Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1994, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1994, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1994 Neytendur í kjölfar verðkönnunar DV á tjaldstæöum hafa Neytendasíð- urrnl borist upplýsingar um að nokkuð sé um það að lítil bæjar- félög úti á landi tijóöi fóiki ókeyp- is gistingu á tjaldstæðura sínum. Vert er fyrir fólk á ferðalagi að hafa þetta í huga því ekki ætti að vera erfítt aö afla sér upplýsinga á því svæði sem farið er um. Samsetn- ingsorps í tölum frá Hollustuvemd ríkis- ins frá 1992 kemur fram að sam- setning heimilissorps er eftirfar- andi: Lífrænn úrgangur 29%, pappír 27,2%, plast 9,1%, gler 8,2%, pappi 5,2%, tau og gúmmí 4,2%, timbur 3,2%, bleiur 2,3%, spilliefni 0,3%. Síöustu 6,4 pró- sentfn fara síðan í endurvinnslu. Húsrád Fitublettir ábókum Oft koma fitublettir í bækur sem lánaðar em út. Losna má við þá á eftirfarandi hátt: Blandaðu saman talkúmi og hreinsuðu bensíni og stráðu því á blettina. Láttu þetta liggja smástund og burstaðu síðan blöndu og flekki brott. ið hreinsar Plaststrokleður Qarlægir furðu marga yfírborðsbletti af flikum, húsgögnum, veggfóðri o.fl, En athugaðu fyrst á leyndum stað hvort flöturinn þolir þessa með- ferð. Lökkuð og máluð húsgögn þola ekki strokleður áð neinu ráöi - það koma á þau mattir blettir. Agnirnar úr strokleðrinu eru stroknir af meö bursta - ekki með hendi. Silfurborð- búnaður Silfurborðbúnaður sem oröinn er guiur - t.d. af eggjum - hreins- ast á augabragði ef honum er stungiö í glas með saltvatni og bút af silfurpappír. Hækkar kaffi um tugi prósenta? Miklar sveiflur og ómögulegt að spá DV gerir verðkönnun á fimm tegundum í kjölfar samkomulags Suður- og Mið-Ameríkuríkja um að takmarka það sem fer á markað, spákaup- manna í framhaldi af því og nú síð- ast frostnátta í Brasilíu, sem eyði- lögðu 20-25% af uppskeru landsins, horfa menn fram á að verð á kaffi á íslandi kunni að hækka um tugi pró- senta á næstu vikum. Friðþjófur Ó. Johnson, forstjóri Ó. Johnson og Kaaber, spáir miklum sveiflum á markaðnum og segir erfitt að sjá fyr- ir hvað muni nákvæmlega gerast. Það eitt sé víst að kaffi sé þegar farið að hækka og muni eiga eftir að hækka enn frekar. Þrjár tegundir dýrastar hjá Hagkaupi Landinn þykir nokkuð drjúgur í kaffidrykkjunni og því mun verðið á Hvað gera kaffiþyrstir ef verðið á drykknum hækkar upp úr öllu valdi? DV-mynd SIS Kaffi (Gevalía Kólombía 500 g) H Hæsta 0Næst D Lægsta lægsta Nóatún KEA- Bónus Nettó Verslanir í könnuninni Hagkaup(259) Bónus(235) Fjarðarkaup (255) Garðakaup (257) Nóatún (299) 10-11 (258) KEA-Nettó (228) Verðkönnun á kaffi Gevalia Kolombia, 500 g Merrild 103, 500 g Ríó, 250 g Rauður Rúbin, 500 g Marino, 454 g Hagkaup 259 289 151 273 214 Bónus 235 259 239“ - 192 Fjarðarkaup 255 284 131 237 Nóatún 299 289 120 - 209 10-11 258 248 129 272 213 KEA-Nettó 228 - - 249 - Garöakaup 257 284 142 323 - ' Tveir pakkar seldir saman á 239 krónur. Vinningshafl í áskriftargetraun DV: Nýfluttur í bæinn „Þetta er sérlega ánægjulegt. Ég er nýfluttur í bæinn frá Þórshöfn og er ekki enn kominn í vinnu. Það kemur því á besta tíma fyrir mig að fá matarkörfu hjá 10-11,“ sagði Gísli Óskarsson, kampakátur vinnings- hafi í áskriftargetraun DV. Gísli sagðist vera búinn að vera áskrifandi að DV í tíu ár og sagði að sér fyndist vel til fundið að verðlauna skuld- lausa áskrifendur með þessum hætti. Gísli var í hópi áskrifenda sem dregnir voru út um mánaðamótin apríl-maí og sótti verðlaunin nú fyrst á dögunum. Sex nýir vinnings- hafar í áskriftargetraun DV bættust við nú um síðustu mánaðamót og eru þeir þá orðnir 30 alls. því hafa áhrif á þyngd pyngjunnar. DV hringdi í nokkrar verslanir til þess að kanna verð á fimm tegund- um, Gevalia Kólombía kafíi, 500 g, Merrild 103, 500 g, Ríó, 250 g, rauðum Rúbín, 500 g, og Marino, 454 g. Versl- anirnar í könnuninni voru Hagkaup, Bónus, Fjaröarkaup, Garðakaup, Nóatún, 10-11, og KEA-Nettó. Hagkaup er í þremur tilvikum af fimm með hæsta verðið, í eitt skipti reyndar ásamt Nóatúni og Nóatún selur ennfremur aðra tegund á hæsta verði. Bónus býður tvívegis ódýrustu tegundirnar, Fjarðarkaup, KEA- Nettó og 10-11 einu sinni hver búð. Með því aö umreikna hverja teg- und í verð á 500 g einingu kemur í ljós að ódýrasta kaffið er Marino kaffi hjá Bónusi, 211 kr. 500 g (192 kr. 454 g) og dýrasta kaffið er rauður Rúbín hjá Garðakaupi, 323 kr. 500 g. Gísli Oskarsson með vinningsskjal frá 10-11 búðunum. Endurvinnsla lífræns sorps á Kjalamesi: Erum aftarlega á merinni í sorpmálum - segir Helga J. Bjamadóttir verkefnastjóri „Megintilgangurinn með þessari tilraun er að kanna hvort einhver grundvöllur er fyrir svona víö- tækri heimajarðgerð í löndunum þremur sem taka þátt, Færeyjum, Grænlandi og íslandi. Þaö sem skiptir mestu í þessu er mannlegi þátturinn, hvort fólk er almennt tilbúiö til þess að gera þessa hluti, en síðan höfum við áhyggjur af sorpsamsetningunni," segir Helga J. Bjarnadóttir, verkefnastjóri til- raunar sem gerð er fyrir tilstuðlan umhverfisráðuneytisins og kostuð af Norrænu ráðherranefndinni. Tilraunin felst í því að 20 fjölskyld- ur á íslandi, 20 í Færeyjum og 10 á Grænlandi taka þátt í að endur- vinna lífrænt sorp sem fellur til á heimilum í eitt ár. Það verður sett í þar til gerð varmaeinangruð ílát þar sem úrgangurinn ætti að geta orðið að gróðurmold á þremur til fjórum mánuðum. Vantar stoðefni „í Noregi hefur tilraun af þessu tagi gengið vel en við erum ekki eins bjartsýn á að samsetning sorpsins sé af réttri gerð í löndun- um þremur. Við þurfum mikið af sk. stoðefnum, trjákurli, þurrkuð- um garðagróðri, heyi, hálmi og þess háttar, og við höfum áhyggjur af því að fólk hafi ekki nóg af þess- um efnum á heimilunum, sérstak- lega á veturna. Við teljum hlutfall- ið á milli matarúrgangs og stoðefna vera 3-4 á móti 1 og án stoðefnanna verður niöurbrotið ekki nógu gott,“ segir Helga og bætir við að helm- ingur þátttakendanna muni gera tilraun með notkun dagblaðapapp- írs, pappa og óbleikts pappírs til viðbótar við önnur stoöefni. Prent- svertan sé sögð vera orðin um- hverfisvæn og spennandi verði að skoða hvernig það kemur út. Fylgst verður mánaðarlega með hverri fjölskyldu og sýni tekin úr ílátunum í lok verkefnisins. Helmingi ódýrari sorphirða „Gangi þessi tilraun eins og við erum að vona gætu fámenn sveit- arfélög sparað stórar upphæðir í sorphirðukostnaði. Þar sem stund- uð er heimajarðgerö af þessu tagi, í Noregi t.d., er sorp aðeins sótt aðra hverja viku. Hirðing sorps í dreifbýli er um 70% af heildar- kostnaði við meðhöndlun á sorpi og yröi heimajarðgerðin almenn mætti lækka þá tölu um allt að helming. Krafan um endurvinnslu er alltaf að aukast og við erum mjög aftar- lega á merinni í þessum málum ef við berum okkur saman við ná- grannalöndin t.d. Sums staðar í Noregi verður frá og með næstu áramótum t.d. bannað að blanda lífræna úrganginum saman við annað sorp en við erum ekki einu sinni farin aö hugsa um lífrænan úrgang, hvað þá annað," segir Helga J. Bjarnadóttir, starfsmaður Iðntæknistofnunar og umsjónar- maður tilraunarinnar. Stórar fjárhæðir? „Ef þetta gengur eins og vonast er til gæti hér verið um stórar fjár- hæðir að ræða þegar til lengri tíma er lítið. Sorphirðan kostar okkur um milljón á ári og aöra milljón kostar það sem fer til Sorpu. Ef spara mætti t.d. helming beggja milljónanna hjá okkur er ljóst að um verulegar upphæðir yrði að ræða hjá stærri sveitarfélögun- um,“ sagði Jón Pétur Líndal, sveit- arstjóri á Kjalarnesi, aðspurður um hvað tilraun um endurvinnslu líf- ræns sorps, sem 20 fjölskyldur á Kjalamesi taka þátt í, gæti þýtt fyrir sveitarfélagið. „Það er mikill áhugi á þessu hér og ég er ekki í vafa um að ef vel gengur hér ætti þetta aðganga vel í stærri sveitarfélögunum. í þessu tilviki er þetta bara spuming um vilja og það þarf enginn að segja mér að Reykvíkingar gætu ekki flokkaö lífræna sorpið frá eins og við erum að gera. Nú er komið að því að hver og einn þarf aö taka sér tak og hugsa um hvað hann geti gert í þessum málum áður en í óefni verður komið. Enn sem komið er vitum við ekki hvernig til tekst en vonum það besta," sagði Jón Pétur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.