Dagur - 18.11.1994, Side 14
14 - DAGUR - Föstudagur 18. nóvember 1994
MINNINC
^ Valgerður Steinunn Fríðriksdóttir
Fædd 3. maí 1889 - Dáin 8. nóvember 1994
Valgerður Steinunn Friðriks-
dóttir fæddist á Hánefsstöðum í
Svarfaðardal 3. maí 1889. Hún
lést á Dvalarheimilinu Hlíð á
Akureyri 8. nóvember s.l. For-
eldrar hennar voru Friðrik Frið-
riksson, f. 3. apríl 1859, d. 11.
mars 1924, bóndi á Hánefsstöð-
um og síðar verkamaður á Ak-
ureyri, og kona hans Guðrún
Friðrika Jóhannsdóttir, f. 16.
ágúst 1860, d. 31. mars 1953.
Systkini Valgerðar voru: Anna
Friðrika, f. 4. október 1882, d. 5.
desember 1980, gift Adolf Krist-
jánssyni, skipstjóra á Akureyri.
Elín, f. 23. febrúar 1886, d. 30.
maí 1982, gift Boga Daníelssyni,
trésmið á Akureyri. Jóhann
Gunnlaugur, f. 20. október 1895,
d. 1. júní 1898. Fósturbróðir
Valgerðar var Sigurður Jónsson
frá Sauðancskoti, f. 29. júlí 1905,
Leikfélag Dalvíkur
sýnir söngleikinn
Land míns
föður
eftir Kjartan Ragnarsson
Tónlist eftir Atla Heimi Sveinsson
Leikstjóri: Kolbrún Halldórsdóttir
Tónlistarstjóri: Gerrit Schuil
5. sýning
föstudag 18. nóvember kl. 21
6. sýning
laugardag 19. nóvember kl. 21
7. sýning
sunnudag 20. nóvember kl. 21
8. sýning
þriöjudag 22. nóvember kl. 21
9. sýning
föstudag 25. nóvember kl. 21
10. sýning
laugardag 26. nóvember kl. 21
11. sýning
sunnudag 27. nóvember kl. 15
Sýningar eru í Ungó og
hefjust kl. 21
Miðasala kl. 17-19
sýningardaga í Lambhaga,
sími 61900, og í Ungó eftir
kl. 19 fram aö sýningu
Tekið við pöntunum í
símsvara í sama númeri
allan sólarhringinn
d. 9. aprfl 1963, prentari á Akur-
eyri. Arið 1913 í októbermánuði
kvæntist Valgerður Jónasi
Franklín Jóhannssyni, f.10.
janúar 1883, d. 4. júlí 1956, sjó-
manni og síðan verkamanni á
Akureyri. Foreldrar Jónasar
voru, Jóhann Franklín Jónasson
bóndi á Öngulsstöðum, Syðra-
Kálfsskinni og Þverá í Eyjafirði
og kona hans Þóra Rósa Vigfús-
dóttir frá Árskógsströnd. Börn
Valgerðar og Jónasar voru: Jó-
hann Friðrik Franklín, f. 26. júlí
1916, d. 5. október 1978, bakara-
meistari á Akureyri, giftur Mar-
íu Jóhönnu Jóhannesdóttur,
börn þeirra eru, Guðný Valgý,
gift Hreiðari Aðalsteinssyni,
bónda á Öxnhóli í Skriðuhreppi
og eiga þau sex börn. Valgerður
Árdís, meinatæknir á F.S.A., gift
Jóhanni Sigurjónssyni kennara,
og eiga þau þrjú börn. Auður
Björg, aðstoðamaður tannlæknis
í Reykjavík, var gift Jakobi
Ágústssyni framkvæmdastjóra,
og eiga þau tvö börn. Erla Sig-
ríður heldur heimili með móður
sinni á Akureyri og Jónas
Hreinn, kvensjúkdómalæknir á
Akureyri, giftur Sigurlaugu Vig-
fúsdóttur, meinatækni, og eiga
þau þrjár dætur; Þóra Rósa
Franklín, f. 7. mars 1919, d. 28.
desember 1985, gift Ólafi
Daníelssyni frá Hvallátrum á
Breiðafirði, f. 2. aprfl 1905, d.
23. júní 1980, klæðskerameistari
á Akureyri, sonur þeirra er
Ævar Karl, f. 23. september
1940, tollfulltrúi í Reykjavík,
giftur Sigrúnu Jóhannsdóttur,
fulltrúa hjá Tryggingastofnun
ríkisins, þau eiga þrjú börn.
Jarðaför Valgerðar fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag.
Sendið vinum
$ og vandamönnum $
erlendis
m aomsœta •
1KEA hangikjötið |
um jólin
(0)
($1
c®
(0)
1$)
(Jfl)
(J)
(J)
1$)
(0)
(JBd
i$)
i0)
($)
(0)
ijJ)
(Jj)
(0)
(0)
i$)
($)
(0)
t&t
i0)
ðj)
0)
Sendingaþjónusta
Buggðavegi
sími 30377
(0)
($)
(J)
(Jj)
($)
(0)
(0)
(S1
l$)
(0)
(0)
1$)
(0)
(Jff)
($)
i®)
1$)
(0)
(Jj)
1$)
($)
($)
(0)
10)
Nú þegar birta sumarsins víkur
fyrir myrkri vetrarins kvaddi Val-
gerður amma mín þennan heim.
Hennar ljós skín í myrkrinu og
myrkrið tekur ekki á móti því,
minning hennar lifir.
Mig langar í fáum oróum að
minnast Valgerðar ömmu minnar
sem ég hef verið samtíóa í meira
en hálfa öld, hcf ég henni mikið
að þakka og mikinn alþýðlegan
fróðleik frá henni fengiö. Hún
lifði í 105 ár og 6 mánuði og var
elst Islendinga þcgar hún lést.
Systur hennar tvær, Friðrika og
Elín, svo og Guðrún móðir þeirra,
voru allar á tíræðis aldri þegar þær
létust.
Valgcrður amma ólst upp á Há-
nefsstöóum í Svarfaðardal en
þann Dal dáði hún nieira en nokk-
urn annan stað þessa lands, hún
fór á hverju sumri í Dalinn og
taldi sig alla tíð Svarfdæling.
Sína síðustu ferð fór hún í
fyrrasumar þá 104 ára, ekki trcysti
hún sér til aó aka meó mér hring-
inn í Dalnum en heim að Hánefs-
stöðum fórum við, en bærinn er
stutt inn í Dalnum að austanveróu
og útsýni þaðan gott yfir hinn
fagra Dal.
Valgerður amma var á Hánefs-
stöðum hjá foreldrum sínum fram
aó sautján ára aldri. Hún fékk all-
góða fræöslu hjá farandkennurum
sem fóru á milli sveita á þessum
tímum, lærði hún auk lesturs og
skriftar, réttritun, reikning og
dönsku. En hún sagði mér að
skólagangan hefói ekki verið Iöng,
hún fermdist svo á Völlum hjá
séra Stefáni Kristinssyni frá Ysta
Bæ. Sautján ára gömul fór amma
að heiman, hún réð sig í vist til
læknishjónanna á Grenivík, frú
Sigríðar og Sigurjóns Jónssonar,
ætlunin var einnig aó hún fengi
tilsögn hjá læknisfrúnni í sauma-
skap.
Þar er hún í tvö ár, þá flytja
læknishjónin til Dalvíkur og hún
með þeim. Þau setjast aö í Árgeröi
sem stendur á bökkum Svarfaðar-
dalsár, þar var engin brú, en ferju-
skyld. Kom þaó í hlut ömmu að
ferja yfir ána á bátkænu. Þetta er
að vori til og er hún þarna til jóla,
fer hún þá heim í Hánefsstaði, er
þar til vors og ræður sig þá í vist
til Þórönnu og Péturs Péturssonar
kaupmanns í Gránuversluninni á
Akureyri. Er þar í eitt ár en þá
flytja kaupmannshjónin til
Reykjavíkur, en amma ræður sig
til hjónanna Önnu, sem varð síóar
myndasmiður, og Hendriks Shci-
öth bankagjaldkera, hjá þeim cr
hún þrjú ár, þó meó sumarleyíúm.
Anna Shciöth mun vera upphafs-
kona að stofnun Lystigarðs Akur-
eyrar og að sögn ömmu fékk hún
sendar allskonar plöntur frá út-
löndum sem hún hjálpaöi til við
að gróðursetja og vökva. En
amrna varð síðar þekkt fyrir rækt-
un og uppeldi fallegra blóma og
sérstaklega rauðra rósa.
Á þessum árum urn 1912 ræður
amma sig í verbúðavinnu í leyfum
sínum á sumrin til Gísla Gíslason-
ar, útvegsbónda frá Svínárnesi,
sem gerði út frá Þorgeirsfirði. Þar
liggja leióir saman. Jónas Franklín
afi minn var þar meó bát er réri
þaðan, þau kynnast þarna og gifta
sig 31. október 1913 í Grundar-
þingi hjá séra Þorsteini Briem,
hefja búskap sama haust á Akur-
eyri í húsi Dómhildar og Magnús-
ar Kristjánssonar í Innbænum.
Kaupa síóan suðurhluta hússins
númer 20 við Aðalstræti og eiga
þar heima í 30 ár.
I sambýli við ömmu mína og
afa í norðurhluta hússins vió Að-
alstræti 20 bjuggu Friðrika systir
hennar og Adolf Kristjánsson
skipstjóri, en Adolf og Jónas afi
minn geröu saman út báta og unnu
þá systurnar vió úthaldið. I þessu
gamla húsi voru böm beggja
systranna alin upp en mjög mikill
samgangur var alla tíó á milla
systranna þriggja og þeirra barna.
Amma Valgerður vann á þess-
um árum öll algeng störf er lutu
að sjófangi t.d. síldarsöltun, salt-
fiskvinnslu og línubeitingu.
Hún tók mikinn þátt í félags-
málum kvenfélaga og góðtempl-
arareglu og starfaði í áratugi í
kvennadeild Slysavarnafélagsins á
Akureyri með þeirri mætu konu
Sesselju Eldjárn, sem var sveit-
ungi hennar úr Svarfaóardal.
Nú hef ég stiklað á stóru hvað
varðar lífshlaup ömmu minnar og
stuðst við hennar frásögn. Sjálfur
man ég hana fyrst fyrir um það bil
fimmtíu árum, þá er hún komin
yfir miðjan aldur og býr ásamt
Jónasi afa mínum í Aðalstræti 20.
Valgerður amma var glæsileg
kona, hún klæddist íslenska bún-
ingnum og bar hún þann klæónað
ai'buröa vel. Hún var teinrétt og
tíguleg, hár hennar var mikið og
dökkt og náðu fiéttur hennar niður
í hnéspætur og setti þetta mikla
hár mikinn svip á hana og hennar
klæönaó.
Eg bar mikla virðingu l'yrir
henni alla tíð og scm barn fannst
mér allar ömmur ættu að vera eins
og hún, Ijúf, blíð en samt ákveðin,
alltal' að segja mér sögur og ævin-
týri. Árin liðu, amma missti Jónas
afa 1956, þá voru þau komin í
stærra hús sem að þau höfðu
byggt ásamt foreldrum mínum við
Aðalstræti 5. Á þessum árum fór
ég aó sjá ýmsar nýjar hliðar á
þessari mætu konu sem einl'ald-
lega stafaöi af því að ég var ekki
barn lengur þótt hún væri alltaf
sama amman.
Þaó sem mér l'annst og hefur
alltaf fundist er hve þekking henn-
ar á ýmsum málum var mikil, hún
var vcl lesin og fylgdist með ótrú-
legustu hlutum hérlendis og er-
lendis, og miðað við þá
skólagöngu sem hún fékk hefur
hún nýtt hana vel. Mér er alltaf
minnistætt hvað hún sagði við mig
þegar sjónvarpið kom fyrst til
okkar, „nú get ég feróast um víða
veröld heima í stofu“.
Amma Valgerður hafói sérstak-
lega góða frásagnarhæfileika,
blandast þar saman mjög gott
minni og að hún kunni mjög vel
að láta aðalatrióin koma fram í
frásögnum sínum. Ekki spillti það
fyrir aó hún hafði óvenju góða
kímnigáfu.
Aldrei nokkurn tímann talaöi
hún illa um nokkra manneskju og
dægurþras leiddi hún hjá sér.
Og enn lióu árin, ég stofna mitt
eigið heimili og kaupi af ömmu
minni hennar hlut í húsinu. Hún
dvelur þar áfram hjá foreldrum
mínum í um það bil 12 ár. Á þeim
tíma fæðast börn okkar Sigrúnar
Jóhannsdóttur, nutu þau þess ríku-
lega aó hafa langömmu í húsinu
þann tíma þar til hún fór á Dvalar-
heimilið Hlíð fyrir um 20 árum.
Þar naut hún sérstakrar umönnun-
ar og elskulegheita alls starfsfólks
og er það þakkaö hér með. Allar
götur síðan fram í andlátió hefur
hún svo fylgst með barnabörnum,
barnabamabörnum, og
barnabarnabarnabörnum sínum af
sérstakri hugulsemi. Fimm af sjö
minna bamabarna hafa séó hana
og koma til með aö muna, og eru
þá komnir fimm ættliðir. Amma
mín var ákafiega gestrisin kona,
frændrækin og vinamörg, eftir að
hún fiutti á Dvalarheimilið Hlíð
fékk hún að njóta þess. Hún var
samciningartákn stórrar fjölskyldu
og frændgarós sem þakkar nú
góðar stundir.
Nú er kornið að leiðarlokum,
við kveðjum ömmu Valgerði með
söknuði, viróingu og þakklæti.
Hafðu þökk fyrir öll þín spor.
Það besta scmfellur öðruni í arf
er endurminning um göfugt starf
Moldin er þín.
Moldin er trygg við börnin sín,
sefar allan söknuð og harm
og svœfir þig við sinn móðurbarm.
Grasið hvíslar sitt Ijúfasta Ijóð
á leiðinu þínu. Moldin er hljóð
og hvíldin er góð...
(Davíó Stefánsson)
Ævar Karl Ólafsson.
Listaverka-
almanak
Þroskahjálpar
komíð út
Listaverkaalmanak Þroska-
hjálpar er komið út. Almanakið
er með svipuðu sniði og áður og
er prýtt grafíkverkum eftir ís-
lenska listamenn. Almanakið er
jafnframt happdrættismiði og
vinningarnir eru 49 grafíkverk
eftir íslenska listamenn en þar á
meðal eru listaverk eftir Erró.
Dregið er í hverjum mánuði um
þrjá til fimm vinninga.
Almanakið er gefið út í 18 þús-
und eintökum. Þaó kostar 1000
krónur og rennur andvirði hvers
almanaks óskipt til starfsemi
Þroskahjálpar. Álmanakið fæst á
skrifstofu Þroskahjálpar að Suður-
landsbraut 22 í Reykjavík en
einnig má panta það í síma 91-
889390. Forsvarsmenn Þroska-
hjálpar óska eftir því að vel verði
tekið á móti sölufólki.