Dagur - 19.11.1994, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Laugardagur 19. nóvember 1994
PÝRARÍKI ÍSLANDS
SI6URÐUR Æ6ISSON
Hvalir 1. þáttur
Tröll hafdjúpanna
Menn hafa löngum átt í erfióleik-
um með aó ráða í uppruna og ætt-
erni hvala, enda málið flókið og
vísindagreinin, þ.e.a.s. steingerv-
ingafræðin, tiltölulega ung, svo að
þaö, sem vitað er í dag, má yfir-
leitt heita úrelt á morgun. En nú á
tímum munu flestir samt hallast - í
grófum dráttum - aó þeirri
skoðun, að hvalir séu komnir af
landrándýrum, eitthvað í líkingu
viö úlfa, sem uppi voru fyrir um
55 milljónum ára. En hver þau
voru nákvæmlega, er aftur erfið-
ara að segja til um, því ekki er enn
fundin nein bein tilvísun frá slíku
dýri yfir til hvala. Ymist er talað
um rándýr, sem á íslensku eru
nefnd kjötungar, en það var grein
frá skordýraætum, er þróaóist yfir
til kjötáts, eóa þá aó nefnd cr til
sögunnar cin grein murninga, svo-
nefndir kárnar, en vitaó er að þeir
snérust frá jurtaáti til kjöt- eða
hræáts, og uróu sumir hverjir gríð-
arstórir. Jarðsvínin í Afríku eru
talin skyldust þessum murningum
eða kárnum, af núlifandi dýrum
jarðar. Einhverjir fræðimenn eru
þó með aórar hugmyndir en þess-
ar. Um hitt cru menn frckar sam-
mála, að aólögunin frá búsetu á
landi og yfir í líf í sjó hafi fyrst
gerst cinhvers staóar þar, sem
Miðjarðarhafiö liggur núna, í svo-
kölluðu Tethyshafi.
Frá ómunatíð hafa mennirnir
dáðst að hvölunum og rætt um þá,
eða nálgast, með óttablandinni
virðingu. Elstu menjar, sem varð-
veist hafa urn kynni manna og
þessara dýra, eru hellaristur í Nor-
egi frá því um 5000 f. Kr. Og í
bókmenntum hcimsins er einnig
mjög snemma víða getið um þess-
ar dularfullu skepnur, bæði í trúar-
legum ritum og veraldlegum. Má
nefna hér til dæmis sköpunarsögu
Gamla tcstamentisins, í I. Móse-
bók, er segir frá því, er Guö skap-
aði hin stóru lagardýr, og einnig
hina þekktu frásögn Gamla testa-
mentisins af Jónasi, sem lenti í
maga hvals nokkurs, en var eftir
þrjá daga skilað á land aftur. Rit-
unartími þeirrar sögu er talinn
vera 4. öld f. Kr. Og einnig mætti
nefna ýmsar grískar hcimildir,
eins og t.d. Dýrafræði gríska
heimspekingsins og líffræðingsins
Aristótelesar, frá svipuðum tíma
og Jónasarfrásagan, þar sem hann
rannsakar og gerir skil á vísinda-
legan hátt yfir 500 tegundum, og
fjallar m.a. um sjávarspcndýrin,
og hefur að dómi fræðimanna að
öllum líkindum kynnst af eigin
raun höfrungum í sjónum um-
hverfis grísku eyjuna Lésvos, úti
fyrir strönd Tyrklands, þar sem
hann bjó. Lýsing Aristótelesar á
höfrungnum er það nákvæm, að
nútíma vísindamenn telja sig litlu
geta bætt þar vió. Enda gerist fátt
nýtt í þessum efnum, fyrr en um
Fyrr á öldum gerðu menn scr und-
arlegustu hugmyndir um tröllvaxna
íbúa hafdjúpanna, eins og þcssi
gamla tréskurðarmynd ber
mcð sér. Iirfitt er að ráða í
stórhvelið (BALENA), því
dæmið gengur hrcinicga
ekki upp: skíðishvalir cru
með tvö blástursop og skíði,
en tannhvalir mcð tennur.
Hér er því allt í bland.
En hvalurinn ncðst til hægri
(ORCHA) á greinilega að
vera háhyrningur.
(Heimild: Boken om hvalen.
Göteborg 1969.)
1500 árum síðar, og þá reyndar
hér noröur í Atlantshafi. I norska
ritinu Speculum regale, öðru nafni
Konungsskuggsjá, sem aó öllum
líkindum var samið á 13. öld, er
nefnilega ítarlegur kafli um hvala-
tegundir við strendur landsins. Sá
kafli var það besta og nákvæm-
asta, sem ritaó hafði verið fram að
því, og átti líka eftir að vera
grundvallarheimild manna um
þetta efni um langt skeið, eða allt
til ársins 1640, að Jón Guðmunds-
son, hinn lærði, ritaði: Um Islands
aðskiljanlegar náttúrur, er m.a
fjallaði um þessa hluti.
A 18. öld kemur svo arftaki
Grikkjans Aristótelesar, Svíinn
Linneus, og gerbyltir allri dýra-
lræðinni. Og eftir þaö fer cinn
sjávarlíffræðingurinn af öðrum að
koma l'ram á sjónarsviðið. 1 byrj-
un standa Frakkar, Þjóðverjar,
Hollcndingar, og Brctar, þar
fremstir, en síðar koma Banda-
ríkjamenn, Danir, og Belgar í hóp-
inn.
Kerfisbundnar rannsóknir á
þessum tignarlegu sjávarspcndýr-
um við og umhverfis Island hófust
þó ekki fyrr en í kringum árió
1965, og áttu Norðmenn og Eng-
lendingar þar stærstan hlut að
máli.
I dag skipta vísindamenn
hvalaættbálkinum (Cetacea) í þrjá
undirættbálka: fornhvali (Arc-
heoceti), sem nú eru útdauðir, en
voru ákveóin gerð tannhvala, skíð-
ishvali (Mysticeti), og tannhvali
(Odontoceti). Enginn veit ná-
kvæmlega, hversu margar tegund-
ir núlifandi hvala cru. Oftast eru
þær í bókum taldar 76 í allt, en
varkárustu fræðimenn nefna töl-
una 75-85, eða þar um bil. Þó er
talið allt eins líklegt, að enn fleiri
Icynist í regindjúpum heimshaf-
anna, stærstan partinn ókönnuð-
um. Sem dæmi, því til stuðnings,
má ncfna, að sumir hvalir eru ekki
þckktir nema af einu eða tveimur
sjóreknum hræjum, og í
einhverjum tilfellum er ekki um
að ræða nema eitt lítið hauskúpu-
brot eða svo.
Vió Islandsstrendur hafa frá
öndverðu sést 23 hvalategundir.
Af þcim eru 8 tegundir skíðishval-
ir, cn hinar 15 þcirra tannhvalir.
Skíðishvalirnir eru þessir: steypi-
reyður, langreyður, sandreyður,
hrafnreyður (hrefna), gráhvalur
(sandlægja), sléttbakur (Islands-
sléttbakur), norðhvalur (Græn-
landssléttbakur) og loks hnúfubak-
ur. Og tannhvalirnir eru: búrhval-
ur, andarnefja, skugganefja, há-
hyrningur, króksnjáldri, norðs-
njáldri (norræni svínhvalur),
grindhvalur (eða marsvín), ná-
hvalur, mjaldur, stökkull, hnýð-
ingur, leiftur, rákahöfrungur, létt-
ir, (hundfiskur; eiginlegi höfrung-
ur) og hnísa.
A næstu mánuðum hyggst ég
reyna að gera þessum tegundum
einhver skil hér. Mun ég fjalla um
hvalina eftir stærð, er þýðir, að í
bland koma skíðishvalir og tann-
hvalir, eftir því sem við á.
H
H
ELGARXX EILABR0T
)Ú
Umsjón: GT
10. þáttur
Lausnir á bls. 16
Hvenaer fæddist Ijósmyndarinn Hallgrímur Einarsson á Akureyri?
n 1826 E> 1849
1878
Hve víðáttumikil er efnahagslögsaga Islands, þ.e. hve langt nær hún út fyrir landhelgi?
1 50 mílur BBi 188 mílur WM 200 mílur
Á hvaða stað gat Sigmund Freud ekki komið?
I Að opnu hafi i kirkjugarð
I þjóðaróperuna í Berlín
, Hve morg lög og fjárli >g voru sett á árinu 1992?
' D 53 CT 87 B 196
Hver mörg bráðabirgðalög voru sett á árinu 1992?
n i Ei 2
Hvað starfaði faðlr Jósefs Stalins?
I Hann var kennari
Hann var verkamaður
Hann var skósmiður
, Hvað er ein mörk mörg grömni?
' D 248 CT 517 B iooo
Hver er stundum nefndur faðir hagfræðinnar?
Milton Friedman E9 Adam Smith
Steingrímur Hermannsson
9
Hver er helsta kirkjan í Rússlandi?
■ Gríska rétttrúnaðarkirkjan
Rússneska þjóðkirkjan
Kaþólska kirkjan
10
I hverju eftirtalinna fylkja Bandaríkjanna eru flestir íbúar?
I Alaska E9 Arizona
Arkansas
Hvað þýðir par í golfi?
I Tveir jafn góðir golfarar
Að fara holu i f
Staðall fyrir fjölda högga
Fyrlr hvað stendur orðið Blltzkrieg?
I Baráttu Ijósmyndara um myndir
Leiftursókn Hitlers i vestur 1940
Stjörnustríð
Hvenær á i sfðasta lagi að skila til Pósts og síma jólabögglapóstl sem á að fara með skipi til Norðurlandanna?
dag E9 28. nóvember líl 7. desember
GAMLA MYNDIN
Ljósmynd: Hallgrímur Einarsson og synir/Minjasafnið á Akureyri
Hver
kannast
við fólkið?
Ef lesendur Dags þekkja ein-
hvern á þeim myndum sem hér
birtast eru þeir vinsamlegast
beðnir að snúa sér til Minja-
safnsins, annað hvort með því að
senda bréf í pósthólf 341, 602
Akureyri eða hringja í síma
24162 cóa 12562 (símsvari).