Dagur - 17.09.1994, Side 18

Dagur - 17.09.1994, Side 18
18 - DAGUR - Laugardagur 17. september 1994 POPP MAÚNUS ÚEIR CUÐMUNDSSON Nýjar gítarhetjur Frá upphafi til þessa dags hefur gítarinn verið prímus- mótorinn í rokkinu og raun- ar flestri annarri dægur- lagatónlist. Ekki aðeins það, heldur hefur gítar- inn líka átt stóran þátt í sköpun ímyndar margra af þekkt- ustu tónlistar- ■ mönnum sög- unnar, jafnvel þótt þeir sumir hverjir hafi ekki verið neinir sérstakir gít- arleikarar. Rokkkóngur- inn sjálfur, El- vis Presley, er gott dæmi um það. Gítarinn var stór partur af ímynd hans, þótt röddin hafi ráðið lang- samlega mestu um vin- sældir hans sem tónlistar- manns. (Ýmsar annarskonar „vinsældih' hans, eru aftur á móti önnur saga.) En oftast fer það þó saman við ímyndina, að innihaldió sé ríkt. Menn sem náð hafa að skapa sér ímynd með hjálp gítarsins, eru hrein- lega berskjaldaðir, naktir án hans. Geta ekki verið og eru ekkert án hans. En um leið get- ur gítarinn ekki verið án þeirra. Þeir eru snillingar, meistarar, hetjur hans. Muddy Waters, John Lee Hooker, B.B, King, Freddy King, Chuck Berry, Jimi Hendrix, Jimmy Page, Stevie Ray Vaughan, Eddie Van Ha- len, Joe Satriani og Steve Vai eru allt nöfn gítarhetja fyrr og nú og þannig mætti lengi telja og enn eru að koma fram nýjar hetjur. 777 alls líklegir lan Moore, tuttugu og fjögurra ára Bandaríkjamaður, frá Aust- in, Texas og Jan Cyrka, Breti líklega um þrítugt, eru tveir gít- arleikarar sem nú gera hraust- lega tilkall til gítarhetjunafnbót- arinnar. Hafa þeir báðir og þá sérstaklega Cyrka vakið mikla athygli að undanförnu fyrir plötur sínar, Moore fyrir sína fyrstu samnefndu, en Cyrka fyrir sína aðra, Spirit. Þaö er þó Nýr snillingur? lan Moore. ekki mikið meira sem þeir tveir eiga sameiginlegt. Cyrka hefur verið kallaður svar Breta við Steve Vai og er því mjög tæknilegur á allan máta, en tónlistarsköpun hans er þó mun aðgengilegri en hjá Vai. Hún minnir um sumt t.d. á læri- föður Vai, Joe Satriani. Moore er hins vegar í samræmi við heimahérað sitt, mótaður af blúsáhrifum, en jafnframt eru popp- og rokklaglínur frá átt- unda áratugnum áberandi í hans lagasmíðum. Hann er svo líka skínandi söngvari, en þá iðkun lætur Cyrka alveg vera. Er hans plata, eins og flestar slíkar, án söngs. Það eina sem e.t.v. er líkt, eru smá fönk- glennur hjá þeim. Annaó er um flest ólíkt. Báðir sýna hins veg- ar eftirtektarverða „takta“, þannig að ekki verður um villst aó þeir eru til alls líklegir á framabrautinni. En vel aó merkja. Þeir eru aðeins tveir af tugum ef ekki hundruðum gít- arleikara, sem geta borið titilinn gítarhetjur. Alltaf eru að koma fram nýir og nýir sem heilla. Michael Hill er t.d. nafn á þel- dökkum blúsgítarleikara, sem nú vekur mikla athygli. árslok 1992 var ekki annað vitað en að rokksöngvarinn margfrægi og umdeildi, Ozzy Osbourne, hefði haldið sína síðustu tónleika, allavega sem hinn villti og brjálaði Ozzy. Hélt kappinn til að undir- strika það tvenna eftirminnilega tónleika í Bandaríkjunum skömmu fyrir áramótin, þar sem m.a. gömlu félagarnir hans [ Black Sabbath tróðu upp með honum eftir langt hlé. Var síðan á næstu mánuóum á eftir gert ráó fyrir að þeir félagarnir (hinir þrír upprunalegu meðlimirnir eru Tomy lommi gítarleikari, Geexer Butler bassaleikari og Bill Warrd trommuleikari) tækju saman á ný fyrir alvöru, en á síöustu stundu hætti Ozzy við, þannig að draumurinn um að þessi ein áhrifamesta sveit þungarokksins öðlaðist líf aó nýju, varð aó engu. Ákvað hann frekar að ein- beita sér aó gerð næstu plötu sinnar, en að byrja gamla sam- starfið að nýju. Taldi hann sig auk þess ekki tilbúinn til slíkra stórræða, stuttu eftir að hann hefði loksins náð tökum á vímu- efnavandamálum sínum með meiru. Það sem líklega þó mestu réði, var að samningar varðandi peningahliðina milli Ozzy annars vegar og þeirra þriggja hins veg- ar, fóru út um þúfur. Ozzy karlinn Osbourne er nú að mæta aftur til leiks eftir um tveggja ára hlé. „Sá brjálaoi" aftur kominn á kreik Ekkert óöagot Það sem að framan er sagt, átti sér stað fyrir um einu og hálfu ári og nú eru aó veróa tvö ár síóan „The madman", sá brjálaði Ozzy, sagói skiliö við rokksviðið. Ýms- ar fregnir hafa borist á þessum tíma sem liðinn er af geró nýju plötunnar, en ennþá hefur Ozzy ekki lokió við hana. Það er því ekki hægt að segja að söngvar- inn flani að neinu, sé með óða- got við að fullgera plötuna. Standa málin þannig nú að hennar er vart að vænta fyrr en í fyrsta lagi í upphafi næsta árs, sem er varlega áætlað. Er Ozzy enn með á prjónunum að semja fleiri ný lög, en fyrir hefur hann sett á blað tuttugu. Segir hann tíu af þeim vera nógu góð til að komast á plötuna, en nokkur I viðbót þurfi til aó fullkomna verk- ið. ÍMéöal laganna tíu eru tvö sem Ozzy hefur samið I félagi við gítarhetjuna Steve Vai og ein sex með fyrrum gítarleikara sín- um Zakk Wylde, sem nú gengur bara þolanlega með nýju hljóm- sveitinni sinni, Pride & glory. Á platan að nefnast X-ray, sem merkir glær eða gegnsær. Má með nokkrum sanni segja að það nafn eigi vel við, því nú er Ozzy I fyrsta skipti við geró plötu, algjörlega allsgáður eða edrú, eins og þaó kallast á al- þýðumáli. „Hreinn og tær“, eins og hann hefur sjálfur sagt. Aftur á sviöiö Auk þess aó fullgera nýju plötuna, sem hann hyggst gera m.a. I félagi við lagahöfundinn Mark Hudson er samdi stórsmell Aerosmith, Living on the edge, hefur Ozzy Osbourne svo látið hafa eftir sér þau merku tíóindi að hann ætli upp á sviðið aftur. Honum sé farió að leiðast svo mikið að vera „hættur" að hann verði hreinlega aó byrja aftur. Segist hann reyndar aldrei hafa meint það I fullri alvöru aó hætta, en það hafi verið heppilegast að gefa slíkt út á þessum tíma. Er þessi játning hans nú.í samræmi við ályktanir sumra blaóamanna, að hann geti ekki hætt að koma fram s_em hinn eini og sanni Ozzy. Á næstu mánuðum er því væntanlega von á nánari fregn- um af tónleikaferð og nýrri vand- aðri plötu frá rokkstjörnunni Ozzy Osbourne. PUNKTAR • PUNKTAR • PUNKTAR • PUNKTAR • PUNKTAR • PUNKTAR • • Dinosaur Jr., hljómsveitin sem átt hefur stóran þátt I mótun rymrokks- ins, (grungerokksins) sendi frá sér sína nýjustu plötu fyrir skömmu. Nefnist hún Without a sound og er ef rétt telst til, sjötta plata hljóm- sveitarinnar. Er söngvarinn og gít- arleikarinn J. Mascis sem fyrr allt í öllu I henni, sem nú er reyndar að- eins tveggja manna fyrirbæri. Hefur Mascis nefnilega bætt trommuleikn- um við sig, en á bassann spilar Mike Johnson. • Bassaleikari kvennarokksveitar- innar L7, Jennifer Finch, hefur alla- vega tímabundið sagt skilið við hana til að spila með annarri slíkri, Hole. Kemur Finch I stað Kristen Pfaff, sem lést að völdum ofneyslu eiturlyfja I júní. • Söngkonan Edie Brickell hefur nú nýlega sent frá sér sína þriðju plötu sem ber heitið Picture perfect morning. Á hinum tveimur plötunum var hún ( félagi vió hljómsveitina The new bohemians, en er án hennar I þetta skiptið. Hún hefur hins vegar engan annan en Paul Simon sér til halds og trausts, sem hún hefur verið gift um nokkurt skeið. • írska hljómsveitin Cranberries, sem eins og fjallað var um I Poppi fyrir nokkru, sló eftirminnílega ( gegn með plötunní sinni Everybody else is doing it, so why can’t we?, fyrst í Bandaríkjunum og það svo um munaði á síðasta ári, en síðan á heimavigstöðvunum, er nú um þessar mundir að koma með aðra plötu undir nafninu, No need to argue. Af henni er lagið Zombie komið út á smáskífu, sem lofar mjög góðu. Er þar á feróinni hreint mögnuð smíð, sem í senn er kröft- ug og mjög grípandi. • Vilhjálmur heitinn Vilhjálmsson var tvímælalaust einn ástsælasti og virtasti dægurlagasöngvari þjóðar- innar. Er nú komin út frá Spor hf. safnplata með Vilhjálmi, sú önnur í röðinni, sem nefnist í tíma og rúmi. Sú fyrri nefndist Við eigum samleið og kom út fyrir um tveimur árum síóan. Eru báðar þessar plötur dýr- mæt heimild um merkan söngvara, sem mikill fengur er í. • Það er líklega óhætt að fullyróa að Status Quo sé lengststarfandi rokkhljómsveit sem sögur fara af. Meira að segja Rolling stones, sem þó strangt tiltekið má teljast sú elsta í bransanum, státar ekki að viðlíka ferli. Frá upphafi, sem rekja má aftur til 1962, hefur Quo nefni- lega starfað nær óslitíð. Sömu sögu er hins vegar ekki aó segja af Stones. Hlé hefur oft verið á starf- semi Jaggers, Richards og félaga í gegnum tíðina, sem þó alltaf hing- að til hefur verið bundinn endi á. Francis Rossi hefur hins vegar aldrei séð ástæðu til að hvfla sig á Quo. Hann hefur verið i sveitinni frá upphafi og bafa fengið nýja félaga til liðs við hana þegar aórir hafa hætt. Enn ein platan er nú nýkomin út með Status Quo, Thristy work. Fór hún rakleiðis í níunda sæti list- ans í Bretlandi. Francis Rossi og Rick Parfitt. Þeir hafa verið saman í Status Quo í nær 29 ár og gefa enn ekkert eftir.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.