Dagur - 19.12.1995, Page 19
Þriðjudagur 19. desember 1995 - DAGUR - 19 B
Síldarkaupendur voru mjög
vandlátir, ekki síst þegar mikið
barst að því þá gátu þeir valið úr
þeirri síld sem barst að til söltun-
ar. Ég held að saltsfldin hafi nú
alltaf selst á þessum árum en áður
en ég fór að fara á sfld kom það
fyrir að eitthvað af saltsfldinni
seldist ekki, saltendur sátu uppi
með hana. Eftir að ég hætti á
Minnie fór ég á Gunnvöru, sem
Ingvar Guðjónsson átti einnig.
Hún var nærri helmingi stærri en
Minnie, um 102 tonn. Hún var
með Wickham vél, sem einnig var
glóðarhausvél.
Það var alveg „súpermaskína"
því hún var svo sterk. Það kom sér
vel því iðulega var svo mikil
kappsigling af miðunum í löndun,
t.d. til Hjalteyrar, en þá var verk-
smiðjan þar risin. Ég held að það
hafi aðeins verið í eitt skipti sem
við urðum að láta í minni pokann
fyrir öðru skipi. Barði skipstjóri
heimtaði ekki neina ofsa keyrslu
nema hann sæi möguleika á að
verða á undan einhverjum öðrum
skipum á svipuðum slóðum.
Gunnvör gekk um 10 mflur þegar
hún var keyrð á fullu en þá voru
svo stór skip farin að stunda sfld-
veiðar."
Tundurduflin
eins og berjaskyr
„Þegar við hættum á sfldinni á
haustin fórum við að sigla til
Fleetwood og Aberdeen með fisk,
sem keyptur var bæði fyrir norðan
og í Vestmannaeyjum. Þetta var í
upphafi styrjaldarinnar og sigld-
um við öll stríðsárin. Við vorum
oft í sama sjó og þau skip sem
sökkt var en við sáum það ekki.
Ég minnist þess að þegar stærsta
togara íslendinga í þá tíð, Reykja-
borginni, var sökkt árið 1941 og
áhöfnin skotin með vélbyssum,
fórum við úr Reykjavík á sama
tíma en gangurinn hjá okkur var
minni og eins var mikil þoka og
dumbungur á hafinu. Þegar við
komum til Fleetwood var Reykja-
borgin ókomin þangað og þá viss-
um við að eitthvað hafði átt sér
stað. Við vorum búnir að fara 8
túra á þessum tíma en eftir þetta
var ákveðið að íslensk skip hættu
þessum siglingum yfir hafið,
áhættan þótti svo mikil. Á sama
tíma var árásin gerð á Fróða. Við
fórum svo á síld um sumarið en
strax um haustið 1942 var aftur
byrjað að sigla með fisk. Þá var
aðalhættan vegna tundurdufla,
sem voru eins og berjaskyr um
allan sjó þegar komið var austur
fyrir Rauðunúpa, en mörg þeirra
höfðu slitnað upp og voru á reki.
Ég tel víst að einhverjir bátar hafi
rekist á dufl, m.a. hvarf Sæborgin,
sem Guðmundur Jörundsson átti,
fyrir austan land í sæmilegasta
veðri, en hún var í flutningum fyr-
ir Bretana.
Ég fór á Fagraklett árið 1943,
þegar stnðið var í algeymingi, og
héldum áfram að sigla til Fleet-
wood og Aberdeen og á Fagra-
kletti fórum við svolítið sérstakan
túr, þvert yfir Skotland. Við feng-
um skeyti um það þegar við vor-
um nánast komnir til Fleetwood
að halda til Aberdeen. Það kostaði
það að fara norður fyrir Skotland,
en skipstjórinn var búinn að frétta
af Kaledonia-skipaskurðinum. Við
sigldum svo inn fjörðinn en sáum
engan skipaskurðinn heldur mann-
virki mikið upp í fjalli sem síðar
reyndist vera skipaskurðurinn.
Hann var 14 þrep, en það tók heil-
an dag að fara gegnum hann auk
þess sem hann var svo mjór að
fara þurfti í útskot þegar skipi var
mætt úr gagnstæðri átt. Báturinn
var fulllestaður af fiski og svo
djúpskreiður að hann naggaði allt-
af með hælinn við botn. Ég var í
fimm ár á Fagrakletti, þrjú ár á
Gunnvöru, sjö ár á Minnie en alls
í 30 ár á sjó og endaði á póstbátn-
um Drang, en í millitíðinni hafði
ég verið á síðutogaranum Svalbak
í þrjú ár, var í hópi þeirra sem
sóttu hann nýjan til Aberdeen,"
sagði Benedikt Sæmundsson.
„Við Benni fískutn
aíítaf vel"
„Þessi nýsköpunartogarar þóttu al-
veg feiknarleg „herskip", en þrátt
fyrir það kunni ég ekki eins vel
við mig á togara og á bátunum.
Þetta var rnjög bindandi, mátti
ekki fara úr vélarrúminu alla vakt-
ina til að halda vélinni á sama
snúningi. Skipstjóri var Þorsteinn
Auðunsson, og hann var óskap-
lega vandlátur. Hann hafði einnig
snúningshraðamæli uppi hjá sér
og ef einhverju munaði hringdi
hann strax niður í vél með miklum
ákafa, enda voru þeir undir pressu
skipstjóramir, fiskeríið mátti ekki
„klikka“, þá vom þeir látnir fara.
Vírarnir lágu í blökk í síðu skips-
ins þegar togað var, kallað að taka
í blökkina þegar búið var að kasta
og á meðan var hringt á hálfa ferð.
Eitt sinn er við vorum vestur á
Hala skil ég ekkert í því hversu
lengi hann keyrir á hálfri ferð, lík-
lega ein þrjú korter, en þá hrópar
hann niður og spyr hversu lengi
ég ætli að toga á hálfri ferð. Ég
var nú orðinn hálf leiður á þessu
öllu og svaraði honum því að mér
kæmi það ekkert við, það væri
hans mál. Þá henti hann símanum
á, lét hífa og aflinn var fjórir pok-
ar, eitt stærsta holið sem við feng-
um. Þegar ég kem svo upp að
borða er hann þar líka. Strákamir
vissu ekkert urn það að togað
hafði verið á hálfri ferð en vom að
tala um hversu stórt holið hafði
verið. Það lá alveg ótrúlega vel á
Þorsteini og hann segir: „Það er
ekki að spyrja að því þegar við
Benni erum á vakt, þá fiskum við
alltaf vel.“
Á gamlárskvöld 1950, er við
vomnt á Halanum, fengum við
tundurdufl í vörpuna er Jónas Þor-
steinsson var í fyrsta skipti með
Svalbak. Það var búið að berjast
utan á síðunni í pokanum, en þeg-
ar sturtað var úr pokanum kom
það í ljós. Ég er að fara af vakt og
fer upp í brú til Jónasar. Það gekk
mjög illa að ná inn pokanum og
Jónas taldi ástæðuna þá að pokinn
væri hálffullur af grjóti. Það varð
uppi fótur og fit, tundurduflið
bundið fast og keyrt inn á Isafjörð
og það var síðan gert óvirkt á
Prestabugtinni af sprengjusérfræð-
ingum.“
/ 34 ár hjá ÚA
Eftir að hafa verið á Drang í sjö á'
fór Benedikt í land og var í 34 ár
hjá Útgerðarfélagi Akureyringa
hf„ eða frá 1958 til 1992 við
keyrslu á frystivélunum. Þá var
búið að starfrækja frystihúsið í eitt
ár, en áður höfðu togaramir iðu-
lega siglt með aflann eða hann var
saltaður á Akureyri. Benedikt seg-
ir að öll árin sem hann starfaði hjá
ÚA hafi verið unnið að endurbót-
um á húsnæði og tækjum og
einnig stækkun húsnæðis.
- Hver var mesta breytingin
sem átti sér stað hjá ÚA meðan þú
varst þar?
„Þegar ég byrjaði hjá ÚA vom
frystivélar og tæki frá Héðni hf. í
notkun en um 1980 komu mjög
góðar, norskar vélar, skrúfupress-
ur frá Kvemer, auk nýrra ísvéla
frá Svíþjóð frá Stal og ég tel komu
þeirra einna mestu og bestu breyt-
inguna þann tíma sem ég starfaði
hjá fyrirtækinu. Ekki má heldur
gleyma flæðilínunni, sem er
glæsileg framkvæmd. Þetta var
mjög skemmtilegur tími þama
niðurfrá og mér leið mjög vel
þrátt fyrir langan vinnudag en
stundum var unnið á 12 tíma vökt-
um. Ég vissi varla hvað tímanum
leið og var orðinn gamall áður en
ég vissi af. Það var mér mikil
ánægja að starfa hjá ÚA, sem hef-
ur nú um hálfrar aldar skeið
starfað með miklum glæsibrag og
verið lyftistöng fyrir land og þjóð.
Það hefur veitt stórum hópi Ákur-
eyringa vinnu og tekið unglinga í
vinnu er þeir komu úr skólunum.
Það hefur eflaust beint lífi þeirra á
heilla- og gæfubrautir. Yfirmanna
og öllu starfsfólki ÚA mun ég
ávallt minnast með sérstökum vin-
arhug.
Það kitlaði mig aldrei á þessum
ámm að fara aftur á sjó, var orð-
inn afhuga því, auk þess sem ég
var farinn að verða svo gamall í
hettunni.“
Guílntoíi ÚA
„Um líkt leyti og ég byrjaði í
frystihúsinu kom Gísli Konráðs-
son til ÚA, alveg stórkostlegur
maður. Hann, ásamt Vilhelm Þor-
steinssyni, á stærstan þátt í því að
ÚA er orðið jafn öflugt fyrirtæki í
dag og raun ber vitni. Gunnar
Ragnars, núverandi forstjóri,
reyndist mér vel, ekki síður en fé-
laginu. Sá maður sem er þó mér
efst í minni er Kristján Guð-
mundsson, Gósi. Hann stjómaði
fiskvinnsluvélunum, bæði flökun-
ar- og roðflettivélunum, en þá
þekktu fáir þessar vélar, en hann
virtist vita allt um vélar, alveg
sama hvaða tegund eða hlutverk
þeirra var og allt lék þetta £ hönd-
unum á honum, algjör snillingur.
Þegar vélamar gengu úr sér tók
hann þær í gegn og gerði þær sem
nýjar og sparaði fyrirtækinu stór-
fé, var algjör „gullmoli“ fyrir ÚA.
Jón Einarsson, sem var þama 1.
meistari um tíma var einnig
ógleymanlegur, smíðaði allt
mögulegt, m.a. ýmis tæki,“ sagði
Benedikt Sæmundsson, vélstjóri,
sem settist ekki í helgan stein fyrr
en eftir sjö áratugi á vinnumark-
aðnum, bæði til sjós og lands. GG
Ágœlii Norðlendingar
fuiqíleilarjála
aij í ijjá i mM k iv
Beslu þakkirfyrir skemmtunina
á árinu sem er að líða
Sjáumst liress á nýja árinu.
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
• •
&