Dagur - 10.12.1994, Síða 7
Laugardagur 10. desember 1994 - DAGUR - 7
Grýla og Lcppalúði í sátt og samlyndi við hlóðirnar og synir þeirra allt um kring.
ómögulegt er að segja hvert þessir
íslensku karlar hafa borist með
ferðamönnum sem hafa keypt þá
sem minjagripi hér á landi. I haust
sendi Stína dóttur sinni, sem er í
blómaskreytinganámi í Danmörku,
nokkra jólasveina til að nota á
blómaskreytingasýningu þar í landi.
„Það var með ólíkindum hvað
jólasveinarnir fengu góð viðbrögð
á þessari sýningu. Þeir seldust allir
og meira að segja stakir hraunmol-
ar sem notaðir voru sem skraut í
kringum þá seldust. Greinar um
þessa íslensku jólasveina birtust í
þarlendum blöðum og gjafavöru-
verslun í Danmörk hefur þegar haft
samband við mig,“ sagði Stína.
Stína sagðist ekki hafa skipulagt
næstu skref í þessu jólsveinaævin-
týri en sennilega yröi hún að fara
að hugsa sinn gang og velta fyrir
sér aukinni framleiðslu og mark-
aðssetningu. Jólasveinarnir vöktu
einnig athygli í Turku í Finnlandi
þar sem þeir voru á borði Hand-
verkskvenna milli heiða á Nordisk
forum í sumar.
Það þarf að nýta þjóðsögurnar
og menninguna margfalt betur
„Mér finnst nauðsynlegt í ferða-
mannaiðnaði og minjagripagcró að
nýta gömlu þjóðsögurnar og menn-
ingu þjóðarinnar betur. Ég hef unn-
ið í mörg ár á ferðamannastað og
veit aó erlendu gestunum okkar
finnst gaman að horfa á fjöll og
fossa en það skortir meiri fjöl-
breytni fyrir þá sem hugsanlega
dvelja hér í einhverjar vikur. Við
ættum að bjóða upp á menningu
okkar og sögu sem við erum svo
stolt af og framleiða minjagripi
sem tengjast henni.
Listafólk í byggóum landsins
gæti í miklu meira mæli en nú er
skemmt ferðamönnum og kynnt
þeim þjóðsögur og menningu og
svo væri kjörið að útbúa minjagripi
í tengslum við þessar skemmtanir,“
sagði Stína og snéri sér að hálfklár-
uðum Gluggagægi en á Háls-
hnjúknum brá fyrri skugga, skyldi
það hafa verið Stekkjastaur á leið
til byggða? KLJ
Vertu með okkur
allan sólarhringinn:
Tónlist - leikir - góð tónlist - viðtöl
frábær tónlist - íþróttir - langbesta tónlistin.
f y r i r a 1 1 a
simi i stúdiói 87333, - auglýsingar og fax 87636
Saga sýslunefndar
Eyjafjarðarsýslu
1874-1989
í tveim bindum
Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó harkalega marraði
hjörunum í.
Skyrjarmur, sá áttundi,
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o’n af sánum
með hnefanum braut.
Svo liámaði liann í sig
ogyfir matnum gein,
uns stóð hann á blístri
og stundi og hrein.
Níundi var Bjúgnakrœkir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.
Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar liangið bjúga,
sem engan sveik.
Tíundi var Gluggagœgir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.
Ef eittlivað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nœr seinna
í það reyndi að ná.
Ellefti var Gáttaþefur,
- aldrei fékk sá kvef
og liafði þó svo hlálegt
og heljarstórt nef.
Hann ilm af laufabrauði
upp á heiðar fann,
og léttur, eins og reykur,
á lyktina rann.
Ketkrókur, sá tólfti,
kunni á ýmsu lag. ■
Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.
Hann krœkti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
stauturinn hans þá.
Þrettándi var Kertasníkir,
- þá var tíðin köld,
ef ekki kom hann síðastur
á aðfangadagskvöld.
Hann elti litlu börnin,
sem brostu, glöð ogfin,
og trítluðu urn bœinn
með tólgarkertin sín.
A sjálfa jólanóttina,
■ sagan hermir frá, -
á strák sínum þeir sátu
og störðu Ijósin á.
Svo tíndust þeir í burtu,
• það tók þá frost og snjór.
A þrettándanum síðasti
sveinstaulinn fór.
Fyrir löngu á fjöllunum
er fennt íþeirra slóð.
■ En minningarnar breytast
í myndir og Ijóð.
Jóhannes úr Kötlum.
Höfundur þessa verks, Hjörtur E. Þórarinsson á Tjörn í
Svarfaðardal, er ekki með öllu ókunnugur ritun sögulegs
efnis á borð við það, sem hér lítur dagsins Ijós.
Ungmennasamband Eyjafjarðar hefur tekið að sér að
bjóða Eyfirðingum verkið til sölu og getur fólk hvort sem
er sent pöntun til UMSE í pósthólf 136, 602 Akureyri
eða hringt í síma 96-24011.
Verði ritverksins er stillt í hóf því bæði bindin, samtals
1104 bls. með á sjötta hundrað mynda, kosta aðeins
8.000 kr.
Næstkomandi miðvikudag,
14. desember, verður
blaðinu okkar dreift í öll hús
á Akureyri, Siglufirði,
Eyjafjarðarsvæðinu og
Húsavík.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir
auglýsendur því blaðið er veglegt
að stærð og fjölbreytt aS efni.
Auglýsingar í helgarblaÖið þurfa
að berast auglýsingadeild fyrir
kl. 14.00 á fimmtudögum.
Auglýsing í Degi
ber árangur
auglýsingadeild, simi 24222
Strandgöhi 31, Akureyri
11III