Dagur - 17.09.1994, Síða 19
IÞROTTIR
SÆVAR HREIÐARSSON
Laugardagur 17. septemberí 1994 - DAGUR - 19
Áhugaleysi
Þessi mynd sýnir glögglega það áhugaleysi sem ríkt hefur fyrir knattspymunni á Akureyri í sumar. Mynd-
inni var smellt af örfáum mínútum fyrir leik KA og Fylkis fyrir skömntu sem fram fór í blíðskaparveðri.
Eins og sjá má var fámennt í stúkunni og til marks um áhugann hjá Akureyringum þá er ntikill meirihluti
þeirra sem mættu stuóningsmenn Fylkis, sem komu alla leið frá Reykjavík til að styðja við bakið á sínunt
mönnum. Þegar líða tók á leikinn fóru Akureyringar að tínast í stúkuna og í síðari hálfleik gerðu „Skotarn-
ir“ innrás!
Gengi lióanna á Akureyri hefur verið í samræmi við lítinn stuöning sem fengist hefur frá pöllununt og
hefur útlitió sjaldan verið jafn svart á Akureyri. Er ekki kominn tími til að snúa blaðinu við, mæta á völlinn
og hvetja Iiðin til dáða?
Knattspyrna - U-16 ára landslið:
Okkar menn
mæta Skotum
- Evrópukeppnin á mánudag
íslenska landsliðið skipað leik-
mönnum 16 ára og yngri leikur
gegn jafnöldrum sínum frá
Skotlandi í Evrópukeppni lands-
liða á mánudag. Leikurinn fer
fram í Grindavík og er það vel
við hæfi þar sem mikil upp-
sveifla hefur verið í knattspyrn-
unni í bænum.
í íslenska liðinu eru þrír leik-
menn af Norðurlandi og þar af eru
tveir frá Völsungi á Húsavík. Það
eru þeir Ásmundur Gíslason,
markvörður, og Dagur Sveinn
Dagbjartsson. Báðir hafa þeir ver-
ið að leika með meistaraflokki
Völsungs aó undanförnu og ef vcl
er haldið á spöðunum eiga þeir
glæsta framtíð í boltanum. Sömu
sögu er að segja af Dalvíkingnum
Þorleifi Árnassyni, sem einnig er í
landsliðinu. Hann hefur leikið
með KA í sumar og staðið sig
mjög vel í framlínunni hjá 3.
flokki.
íslensku strákamir eru í rióli
með Skotum og Finnum í keppn-
inni og hafa þegar mætt Finnum
hér heima. Sá leikur tapaðist, 0:2,
Þorleifur Árnason hefur staðiö sig
vel með 3. flokki KA í sumar.
en Finnar töpuðu í síðustu viku
fyrir Skotum, 0:1. Þjálfari Is-
lenska liðsins er Gústaf Adolf
Björnsson.
Handbolti:
Dómarar á faraldsfæti
Handknattleiksdómararnir Stef-
án Arnaldsson, frá Akureyi, og
Rögnvald Erlingsson, hafa nóg
að gera þessa dagana. í dag
hefst úrslitamót í Evrópukeppni
kvennalandsliða í Þýskalandi og
þar eru kapparnir í eldlínunni.
Átta dómarapör voru valin til að
dæma í mótinu og voru Stefán
og Rögnvald þeirra á meðal.
Næstu verkefni þeirra á er-
lendri grund eru í Evrópukeppni
karla í október. Fyrst halda þeir til
Danmerkur og dæma leik Holte
og SKP Bratislava frá Slóvakíu í
Borgarkeppninni 8. október og
viku síðar veróa þeir í Bergen í
Noregi að dæma leik Fyllingen og
Skövde frá Svíþjóð í Evrópu-
keppni félagsliða. Stefán og
Rögnvald eru að margra mati
besta dómarapar Islands og hafa
þeir sannað það hvað eftir annað.
Stefán Arnaldsson blæs hraustlega í
flautuna.
Stúlkur
8-18 ára
Skráning í
kvennaflokka
í körfubolta
fer fram í síma
27687 (Edda).
Þar veröa
allar nánari
upplýsingar gefnar.
Hinn 4. júní voru gefin saman í
hjónaband í Hólakirkju í Eyjafiröi
af séra Siguröi Guömundssyni
vígslubiskup brúöhjónin Geirlaug
Jóna Rafnsdóttir og Hörður Hall-
grímsson. Heimili þeirra er Sunnu-
braut 6, Akranesi. Ljósmynd: Noröurmyntl
Hinn 4. júní voru gefin saman i
hjónaband í Akureyrarkirkju af séra
Birgi Snæbjörnssyni brúðhjónin
Guðlaug Reynisdóttir og Sigurjón
Einarsson. Heimili þeirra er Hrísa-
lundur 8a, Akureyri.
Ljósmynd: Noróurmynd
Hinn 23. júli sl. voru gefin saman í
hjónaband í Akureyrarkirkju af séra
Þórhalli Höskuldssyni, brúöhjónin
Aöalbjörg Steinarsdóttir þjónn og
Kristján Hinrik Edelstein tónlistar-
kennari. Heimili þeirra er aö Vana-
byggö 7, Akureyri. Ljósmymt Þorgcir
Hinn 4. júní voru gefin saman í
hjónaband í Akureyrarkirkju af séra
Birgi Snæbjörnssyni brúöhjónin El-
ín Osp Siguröardóttir og Eiður
Guöni Eiösson. Heimili þeirra er
Smárahlíö 9a, Akureyri.
Ljósmynd: Norðurmynd
Mæðraleíkfímí
Mánudagínn
19. sept. mun
hefjast nýtt nám-
skeíð fyrir konur
með börn á brjósti
og verðandi mæður.
Styrkjandí og góð
leíkfimí í umsjón
sjúkraþjálfara á
mánudögum
og míðvíkudög-
um kl. 10.45
(með barna-
pössun).
Kennari:
Krístín
Gísladóttir,
sjúkra-
þjálfarí.
Nánari
upplýsíngar
og skráníng
ísíma 26211.
.
t
• af
mm
ý'Æ'’
^jPÚLS 180,-,,
Greiðslukortaþjónusta.
HEILSURÆKT
KA-heimilinu - Simi 96-26211