Dagur - 13.08.1994, Síða 20
Kaupfélag Eyfirðinga hefur fulivinnslu ígulkerahrogna:
Horfur á að skapi tuttugu
ný störf á Akureyri
Veiðar og vinnsla ígulkera
hefst væntanlega á Norður-
landi í næsta mánuði og er sýnt
að sótt verður á ígulkeramið við
Eyjafjörð af fleiri aðilum en var
á síðustu vertíð. Á síðustu vertíð
var mest unnið af ígulkera-
hrognum hjá Gunnari Blöndal á
Svalbarðsströnd en Kaupfélag
Eyfirðinga mun hefja vinnslu í
fiskhúsi félagsins við smábáta-
höfnina í Sandgerðisbót í næsta
mánuði.
Jón Þór Gunnarsson, forstöðu-
maóur sjávarútvegssviðs KEA,
segir að fiskhúsió sé í viðskiptum
viö flesta af þeim smábátum sem
gera út við Eyjafjörð um kaup á
botnfiski, og því skapi ígulkera-
veiðarnar aukin verkefni fyrir bát-
ana samhliða botnfiskveióum, þ.e.
segja mætti aó viðskiptaflóran
yrði fjölbreyttari.
„Eg býst viö að það þurfi að
ráöa allt að 20 manns við þessa
vinnslu en ekki er enn frágengið
hver vcrður verkstjóri, en nokkrir
aðilar hafa verið aó vinna að und-
irbúningi málsins í fiskhúsinu
með mér. Kaupfélagið er með
ísland - Eistland:
Afar sterkt
íslenskt lið á
Akureyrarvelli
Asgeir Elíasson, landsliðs-
þjálfari, tilkynnti í gær ís-
lenska landsliðið sem leikur
gegn landsliði Eistlands á Akur-
eyrarvelli nk. þriðjudag kl. 19.
Liðið er þannig skipað:
Birkir Kristinsson Fram
Friörik Friöriksson ÍBV
Ólafur Þórðarson ÍA
Sigurður Jónsson IA
Sigursteinn Gíslason ÍA
Ólafur Adólfsson ÍA
Amar Grétarsson UBK
Guðni Bergsson Val
Amar Gunnlaugsson Niimberg
Bjarki Gunnlaugsson Niimberg
Amór Guðjohnsen Örebro
Hlynur Stefánsson Örebro
Þorvaldur Örlygsson Stoke
Kristján Jónsson Bodö/Glimt
Þórður Guðjónsson Bochum
Eyjólfur Sverrisson Besiktas.
Af sautján manna landsliðshópi
Eistlands eru fimmtán í FC Flora
Tallinn.
Rune Pedersen frá Noregi
dæmir Ieikinn. Línuverðir verða
Kristinn Jakobsson og Olafur
Ragnarsson og Bragi V. Berg-
mann verður varadómari. Eftirlits-
maður á leiknum veröur Rafn
Hjaltalín. óþh
HELCARVEÐRIÐ
I dag verður sunnanátt ríkj-
andi norðanlands og hiti fer
upp í 14 stig yfir miðjan dag-
inn þar sem hlýjast verður. Á
sunnudag er áfram spáð suð-
lægri átt og rigningu norð-
austanlands. A mánudag
verður að öllum llkindum hæg
suðvestan eða breytileg átt
með skúrum norðanlands og
einnig á þriðjudag en þá er
spáð kólnandi veðri.
þessu að nýta betur húsnæði sem
það á þama á mjög góóum stað
vió smábátahöfnina og þar sem
ekki þarf að fara út í mjög mikla
fjárfestingu við þetta þá virðist
þctta vera mjög hagkvæmt. Auk
þess skapar þessi vinnsla bæði at-
vinnu og arð. Um fullvinnslu
verður að ræða og fara hrognin
beint út með flugi frá Keflavíkur-
flugvelli,“ sagði Jón Þór Gunnars-
son. GG
Akureyri:
Óhöpp í nýju rennibrautun-
um í sundlauginni þrátt
fyrir öryggisráðstafanir
eur skvrði frá bví í eær að argestum og foreldrum barna og
unglinga sem sækja sundlaugina
heim á það að í fjörugum leik þarf
aó sýna fulla aögát og fara að sett-
um reglum. KLJ
Akureyri:
Landsleikur
Svíþjóðar og
Noregs
í nóvember
✓
Igær fékkst það staðfest að
Svíar og Norðmenn munu
leika landsleik í handknattleik í
íþróttahöllinni á Akureyri þann
2. nóvember nk. kl. 18.30.
Um er að ræða eins konar
„mini“ HM í handknattleik og
verður auk Iþróttahallarinnar
keppt í Kaplakrika, Laugardals-
höll og Kópavogi. Litið er á þetta
mót sem mikilvægan undirbúning
fyrir sjálfa HM-keppnina í maí á
næsta ári. Auk Svíþjóðar og Nor-
egs taka þátt í mótinu Danmörk,
Frakkland, Sviss, Italía, Spánn og
Island. óþh
Dagur skýrði frá því í gær að
samkvæmt mati Herdísar
Storgaard, fulltrúa hjá Slysa-
varnafélagi íslands, væru örygg-
ismál í sundlaug Akureyrar í
mjög góðum höndum og þar
væri virkilega leitast við að gæta
öryggis sundlaugargesta.
Hins vegar staðfesti Sigurður
Guómundsson hjá Sundlaug Ak-
ureyrar að nokkur minniháttar
óhöpp heföu oróið í nýju renni-
brautunum frá því þær voru opn-
aðar nú í sumar. Sigurður sagði að
þrátt fyrir öryggisráöstafanir hefði
ekki tekist að girða algjörlega fyr-
ir þessi óhöpp enda sýndi reynsla
annarra af vatnsrennibrautum að
yfirleitt væri nokkuð um óhöpp
fyrstu mánuðina eftir að þær væru
teknar í notkun. Hann taldi aó það
mætti rekja til þess að sundlaugar-
gestir hegðuðu sér full glannalega
í þessum nýju leiktækjum í byrjun
en lærðu síóan að fara að settum
reglum.
Sigurður benti á að við lengri
rennibrautina eru nokkurs konar
umferðarljós en Akureyrarlaugin
er að hans sögn eina laugin sem
hefur sett upp slíkan öryggisbún-
að. Við styttri rennibrautina er
gæslumaður allan daginn og, að
sögn Sigurðar, stendur til að setja
upp samskonar umferðarljós þar.
Sigurður sagði ljóst að slík örygg-
isgæsla gæti aldrei komið algjör-
lega í veg fyrir óhöpp sem hlytust
af glannaskap og óleyfilegri hegð-
un í rennibrautunum. Hann sagði
að starfsmenn vísuðu gestum sem
færu ekki að settum reglum hik-
laust upp úr lauginni og veittu
þeim viðeigandi tiltal.
Sigurður vildi benda sundlaug-
Fjórfaldur
lottópottur
Lottópotturinn verður fjór-
faldur að þessu sinni, en það
mun vera í fimmta skipti frá
upphafi spilsins, en það hóf
göngu sína fyrir tæpum átta ár-
um síðan.
Einungis eru fjórar vikur síðan
potturinn var fjórfaldur síðast en
þá fór fyrsti vinningur upp á rúm-
ar 15 milljónir óskiptur til eins að-
ila. í gær voru þegar komnar 10
milljónir í pottinn og sagðist Vil-
hjálmur Vilhjálmsson, fram-
kvæmdastjóri íslenskrar Getspár,
búast viö að fyrsti vinningur yrði
ekki undir 15 milljónum.
ÞÞ
Raufarhöfn:
Tólf umsóknir bár-
ust um sveitar-
stjórastarfið
Tólf umsóknir bárust um
starf sveitarstjóra á
Raufarhöfn er það var aug-
lýst öðru sinni nú í þessum
mánuði. Er starflð var aug-
lýst í síðasta mánuði bárust
átta umsóknir.
Stcfnt er aó því að boða
fund í svcitarstjóm Raufar-
hafnarhrepps nk. þriðjudag og
ganga þar frá ráðningu ef ein-
hver umsækjenda telst hæfur
en enginn þeirra sem sótti um
starfið í fyrra skiptið hlaut náð
fyrir augum sveitarstjómarinn-
ar.
Guðmundur Guðmundsson,
fráfarandi sveitarstjóri, hættir
störfum í næstu viku og tekur
við svcitarstjórastarfinu á
Hvammstanga. Hann inun þó
væntanlcga koma til Raufar-
hafhar og setja eftirmann sinn
inn í starfið verði eftir því leit-
að. GG
Sullum drull og...
Mynd: Benni
Bygging stálþilsbakka í Hríseyjarhöfn:
Gengið að til-
boði Guðlaugs
Einarssonar
Hafnarnefnd Hríseyjar-
hrepps samþykkti í sl.
viku að ganga að tilboði Guð-
Iaugs Einarssonar frá Fá-
skrúðsfirði í byggingu stálþils-
bakka í Hríseyjarhöfn auk
dýpkunar, en tilboð hans hljóð-
aði upp á 16 milljónir króna
sem er um 83% af kostnaðar-
áætlun Vita- og hafnamála-
stofnunar sem var um 19 millj-
ónir króna.
Þórunn Arnórsdóttir oddviti
segir að á fundi hreppsnefndar
Hríseyjarhrepps sl. þriójudag
hafi svo verið samþykkt að
ganga til samninga við Guðlaug
Einarsson, en tilboð hans var það
lægsta af fimm sem bárust.
Verktakinn vinnur nú við
bryggjusmíði á Hólmavík en
mun hefja framkvæmdir innan
tíðar í Hrísey ef um semst.
Framkvæmdum viö Hríseyj-
arhöfn á að vera lokið 31. des-
ember 1994 samkvæmt útboðinu
en stálþilió verður um 64 metra
langt, steyptur verður kantbiti
sömu lengdar og dýpkunin er
áætluó 4.000 m3. GG
KEA á Dalvík:
Fimmtán um-
sóknir um
útibússtjórann
Fimmtán umsóknir bárust um
starf útibússtjóra Kaupfélags
Eyfirðinga á Dalvík og eru þær
víða af landinu. Starfið var aug-
lýst Iaust til umsóknar eftir að
fyrrverandi útibússtjóri settist í
stól bæjarstjóra á staðnum.
Utibússtjóri sér m.a. unt rekstur
útibúsins og skrifstofu þess og
hefur með að gera útlána- og inn-
heimtumá! útibúsins. Ákvörðun
verður tekin um ráðningu í starfið
síðar í mánuðinum. GG
I
C-634 XT
þvottavél
V
18 þvottakerfi
5 kg þvottur
Hitabreytirofi
600 snúninga
Rústfrír pottur
I
I _____________________
I Frábært verð 39.900,-
I
stgr.
M KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg, sími 235&5^J
Forstjóra-
staðaí
Slippstöðinni
auglýst
IDegi í dag er auglýst laus til
umsóknar staða forstjóra
Slippstöðvarinnar Odda hf. og
kemur fram í auglýsingunni að
Ieitað sé að tækni- og/eða við-
skiptamenntuðum aðila.
Guðmundur Tulinius hefur
gegnt starfi forstjóra Slippstöðvar-
innar Odda hf. um nokkurra mán-
aða skeið, en við starfinu tók hann
af Sigurði Ringsted. óþh
Allt fyrir garðinn
í Perlunni við
0
KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg. simi 23565