Þeir sem cru í forsvari fyrir
verkalýðsfélögin bera rnikla ábyrgó en sumir þeirra bera
einnig töluvert úr býtum í launaumslagið þegar álagningar-
skrá 1994 er skoðuð, sem segir til um laun verkalýðsfor-
ystunnar á árinu 1993. A því ári var ekki skrifaó undir nýj-
an kjarasamning heldur var kjarasamningur sem tók gildi
1. maí 1992 framlengdur til áramóta 1994.
Mánaðarlaun helstu forystumanna norðlenskra verka-
Jón Karlsson.
366
Kári Arnór
Kárason.
284
Hákon
Hákonarson.
201
lýósfélaga voru eftirtalin:
Guómundur Omar Guðmundsson, formaóur Félags bygg-
ingarmanna Eyjafirði og forseti Alþýóusambands Noröur-
lands kr. 168.000.
Bjöm Snæbjörnsson, formaður verkalýðsfélagsins Eining-
ar í Eyjafirói kr. 194.000.
Hákon Hákonarson, formaöur Félags málmiðnaóarmanna
við Eyjafjörð kr. 201.000.
Jóna Steinbergsdóttir, formaður Félags verslunar- og skrif-
stofufólks á Akureyri kr. 144.000.
Kristín Hjálmarsdóttir, formaður Iðju, félags verksmiðju-
fólks kr. 107.000.
Konráð Þorsteinn Alfreðsson, formaður Sjómannafélags
Eyjafjarðar
kr. 197.000.
Konráð
Alfreðsson.
197
Björn
Snæbjörnsson.
194
Hafþór
Rósmundsson.
181
Kári Arnór Kárason, fyrrum formaóur Verkalýösfélags
Húsavíkur og nú framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Norður-
lands kr. 284.000.
Hafþór Rósmundsson, formaður Verkalýósfélagsins Vöku
á Siglufirói kr. 181.000.
Jón Karlsson, formaður Verkalýðsfélagsins Fram á Sauð-
árkróki kr. 366.000.
Formannsskipti uróu í Verkalýðsfélagi Austur- Hún-
vetninga á Blönduósi í aprílmánuói sl. Mánaðarlaun fyrr-
um formanns, Valdimars Guðmannssonar, voru kr.
129.000 en eftirmaður hans, Olafur Guðmannsson, var
meðkr. 185.000. GG
Guðm. Ómar
Guðmundsson.
168
Jóna
Steinbergsdóttir.
144
Kristín
Hjálmarsdóttir.
107
Þórshöfn:
Hafharframkvæmdirnar
stærsti pósturinn
Dýpkunarframkvæmdir voru
gerðar í Þórshafnarhöfn í vetur
og nú er verið að undirbúa
næsta verkþátt við höfnina,
kaup á stálþili og niðursetningu
þess. Vonast er til að fram-
kvæmdir geti hafist með haust-
inu, en fjárveiting hefur fengist
til verksins 1995. „Við ætlum að
flýta verkinu með því að ijár-
magna það sjálfir að hluta fram
yflr áramót,“ sagði Reinhard
Reynisson, sveitarstjóri.
„Stærstu einstöku póstarnir eru
við hafnarframkvæmdir,“ sagói
Reinhard, aóspurður um fram-
kvæmdir á vegum Þórshafnar-
hrepps. Dýpkunin kostaöi um 50
milljónir, en að vísu er ríkió þar
með meirihlutaþátttöku, eins er
með stálþilið en reiknað er með að
uppsetning þess kosti um 32 millj-
ónir. „Þetta er nýr löndunarkantur
sem bráðvantar. Ef loðnulöndun
væri um leið og Stakfellið er inni
og hér kæmi samtímis síldarbátur
eóa Hágangur meó saltfisk, þá
réóum vió ekkert við málið. Við
höfum ekki kanta til að koma
þrcmur stórum bátum að í einu.
Það fer því að verða lífsspursmál
að bæta við aðstöðuna," sagði
Reinhard. Þaö var innsiglingar-
rennan og aðkoman að loðnulönd-
unarkantinum sem dýpkuð var í
vetur.
„Verið er að byggja hús meó
fjórum íbúðum fyrir aldraða.
Verktaki er Fjalar hf. á Húsavík.
Ibúðirnar hafa ekki verið auglýst-
ar en mikið borist af fyrirspurn-
um. Viðvarandi húsnæðisskortur
er á Þórshöfn og næg atvinna. Við
höfum verið að gera bragarbót á
leikskólalóðinni, gera nýjar stétt-
ar, setja gúmmímottur umhverfis
leiktæki, laga til og snyrta. Einnig
hefur veriö unniö að gangstíga- og
gangstéttagerð. I haust verður far-
ið í gatnagerð, lögð klæðning á
eina götu, nýlagt á eina og síðan
þurfum við að yfirleggja hluta af
aðalgötunni inn í bæinn, það er
endurnýjun á slitlagi," sagói Rein-
hard. IM
Hallgrímur Indriðason, fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags
Eyfirðinga ásamt Gísla Eyland, for-
manni Félags hjartasjúklinga á
Eyjafjarðarsvæðinu.
Komið hefur verið upp full-
kotnnum neyðarsíma í þjón-
ustuhúsinu Kjarnakoti í
Kjarnaskógi sunnan Akureyrar.
I>að er Félag hjartasjúklinga á
Eyjafjarðarsvæðinu sem á heið-
urinn að uppsetningu símans.
Síminn er þess eðlis að ef tólió
er tekið upp hringir síminn hjá
Öryggissíminn er hinn voldugasti
og ckki er að efa að liann á eftir að
koma að góðum notum.
lögreglunni.
Félagar í Félagi hjartasjúklinga
fara reglulega saman í göngu í
Kjarnaskógi og svo er um fjölda
annarra trimmara. Þess vegna þarf
ekki að hafa um það mörg orð að
neyðarsíminn er gífurlega mikil-
vægt öryggistæki ef eitthvað ber
út af hjá útivistarfólki í Kjarna-
skógi. óþh
Laugardagur 13. ágúst
I dag heldur harmonikuhátíðin
áfram meó samspili harmoniku-
leikara á Ráðhústorgi kl. 12 á há-
degi. Klukkan 15.30 spilar Jóna
Einarsdóttir kaffihúsatónlist mcó
frönsku ívafi á Café Karólínu. í
kvöld verður svo harmonikuball á
Fiðlaranum, fjórðu hæð í Alþýðu-
húsinu, þar sem félagar úr Félagi
harmonikuunnenda við Eyjafjörð
og gestir þeirra taka lagið.
Sunnudagur 14. ágúst
Klukkan 15 lýkur harmonikuhá-
tíðinni með samspili harmoniku-
leikara í Lystigarðinum. Síðan
verður harmonikuleikur við kaffi-
hlaðborð á Pollinum kl. 16. Þar
spilar Haukur Ingimarsson á sér-
staka tegund af harmoniku, sem
hentar vel fyrir kaffihúsaspil.
Auk þess verður að venju farið
í gönguferð með leiðsögn um Inn-
bæinn. Gengið veróur frá Laxdals-
húsi kl. 13.30.
Kjarnaskógur:
Neyðarsíma komið upp
3 nætur frá 30.740 kr.*
á mann í tvíbýli á Mount Royal Hotel og
King James Thistle.
30. október
4 nætur frá 34.2SO kr.*
á mann í tvíbýli á Mount Royal Hotel og
King James Thistle.
Mikið fyrir lítið
* Innifalið: Beint flug frá Akureyri, gisting, morgunverður,
akstur til og frá flugvelli, (slensk fararstjórn og flugvallarskattur
á íslandi. Flugvailarskatturl.l 10 kr. leggst á I Skotlandi I. nóvember
og er hann innifalinn ( verði síðari ferðarinnar.
Gullfalleg menningar- og
verslunarborg. Komdu í
helgarferð til Edinborgar
og það verður ást
við fyrstu kynni.
a.ooo^a^2o
iroCð^sarnan'
M IÍRVÍL ÚT8ÝK
trygging fyrir gæðum
Við Ráðbústorg á Akureyri: sími 2 50 00