Dagur - 16.07.1996, Qupperneq 16
Akureyri, þriðjudagur 16. júlí 1996
TnYzHk Wrfóúfbnfa [YFtzwanh
w**w>**m mwmiitmmm wwn*i IniiBðu IV
...þú færð kríli
með hverjum
filmutilboðspakka!
GPedtSmyndir’
Skipagata 16 - 600Akureyri - Sími 462 3520
VEÐRIÐ
í dag spáir Veðurstofan
áframhaldandi vestan- og
suðvestlægum áttum. Þetta
er ávísun á bjartviðri norð-
austanlands og getur hitinn
þar farið upp í 20 stig. Sama
eða svipuðu veðri er spáð á
miðvikudag og fimmtudag. Á
föstudag og laugardag er
spáð suðaustan strekkingi
og áfram þurru veðri norð-
anlands með góðum hita.
Rimlagardínur
(plast-ál-tré)
Rúllugardínur
(Sólarfilma-myrkva-venjulegar)
Komdu og líttu ó úrvalið
0KAUPLAND
Kaupangi ■ Slmi 4623565"
Subway á Akureyri:
Staður númer tólf
þúsund og eitthvað!
Bandaríska skyndibitakeðjan
Subway opnar á Akureyri í
lok mánaðarins. Að sögn Skúla
G. Sigfússonar, forsvarsmanns
og einkaleyfishafa Subways á fs-
landi, hefur rekstur þeirra
þriggja staða sem reknir eru á
Reykjavíkursvæðinu gengið
framar öllum vonum. „Við erum
bjartsýn á að þetta muni ganga
jafnvel á Akureyri. Ég þekki
marga Akureyringa sem mæta á
Subway þegar þeir koma til
Reykjavíkur og ætla því að þeir
verði ánægðir að fá ferskan og
fitulítinn bita til bæjarins. Það
eru líka ágætis skyndibitastaðir
fyrir norðan, sem bendir til þess
að fólk fari þó nokkuð út að
borða.“
Subway hefur nýverið opnað
stað númer 12.000 en keðjan opn-
ar nýjan stað í heiminum á um
fimm klukkutíma fresti. Til að átta
sig betur á fjölda staðanna má
geta þess að McDonalds hefur
opnað hátt í 19.000 staði. Banda-
ríkjamaðurinn Fred DeLuca, sem
er ennþá aðaleigandinn, opnaði
fyrsta Subway-staðinn árið 1967.
Hann var þá aðeins 17 ára gamall
og fékk 1000 dollara að láni frá
fjölskylduvini. Subway er orða-
leikur því í Bandaríkjunum er bit-
inn kallaður ’sub’ sem er stytting
á submarine. Engar styttingar eru
gerðar á nafninu á íslensku og
heitir bitinn því kafbátur.
Staðurinn á Akureyri er stað-
settur í Kaupvangsstræti 1, hann
verður á tveimur hæðum með sæti
fyrir um 30 manns. Rekstrarstjóri
er Anna María Malmquist, en
Skúli segir að um 15 manns muni
vinna á staðnum, sumir í hluta-
stöðum. mgh
F-16 þotur í fyrsta skipti á Akureyri
Orrustuþotur af gerðinni F-16 komu í fyrsta skipti til Akureyrar í gær þegar tvær F- 16 A
vélar úr 334 flugsveitinni norsku flugu yfir bænum. Flugsveitin hefur aostöðu í Bodö í
Noregi og hafa vélarnar verið í um vikutíma á Keflavíkurflugvelli vegna æfinga. Æfingar af
því tagi eru reglubundnar hjá vélum frá danska og norska hernum.
Akureyringar hafa eflaust orðið þess varir þegar vélarnar flugu yfir bæinn í gærmorgun
enda mikill hávaði þegar þær fara um. Vélarnar flugu tvisvar yflr bænum en héldu síðan
æfingaferð sinni áfram. JÓH/Mynd: Hörður Geirsson.
Sem sjá má liefur orðið mikil breyting á Eyborginni
enda hefur skipið iengst um 73%. Mynd: SH
Hrísey:
Eyborgin komin úr lengingu
Aföstudag kom Eyborg EA-59 til hafnar í
Hrísey eftir að hún var lengd um 19 metra í
Noregi. Eyborgin var áður 26 metrar en er nú
orðið 45 metrar að lengd. „Þetta er rosaleg breyt-
ing og nú er þetta orðinn fullorðinn togari,“
sagði Eiríkur Sigurðsson, skipstjóri, í samtali við
Dag.
„Við vorum á 26 metra bát þegar við fórum til
Noregs en nú er þetta orðinn 45 metra togari," sagði
Eirtkur og hann segir breytingamar gefa Eyborginni
stóraukna möguleika. Eyborgin, sem er nýmáluð,
hélt síðan til Akureyrar fyrir helgina þar sem settur
verður vinnslubúnaður á millidekkið, bæði fyrir
bolfisk og rækju. SH
Bílvelta í Öxnadal
- margir sektaöir fyrir aö nota ekki öryggisbelti
Þrennt var flutt á slysadeild
Fjórungssjúkrahússins á Ak-
ureyri sl. laugardag eftir bflveltu
á móts við Hóla í Óxnadal. Fólk-
ið slapp með minniháttar meiðsl
en talið er að bfllinn hafl oltið 2-
3 veltur og er álitinn ónýtur.
Að sögn lögreglu á Akureyri
var frekar rólegt um helgina hjá
lögreglunni í tenglsum við
skemmtanahald bæjarbúa en tals-
vert að gera á vettvangi umferðar-
innar. Þannig voru 8 manns kærð-
ir fyrir of hraðan akstur um helg-
ina, 1 fyrir að aka mót rauðu Ijósi,
4 fyrir að virða ekki stöðvunar-
skyldu, 1 fyrir að aka réttindalaus,
2 fyrir ölvun við akstur, 1 fyrir að
aka bifreið án skráningarmerkja
og hvorki meira né minna en 21
fyrir að nota ekki bflbelti. Hefur
lögregla verið að skoða þann þátt
sérstaklega að undanförnu og er
sektum beitt ef belti eru ekki not-
uð.
Þessu til viðbótar má geta þess
að bflar skemmdust mikið í
árekstri á Dalvík um helgina en
fólk slapp án meiðsla. HA
Hrísey:
Aukinn feröa-
mannastraumur
Ferðamannastraumurinn til
Hríseyjar hefur aukist í sum-
ar og skipulagðar komur er-
lendra gesta eru fleiri nú en ver-
ið hefur. Nú koma reglulega
tveir stórir hópar í viku og
kynna sér náttúrufegurðina og
lífið hjá eyjaskeggjum. Rólegt
hefur verið í atvinnulífinu í
Hrísey undanfarnar vikur, þar
sem frystihúsið hefur verið lok-
að en vinnsla fór í fullan gang á
ný í gær.
Akureyringurinn Gunnar Jóns-
son, tók við starfi sveitastjóra í
Hrísey í maí sl. og hefur verið að
koma sér fyrir í nýju starfi. „Mér
líkar mjög vel- héma og það hefur
verið afskaplega vel tekið á móti
mér og minni fjölskyldu hér í eyj-
unni,“ sagði Gunnar í samtali við
Dag, en hann var áður skrifstofu-
stjóri hjá Endurskoðun Akureyri
um langt skeið og sagðist kunna
því vel að breyta um starfsvett-
vang. Hann sagði allt í rólegri
kantinum í Hrísey þessa dagana
þar sem frystihúsið hefur verið
lokað í þrjár vikur en þar hófst
vinnsla á ný í gær. Þá ætti at-
vinnulífið í eynni að lifna við aft-
ur enda er frystihús KEA stærsti
vinnuveitandinn á staðnum. Engar
stórar nýframkvæmdir verða á
vegum hreppsins í sumar en nú er
verið að ljúka við hafnarfram-
kvæmdir frá því í fyrra og
væntanlega verður hafist handa
við brimgarðinn á næsta ári eins
og fyrirhugað var. SH