Dagur - 11.10.1995, Síða 6

Dagur - 11.10.1995, Síða 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 11. október 1995 BOKAUTdAFA Fjölskrúðugt hjá Málí og menningu Þegar liður á haustið taka að streyma á markaðinn nýjar bækur og nær bókaútgáfan jafnan hámarki í byrjun desember enda hafa bækur löngum verið vinsæl jólagjafavara. Dagur leitaði eftir yfirliti yfir bæk- ur forlaganna og eftirfarandi er samantekt á haustútgáfu Máls og menningar og Forlagsins. JÓH íslensk skáldverk Ljóð: Ingibjörg Haraldsdóttir: Höfuð kon- unnar. (Ljóðafélag Máls og menn- ingar, febrúar 1995.) Thor Vilhjálmsson: Snöggfœrðar sýnir. (Ljóðafélag, apríl 1995.) Finnur Torfi Hjörleifsson: / meðal- landinu. (Ljóðafélag, október 1995.) Paul Eluard: Astin Ijóðlistin og önn- ur Ijóð, Sigurður Pálsson þýddi. (Ljóðafélag, nóvember 1995, úrval ljóða eftir eitt helsta skáld Frakka á þessari öld.) Helgi Hálfdanarson: Nokkur þýdd Ijóð. (Ljóðaperlur úr ýmsum áttum og frá ýmsum tímum.) Hannes Sigfússon: Kyrjálaeiði. (Ný ljóðabók.) Einar Már Guðmundsson: Sendi- sveinninn er einmana. (Endurútgáfa fyrstu ljóðabókar EMG.) Finnur Torfi Hjörleifsson. Einar Már GjSmundsson. Ingibjörg Haraldsdóttir. Thor Vilhjálmsson. bogur: Steinunn Sigurðardóttir: Hjartastað- ur. (Skáldsaga.) Björn Th. Björnsson: Hraunfólkið. (Söguleg skáldsaga, gerist á Þing- völlum á fyrri hluta 19. aldar.) Kristín Ómarsdóttir: Dyrnar þröngu. (Skáldsaga.) Gyrðir Elíasson: Kvöld í Ijósturnin- um. (22 smásögur, reimleikasögur af landsbyggðinni, nýstárleg ævintýri, ljóðrænir prósar.) Böðvar Guðmundsson: Hýbýli vind- anna. (Breið, söguleg skáldsaga um vesturferðir íslendinga seint á 19. öld.) Kristín Marja Baldursdóttir: Máva- hlátur. (Kvennasaga úr Hafnarfirði). Stefán Sigurkarlsson: Hólmanes- pistlar. (Sögur úr smáþorpi sem gæti verið hvaða íslenskt sjávarþorp sem er; full af elskulegum húmor.) Helgi Ingólfsson: Letrað í vindinn II: Þúsund kossar. (Sjálfstætt fram- hald af Samsœrinit, verðlaunaskáld- sögunni sem kom út í fyrra.) Þýdd skáldverk Milan Kundera: Með liœgð, Friðrik Rafnsson þýddi. (Syrtla. Heimsbók- menntaklúbbur Máls og menningar, febrúar 1995. Nýjasta skáldsaga þessa vinsæla höfundar. Kom úl hér á landi samtímis frumútgáfu í Frakk- landi og hefur hlotið lofsamlega dóma). Jostein Gaarder: Veröld Sojfíu, Þröstur Ásmundsson og Aðalheiður Steingrímsdóttir þýddu. (Bók mán- aðarins í apríl. Saga vestrænnar heimspeki í skáldsöguformi. Met- sölubók um víða veröld, annað upp- lag væntanlegt í nóvember.) Franz Kafka: Réttarhöldin, endur- skoðuð þýðing Ástráðs Eysteinsson- ar og Eysteins Þorvaldssonar. (Heimsbókmenntaklúbburinn, maí 1995. Klassískt snilldarverk.) Sten Nadolny: Göngulag tímans, Arthúr Björgvin Bollason þýddi. (Heimsbókmenntaklúbburinn, sept- ember 1995. Athyglisverð og afar vinsæl skáldsga frá Þýskalandi um landkönnuðinn John Franklin. Höf- undur var einn af gestum Bókmennt- hátíðar 1995.) Keld Askildsen: Síðustu minnisblöð Tómarsar F. fyrir almennings sjón- ir, Hannes Sigfússon þýddi. (Syrtla, Heimsbókmenntaklúbburinn, sept- ember 1995. Kostulegar smásögur eftir einn helsta höfund Norðmanna nú um stundir. Hann var meðal gesta Bókmenntahátíðar 1995.) Gabriel Garcia Marquez: Um ástina og annanfjára, Guðbergur Bergsson þýddi. (Heimsbókmenntaklúbbur- inn, nóvember 1995. Nýjasta bók Nóbelsskáldsins frá Kólumbíu. Einkar áhrifarík saga sem minnir á gömlu verkin hans.) Taslima Nasrin: Skömmin, Silja Að- alsteinsdóttir þýddi. (Bók mánaðar- ins í september. Bók sem hefur vak- ið heimsathygli og kallað dauðadóm múslimskra öfgamanna yfir höfund- inn sem var meðal gesta Bók- menntahátíðar 1995.) Bækur almenns efnis Islensk klassík: Vídalínspostilla. Útgáfa Gunnars Kristjánssonar og Marðar Árnason- ar, í samvinnu við Bókmenntafræði- stofnun. (Hliðstæð útgáfa og Grágás á sínum tíma.) Endurminningar: Thor Vilhjálms- son: Minninga- bók. (N.k. fram- hald af Röddum í garðinum, um fuilorðinsárin.) Isabel Allende: Paula, Tómas R. Einarsson þýddi (Nýjasta bók Al- lende, þar sem hún segir dauð- vona dóttur sinni ævisögu sína. Bók- in hefur hlotið frábæra dóma.) Thor Vilhjálmsson. ✓ Ymsar bækur: Steinunn Sigurðardóttir. Björn Th. Björnsson. Gjafabækur: Ólafur Jóh. Sigurðsson: Kvœðasafn. (Sbr. Snorri Hjartarson; í skinn- bandi.) Guðfinna Eydal. Álfheiður Steinþórsdóttir. settar saman í eina innbundna bók.) Barnasálfrœðin eftir Guðfinnu Ey- dal og Álfheiði Steinþórsdóttur. (Hagnýt bók um allt sem viðkemur þroska barna og sálfræðileg vanda- mál hvers konar.) Myndlistarbækur: Leifur Breiðfjörð, texti á íslensku, ensku og þýsku. Stórvirki: Islensk bókmenntasaga III (frá 1750 til 1918). Halldór Guðmundsson rit- stýrir. Guðmundur P. Olafsson: Ströndin í náttúru íslands (Gullfalleg allsherj- arumfjöllun um ströndina í máli, myndum og skáldskap.) Handbækur: Sigurður Óli Ólafsson og Haraldur Reynir Jóhannsson: Bœtiefnabókin, handbók um vítamín, steinefni og fæðubótarefni. Björn Hróarsson: Ferðabœkur (Dalir og Barðaströnd, Snæfellsnes, Skaftafellssýslur.) Hundrað góðir réttirfrá Miðjarðar- hafslöndum. (Bók mánaðarins í júlí.) 350 stofublóm, ný og endurskoðuð útgáfa þessarar einstaklega vinsælu bókar. Einar Thoroddssen: Vínin í ríkinu, árbók 1996. Björn Hróarsson. Einar Thoroddsen. Á erlendum málum (og stundum líka íslensku): Guðmundur P. Ólafsson: Ice- land, the enchant- ed, Perlur í nátt- úru Islands á ensku. Úlfar Finnbjöms- son og Lárus Karl Ingason: A Taste oflceland. Árni Björnsson: Árni Björnsson. Heimsbyggðin, mannkynssaga í einu bindi fyrir almennan markað. (Kennslubækumar tvær hafa verið Highdays and holidays in Iceland. (Stytt útgáfa af Sögu daganna.) Stefan Marion: Travellers Guide to Iceland. Heimskringla: Ámi Sigurjónsson: Bókmenntakenn- ingar síðari alda (framhald af Bók- menntakenningum fyrri alda). Thomas Gilovich: Ertu viss? Brigð- ul dómgreind í dagsins önn, Sigurð- ur J. Grétarsson þýddi. (Sálfræðibók sem er ætluð fagmönnum og al- menningi, um grillur og meinlokur sem eiga ekki við nein rök að styðj- ast: stjörnuspá, dulskynjun, nýjald- arhyggja o. fl.) CD-Rom: Islendingasögur með orðstöðulykli, akademísk útgáfa. Geisladiskur: Kristinn Sigmundsson og Jónas Ingimundarson: Schwanengesang, Ijóðaflokkur Schuberts ásamt nokkr- um aukalögum, frábærlega fluttur af tveimur afburða tónlistarmönnum. Barnabækur Yngstu börnin Áslaug Jónsdóttir: Einu sinni var raunamæddur risi. (Myndabók fyrir yngstu bömin.) Gunilla Hanson: Klara passar Ottó / Snuðin hennar Klöru. (Tvær harð- spjaldabækur fyrir þau allra yngstu.) Rod Campbell: Bendibœkurnar mín- ar: Háttatími/Matartími/I baði. (Þrjár harðspjaldabækur með myndum af gagnlegum hlutum.) Kate Taylor: Hvað er í dótakassan- um?/Hvað er í töskunni minni? (Gægjumyndabækur.) Van Fleet: Eitt gult Ijón. (Vönduð myndabók um liti, fjölda og tölu- stafi.) Langt, stutt, stórt, smátt. (Sex bækur saman í tösku, mismunandi að stærð og lögun.) 2-5 ára Karlssonur, Lítill, Trítill ogfuglarn- ir. (Islenskt ævintýri, myndskreytt af Önnu Cynthiu Leplar.) Sjón/Halldór Baldursson: Sagan af húfunni fínu. (Ævintýraleg saga með fallegum myndum.) Babette Cole: Eggið hennar mömmu. (Skemmtileg myndabók um það hvernig börnin verða til.) Litlir lesendur (ný sería); Smábók eftir Amheiði Borg. (Létt saga fyrir yngstu lesenduma.) 6-9 ára Christine Höstlinger: Astarsögur af Frans. (Sjöunda bókin um hina vin- sælu söguhetju í flokknum Litlir lestrarhestar.) Gunnar Helgason: Goggi og Grjóni vel í sveit settir. (Sjálfstætt framhald af fyrri bók höfundar, Goggi og Grjóni.) Magnea frá Kleifum: Sossa litla skessa. (Sjálfstætt framhald af verð- launabókinni Sossa sólskinsbarn.) Astrid Lindgren: Lína Langsokkur í Suðurhöfum. (Þriðja og síðasta bók- in um hina vinsælu söguhetju.) Nils-Olof Franzsen: Herra Sippó og þjófótti skjórinn. (Ævintýraleg saga um brúðuleikhús og eiganda þess.) 10-12 ára Bergljót Hreinsdóttir: Obladí obla- da. (Hressileg saga um systkinahóp eftir nýjan höfund, myndskreytt af Örnu Valsdóttur.) Sagan af Gretti sterka. (Endursögn Einars Kárasonar, myndskreytt af Juri Arrak.) Hallfríður Ingimundardóttir: Hvað nú? (Raunsæ saga um skilnaðarbarn og viðbrögð þess.) Gunnhildur Hrólfsdóttir: Svarta nöglin. (Spennandi saga um tvíbura- systkini og félaga þeirra.) Terry Jones: Nikkóbóbínus. (Ævin- týraleg spennusaga sem hlotið hefur miklar vinsældir víða um heim.) Leikum leikrit. (Safn leikrita eftir ýmsa höfunda ætlað fyrir hug- myndaríka krakka í skólum og heimahúsum.) Unglingabækur Lárus Már Björnsson: Keflavíkur- dagar - Keflavíkurnœtur. (Nýstárleg saga eftir nýjan höfund.) Eyvindur Eiríksson: Meðan skútan skríður. (Sjálfstætt framhald af sög- unni A háskaslóð, sem kom út fyrir tveimur árum. Saga um spennandi siglingu.) Mats Wahl: Vetrarvík. (Ljóðræn en spennandi saga eftir vinsælan verð- launahöfund.) Jostein Gaarder: Veröld Sojfíu. Olga Guðrún Árnadóttir: Magga Stína. (Ný, athyglisverð unglinga- saga.) FORLAGIÐ - ÚTGÁFA 1995 Ljób: Rögnvaldur Finnbogason. Sigurður A. Magnússon. Sigurður Pálsson. Didda (Sigurlaug Jónsdóttir): Lasta- fans og lausar skrúfur, vor 1995. Isak Harðarsson: Hvítur ísbjörn, október 1995. Rögnvaldur Finn- bogason: Hvar er land drauma, vor 1995. Sigurður A. Magnússon: Með öðrum orðum, Ijóðaþýðingar, október 1995. Sigurður Pálsson: Ljóðlínuskip, október 1995. bogur: Súsanna Svavars- dóttir: Skuggar vögguvísunnar. (Erótískar sögur.) Guðbergur Bergsson: Jóla- sögur úr samtím- anum. (Stuttar sögur í litlu broti.) Guðbergur Bergsson. Sigrún Eldjárn. Barnabækur: Guðrún Hannes- dóttir (valdi og myndskreytti): Fleiri gamlar vís- ur handa nýjum börnum. (Fram- hald á Gömlum vísum handa nýj- um börnum sem kom út í fyrra og fékk viðurkenn- ingu fyrir útlit og hönnun.) Illugi Jökulsson: Kanínusaga. fyrir yngstu börnin.) Sigrún Eldjám: Skordýraþjónusta Málfríðar. (Ný saga um Kugg og hina skrítnu vinkonu hans, Mál- fríði.) Ævisögur: Gylfi Gröndal: Eg skrifaði mig í tugthúsið. Valdi- mar Jóhannsson bókaútgefandi segir frá. (Saga Gylfi Gröndal. Þýdd skáldverk: Leena Lander: Heimili dökku fiðr- ildanna, Hjörtur Pálsson þýddi. (Finnsk verðlaunaskáldsaga sem þýdd hefur verið á fjölda tungumála og gerð leikgerð eftir sem m.a. var sýnd í Borgarleikhúsinu síðastliðið vor.)

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.