Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1994, Page 2
2
FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1994
Fréttir
Umhverfislýti á fallegum útsýnisstað:
Gámur staðið í f imm ár
við Listasaf n Sigurjóns
- ekki sótt um leyfi til byggingamefndar eins og áskibð er
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar við
Laugamestanga hefur ekki geymslu-
aðstöðu og notast því við gám sem
fenginn var að láni frá Eimskip. Ekki
hefur verið sótt um leyfi til bygging-
arnefndar fyrir staðsetningu gáms-
ins sem þykir umhverfislýti á falleg-
um útsýnisstað.
„Þetta er náttúrlega ekki til prýði
en gámurinn er bráðabirgðalausn. í
gámnum em hlutir sem tilheyra
safninu. Hann hefur staðið hér leng-
ur en við ætluðum. Viö fengum hann
aö láni til að mæta brýnustu
geymsluþörfum. Viö vonum að við
höfum einhvern tíma bolmagn til að
koma okkur upp geymslu," segir
Birgitta Spur, forstöðumaður lista-
safnsins.
Gámurinn hefur veriö við safnið
síðan það var opnað 1989. „Hann
stendur fast upp við geymsluskúr
sem Sigurjón smíðaði á sínum tíma.
Staðsetningin er sú heppilegasta fyr-
ir okkur en það mætti mála hann,“
segir Birgitta.
Samkvæmt upplýsingum frá skrif-
stofu byggingarfulltrúa hefur ekki
verið sótt um leyfi fyrir gámnum.
„Það þarf að sækja um leyfi til bygg-
ingarnefndar fyrir gámum sem hafð-
ir eru á lóðum. Þá er einungis um
bráðabirgðaleyfi að ræða. Ég finn
engin gögn um leyfisveitingu fyrir
umræddum gám,“ segir Þórdís Jóns-
dóttir á skrifstofu byggingarfulltrúa.
Að sögn Þórdísar er borgaö svo-
kallað lágmarksgjald, sem er 2.140
krónur, þegar sótt er um leyfi.
Aðalfundur Sýnar í gær:
Sáttatónn
- tiUaga um aðskilnað við Stöð 2 ekki rædd
Ari Edwald, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra:
Bygging dómhúss
hefst á næstunni
í gær var haldinn aðalfundur sjón-
varpsstöðvarinnar Sýnar hf. en fyrir
fundinum lá tiUaga um aðskilnað
Sýnar og íslenska útvarpsfélagsins
sem rekur Stöð 2. TiUaga meirihlut-
ans í Sýn um aðskUnaðinn var hins
vegar ekki tekin fyrir á aðalfundin-
um og fundinum var frestað. Málið
verður því ekki aftur á dagskrá fyrr
en í september ef vUji verður þá fyr-
ir því. Það virtist því sem nokkur
sáttatónn væri í fuUtrúum beggja
fylkinga í gær. Jóhann Óli Guð-
mundsson, ritari stjórnar Sýnar,
sagði við DV að menn vildu ekki taka
afstöðu til þessa máls ef með nokkru
móti væri hægt að leita friösamlegra
lausna.
Ný stjóm Sýnar var kjörin á aðal-
fundinum í gær en í henni sitja Ósk-
ar Magnússon, forstjóri Hagkaups,
sem formaður, Jóhann Óli Guð-
mundsson, forstjóri Securitas, sem
er ritari og Gestur Jónsson lögmaður
meðstjórnandi. Gestur og Óskar sátu
Uka í síðustu stjórn. Á fyrsta fundi
stjómarinnar strax eftir aðalfundinn
var ákveðið að Jóhann ÓU tæki við
af Gesti sem útvarpsstjóri/fram-
kvæmdastjóri Sýnar. Astæðan fyrir
skiptingunni er samningur sem
Gestur geröi þann 8. júlí sl. við ís-
„Gýmir fékk lyf eftir að hann
meiddist og hann var líka felldur með
lyfjum. Þetta tmflar rannsóknina
eitthvað en það má segja að hún sé
á allgóðum rekspöl. Ég reikna með
að við skilum skýrslu um máUð í lok
næstu viku,“ sagði Þorkell Jóhann-
esson, prófessor og forstöðumaöur
Rannsóknarstofu háskólans í lyfja-
fræði, í samtaU við DV í gær.
Rannsókn á sýnum úr gæðingnum
Gými, sem var feUdur eftir að hann
fótbrotnaði á landsmótinu á HeUu,
er ekki lokið. Eins og fram kom í DV
í síðustu viku reiknaöi ÞorkeU með
aö henni lyki í lok þessarar viku en
lenska útvarpsfélagið þar sem Stöð 2
em tryggö afnot af dreifikerfi Sýnar
til ársins 1996 og er óuppsegjanlegur
á þessu tímabiU. Meirihluti stjórnar,
þ.e.a.s Óskar og Jóhann, segja að
Gestur hafi gert þennan samning án
vitundar stjómar og stjómarfor-
manns sem sé forkastanlegt. Gestur
er fulltrúi meirihlutans í Stöð 2 í
stjórn Sýnar. Með meirihluta Jó-
hanns og Óskars var þessi samning-
ur ógildur.
Jóhann ÓU Guömundsson segir að
engin áform séu uppi um að segja
upp núgildandi samningi við Is-
lenska útvarpsfélagiö um afnot af
dreifikerfmu enda hafi enginn hags-
muni af því að Stöð 2 hætti að sjón-
varpa, hvorki minni- eða meirihluti.
Jóhann ÓU sagði í samtali við DV
í gær að ekki kæmi til greina að
semja um þau hlutabréf í Sýn sem
deUur hafa staðið um. Núverandi
meirihluti í íslenska útvarpsfélaginu
hefur boðist til að faUa frá lögsókn á
hendur fyrrverandi stjómarmönn-
um ef bréfunum verði „skilað" aftur.
Sigurður G. Guðjónsson, stjómar-
formaður íslenska útvarpsfélagsins,
lýsti því yfir í gær að óvíst væri að
til málshöfðunar kæmi.
nú hefur komið á daginn að hún tefst
að framangreindum ástæðum.
Sýnin vora tekin úr hrossinu eftir
að sögusagnir komust á kreik um að
hrossinu hefðu verið gefin lyf fyrir
keppni. Héraðsdýralæknir á HeUu
hefur forsjá með rannsókninni en
sýni vom tekin úr hrossinu að Keld-
um. Eftir það vom þau send Rann-
sóknarstofu háskólans í lyfjafræði
aö Ármúla 38 í Reykjavík.
ÞorkeU prófessor sagðist búast við
að héraðsdýralæknir og yfirdýra-
læknir fengju skýrslu um niðurstöð-
ur rannsóknarinnar í lok næstu
viku.
Ari Edwald, aðstoðarmaður dóms-
málaráöhema, segir að framkvæmd-
ir við byggingu nýs dómshúss fyrir
Hæstarétt á bílastæðinu bak við
Safnahúsið við Hverfisgötu hefjist
næstu daga og verði þá gengiö í að
girða af vinnusvæðið og grafa fyrir
húsinu. Búið er að bjóða út jarðvinn-
una og var Ræktunarsamband Flóa
og Skeiða með lægsta tilboðið upp á
51 prósent af kostnaðaráætlun eða
um þrjár mfiljónir króna. Þegar er
búiö að greiða tæpar 60 miUjónir fyr-
ir hönnun hússins og er sú vinna nú
á lokastigi.
„Þegar jarðvinnuútboðið fór fram
og byggingu hússins var mótmælt
var búið að teikna húsið. í framhaldi
af því var samið við verkfræðistofu
um hönnun hússins til útboðs þannig
að sá samningur var geröur á þeim
tíma og þeir hafa haldið áfram þeirri
samningsbundnu vinnu og lokið
henni. Við vomm ekki í aðstöðu til
að stöðva það um hæl því þetta var
bara samningsbundin vinna sem
búið var að ganga frá,“ segir Ari
Edwald.
Stuttar fréttir
Raforka til Hamborgar
Umhverfisráðherra Hamborg-
ar í Þýskalandi er væntanlegur
til landsins í þvi skyni aö kanna
kaup á raforku ffá islandi meö
sæstreng. RÚV greindi ífá þessu.
Mikiðþrumuveður
Óvenju langvinnt þmmuveöur
var í Herðubreiöarlindum í gær
og fóm skjálftamælar af stað í
látunum.
Rússaf iskur streymir inn
Rússafiskur streymir inn til
landsins, þvert á vUja rússneskra
stjórnvalda um að landa ekki á
Islandi vegna veiðanna á Sval-
barðasvæðinu. Þetta kom ffam á
Stöð 2.
Biódögum, nýju kvikmynd
Friðriks Þórs Fríðrikssonar, hef-
ur veríð boðin þátttaka á Locamo
kvdkmyndahátíöinni í Sviss.
Margir heimsþekktir kvik-
myndaleikstjórar hafa stigið sín
fyrstu frægðarspor í Locamo.
Meira hass og minna vín
Samkvæmt nýrri könnun
reykja íslenskir framhaldsskóla-
nemar meira hass núna en fyrir
tveimur þegar sambæriieg könn-
un var gerð en drekka minna
áfengi.
Fylgjandi veiðum
Meirihluti þjóðarinnar er fylgj-
andi veiðum íslenskra skipa á
Svalbarðasvæðinu samkvæmt
könnun Hagvangs. Ríkissjón-
varpið greindi frá þessu.
Heyskapur í hámarki
Heyskapur er kominn vel af
stað um land aUt. Samkvæmt
Rikissjónvarpinu hefur tíðarfar
verið bændum hagstætt að und-
aníömu.
Einar S. Einarsson, f.h. VISA, og Bjarni Finnsson, f.h. Kaupmannasamtak-
anna og samstarfsaðila um debetkort, undirrituðu í gær yfirlýsingu um að
deilur þeirra um debetkort, gjaldtöku og tæknilega framkvæmd, væru sett-
ar niður. „Munu aðilar nú snúa bökum saman og vinna að framgangi þessa
þjóðhagslega hagkvæma máls og nútímalega greiðslumáta i góðu sam-
starfi," segir i yfirlýsingunni. Á myndinni er auk Einars og Bjarna þeir
Leifur Steinn Elíasson, aðstoðarframkvæmdastjóri VISA, og Andri V. Hrólfs-
son, forstöðumaður markaðsþjónustu VISA. DV-mynd Sveinn
Rannsóknarstofa háskólans 1 lyfjafræði:
Lyfjagjafir tefja
rannsókn vegna Gýmis