Dagur - 05.05.1995, Blaðsíða 11
MINNINO
Föstudagur 5. maí 1995 - DAGUR - 11
^ Agústa Frímannsdóttir
Fædd 4. september 1958 - Dáin 15. apríl 1995
Allt eins og blómstrið eina
upp vex á sléttri grund
fagurt með frjóvgun hreina
fyrst um dags morgunstund,
á snöggu augabragði
afskorið verður fljótt,
lit og blöð niður lagði,-
líf mannlegt endar skjótt.
Hallgrímur Pétursson
Sú harmafregn barst mér að
kvöldi laugardagsins 15. apríl s.l.
aó æskuvinkona mín, Agústa Frí-
mannsdóttir væri látin, langt um
aldur fram. Við sent eftir lifum,
spyrjum hvers vegna ung og ynd-
isleg kona er hrifin svo skyndilega
burt frá ástkærum eiginmanni og
þremur bömum. Hún sem var í
blóma lífsins og átti allt lífið fram-
undan. Við fáum engin svör, en
verðum að trúa því aö allt hafi
sinn tilgang, þó vió skiljum hann
ekki nú. Oró mega sín lítið á slíkri
sorgarstundu. Minningarnar
streyma fram og langar mig að
minnast vináttu okkar, í nokkrum
oróum. Leiðir okkar Agústu lágu
fyrst saman er viö, þá fimm ára
gamlar, fluttum ásamt fjölskyldum
okkar inn í nýju húsin í Alfabyggð
10 og 12 með dags millibili. Við
urðum strax bestu vinkonur og
hefur sú vinátta haldist ætíð síðan.
Agústa var einkabarn foreldra
sinna, og ólst upp við mikið ástríki
þeirra, sem ég fór heldur ekki var-
hluta af.
Við vinkonumar vorum saman
öllum stundum. Margar ánægju-
stundir áttum við í mömmuleik í
fína dúkkuhúsinu hennar Agústu,
sem Frímann faðir hennar, smíð-
aði handa henni. Þá eru ótaldir all-
ir dagamir sem við lékum okkur í
„barbie leik“ heima hjá Agústu, en
þar höfðum við fast aðsetur.
Skólagöngu okkar hófum við
saman, fimm ára, í smábamaskóla
Ingibjargar, sem var í næstu götu.
Minnist ég þess er við leiddumst
þangað hönd í hönd á hverjum
degi. Fylgdumst vió síðan að hina
heföbundnu skólagöngu, sem lauk
með því að báðar lukum viö hjúkr-
unamámi frá Hjúkrunarskóla Is-
lands, með tveggja ára millibili.
Arið 1976 eignaðist Agústa
dóttur sína, Eydísi Ingvarsdóttur,
og stolt var hin unga móðir sem
kom heim í Alfabyggðina með
frumburð sinn.
Það var mikið gæfuspor í lífi
Agústu, þegar hún giftist eftirlif-
andi eiginmanni sínum Omari
Ragnarssyni. Saman eignuðust þau
tvö yndisleg böm, Unni Björgu og
Frímann Hauk.
Ogleymanleg er heimsókn mín
og ungrar dóttur minnar til Agústu
í Eskilstuna í Svíþjóð, sumarið
1988, en þar dvaldi fjölskyldan um
tíma á meóan Omar var við nám.
Fengum við höfðinglegar móttök-
ur og allt var gert til að dvölin yröi
okkur mæðgunum sem ánægjuleg-
ust.
I lok ársins, fluttust þau heim
og settust að á Blönduósi, þar sem
þau hófu störf við sjúkrahús og
heilsugæslu staðarins. Gott var að
fá Agústu heim, og kærkominn var
kaffisopinn í Brekkubyggðinni á
leióinni til og frá Akureyri.
Veikindi Ágústu komu mjög
skyndilega í ljós, og tók hún þeim
með miklu æóruleysi. Síðustu
stundimar sem ég átti með henni,
var hún full bjartsýni og ákveðin í,
að berjast til þrautar. En skjótt
skipast veður í lofti.
Elsku Ágústa mín. Nú þegar
komið er að leióarlokum og þú
hefur lagt upp í ferðina sem við öll
munum fara, vil ég þakka þér allar
góðu stundirnar sem vió áttum
saman og fallegu minningamar
sem ég mun geyma í hjarta mínu
um ókomin ár. Eg fékk að fylgjast
með þér, vaxa og þroskast úr lítilli
stúlku í glæsilega konu. Fyrir það
er ég þakklát og þannig mun ég
ætíð minnast þín. Eg veit þér líður
vel núna, og er þess fullviss að við
munum hittast á ný. Um leið og ég
kveð þig hinstu kveðju bió ég Guó
að blessa þig ástkæra vinkona.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Omar, Eydís, Unnur Björg, Frí-
mann Haukur, Obba, Frímann og
tengdaforeldrar. Missir ykkar er
mikill og vil ég senda ykkur, svo
og öllum ástvinum Ágústu mínar
dýpstu samúðarkveðjur. Góður
Guð gefi ykkur öllum styrk í þess-
ari miklu sorg.
Dóttir, í dýrðar hendi
drottins, mín, sofðu vœrt,
hann, sem þér huggun sendi,
hann elskar þig svo kœrt.
Þú lifðir góðum Guði,
í Guði sofnaðir þú,
í eilífum andarfriði
œtíð sœl lifðu nú.
Hallgrímur Pétursson.
Svanlaug R. Finnbogadóttir.
Eg hef alltaf þekkt Ágústu. Þó svo
að samskipti okkar hafi aldrei ver-
ið mikil var hún órjúfanlegur hluti
af tilveru minni. Ásamt Borghildi
frænku okkar var hún fyrirmynd
mín sem bams og þegar ég, tíu ára
gömul, horfði á hana setja upp
hvíta kollinn var framtíðin ráðin.
Pabbi minn átti líka að eiga dóttur
sem færi í M.A.
Síðan liðu árin og þó svo að við
værum bræðradætur vom sam-
skiptin ekki mikil. Ágústa fór út í
heim. En þrátt fyrir landfræöilega
fjarlægð dró saman meö okkur því
ég eltist og aldursmunur okkar
minnkaði. Síðastlióið vor hittumst
við í miðbæ Reykjavíkur og gáf-
um okkur tíma til þess að spjalla
saman. Við vorum stoltar hvor af
annarri og ánægðar með lífið.
Þennan sólskinsdag fannst mér
hún ljóma og þegar Ágústa ljóm-
aði, ljómaði allt í kringum hana.
Við töluðum um allt milli himins
og jarðar og meðal annars kom-
andi júbilerablað M.A. Okkur
fannst svo skemmtilegt að við
myndum allar hittast þama frænk-
umar; ég fimm ára stúdent og
Borghildur tuttugu ára stúdent.
Borgarbíó á Akureyri:
„Reyfariim“ á hvíta tjaldið
Borgarbíó á Akureyri hefur tekió enda koma saman í henni úrvals- er eitt heitasta nafnið í kvik-
til sýninga verðlaunamyndina leikarar og að auki er leikstjóri
Pulb Fiction eða Reyfarann. Þessi hennar og handritshöfundur sá
mynd hefur vakið mikla athygli umdeildi Quentin Tarantino, sem
myndaheiminum um þessar
mundir.
Reyfarinn vakti verulega at-
hygli fyrir réttu ári þegar myndin
fékk Gullpálmann á kvikmynda-
hátíðinni í Cannes. Myndin segir í
raun þrjár sögur af nokkrum lítil-
sigldum persónum í kvikmynda-
borginni Hollywood og allar flétt-
ast sögumar saman í tíma og rúmi.
Aðalpersónumar eru skósveinar
mafíuforingja í borginni sem
sinna ýmsum erindum hans er
ekki þola dagsljósið, skötuhjú sem
ræna sér til viðurværis matvöru-
verslanir og veitingahús og spillt-
ur boxari. Tónlist leikur stórt hlut-
verk í myndinni sem er að finna á
samnnefndri geislaplötu.
Leikstjórinn og handritshöf-
undurinn Quentin Tarantino geröi
á sínum tíma myndina Reservoir
Dogs, sem vakti mikið umtal. Þá
átti hann einnig frumhandrit aö
hinni umtöluðu mynd Olivers
Stone, Natural bom killers.
Mikill stjörnufans kemur fram í
Reyfaranum, eins og áður segir.
Þar á meðal má nefna John Tra-
volta, Samuel L. Jackson, Bruce
Willis, Harvey Keitel, Christopher
Walken, Tim Roth, Uma Thur-
man, Rosanne Arquette að
ónefndum Tarantino sjálfum.
Stjörnurnar í Pulb Fiction.
Samuci L. Jackson, John
Travolta, Brucc Willis og
Uma Thurman.
Allar stelpurnar hennar örnmu.
Þegar ég mætti í Höllina að
kvöldi sextánda júní byrjaði ég
svo að leita aö þeim frænkum. Eg
fann Ágústu fljótlega þar sem hún
sat ásamt yndislega manninum
sínum, honum Omari, og horfði á
allt fólkiö. Hún var í sínu fínasta
pússi og ég man hvað mér þótti
hún falleg. Þetta var í síðasta
skipti sem ég hitti Ágústu. Ekki
grunaði mig aó aldrei aftur ætti ég
eftir að hitta hana og þó að svo
hefói verið, hefði ég aldrei trúað
því. Hún var alltof ung og hraust
til þess að fara að deyja.
Daginn sem Ágústa setti upp
kollinn passaði ég Eydísi, eldri
dóttur hennar. Á næsta ári mun
Eydís setja upp sinn koll og þá
veit ég að Ágústa verður með
henni, stolt af litlu dóttur sinni.
Elsku Frímann, Obba, Omar,
Eydís, Unnur Björk og Frímann
Haukur. Megi Guð hjálpa ykkur í
sorg ykkar og leiða ykkur í gegn-
um erfiðasta tímabilið. Ég veit að
Ágústa er ennþá á rneðal okkar
allra en þrátt fyrir það fer erfiður
tími í hönd. Dökkur skuggi hefur
fallið á fjölskylduna og þó svo að
hann komi til meó að dofna með
árunum verður hann alltaf til stað-
ar. Með tímanum mun hann þó
taka á sig bjartari liti og í stað
sársaukans munu koma ljúfar
minningar og þakklæti fyrir að
hafa fengið aó kynnast Ágústu.
Kristín Margrét Jóhannsdóttir.
Vinn ngstölur
miövikudaginn:
03.05.1995
Aðaltölur:
1 12 13
15 (20) 47
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
H 6316 2 23.856.000
E] 5 af 6 Efl+bónus 0 352.638
pcl 5 af 6 3 92.350
□ 4af6 251 1.750
n 3 af 6 C2J+bónus 1.000 180
fjjl/inningur: fór til Danmerkur
BÓNUSTÖLUR
Heildarupphæð þessa viku
48.960.938
á Isl.:
.: 1.248.938
UPPLYSINGAR, SÍMSVARI91- 68 15 11
LUKKUUNA 99 10 00 * TEXTAVARP 451
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM RRENTVIUUR
þjónustuna
Tvöfált í Lottó
/ /■
Opið til kl. 22 öll kvöld
,vp, 'ls,
VJV VJV 7jv
Tökum vel á móti ykkur
Starfsfólk
Byggðavegi 98