Dagur - 02.03.1995, Síða 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 2. mars 1995
Framtíðin er núna
- efnt til alheimsmóts skáta í Hollandi á komandi sumri
Átjánda alheimsmót skáta eða
„Jamboree" verður haldið í Hol-
landi í sumar. Alheimsmótin eru
haldin á fjögurra ára fresti og hafa
íslenskir skátar löngum verið dug-
legir að sækja slík mót. Þetta mót
verður engin undantekning og
hyggjast um tvö hundruð íslenskir
skátar fara, þar af rúmlega fjörutíu
skátar frá Akureyri.
Stef mótsins í Hollandi er
„framtíðin er núna“, til að undir-
strika aó skátar sitja ekki úti í
homi og bíða þess að eitthvað ger-
ist, heldur taka þeir málin í sínar
hendur af kappi. Það má segja að
skátamir frá Ákureyri hafi þegar
gert þetta stef að einkunaroróum
sínum. Þó enn séu nokkrir mánuó-
ir í fyrirhugaða ferð er undirbún-
ingur kominn á fulla ferð, enda að
mörgu að hyggja. Þau Marinó
Tryggvason, Silley Hrönn Ás-
geirsdóttir og Eydís Elva Guð-
mundsdóttir verða meðal þátttak-
enda í alheimsmótinu næsta sum-
ar. Smári Sigurðsson fór hinsveg-
ar á alheimsmót sem haldið var í
Noregi 1975 og segir okkur frá
upplifun sinni á því móti.
Hefur alltaf ætlað að fara á
alheimsmót
Marinó Tryggvason er sveitarfor-
ingi hjá skátasveitinni Drekunum
og hefur starfað sem skáti í um sjö
ár. Hann verður einn af Hollands-
fömm og tekur þátt í undirbún-
ingsvinnunni. Fjáröflun er mikil-
vægur hluti þeirrar vinnu enda
dýrt að fara í svona ferð. Að sögn
Marinós hefur ýmislegt verið gert
nú þegar. Hópurinn var t.d. með
sölu á pennum og einnig sá hann
síðla síðasta árs um dreifingu
nýrra myndlykla fyrir Stöð 2.
Onnur smáverkefni eru á döfinni
til fjáröflunar en skátamir eru þó
enn að leita að fleiri verkefnum.
Annar undirbúningur felst meðal
annars í fundum og útilegum.
En hvers vegna ætlar Marinó til
Hollands? „Ég veit það ekki al-
veg. Maður hefur einhvem veginn
alltaf ætlað á svona mót.“ Marinó
Höfundur þessarargreinar er Auð-
ur Ingóífsdóttir, nemandi í hag-
nýtri fjölmiðlun við Háskóla fs-
lands. Hún er Akureyringur, faedd
1970 og útskrifaðist úr MA árið
1991. Hún er
með BA-próf í
alþjóðasam-
skiptum frá Uni-
versity of Wash-
ington í Seattle í
Bandaríkjunum.
er af skátafólki kominn og hefur
farið á flest landsmót síðan 1982.
Hann sagði að hann héldi að al-
heimsmótið væri að mörgu leyti
svipað landsmótum „nema auðvit-
að miklu stærra“, en til Hollands
er von á allt að þrjátíu þúsund
skátum. Rétt hjá mótsstað er
vatnagarður og á þessu móti á að
leggja sérstaka áherslu á dagskrár-
liði sem fara fram á eða í vatni.
Mótið sjálft er í byrjun ágúst og
Marinó Tryggvason, dróttskáti og
sveitarforingi í Drekunum.
stendur í tíu daga. Skátamir héðan
verða þó heldur lengur í ferðinni
þar sem þeir munu dvelja hjá fjöl-
skyldum skáta í Hollandi og
Belgíu nokkra daga fyrir og eftir
mót.
Marinó segist hlakka til að fara
til Hollands en skátastarfíð hafi þó
ýmislegt skemmtilegt upp á að
bjóða annað en utanlandsferðir.
Sveitarforingjastarfið taki t.d.
drjúgan tíma og þar sé alltaf mikið
um að vera. Drekamir halda fundi
í Hvammi á hverju mánudags-
kvöldi og vildi Marinó nota tæki-
færið og hvetja alla stráka á aldr-
inum 10-14 ára að mæta á fund
hjá þeim.
Svaf ekkertvegna
draugagangs
Þær Eydís Elva Guðmundsdóttir
og Silley Hrönn Ásgeirsdóttir eru
mjög spenntar að fara á alheims-
mótið í Hollandi. Þær sögðust fara
á mótið til að hitta aðra skáta og
læra nýja hluti. „Næst verðum viö
orðnar of gamlar til að vera al-
mennir þátttakendur,“ sagði Sill-
ey. „Þaö er líka ódýrara núna en
oftast því mótió er tiltölulega ná-
lægt,“ bætti Eydís við. „Fyrir
nokkrum árum fóm skátar héðan á
alheimsmót í Ástralíu og þá kost-
aði tvöfalt meira en núna. Þetta er
því kærkomið tækifæri."
Silley og Eydís eru í dróttskáta-
sveitinni Pixies en Silley er auk
þess sveitarforingi í Sniglunum.
Báðar fullyrtu að það væri mjög
gaman að vera skáti. Silley er búin
að starfa í skátahreyfmgunni í ein
níu ár en Eydís í fjögur. „Ég fór
fyrst meó Silley til að prófa og hef
bara ekki getað hætt síðan.“ Stelp-
umar hafa farið á tvö landsmót og
um síðustu páska fóru þær í „Is-
hæk“ sem var fimm daga ferð á
gönguskíðum og var sofið í snjó-
húsum eða tjöldum. Þeim fannst
sú feró mjög skemmtileg en jafn-
framt erfið. Hjá dróttskátunum eru
áherslumar svolítið öðruvísi en
hjá yngri sveitunum. Þar er meira
um útilegur og feróir en óreglu-
legri fundir. Silley sagði að sveit-
arforingjastarfið tæki líka tölu-
verðan tíma.
Það gerist margt skemmtilegt
og sniðugt í skátunum. Eydís
sagði að hún myndi t.d. aldrei
Samíska þjóðleikhúsið - Beawás Shámi Teáhter - sýnir á Akureyri:
Þótt hundrað þursar...
- sýningin er einn af viðburðunum á norrænu
menningarhátíðinni Sólstöfum
Fjöldi atriða á norrænu menn-
ingarhátíðinni Sólstöfum eru
flutt á Akureyri og ber þar hæst
sýningu samíska þjóðleikhúss-
ins, Beavvás Shámi Teáhter á
leikritinu „Þótt hundrað þurs-
ar...“ sem sýnt verður j íþrótta-
skemmunni á Akureyri nk. laug-
ardag, 4. mars, kl. 20.30. Leikrit-
ið verður einungis sýnt á Akur-
eyri.
í sýningunni er rakin saga sam-
ískrar menningar og allar þær
hættur sem henni hefur staóiö ógn
af. Á norsku heitir sýningin:
Omsá hundre stalloer... Hún hef-
ur hlotið heitið „Þótt hundrað
þursar...“ á íslensku. „Stallói“ er
nafn á óvætti í samískri þjóðsögn.
Stallói er risavaxinn, voldugur og
hættulegur; líkt og þurs. í íslenskri
þjóðtrú voru þursar stórir, heimsk-
ir og hættulegir.
Sýningin var í upphaflégri gerð
unnin fyrir samíska áhorfendur.
Hún sló í gegn og leikhúsinu var
tryggð varanleg lífsafkoma og
hefur list þeirra síðan verið helsta
framlag þjóðarinnar til kynningar
á þjóðararfleifðinni. Samíska
þjóðleikhúsið er hluti af norska
Þcssi sýning Samanna sló í gegn á Vetrarólympíuleikunum í Liliehammer.
Trúiega muna margir eftir þeirri sýningu, en hún var undir berum himni.
þjóðleikhúsinu ásamt Det norske
teater (sem notar gömlu norskuna
fyrir aóaltungumál), Det nye
norske teater (sem leikur á ný-
norsku) og Norsku óperunni.
I sýningunni er rakin saga
Sama í gegnum aldimar með söng
(Joiki), dansi, látbragði og slag-
verkspili.
Það þarf enginn að óttast
tungumálaerfiðleika, því sýningin
er sérstaklega unnin fyrir þá sem
ekki hafa gert heimadæmin sín í
samísku í bamaskóla! Á hinum
margrómuðu Vetrarólympíuleik-
um í Lillehammer í Noregi á síð-
asta ári var sýningin sýnd undir
berum himni í frosthörkunni. Þetta
var litskrúðugt kamival í snjónum
og vakti mikla athygli.
Silley Hrönn Ásgeirsdóttir og Eydís Elva Guðmundsdóttir.
gleyma fyrstu útilegunni sinni.
„Við vorum á Illugastöðum og
fréttum af draugagangi. Vió vor-
um tvær stelpur saman í koju og
heyróum alltaf einhver hljóð sem
vom sennilega í rafmagnstöflunni.
Við vorum báðar alveg skíthrædd-
ar og gátum alls ekki sofnað.“ Að
lokum sögóu stelpumar að það
ættu sem flestir krakkar að drífa
sig í skátana „því þaó er svo gam-
an þar.“
Ogleymanlegt ævintýri
Islendingar hafa einu sinni hjálpað
til við að halda alheimsmót. Það
var fyrir tæpum tuttugu ámm eða
1975. Þá sáu Norðurlöndin sam-
eiginlega um mótshald en mótið
var í Noregi. Smári Sigurósson
var á þessu móti og sagði að það
hefói verið „alveg meiriháttar æv-
intýri“.
Smári var í vinnubúðum á mót-
inu og fór líka sumarið áður til að
vinna að undirbúningi. „Fyrir mér
var þetta eiginlega tvöfalt ævin-
týri,“ sagði Smári. „Ég upplifði
ekki bara stemmninguna á mótinu
heldur sá ég líka hvemig þetta
varð til. Ég fylgdist meó alveg frá
byrjun þegar mótssvæðið var autt
tún og þangað til komin var risa
tjaldborg sem hýsti mörg þúsund
skáta.“ Stef mótsins, „Fimm fing-
ur - ein hönd“ er Smára mjög
minnisstætt. Stefið átti að tákna að
Norðurlöndin sem héldu mótið
væru fimm einstök lönd en ynnu
þó saman sem ein heild. Smári
sagói að ef ungt frískt fólk ætti
kost á því að fara á svona mót þá
væri engin spuming að það ætti að
drífa sig og hann vonaði að sem
flestir krakkar fæm á næsta mót.
Djassi
Deiglunni í kvöld
A heitum fimmtudegi í Deiglunni
á Akureyri í kvöld, 2. mars, fáum
við að heyra Kvartett Jens Wint-
her og Tómasar R. Þessir tónleik-
ar eru hluti af Sólstöfum, norrænu
menningarhátíðinni sem nú stend-
ur yfir í Reykjavík, á Isafirði og á
Akureyri. Daninn og trompetleik-
arinn Jens Winther varð atvinnu-
maóur í jassinum 18 ára, hefur
leikið með fjölda hljómsveita í
Kaupmannahöfn og um alla Evr-
ópu. Tómas R. Einarsson, kontra-
bassaleikari, er Akureyringum að
góðu kunnur, hefur spilað hér all-
oft síðastliðið ár, nú síðast í febrú-
ar ásamt Eyþóri Gunnarssyni,
píanóleikara og fleirum. Eyþór
hefur spilað á flestum stærstu
djasstónlistarhátíðum Evrópu.
Hann var einn af stofnendum
Mezzoforte. Sören Christensen
hefur leikið djass síðan hann var
15 ára og verið mjög virkur í
dönsku djasslífi. Þeir félagamir
munu leika lög eftir Tómas R. og
Jens Winther auk þekktra djass-
laga eftir aðra höfunda. Tónleik-
amir hefjast kl. 21.30 og er að-
gangur ókeypis.
Á undan tónleikunum, kl.
20.30, kynnir samíska þjóðleik-
húsið, Beaivvás Sámi Teáhter,
leikverkið „Þótt hundrað þurs-
ar...“ sem sýnt verður í Iþrótta-
skemmunni laugardaginn 4. mars.
Haukur Gunnarsson, leikhússtjóri,
segir frá sýningunni og tilurð
hennar. Samískir listamenn kynna
menningu þjóðar sinnar með söng
og dansi. Sýningin er hér á vegum
Sólstafa og Leikfélags Akureyrar.
1. tölublað Æskunnar og abc komið út:
Nýtt og ferskt blad
á góðum grunni
- ritstjóri blaðsins
Út er komið 1. tölublað Æskunnar
og abc. Það er nýtt og ferskt blað
á góðum grunni því aö tvö stærstu
íslensku bama- og unglingablöóin
hafa verið sameinuð í eitt. Raunar
er stefnt að því að gefa út tvö
blöð, hvort fyrir sinn aldursflokk.
í Æskunni og abc verður vin-
sælasta efni úr tímaritunum tveim-
ur auk ýmissa nýmæla - í sam-
ræmi við óskir lesenda þeirra
beggja en viðhorf þeirra var kann-
að í fyrrahaust. Fyrsta tölublað er
72 síður og mjög fjölbreytt að
efni.
Ritstjóri Æskunnar og abc er
er Karl Helgason
Karl Helgason. Þá starfar ritnefnd
við blaðið, svo og ráðgjafar rit-
stjóra. Útgefandi er Stórstúka ís-
lands, I.O.G.T. Æskan kom fyrst
út 5. október 1897 - abc haustið
1979.
Æskunni og abc fylgir að þessu
sinni lítill bæklingur. I honum er
bömum og unglingum kynnt að
þeim sé boðið að taka þátt í gerð
bókar um fortíð, núverandi stöðu
og framtíð Sameinuóu þjóðanna -
með því að yrkja ljóð, teikna og
mála myndir og semja ritgerðir.
Bókin verður gefin út í tilefni 50
ára afmælis samtakanna.
Úr fréttatilkynningu.