Dagur - 17.09.1994, Page 9
Laugardagur 17. september 1994 - DAGUR -9
Tríó Birgis Marinóssonar aftur í ball-
spilamennskuna eftir átján ára hlé:
Alveg sami
kötturínn
ogfyrír
þrjátíu árum
- segir nikkarinn Örvar Kristjánsson
og lætur engan bilbug á sér finna
Tríó Birgis Marinóssonar á Ak-
ureyri, sem starfaði á árunum
1975-1976, tekur upp þráðinn á
næstu dögum þar sem frá var
horfið fyrir 18 árum og hyggst
halda uppi dúndrandi fjöri á
dansleikjum á næstu vikum og
mánuðum. Auk Birgis eru í tríó-
inu þcir Steingrímur Stefánsson
á trommur og Örvar Kristjáns-
son á harmoníku.
Tríó Birgis Marinóssonar var
geysilcga vinsælt á sínum tíma og
þá var heldur betur líf í „bransan-
um“. Tríóió var bókað langt fram
í tímann um allt Noróur- og Aust-
urland og cinnig lá leió þeirra fé-
laga til Færeyja. Þeir Birgir og
Steingrímur eru búsettir á Akur-
eyri en Örvar býr í Breiðholtinu í
Reykjavík. Dagur hringdi í Örvar
og spurði hann hvernig á því
standi að þeir félagarnar skelli sér
aftur í spilamennskuna „á gamals
aldri“.
• ! ;
Birgir er auðvitað
hljómsveitarstjórinn!
„Við Steingrímur ræddum þetta
aðeins fyrir ári síðán og þá var ég
nú ekki tilbúinn í þetta. I sumar
var ég staddur á Akureyri á ferða-
lagi og hitti Steingrím aftur að
máli. Við ræddum aftur þann
möguleika að endurvekja tríóið
okkar og það varð úr að við rædd-
um vió Birgi og hann tók strax vel
í það.“
- Ætlið þið þá að spila sömu
dansleikjatónlistina og fyrir átján
árum síðan?
„Já, akkúrat. A þessum árum
gekk afskaplega skemmtileg mús-
ík á böllum. Eg nefni Stuðmanna-
lagið Dýrin í Tíról og fleiri
skemmtileg lög sem tröllrióu
landinu og miðunum. Nei, þetta
voru ekki gömludansaböll. Við
spiluðum allt þaó nýjasta og gát-
um jafnvel haldið upp dúndrandi
fjöri á unglingadansleikjum.“
- Var nóg að gera á þessum ár-
um?
„Já, blessaður vertu. Vió vor-
um bókaðir tvo, þrjá mánuói fram
í tímann. Við spiluðum fyrir norð-
an og austan, hreinlega út um allt.
Þaó var Birgis aö sjá um aó bóka
okkur og honum fórst það vel úr
hendi.“
- Birgir verður þá greinilega
hljómsveitarstjóri?
„Já, Birgir veróur auóvitað
hljómsveitarstjóri. Tríóið er kennt
við hann, annars væri þetta með
öllu ómögulegt!“
Aldrei haft jafn
mikið að gera
- Kitlar ballspilamennskan alltaf
jafn mikið?
„Ég veit það nú ekki. í sumar
hef ég spilað einn um hverja ein-
ustu helgi úti um allt land. Ég hef
til dæmis spilað í Skaftafelli,
Reyðarfirði, Höfn, Egilsstöðum,
úti í Grímsey, Hrísey, á þjóðhátíð
í Vestmannaeyjum og Kirkjubæj-
arklaustri.“
- Þú hefur verið meira og
minna spilandi á nikkuna allar
götur frá því að þió félagarnir í
Tríói Birgis Marinóssonar hættuó
aö spila saman?
„Það hefur verió allur gangur á
því. Ég fór nú meðal annars til
Færeyja og bjó þar í fimm ár.
Kom síðan aftur hcim og gaf út
plötuna Frjálsir fuglar. Síðan hef-
ur nikkan aldrei l'arió langt frá
mér. Og það er svo merkilegt aö á
gamals aldri, ég er núna 57 ára
gamall, hef ég aldrei haft jafn
mikið að gera í spilamennskunni."
- Finnst þér þá að harmoníkan
sé að sækja í sig veðrið?
„Já, það er alveg augljóst.
Ymsar hljómsveitir nú til dags
leggja mikið upp úr nikkunni og
nægir þar að nefna Sniglabandið.
Kannski hefur bröltið í mér orðið
til þess að vekja áhugann á þessu
hljóófæri í dansmúsík?“
Prógrammið á sínum stað
Örvar segist ekki neita því að
hann hlakki til þess að endurupp-
lifa samstarfið við þá Birgir og
Steingrím. „Ég kom þarna norður
á mánudaginn var og við fórum
lauslega í gegnum gamla pró-
grammið okkar. Við vorum svona
að athuga hvernig við stæðum í
þessu.“
- Og reyndist gamla pró-
grammió vera á sínum stað?
„Já, veistu að það virtist vera
einhvern veginn þannig. Okkur
hefur í það minnsta ekki farið aft-
ur.“
- Mér skilst að þið ætlið að
hefja leikinn í byrjun október?
„Já, þaö er hugmyndin. Við
hugsum okkur að spila á böllum
fram í desember og taka okkur þá
frí framyfir áramót og byrja aftur
á árshátíða- og þorrablótavertíð-
inni eftir áramót. Ég ætla að fá
mér híbýli þarna fyrir norðan og
vera þar á meðan við spilum á
böllunum. Það verður fint að
breyta um umhverfi og hvíla fólk-
ið hér fyrir sunnan. Rcyndar ætla
ég til Kanarí um jólin og spila á
vegum Úrvals-Útsýnar. Það er
nokkuð sem ég hef aldrei gert áð-
ur, en hlakka til þess að prófa
þetta.“
- Þú sagðist vera orðinn 57 ára
gamall. Skiptir aldur cngu máli
þegar ballspilamennska er annars
vegar?
„Nei, blessaóur vertu. Ég er al-
veg sami kötturinn og fyrir þrjátíu
árum síðan. Það er með þctta eins
og íþróttirnar að maður veröur að
halda sér í góðu formi. Þú sérð að
ég er búinn að spila um hverja
einustu helgi í sumar alveg frá því
í byrjun júní og ég hef ekki fundið
neitt fyrir þessu,“ segir Örvar
Kristjánsson.
Þess má svo að lokum geta að
nánari upplýsingar um starf þeirra
þremenninga í vetur gefa Birgir í
síma 96-21774 og Steingrímur í
síma 96-21560. óþh
í
Túbúnir í slaginn
Þremenningarnir í Tríói Birgis Marinóssonar vopnaðir tilheyrandi „amboðum“. Örvar Kristjánsson
með nikkuna (lengst til vinstri), þá Birgir Marinósson með gítarinn og loks Steingrímur Stefánsson með
trommukjuðana.
sins!
Mánudaginn 19. september hefst nýtt námskeið
í þol+þrek fyrir karlmenn á öllum aldri.
Fjölbreyttir tímar á mán/mið kl. 21.00
og þri/fim kl. 20.00 + ótakmörkuð mæting í aðra tíma.
M.a. verður í boði:
- Pallar + tæki - Þrekhringur, tæki - 3 fitumælingar -
Fyrirlestur með næringarfræðingi - Og margt fleira.
Kennari: Einvarður Jóhannsson, íþróttakennari.
og k°
^|pÚLSj80r
Greiðslukortaþjónusta