Dagur - 10.12.1994, Page 6

Dagur - 10.12.1994, Page 6
3 - DAGUR - Laugardagur 10. desember 1994 Stína með einn af braeðrunum þrettán, Kjötkrók. í skjóli tignarlegra fjalla Ljósavatnsskarðsins situr hún Stína á Tjamar- borg og bjástrar vió jólasveinana sína. Þeir eru heldur minni en karlamir sem búa í fjöllunum sem Stína sér út um gluggann en þaó er mikill svipur meó þeim og þeir eru nafnar. Jólasveinamir hennar Stínu eru hver með sínum stíl, kjötkrókur meó kjötlærið, bjúgnakræktir meó bjúg- un og kertasníkir sem sérunnið íslenskt kerti. I jólasveinahópnum sitja þau við hlóóimar Grýla og Leppalúói og í einu hominu eru skötuhjúin Fjalla Eyvindur og Halla. „Þetta jólasveinaævintýri hófst á þann hátt að Ragnheiður Krist- jánsdóttir kennari, sem býr á Akur- eyri en var áður kennari hér, bjó til jólasveina til skreytingar í Stóru- tjarnaskóla. Ég aðstoðaði hana og þannig lærði ég listina," sagði Stína, Kristín Siguróardóttir, sem býr á Tjarnarborg í Ljósavatns- skarði í Suður-Þingeyjarsýslu en auk þess að búa til jólasveina starfar hún í Stórutjarnaskóla. Jólasveinarnir eftir Jóhannes úr Kötlum „I upphafi gerði ég nokkra jóla- sveina til gjafa en svo smá vatt þetta utan á sig og ég fór að fá pantanir. Ætli það sé ekki rúmlega ár síóan ég fór fyrst að sclja jóla- sveina. Ég hef jólasveinavísur Jó- hannesar úr Kötlum mér til leið- beiningar en í þeim er öllum jóla- sveinunum þrettán lýst.“ Gæra, tré og hraun - Úr hverju eru jólasveinarnir? „Uppistaðan er vír og einstaka munir eru úr leir, en annars eru jólasveinarnir mínir eingöngu unn- ir úr íslensku náttúrulegu efni. Föt- in eru unnin úr ull og ég bý til tvennskonar jólasveinalínur. Ann- ars vegar eru fötin þeirra í sauðalit- unum og hinsvegar er litskrúðuga línan. Þá klæði ég þá í græn og rauð föt, sem samt eru í gamaldags jurtalituðum tónum. Hár og skegg er úr lambsgæru og þeir eru í sauð- skinnsskóm. Allt tré er úr Vagla- skógi og ég nota hraunmola úr Kröflu. Vissulega eru handtökin mörg vió hvern jólasvein en full- skapaðir eru þeir um 30 cm á hæö ef þeir eru uppréttir.“ - Hvar hefur þú selt jólasvein- ana? „Hingað til hef ég aóallega haft þá til sölu á markaði Handverks- kvenna milli heiða á Fosshóli og á Hótel Eddu hér á Stórutjörnum. Auk þess hefur alltaf verið töluvert um það að fólk hafi pantað jóla- sveina beint af mér og öllum er velkomið aö hafa samband vió mig í því sambandi. Þennan mánuðinn eru jólasvein- ar frá mér til sýnis og sölu á veit- ingahúsinu Bing Dao á Akureyri og fleiri veitingahús eru að skreyta sali sína með þeim þessa dagana. Meðal annars eru jólasveinar frá mér sem eru yfir meter á hæð í verslun á höfðuborgarsvæðinu og veitingastað á Akureyri.“ Danir hrifust af sveinunum Jólasveinarnir hennar Stínu hafa farió víða á þessu eina ári. Hún hefur l’rétt af þeim í Astralíu og þeir eru sérstaklega vinsælir meöal Vestur-Islendinga í Kanada. En s Arið 1932 kom út bókin, Jólin koma, kvæði handa börnum eftir Jó- hannes úr Kötlum með teikningum eftir Tryggva Magnússon. I bók- s inni er meðal annars kvæðið, Jólasveinarnir. Arni Björnssonar segir í bók sinni Saga daganna að þetta kver þeirra félaga hafi orðið eins- s konar námsefni um jólasveinana og atferli þeirra. I kvæðinu eru fjallað um jólasveinana þrettán og foreldra þeirra Grýlu og Leppa- lúða. Þeir eru á leið til byggða, sá fyrsti kemur 13 nóttum fyrir jól, eöa 12. desember. KLJ Segja vil ég sögu af sveinumim þeim, sem brugðu sér hér forðum á bæina heim. Þeir upp á fjöllum sáust ■ eins og margur veit, - í langri halarófu á leið niður í sveit. Grýla var þeirra móðir og gaf þeim tröllamjólk, en pabbinn Leppalúði, ■ það var leiðindafólk. Þeir jólasveinar nefndust, • um jólin birtust þeir. Og einn og einn þeir kornu, en aldrei tveir og tveir. Og eins, þó einhver sœi, var ekki hikað við að hrekkja fólk - og trufla þess heimilisfrið. Hannfaldi sig í básnum ogfroðunni stal, meðan fjósakonan átti við fjósamanninn tal. Þeir voru þrettán þessir heiðursmenn, sem ekki vildu ónáða allir í senn. Aðdyrunum þeir lœddust og drógu lokuna úr. Og einna helst þeir leituðu í eldhús og búr. Stekkjastaur kom fyrstur, stinnur eins og tré. Hann laumaðist ífjárhúsin og lék á bóndans fé. Hann vildi sjúga œrnar, - þá va-ð þeim ekki um sel, því greyið hafði staurfœtur, - það gekk nú ekki vel. Stúfur hét sá þriðji, stubburinn sá. Hann krœkti sér ípönnu, þegar kostur var á. Hann hljóp með hana í burtu og hirti agnirnar, sem brunnu stundum fastar við barminn hér og þar. svem- arnir Þau ruku’ upp, til að gá að hvortgestur vœri á ferð. Þá flýtti ’ann sér að pottinum ogfékk sérgóðan verð. Sá sjötti Askasleikir, var alveg dœmalaus. - Hannfram undan rúmunum rak sinn Ijóta haus. Þegarfólkið setti askana fyrir kött og hund, hann slunginn var að ná þeim og sleikja á ýmsa lund. Þá þaut hann eins og elding og þvöruna greip, og hélt með báðum höndum, því hún var stundum sleip. Lœvísir á svipinn þeir leyndust hér og þar, til óknyttanna vísir, ef enginn nœrri var. Giljagaur var annar, með gráa hausinn sinn. - Hann skreið ofan úr gili og skaust ífjósið inn. Sá fjórði Þvörusleikir, var fjarskalega mjór. Og ósköp varð hann glaður, þegar eldabuskan fór. Sá fimmti Pottaskefill, var skrítið kuldastrá. ■ Þegar börnin fengu skófir hann barði dyrnar á. Sjöundi var Hurðaskellir, - sá var nokkuð klúr, ef fólkið vildi í rökkrinu fá sér vœnan dúr.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.