Dagur - 17.09.1994, Side 10

Dagur - 17.09.1994, Side 10
10 - DAGUR - Laugardagur 17. september 1994 DÝRARÍKI ÍSLANDS Fuglar 56. þáttur SKÚMUR (Catharacta skua) SR. SICURÐUR ÆCISSON Fullorðinn Skúmur. Skúmurinn er, eins og frændur hans, litlu kjóarnir, hálf- gerður vandræðagripur í heimi fuglafræðinnar. Um eitt eru menn þó sammála að hann tilheyri ættbálki strand- fugla (fjörunga). En hvaó svo tekur við er álitamál. Margir setja hann í undirættbálk strandfugla, er nefnist máfuglar (Lari). Er hann síðan ýmist talinn af mávaætt- inni (Laridae), sem hefur að geyma um 50 tegundir, eða þá, sem reyndar oftar er, af kjóaættinni (Stercorariidae). Ef fylgt er hinni síðar nefndu greiningu, brotnar kjóaætt- in svo í tvær ættkvíslir; annars vegar er Stercorarius („kjóar“ þ.e.a.s. litlir kjóar), er hefur að geyma þrjár teg- undir (fjallkjóa, kjóa og ískjóa) og hins vegar Carhar- acta („skúmar“, eða öóru nafni stórir kjóar). Lengstum var talið, aó bara væri eina skúmategund aó finna í heiminum, er svo deildist í nokkrar undirteg- undir, en síðari rannsóknir virðast benda til þess, að um fleiri sjálfstæðar eða hreinar tegundir sé að ræða. Ná- kvæm útfærsla þessa er svo á reiki, eftir því hvaða bók maóur les. • Ein kenningin gengur út á tvær skúmategundir, þ.e.a.s. annars vegar Catharacta skua (er bæði sé að finna hér á norðurhveli og víóa í suðurhöfum, og grein- ist í margar undirtegundir, ógreinanlegar í sundur nema í hendi), og svo Catharacta maccormicki (er sé nokkuð minni en sú fyrrnefnda og verpi á Suóurskautslandinu). Onnur kenningin er sú, að tegundirnar séu þrjár talsins, þ.e.a.s. Catharacta skua (oftast nefndur bara skúmur), Cathar- acta maccormicki (sæskúmur, er verpi á Suóurskautslandinu og finnist í ýmsum litarafbrigðum, dökkum og ljósum), og að síð- ustu Catharacta chilensis (Chile-skúmur; er sé í Chile og suður- hluta Argcntínu). Samkvæmt þessari kenningu myndi okkar skúmur þá tcljast ein af fjórum undirtegundum Catharacta skua (vegna mismunandi stærðar og litarháttar, en þó ekki svo afger- andi, að nauósynlegt sé aó greina fuglana til sérstakra tegunda), og bera latneska heitið C. .v. skua. Hinar væru þá C. s. antarcticus (Falklandseyja-skúmur), C. s. lönnbergi (brúni skúmur, eða Suó- urhafa-skúmur), og C. s. hamiltoni (Tristan-skúmur). Þriója kenningin vill meina, að hreinu tegundirnar séu ekki þrjár, heldur fjórar, þ.e.a.s. Catharacta skua, Catharacta chilens- is, Catharacta maccormicki, og Catharacta antarctica. Og að hin síóastnefnda greinist í þrjár undirtegundir, þ.e.a.s. C. a. ant- arctica (er vcrpi á Falklandseyjum, og í S-Argentínu), C. a. Iiam- MATARKRÓKUR iltoni (er verpi á Gough og Tristan da Cuhna), og svo að lokum C. a. lönnbergi (er sé þeirra algengust, verpandi umhverfis Suð- urskautslandið, eins og það leggur sig, og eyjunum þar suður af; en finnist ekki á hafsvæóum við N- Ameríku eða Evrópu). Og eflaust má finna um þetta aðrar hugmyndir eða útfærslur fleiri. En nóg um þaó að sinni. Skúmurinn er mikill fugl vexti, þrekinn, hálsstuttur ög lura- legur, um 53-61 sm á lengd (íslenskir fuglar að jafnaöi 58 sm), 1200-1600 g að þyngd (þ.e.a.s. næstum fjórfalt þyngri en kjóinn) og meó gríðarlegt vænghaf, eða allt aó 150 sm. Hann er næsta einlitur aó sjá úr fjarlægð, dökkmóbrúnn allur, meó ryólitum blæ, Ijósastur (allt að því gulbrúnn) aó neðanverðu, en þegar nær cr komió, sést, að töluveróur innbyróis munur er á einstaklingum; þó aldrei eins afgerandi og með öðrum kjóum á norðurhveli. Lit- armunur eftir kynferói er hins vegar enginn. Vængir eru kraft- miklir, breióir og snubbóttir. Fremst má sjá þar áberandi hvíta bletti, jafnt undir sem ofan á. Stélið er þverstýft og stutt og mióstélfjaðrimar tvær, sem eru eitt af aðaleinkcnnum litlu kjóanna (fjallkjóa, kjóa og ískjóa) - langar, beinar og oddhvassar, og skaga töluvert aftur og út fyrir aðrar stélfjaðrir þeirra - eru mun óásjálegri á skúm og í raun varla greinanlcgar. Nefió er gildvaxið og sterklegt, krókbogið í oddinn; svart að lit. Fætur með sundfitjum milli þriggja táa; einnig svartir. Sumar- og vetrarbúningur eru nánast eins. Islenski skúmurinn er farfugl, sem kemur til lands- ins nokkuð snemma á vorin. eða í apríl-maí. Kjörlendi hans á varptíma (a.m.k. á Islandi) er dreifbyggóir á söndum eða í graslendi við sjó. Varpstaðirnir hér eru aó mestu á sunnanverðu landinu; lítilsháttar þó einnig vió Öxarfjöró og Héraðsflóa. Aðalvarptíminn er síðari helmingur maímánaöar. Eggin eru yfirleitt 2, ólífubrún að grunnlit, sett tiltölu- lega fáum, dekkri blettum og flikrum, og þau lögð í grunna dæld, lítið sem ekkert fóðraða. Útungun tekur 28-30 daga og sjá bæöi hjón um ásetuna, sem og aó afla ungunum matar eftir ábrot og næstu vikur eftir þaó og verja óðal sitt af mikilli hörku, bæði fyrir mönnum og skepnum. Ungarnir eru hreióurfælnir. Þeir verða fleygir 6-7 vikna gamlir og fullkomlega sjálfbjarga um 3 vik- um eftirþað. A tímabilinu október-mars er skúmurinn úthafsfugl og fer þá einförum. Ungir fuglar þvælast bæði langt og víóa (allt til N-Afríku og S-Ameríku og á sumrin noróur í Ishaf), en eldri fuglar dvelja einkum út af SV-Evrópu. Skúmurinn lifir á margskonar fæðu og aflar hennar með ýms- um ráðum. Hann er einstaklega flugfimur og beitir því oftast aðra fugla (t.d. máfa og súlur) ofríki, þ.e.a.s. rænir þá matnum á flugi, en einnig drepur hann fugla, litla og stóra (mófugla, fýla, endur, gæsir o.s.frv.) eða tekur egg þeirra og étur. Og sandsíli er líka tekið í allstórum mæli og fiskúrgangur hverskonar. En skordýr lætur hann vera. Islcnski skúmastofninn hefur verið áætlaður um 6.000 varp- pör. Það telst vera um helmingur allra skúma á norðurhveli jarð- ar. Annar helsti varpstaóur fuglsins er Hjaltlandseyjar. Einnig eru allmörg pör á Orkneyjum, en í Færeyjum ekki nema um 200. Og örfá pör verpa á Svalbaróa og á Lofótensvæóinu í N-Noregi. Elsti, merkti skúmur, er ég hef gögn um, náði tæplega 13 ára aldri. En fuglinn veróur eflaust miklu eldri en þetta, ef mió cr tekið af kjóanum t.d., sem merkingar hafa sýnt að getur náð 18 árum, rúmum. Þau sækja sér mat í lastu náttúrunnar „Mér finnst skemmtilegt að matbúa þaó sem vió höfum aflað okkur sjálf í stað þess að kaupa í matinn út í búð,“ sagói Svanhildur Gunnarsdóttir, sem býr í Stapasíðunni á Akureyri. Svanhildur starfar hjá Rannsókna- stofnun Fiskiðnaöarins á Akureyri, þar sem hún rannsakar hversu hreinar og ómengaðar ýmsar matvörur eru, einkum sjávarfang. Uppskriftimar hennar Svanhildar byggjst sannarlega á því að nýta þaó sem landió gefur, blómkál og kartöfl- ur úr garóinum, sjóbirting, gæs og ber. Eiginmaður Svanhildar, Magnús Lárusson, starfsmaður Hitaveitu Ak- ureyrar, sér um að skjóta gæsina. Svanhildur lætur sig hinsvegar ekki muna um það aö veióa sjóbirtinginn sjálf en þau hjónin fara á hverju ári í veiðiferð í Vatnamót á Síðu í Vestur- Skaftafellssýslu. Svanhildur skorar á Helgu Harðar- dóttur, hússtjórnarkennara á Sauðár- króki, að senda uppskriftir í næsta Matarkrók. „Hún er nýlega útskrifuó fagmanneskja og þaó verður forvitni- legt að sjá hvaó hún hefur fram að færa,“ sagði Svanhildur. Blómkálssúpa I blómkálshöfðuð, meðal stórt II vatn I tsk. salt 50 g smjör 5 msk. hveiti 1 tsk. karrý 2 tsk. súpukraftur 1 dl rjómi salt, season all Vatnið og saltió hitað aó suðu. Blómkálið þvegið og því skipt í litla stilka, sem settir eru í sjóðandi vatnió, soðið í 5 mín. Blómkálsstilkamir sigt- aóir frá. Bræðið smjörið í potti, bætið karrýi og súpukrafti út í, látió krauma litla stund. Setjið hveitió út í og jafnið með blómkálssoðinu. Bætið rjóman- um í og bragðbætið með salti og sea- son all. Að síðustu eru blómkálsstilkamir settir í súpuna og hún hituð að suðu. Berió súpuna fram meó grófu snittu- brauði og smjöri. Soðinn sjóbirtingur í súpu l'Akg sjóbirtingur (lax) l'A l vatn 2 msk. edik 2 tsk. salt 2 lárviðarlauf sveskjur og rúsínur eftir smekk 1-2 msk. sykur 50 g hveiti I dl vatn Þegar vatnió meó salti, ediki og lárberjablöðum sýður er fiskurinn, ásamt sveskjum og rúsínum, látinn út í. Froðan veidd vel ofan af þegar sýö- ur aftur. Fiskurinn soðinn þangað til Svanhildur Gunnarsdóttir með aiit tilbúið í eldamennskuna. hann losnar frá beini. Sjóbirtingurinn settur á fat. Sykurinn settur í soðió og jafnað meó hveitijafningi. Sjóbirting- urinn er borinn fram meó soðnum kartöflum úr garðinum, smjöri og að sjálfsögðu súpunni. Villigœs - fyrir 4-5 I gats 2,5-3,0 kg I poki steinlausar sveskjur 2-3 epli salt, pipar, kjötkraftur Sósa Soð afgœs, hjarta, hálsi og fóarni rjómi rifsberjahlaup sósulitur hveitijafningur Gæsin en nudduð að utan og innan með salti og pipar, sveskjur og epli skorin í báta, sett inn í gæsina og saumað fyrir báöu megin. Ofninn hitaður í 200° C, gæsinni stungið í ofninn í ofnpotti og hún látin brúnast. Hellt yfir gæsina 'A 1 af sjóð- andi vatni með örlitlum kjötkrafti í og steikt áfram í 2 klst. eða þar til bring- an er laus frá beini, gott aö athuga þaó með prjóni. Meðan gæsin steikist er hjarta, háls og fóam soóið í léttsöltuðu vatni til aó fá kraft í sósu. Soóið af gæsinni er siktað í pott, fitan fleytt ofan af, soðinu af hjarta, hálsi og fóami bætt í og suðan látin koma upp. Þykkt meö hveitjafningi, smakkað til meó rjóma og rifsberja- hlaupi, sósulit bætti í, allt eftir smekk. Gæsin er best meó brúnuðum kart- öflum, eplunum og sveskjunum sem voru í fyllingunni, hrásalati, grænum baunum, rauðkáli og aó sjálfsögðu rifsberjahlaupi. Rifsberjahlaup I kg rifsber 1 kg sykur ‘A-l dl vatn Berin þvegin vel, sett í pott með sykrinum og vatninu soðiö í 2-3 mín. Aríðandi aó suðutíma sé fylgt. Hellt á þétta línsíu eða sikti og látið síga í krukkur. Lokin sett strax á. KLJ

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.