Dagur - 05.05.1995, Qupperneq 3
FRETTIR
Föstudagur 5. maí 1995 - DAGUR - 3
Síldarsmugan, á miðri myndinni, er mikið hafsvæði. Lengst t.h. sést Smugan, sem íslenskir togarar sækja væntan-
iega í næsta mánuði.
Átta bátar í Síldarsmugunni en engin veiði:
Síldin stendur of djúpt
allt niður á 200 faðma
Baldvins krebinettur
kr. 399 kg
Lambalæri
áður 830 - nú kr. 498 kg
Lambahvyggur
áður 783 - nú kr. 498 kg
Lambasúpukjöt
áður 540 - nú kr. 349 kg
Kryddlegnar lærissneiðar
áður 1298 - nú kr. 790 kg
Kryddlegnar lærissneiðar 2. fl.
áður 999 - nú kr. 690 kg
Engin sfldveiði er í Sfldarsmug-
unni en 8 bátar voru komnir á
svæðið í gær og vitað um fleiri
sem hugðust halda þangað og í
þeim hópi einhverjir frystitogar-
ar. Bjarni Bjarnason, skipstjóri á
Súlunni EA frá Akureyri, segir
sfldina sem flnnst standa svo
djúpt að þeir nái henni ekki. Um
sé að ræða allt niður á 200
faðma.
Augljóst er að það er síld á
svæðinu, en torsótt vegna þess
hversu djúpt hún stendur og sýnt
að a.m.k. stærri skipin munu
reyna fyrir sér á þessum slóðum
með flottrolli en hún gefur sig
ekki ofar í hafinu. Súlan EA var í
gær suðaustan til í Síldarsmug-
unni en þar var þá renniblíða en
þoka og segist Bjami ekki vera
bjartsýnn á mikla síldveiði fyrr en
að meira tekur að „vora“ í hafinu
og hlýna. Hitastig sjávar er nú um
3 gráður, og sjór því kaldari en á
sama tíma í fyrra, en þá var hann
4 til 5 gráður. Ekki eru skip frá
öðrum þjóðum á veiðum á þessum
slóðum. GG
Dyraverðir Sjallans:
Klæðast víkingafötum
Varla hefur farið framhjá Akur-
eyringum á síðustu dögum að
undirbúningur Heimsmeistara-
mótsins í handknattleik er að ná
hámarki. Bærinn mun greini-
lega fá nokkuð annað yflrbragð
næsta hálfa mánuðinn enda von
á fjölda erlendra gesta ti! bæjar-
ins.
Jafnvel dyraverðir skemmti-
staöanna breyta um svip, ef svo
má segja. I þaö minnsta verða
dyraverðir Sjallans í fullum her-
klæðum, klæddir upp eins og vík-
ingar með skildi og sverö í slíðr-
um. Elís Arnason hjá Sjallanum
segir þetta gert til að auka
stemmninguna í kringum HM og
líka til að leyfa erlendu gestunum
að njóta sannrar víkingastemmn-
ingar. „Við ætlum að blanda sam-
an handbolta og víkingastemmn-
ingu, bjóóa upp á útsendingar í
sjónvarpi á Góða dátanum og vík-
ingaband á sviðinu. Það er gaman
að gera eitthvað öðruvísi til að ýta
undir stemmninguna,“ sagði Elís.
JÓH
Dreifa snjó á götur bæjarins
Starfsmenn Akureyrarbæjar hafa snúið vinnu sinni við og eru nú farnir að dreifa snjó á götur bæjarins. Hér er um
að ræða snjóhauga sem safnast hafa upp t.d. á gangstéttum og víðar í vetur og er tilgangurinn sá að láta ökutækin
eyða honum, ef svo má að orði komast. Þeir ökumenn sem þegar hafa sett sumardekkin undir og reyndar allir öku-
menn, þurfa því að fara með gát þegar þeir keyra í gegnum snjóskaflana. Eins og sést á myndinni, getur verið hér
um nokkurt snjómagn að ræða. Mynd: KK
Samsung videospólur 3x185
kr. 1290 pk.
Úr fata- og búsáhaldadeild:
Afabolir og skyrtur í miklu úrvali frá
lctd.
LQND0N
Gallabuxur herra
kr. 1980
Víking barnastígvél
kr. 1195
Strigaskór barna st. 22-34
frá kr. 890
4ra manna matar- og kaffistell
kr. 1999
Mánud.-föstud. kl. 10-19.30 ■ Laugard. kl. 10-18