Dagur - 05.05.1995, Page 7
LESEN DAHORN IO
Föstudagur 5. maí 1995 - DAGUR - 7
Athugasemd til stjómar
Strætisvagna Akureyrar
Reykjavík 24. apríl.
Ég er gamall Akureyringur en er
flutt til Reykjavíkur. Ég kem á
hverju sumri noróur á bemsku-
slóðimar aö heimsækja ættingj-
ana. Og þaö er virkilega dásam-
legt að koma til gömlu góöu Ak-
ureyrar í góða veðrið og allan trjá-
gróðurinn.
Ég dvel oftast yst í Þorpinu og
þarf náttúrulega að komast feróa
minna um bæinn. Og þar sem ég
er ekki alltaf á bíl þá er ég háð
akstri strætisvagna, Ieigubíla eða
annarra bíla.
Ég vil vera sjálfstæð og vel það
að ferðast með strætó. En þá vill
svo einkennilega til að vagninn
ekur ekki um bæinn um helgar.
Ég átti bágt meó aö trúa þessu
fyrst í staö en þetta er nú samt
staðreynd.
Enginn strætisvagn
um helgar
Og hvers eigum við að gjalda sem
höfum ekki einkabíl. Mér er
spum?
Hvað urn þá sem búa þarna og
þurfa að l'ara í bæinn um helgar,
þá sem eiga ekki bíl eða hann t.d.
er bilaður, eiga þeir þá bara að
taka leigubíl?
Þaö yrði ansi kostnaðarsamt og
vió sem alltaf höfum nóg að
borga. Fólk er búið að tala um
þetta langalengi og er sennilega
búið að aðlaga sig þessu skrýtna
fyrirkomulagi. En það em ekki
allir sem geta aðlagað sig þessu
kerfi. Sem dæmi þekki ég eina
konu sem býr í úthverfi bæjarins.
Hún er hálfgerður einstæðingur og
má ekki við því að vera mikið ein.
Hún gæti einmitt gert svo margt
til að lífga upp á tilveruna um
helgar, ef vagninn myndi aka.
Hún þráir oft að komast í sund
og bíó eða geta gert það sem hana
langar til, frjáls og óháð öðrum.
Þó ekki væri annað en það að fara
í bíltúr einn hring með strætó til
að komast meira út.
Hugsið ykkur t.d. bömin,
gamla fólkið og allt atvinnulausa
fólkið. En það er eins og þetta eigi
að vera svona af því þetta hefur
verió svona öll þessi ár.
Nei, það er öllu hægt að breyta
ef viljinn er fyrir hendi og þetta
eru nútíma mannréttindi sem allir
þegnar á stærri stöðum landsins
eiga rétt á.
Ef það er peningaleysi sem háir
akstri vagnanna um helgar þá
finnst mér að það ætti að spara í
einhverju öðru. Þessi þjónusta á
alltaf að vera fyrir hendi. Það er
lágmarkið, bara eins og við eigum
rétt á lögreglu og sjúkraþjónustu
og öðru.
Og málið er að þetta er orðinn
þaö stór bær að þetta er skammar-
legt og hallærislegt fyrir ykkur aó
láta þetta spyrjast út að í sjálfum
höfuðstað Norðurlands gangi eng-
ir strætisvagnar um helgar. Við
lifum nú einu sinni á 20. öldinni
við öll nútíma þægindi sem hugs-
ast getur.
Ég get sagt um mig sem Reyk-
víking að við búum hér við mjög
gott strætisvagnakerfi. Hér fer
strætó á 1/2 klukkustundar fresti
um allan bæinn og það skapar mér
mikið öryggi að vita af vagninum
jafnvel þó að ég ætli ekki að nota
hann og eigi bíl sjálf.
Ég hef ætlað að skrifa ykkur
þetta bréf í mörg ár en hef alltaf
verið að vona að þið tækjuó vió
Gamall Akureyringur er ósáttur við að strætisvagnarnir á Akurcyri gangi
ekki um helgar og telur að núgiidandi kerfi sé „skammarlegt og hallæris-
legt“ fyrir Akureyringa.
ykkur á undan mér.
Ég vonast eftir að þið breytið
þessu eins fljótt og auðið er og að
ég geti feröast glöð með strætis-
vagninum um helgar í sumar þeg-
ar ég heimsæki Norðurlandið.
Ég veit aó ég tala fyrir munn
margra.
Virðingarfyllst,
Gamall Akureyringur.
Svar víð ojfnu bréfi
Hólmfríðar Arnadóttur
- til hótelstjórnar Hótels KEA varðandi sjónvarpsefini
Manngildi ofar auðgildi
ÞB hringdi:
„Mér fmnst óæskilegt að lífeyris-
sjóðimir séu að fjárfesta í hluta-
bréfum til að ávaxta fé sitt. Þeir
gætu eins vel keypt ríkisvíxla og
ávaxtað fé sjóóanna þannig. Líf-
eyrissjóðimir eru samtryggingar-
sjóöir og eru ætlaðir til að gegna
hlutverki sínu á sviði samtrygg-
ingar til aldraðra og öryrkja og
standa sína plikt á því sviði. Bank-
amir í landinu eiga að gegna sínu
hlutverki á sviði lánamála og
þjóna ekki síst atvinnuvegunum.
Að mínu áliti ættu Hfeyrissjóð-
irnir að koma inn á hlutverk
Tryggingarstofnunar ríkisins og
vera miklu virkari stoð og stytta
gagnvart öldruðum og öryrkjum
en nú er. Stjómendum lífeyris-
sjóðanna væri það þarft að setja
sig í spor fólks sem þarf að lifa af
atvinnuleysisbótum, svo ekki sé
nú talaó um fjögurra mánaöa bið-
tímann eftir atvinnuleysisbótum.
A meðan að atvinnulausa fólkið á
að lifa af loftinu einu er verið að
spekúlera í hvemig lífeyrissjóðim-
ir verði best ávaxtaðir. Ég segi við
ykkur sjóðakóngana: Avaxtið fé
sjóðanna best til öryrkjanna og
aldraða fólksins, sem ruddi braut-
ina grýttu til framtíóar. I mann-
gildinu er auðurinn mestur, sem
sagt manngildishugsjónin ofar
auðgildinu."
Ég vil byrja á að þakka Hólmfríði
fyrir orð hennar varðandi aðbúnað
og þjónustu hótelsins, sem hún
telur til fyrirmyndar. Ég vil því
næst þakka henni fyrir ábendingar
hennar varðandi það sjónvarpsefni
sem boðið er upp á. Aður en
Iengra er haldið vil ég þó leyfa
mér að upplýsa nokkru nánar,
hvaða efni er í boði á Hótel KEA.
I fyrsta lagi er boóið upp á dag-
skrá RUV annarsvegar, en hins-
vegar nokkrar rásir gervihnatta-
sjónvarps. Málið snýst um þær
rásir, en þær eru: Sky news, sem
sendir út fréttir allan sólarhring-
inn, Carton network sem sýnir
bamaefni frá 05-19, TNT, sem
sýnir gamlar klassískar bíómyndir
frá kl. 19 til 05 og að lokum Film
net, sem sýnir bíómyndir allan
sólarhringinn. Film net er þekkt
fyrir að vera með hvað bestar bíó-
myndir, nýjar og mjög nýlegar
myndir. A þessari stöð eru hins-
vegar sýndar djarfar myndir þrisv-
ar í viku kl. 23.00 eða 01.00.
Raunar er þessi stöð ekki ein um
að sýna slíkt efni og ekki ein um
að vera með góðar bíómyndir.
Hinsvegar var hún valin vegna
fjölbreyttra og góðra bíómynda,
en ekki vegna þessara áðurnefndu
sýninga á djarfari myndum.
Hótelunum hefur hinsvegar
verið nokkur vandi á höndum, þar
sem í kjölfar þessarar, til þess að
gera nýju tækni, er mikil krafa frá
gestum um val á fjölbreyttu sjón-
varpsefni. Þær stöðvar, sem til
greina koma, eru með langan út-
sendingartíma, margar senda út
allan sólarhringinn og fer ekki hjá
því að efnið er margbreytilcgt.
Hins vegar get ég fullyrt, að þau
hótel sem bjóða upp á þessar
stöóvar, hafa ekki fram til þessa
hugleitt þann vanda sem sýningar
stöðvanna á t.d. djörfum myndum
hefur í för meó sér. Þama kann
einnig að vera annað efni, sem
hótelin hefóu í sjálfu sér ekki
áhuga á aó bjóða upp á. Þetta er
nokkuð sem stjómendur hótela
þurfa aó taka til skoðunar, ekki
síst, ef að þessar stöðvar taka til
sýningar myndir, sem ekki væri
leyillegt að taka til sýningar á inn-
lendu sjónvarpsstöðvunum.
Ég vil síðan aóeins aó lokum,
þakka Hólmfríði aftur fyrir góðar
og réttmætar ábendingar og árétta,
að full þörf er á því að taka þessa
hluti til skoðunar.
Með bestu kveðju,
Gunnar Karlsson, hótelstjóri
Hótel KEA.
Háskólinn á Akureyri:
Fyrirlestur um umhverfis-
breytingar og viðbrögð við þeim
Skógræktarfélag
Eyfirbinga
Abalfundur
Skógræktarfélags Eyfirbinga
verbur haldinn fimmtudaginn 11. maí nk.
ab Galtalæk, húsi F.B.S.A, og hefst kl. 20.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Erindi um skógarnytjar (Brynjar Skúlason, ráðunautur).
Kaffiveitingar (tónlist).
Fjallað um skógræktina á Hálsi í Eyjafjarðarsveit.
Onnur mál.
Stjórnin.
Á morgun, laugardag, flytur dr.
Halldór Þorgeirsson opinn fyrir-
lestur á vegum Háskólans á Akur-
eyri í húsi skólans við Þingvalla-
stræti, stofu 24, 2. hæð. Fyrirlest-
urinn hefst kl. 14.
I fyrirlestrinum fjallar hann um
hnattrænar umhverfisbreytingar,
s.s. veðurfarsbreytingar af völdum
gróðurhúsalofttegunda og um
eyðingu ósonlagsins. Einnig verð-
ur fjallað um kolefnishringrásina
og bein áhrif af auknu koldíoxíði
á lífríkið. Gerð verður grein fyrir
viðbrögðum þjóða jarðarinnar við
jjessum breytingum og tilraunum
til að bregðast við vandanum með
alþjóðlegum samningum.
Dr. Halldór Þorgeirsson er
plöntulífeðlisfræðingur og vinnur
m.a. að rannsóknum á áhrifum
aukins koldíoxíðs á plöntur. Hann
er deildarstjóri umhverfisdeildar
Rannsóknastofnunar landbúnaðar-
Reykjavík. Hann er fulltrúi
ms
íslands í ráðgjafanefnd á vegum
ESB sem vinnur að samræmingu
rannsókna á hnattrænum umhverf-
isbreytingum í Evrópu.
Fyrirlestur dr. Halldórs verður
öllum opinn. (Fréttatilkynning)
Akureyri:
Fótaaðgerðafræðingur
þjónustar Norðlendinga
Kristín Steingrímsdóttir, löggiltur
fótaaðgerðafræðingur, verður með
þjónustu á Akureyri næstu daga.
Kristín er viðurkennd í faginu af
heilbrigðisyfirvöldum og fæst hún
við öll þau fótavandamál sem hrjá
fólk. Kristín veitir þessa þjónustu
á snyrtistofu Nönnu á Akureyri á
morgun, laugardag, mánudag og
þriðjudag og er tekiö þar á móti
tímapöntunum.
(Fréttatilkynning)
AKUREYRARBÆR
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Mánudaginn 8. maí 1995 kl. 20-22 verða bæjarfull-
trúarnir Þórarinn E. Sveinsson og Sigurður J. Sig-
urðsson til viðtals á skrifstofu bæjarstjóra að Geisla-
götu 9,2. hæð.
Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum eftir
því sem aðstæður leyfa.
Síminn er 21000.
Bæjarstjóri.