Dagur - 19.11.1994, Qupperneq 10
10 - DAGUR - Laugardagur 19. nóvember 1994
Sendið vinum
% og vandamönnum
erlendis
l gómsœta
<0>
(0)
i^i
<$>
0)
Z KEA hangikjötið t
um jólin
Sendingaþjónusta
Byggðavegi
sími 30377
3Jp IHD
í$j i® i$i i® iJj [01 35 i$id^ iffi *SD e®
28. ágúst voru gefin saman í
hjónaband í Glerárkirkju af séra
Gunnlaugi Garðarssyni brúö-
hjónin Brynja Hcrgcirsdóttir
og Sigmar Steingrímsson.
Heimili þeirra er Keilusíða lOd,
Akureyri.
Ljósmynd: Norðurmynd/Ásgrímur
verður spiluð í Hamri,
félagsheimili Þórs,
surmudagirm
20. nóvember kl. 20.00.
Veglegir vinningar.
Allir velkomnir.
Hamar
Sími12080
Kiwanisskákmótið 1994:
Keppendur 98 í
átta aldursflokkum
Kiwanisskákmótið fór frani
laugardaginn 12. nóvember sl. í
Lundarskóla og voru keppend-
ur 98 í átta aldurshópum. Mótið
er orðið árlegur viðburður í
skáklífinu á Akureyri en rétt til
þátttöku eiga allir grunnskóla-
nemendur á Akureyri.
Það er Kiwanisklúbburinn
Kaldbakur á Akureyri sem heldur
mótið, veitir verðlaun til þeirra
þriggja sem efstir verða í hvejum
aldurshópi auk þess sem allir þátt-
takendur fá viðurkenningarskjal
vegna þátttökunnar. GG
ÚRSLIT:
9-10 bckkur:
Loftur Baldvinsson,
Gagnfræðaskóli Ak. 6,5
Björn Finnbogason,
Gagnfræðaskóli Ak. 6,0
Davíð Stefánsson,
Gagnfræðaskóli Ak. 5,0
8. bekkur:
Eðvarð Eðvarósson, Glerárskóli 3,5
Heimir Örn Jóhannesson,
Gagnfræðaskóli Ak. 3,0
Karl Helgason, Glerárskóli 2,5
7. bckkur:
Sverrir Arnarsson, Lundarskóli 6,0
Gunnar Valur Gunnarsson,
Lundarskóli 5,0
Eggert Gunnarss., Barnaskóli Ak. 5,0
6. bckkur:
Arni Már Haróars., Barnaskóli Ak. 6,0
Arnar Þór Sæþórsson, Lundarskóli 5,0
Atli Þór Ragnarss., Barnaskóli Ak. 5,0
5. bekkur:
Halldór B. Halldórss., Lundarskóli 6,0
Páll Óskar Kristjánsson,
Barnaskóli Ak. 5,5
Gunnar Þórir Björnsson,
Barnaskóli Ak. 5,5
,Á hann nokkurt svar cf ég lcik biskupnum til F5?“
í skagfírskum
Sigurvcgarar í 5. bckk ásamt forsvarsmönnum mótshaldsins. F.v. Halldór B.
Halldórsson scm varð í l.sæti, Páll Óskar Kristjánsson í 2. sæti og Gunnar
Þórir Björnsson í 3. sæti.
4. bckkur:
Gunnar Ingi Valdimarsson,
Oddeyrarskóli 8,5
Jón Ámi Steingrímss., Lundarskóli 8,0
Árni Þór Sigtryggsson .Glerárskóli 6,5
1-3. bckkur:
Jón Ingi Hallgrímsson,
Barnaskóli Ak. 7,0
Matthías Arnaldsson,
Barnaskóli Ak. 6,0
Ægir Garðarsson, Glerárskóli 5,0
Stúlknaflokkur:
Þórhildur Kristjánsd., Glerárskóli 7,0
Stella Christensen, Barnaskóli Ak. 6,0
Anna Kr. Þórhallsdóttir,
Barnaskóli Ak. 4,5
Stúlkum sem sífellt fjölgandi á Kiwanisskákmótinu.
Leikfélag Sauðárkróks frumsýndi
fyrra verkefni sitt á yfirstandandi
starfsári miðvikudaginn 16. nóvem-
ber. Þaö er barnaleikritió Dýrin í
Hálsaskógi eftir Thorbjörn Egner.
Leikstjóri er Einar Þorbergsson og
sviðsmynd eftir Gunnar Má Ingólfs-
son.
Það er ætíð þakkarefni, að leikfé-
lög setji upp verk við hæfi yngstu
kynslóðarinnar. Svo ríkur þáttur sem
leikhúsið cr í menningu þjóöarinnar,
má ekki láta undir höfuð leggjast, að
þjóna einnig þeim, scm upprennandi
cru og taka eiga við því merki, sem
haldið er uppi af þeim, sem nú starfa
að leiklist. Hinir ungu að árum eru
leikhúsunnendur framtíðarinnar. Þá
þarf að laóa að leiklistinni jafnt áhorf-
endur sem þátttakendur. Fátt er hent-
ugra í þessu augnamiói, en að flytja
verk, sem höfða til barna og unglinga.
Það er jákvæð viðleitni til þess að
tryggja framgang starfsins á komandi
árum og áratugum.
Uppsetning Leikfélags Sauðár-
króks á Dýrunum í Hálsaskógi er á
margan veg metnaðarfull og vel unn-
in. Þar ber hátt sviðsmynd Gunnars
Más Ingólfssonar, sem er haglega
hönnuð og nýtir vel svió Bifrastar, fé-
lagsheimilisins á Sauðárkróki. Sviðs-
myndinni er að mestu komió fyrir á
snúanlegum palli. Þetta fyrirkomulag
gefur kost á fljótlegum, fjölbreyttum
sviðskiptum. Form og litir eru vel við
hæfi og njóta sín skemmtilega í lýs-
ingunni, sem er í höndum Atla Þor-
bergssonar og Ama Bjömssonar.
Leikstjórinn, Einar Þorbergsson,
hefur aö mörgu lcyti unnið verk sitt
vel. Hreyfing er yfirleitt góð á sviðinu
og notkun svalanna meðfram
áhorfendasvæðinu kcmur vel út. Því
miður koma fyrir heldur stöö atriði,
þar sem einstakir flytjendur eru of
kyrrstæðir og vandræðalegir og virð-
ast einna helst bíða þess, að aftur
komi aó þeim að gera eða segja
eitthvað. Þessa gætti hvað mcst í
nokkrum hópsenum, en henti einnig
víðar. Að hluta má væntanlega um
kenna talsveróum þrengslum á svið-
inu. Takmarkanir þess, til dæmis hvað
lofthæð snerti, gerðu einnig nokkur
atriði torveld úrlausnar. Ekki er
auðséð hvaða lausnir hefðu verið betri
þeim, sem notaðar voru, þó þær kæmu
ekki alveg nógu vel út.
Tónlistarflutningur er ein sterkasta
hlið uppsetningar Leikfélags Sauðár-
króks á Dýrunum í Hálsaskógi. Þar á
Hilmar Sverrisson, tónlistarstjóri
verksins, stærstan hlut að máli. Hann
Ieikur undir á píanó á sýningum og
gerir það á líflegan og fjörlegan hátt
og styður söng flytjendanna á sviðinu.
Að sjálfsögðu eru raddir misgóðar til
söngs, en í sem næst öllum tilfellum
hefur vel tekist að ná vióeigandi blæ.
LEIKLIST
HAUKURÁCÚSTSSON
SKRIFAR
Hann skiptir höfuðmáli í verki sem
þessu, þar sem ekki er stefnt að fagur-
söng, heldur túlkun, sem fellur að per-
sónunni, sem í hlut á.
Kristján Gíslason fer með hlutverk
Mikka refs. Hann á verulega góða
spretti, ekki síst í sungnum atriðum og
nær iðulega góðu sambandi við áhorf-
endur. Persónusköpun hans er talsvert
vel samfelld og fas hans almennt í
góðu samræmi við skolla gamla.
Lilla klifurmús leikur Páll Frið-
riksson. Hann er lipurlegur og fjörleg-
ur í hlutverki sínu og nær góðu sam-
bandi við áhorfendur. Söngur hans og
fas fellur vel að persónunni. Samleik-
ur Páls og Kristjáns er almennt vel
unninn og iðulega skoplegur.
Marteinn skógarmús er leikinn af
Styrmi Gíslasyni. Hann er nokkuð
mistækur í hlutverki sínu: Gerir ióu-
lega vel, en er ekki alveg nógu lífleg-
ur í nokkrum tilfellum. I hlutverki
Bangsamömmu er Halldóra Helga-
dóttir. Hún gerir vel og skapar
skemmtilega pesónu. Hið sama er um
Kristján Örn Kristjánsson í hlutverki
Hérastubbs bakara. Sérlega vel tekst
honum í sungnum atriðum. Pálmi
Helgason í hlutverki Bangsapabba á
góða hluta, en er tæplega nógu sam-
felldur í túlkun sinni.
I Dýrunum í Hálsaskógi er mikill
fjöldi smárra hlutverka, sem hér yrói
of langt aó telja. Ymsir geróu vel, svo
sem María Gréta Ólafsdóttir í hlut-
verki Húsamúsarinnar og ekki síst þau
Elva Björk Guómundsdóttir og Gunn-
ar Bragi Sveinsson í hlutverkum Kon-
unnar og Mannsins, en þau sýndu
verulega skemmtilega takta í persónu-
sköpun sinni. Aðrir voru margir hverj-
ir ekki nógu vel með í því, sem fram
fór. Þeim hefói leikstjóri mátt sinna
betur og nýta þá til þess að skapa
meiri hreyfingu og líf til dæmis í hóp-
senum.
Hinir ungu áhorfendur í salnum í
Birfröst virtust skemmta sér vcl og
fylgjast af áhuga með því, sem fram
fór á sviðinu. Þeir svöruðu þeim
spurningum, sem til þeirra var beint
og tóku þannig þátt í ævintýrinu í
skóginum, sem töfraður hafði verið
fram í svipsmyndinni. Til ungu kyn-
slóðarinnar er höfóaó með sýningunni
og til hennar er náð. Það er vel.
Leiðrétting
í Degi í gær var farið rangrmeð
nafn eins þriggja listamannanna
sem opna myndlistarsýningu í
Listhúsinu Þingi í dag. Hann heitir
Jóhann Nói Ingimarsson en ekki
Jóhann Óli eins og misritaðist í
blaðinu. Beðist er velviröingar á
þessuni mistökum.