Dagur - 16.07.1996, Síða 4
4 - DAGUR - Þriðjudagur 16. júlí 1996
LEIÐARI-------------------
Óæskileg þróun
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI,
SÍMI: 462 4222
ÁSKRIR KR. M. VSK. 1600 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 150
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓUFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
AÐRIR BLAÐAMENN: AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR,
GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON (íþróttir),
BLAÐAMAÐUR HÚSAVÍK - GUÐRÚN K. JÓHANNSDÓTTIR
SÍMI Á SKRIFSTOFU 464 1585, FAX 464 2285.
HEIMASÍMI BLAÐAMANNS Á HÚSAVÍK 464 1547
LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 462 5165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 462 7639
SÍMFAX AUGLÝSINGADEILDAR: 462 2087
„Með fáum undantekningum hefur hallað
mjög á landsbyggðina. Fjölgun á höfuðborgar-
svæðinu heldur áfram. Á síðustu 15 árum er
tæpur helmingur íbúafjögunarinnar þar vegna
aðflutnings af landsbyggðinni. Einn af
hverjum 10 íbúum svæðisins er aðfluttur á
þessu tímabili. Þessi þróun er ekki æskileg til
langframa," segir í ársskýrslu Byggðastofnun-
ar þar sem fjallað er um búsetubreytingar á ís-
landi á síðustu 10 árum. Tölurnar eru sláandi
en þurfa ekki að koma þeim á óvart sem horft
hafa í kringum sig á síðustu árum. Við því er
ekki að búast að fólk sitji á sama stóli, sama á
hverju gengur í kringum það því atvinnan ræð-
ur mestu um búsetu fólks. En þegar dæmi eru
um 20% fækkun fólk á svæði á ekki lengra
tímabili þá má tala um búsetubyltingar en ekki
breytingar.
Tölurnar eru ógvekjandi en þær segja líka
mikla sögu. Þær segja til dæmis þá sögu að
langvarandi samdráttarskeið í sauðfjárræktinni
hefur skilið sum svæði landsins eftir í djúpum
sárum. Gallinn er sá að þetta eru svæði sem
vel eru til þessarar búgreinar fallin og enn og
aftur skýst upp í hugann sú spurning hvort
þau komist aftur í sömu byggð, jafnvel þótt
rofi til í umhverfi sauðfjárræktarinnar. Alvar-
legasta hlið talna um flutninga fólks milli
svæða er þó að þeim hefur fylgt mikið eigna-
tap fólks. Það er ekki hægt að standa upp einn
daginn og kveða þann stóradóm yfir einu
byggðarlagi að það eigi ekki framtíð því þá er
um leið verið að gera eignir fólks verðlausar.
Hver og einn getur séð sjálfan sig í þeirri stöðu
að horfa upp á eignirnar verðlausar án þess að
fá rönd við reist. Þess vegna er mikill sannleik-
ur fólginn í þeim orðum í skýrslu Byggðastofn-
unar að svona þróun getur ekki staðið til lang-
frama. Þó við íslendingar teljum okkur vera
auðuga þjóð þá getur hún aldrei talist auðug
nema að byggð haldist út um landið en ekki á
litlum og afmörkuðum svæðum.
Frá stórstúkuþingi.
Stórstúka íslands
110 ára í ár
Sumartónleikar á Norðurlandi:
Margrét og Kristinn
með tónleika
Margrét Bóasdóttir, sópran, og
Kristinn H. Árnason, gítar, halda
tónleika í tónleikaröðinni Sumar-
tónleikar á Norðurlandi nk. föstu-
dagskvöld, 19. júlí, kl. 21, í Snart-
arstaðakirkju í Norður-Þingeyjar-
sýslu og kvöldið eftir, laugardags-
kvöldið 20. júlí, í Reykjahlíðar-
kirkju í Mývatnssveit kl. 21.
Á efnisskrá tónleikanna verða
verk eftir Augustin Barrios, Dom-
enico Scarlatti, Francisco Tarrega,
J.S. Bach, Isaac Albeniz og ís-
lensk þjóðlög.
Margrét. Kristinn.
við guðfræðideild Háskóla Islands
og hjá Söngmálastjóra þjóðkirkj-
unnar.
Kristinn H. Ámason fæddist ár-
ið 1963. Hann lauk brottfararprófi
frá Tónskóla Sigursveins D. Krist-
inssonar árið 1983. Kristinn sótti
tíma hjá Gordon Crosskey í Eng-
landi 1983-1984. Næstu þrjú ár
stundaði hann nám í Manhattan
School of Music.
Kristinn hefur haldið fjölda
einleikstónleika bæði hérlendis og
erlendis, t.d. í Bandaríkjunum,
Italíu og Wigmore Hall í London.
Kristinn tók þátt í Gítarhátíðinni á
Akureyri 1991 og 1995.
Stórstúkuþing og Unglingareglu-
þing voru haldin í Reykjavík fyrir
skömmu og í tengslum við fund-
ina haldinn fundur um átak gegn
vímuefnum.
Á stórstúkuþinginu voru nokkr-
ir talsmenn bindindisviðhorfa
heiðraðir, þ.e. þau Ármann Gunn-
laugsson, Ásta Sigurðardóttir, Jan-
us Guðlaugsson, Jón Hj. Jónsson,
Njörður P. Njarðvík, Kritján Pét-
ursson, Ómar Smári Ármannsson,
Óttar Guðmundsson og Ragnar
Jónsson.
Einnig voru gerðir að heiðurs-
félögum innan Stórstúkunnar þau:
Ámi Norðfjörð, Ámi Valur Vigg-
ósson, Björn Eiríksson, Eiríkur
Jónsson, Ema Haraldsdóttir, Guð-
rún Geirdal, Sigurgeir Sigurpáls-
son, Sigurlaug Jónsdóttir, Skúli
Skúlason og Valdór Bóasson.
Á unglingaregluþinginu var
kosin ný stjóm til tveggja ára og
skipa hana þær Lilja Haraldsdótt-
ir, formaður og stórgæslumaður,
Jóna Karlsdóttir, ritari, Bryndís
Þórarinsdóttir og Sólveig Granz,
meðstjómendur.
Margréti Bóasdóttur ætti að
vera óþarfi að kynna fyrir Norð-
lendingum, enda er hún fædd og
uppalin í Mývatnssveit og hefur
búið lengi hér nyrðra, þótt nú sé
hún búsett í Skálholti í Biskups-
tungum. Margrét hefur haldið
fjölda ljóðatónleika bæði hér
heima og erlendis og sungið ein-
söngshlutverk í mörgum helstu
kirkjulegum verkum tónbók-
menntanna. Hún var söngkennari
við Tónlistarskólann á Akureyri
1987-1992 og einnig yfirkennari
skólans 1990-1991. Hún kennir nú
Sumartónleikar á Nordurlandi:
Karel Paukert spilar
í Akureyrarkirkju
Karel Paukert, orgelleikari frá
Tékklandi, sem er búsettur í
Bandaríkjunum, spilar á tónleikum
í Akureyrarkirkju 21. júlí kl. 17.
Tónleikarnir eru liður í tónleika-
Ný barnavöruverslun
opnuð á Akureyri
Hjalti og Aníta í Barnahúsinu.
Mynd: BG
Fyrir rúmri viku var opnuð ný
barnavöruverslun á Akureyri, á 2.
hæð í Amarohúsinu. Verslunin
heitir Barnahúsið og eigendur
hennar eru Hjalti Gestsson og
Aníta Júlíusdóttir.
Hjalti segir ætlun þeirra vera að
bæta við úrval barnavöru í bænum,
og er stefnan að bjóða eingöngu
gæðavörur á samkeppnisfæru verði
við Norðurlöndin. Munu þau Aníta
selja allar vörur tengdar börnum
nema fatnað, stórar sem smáar.
Hjalti og Aníta flytja sjálf inn
vörumar, og eru þau meðal annars
með bílstóla frá Storchenmiihle,
rúm frá Baby Italia, vagna og
kerruvagna frá Knokin, sem er
austurrískt rnerki, og Peg Perego
og Brestil sem eru ítölsk merki, en
einnig er mikið úrval annarra vara
frá Peg Perego á boðstólum. Að
sögn Hjalta er Peg Perego einn
stærsti framleiðandi barnavöru í
heiminum, og mjög þekkt erlendis,
þó það sé lítt þekkt á íslandi. Aust-
urríska fyrirtækið Knokin hefur
framleitt kerrur og vagna í 65 ár,
og hefur það alltaf lagt sérstaka
áherslu á vönduð efni.
„Við erum staðráðin í að vera
með alvöruverslun, og ætlum að
sérhæfa okkur á þessu sviði, en
ekki bjóða upp á fatnað. Við mun-
um því frekar auka úrvalið af þess-
ari sérvöru, en við erum þegar með
um 160 vörunúmer, og teljum okk-
ur vera með úrval eins og best ger-
ist á landinu," sagði Hjalti.
Verslunin er opin alla virka
daga, og frá 10-12 á laugardögum.
shv
röðinni Sumar-
tónleikar á Norð-
urlandi.
Á efnisskrá
tónleikanna verða
verk eftir Bem-
ardo Pasquini,
J.S. Bach, Vinc-
enzo Bellini,
Louis Vieme, Karel Paukert-
Franz Lizt, César
Franck, Jehan, Alain, Petr Eben og
Charles Ives.
Karel Paukert er fæddur í
Tékkóslóvakíu. Hann stundaði nám
við Prague Conservatory og Royal
Conservatory í Ghent í Belgíu.
Karel Paukert starfaði um tíma sem
óbóleikari hjá Sinfóníuhljómsveit
íslands og síðan sem organisti við
St. Bavon Cathedral í Ghent. Hann
fluttist til Bandaríkjanna og fékk
amerískan ríkisborgararétt árið
1972. Þar kenndi hann fyrst við
Washington University í St. Louis,
Northwestern University í Evan-
ston og The Cleveland Institute of
Music. Karel Paukert starfar nú við
Cleveland Museum of Art og
skipuleggur tónlistardagskrá safns-
ins, auk þess sem hann leikur fjölda
tónleika árlega. Hann er einnig org-
anisti og kórstjóri við St. Pauls Ep-
iscopal kirkjuna í Cleveland.
I íslandsheimsókn sinni nú mun
hann einnig halda tónleika í Hall-
grímskirkju í Reykjavík.