Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1994, Side 7
FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1994
7
Sandkom
Fréttir
Ummæliþau
semhöfövoru
eftiríþrótta-
fréttamönnum
Sjónvaritsins í
síöastaSand-
korni vöktu
nokkraathyglí.
í hita leiksins
hafnmörgguil-
konnn heyrst i
Ksingtmumog
ekkiannaö
hægt en að hafa gaman af. Arnar
Bjöms lýsti leik Itala og Búlgara í
fyrrakvöld og fór þaö þokkalega vel
úr hendi. En eitt sinn sagði Amar svo
dásamlega: „ítalir hafa ekki leikið
þennan leik áöur í keppninni." Við
þetta kom upp í huga Sandkomsrít-
ara gömul og góð saga af spekingi
eimun sem var að horfa á endurtekn-
ingu á marki í sjónvarpsleík og sagði:
„Djöfull er hann góður þessi Replay.
Hann skorar svo mikið af mörkum.'1
I gjörgæslu
Sveitarfélög-
inílandinueru
mörghver
skuldumvafm.
Sumhafaverið
svoillastöddað
þauhafaverið
settísvokall-
að;t gjörgæslu
ogmisstíjár-
forræöiámcð-
anskuldastað-
___ anhefurverið
löguð. Onefndurblaðamaðurþurfti
aö fá upplýsingar frá hinu opinbera
og hringdi í félagsmálaráðuney tið.
Blaðamaðurinn vildí fá að taia við
einhvern sem vissi hvenær skuldug
sveitarfélög færu í þessa giörgæslu.
Eitthvað vafðist þetta erindi fyrir
símastúlkunni og þurfti blaðamaður-
inn að bíða um stund eftir að fá að
tala við einhvern. Síðan var allt í einu
svaraö: „Heilbrigðisréðuneytið.“
Samkvæmt þessu þætti Sandkorns-
ritara gott að vita hvaða sveitarfélag
lægi á gjörgæsludeild Landspítalans?
Verðum við þá ekki að tala um upp-
skurð á útgjöldum sveitarfélaga?
Endurvinnsla
Heráðurfyrr
varalþekktað
henda engu
matarkynsog
nýtaaUtupptil i
agna, Þessi sið-
urersjaidséöur
ífarinútíma-
mannsins og
frekar í tisku að
endurvinnaallt
semfleygterá
haugana.ÍBæj-
arins besta á Isaflrði segir af vest-
firskri ungmey í husmæðraskóla. Þar
var verið að fræða dömurnar um
endurnýtingu hluta og hollustuhætti
og síðan sest að kvöldverði. Á boð-
stólum var nýtt slátur og að sjálf-
sögðu soðíð í vömbum. Ungmeyjan
ætlaði aldeilís að læra af fræðslunni
og át umbuðimar ásamt innihaldinu.
Kemtaranum þótti þetta athyglisvert
og sagði með aðdáun: „Svo þú borðar
vambirnarlíka." Meyjunni varðum
og ó og sagði: „Ó, guð almáttugur.
Þúhefurkannskiætlaðaðnotaþær
aftur?"
Ekki gráta!
I knattspyrn-
unníhöfumvið
bæðistjörnur
ogminnispá-
menn. Stjörn-
urnarhafafast
sæti í liði sínu
enhiuirvcrða
oftaðvenna
varamanna-
liekkmn. iul-
efniafHMi
knattspymuí
Bandaríkjunum rifjar blaðiö Fréttir
í Vestmannaeyjum upp ágæta fót-
boltasögu úr Eyjunum. Segir þar af
frægustu varamönnum ÍBV í gegnum
tíðina sem blaðið telur vera Jón 0.
Daníelsson, Kára Vigfússon og Guð-
mund Erlingsson, sem reyndar allir
reka veitingastað í Eyjum nú. Pyrir
nokkrum árum var guttaleikur í 5.
flokki og besti leíkmaðurínn var sett-
ur ó bekkinn. Hann fór að hágráta
en þá heyrðist i syni Guðmundar sern
varísamaliði: „Blessaður vertu.
Pabbi var varamaður í mörg ár hjá
ÍBV oghannfóraldreiaðgráta."
Álitlegur kostur að gera fríverslunarsamning við Bandaríkin:
ísland sæki um
aðild að NAFTA
- er niðurstaða athugunar sem ungur stj ómmálafræðingur hefur unnið
„Ut frá viðskiptalegum forsendum
er það álitlegur kostur fyrir ísland
að gera fríverslunarsamning við
Bandaríkin og/eða sækja um aðild
að NAFTA,“ segir Viggó Einar Hilm-
arsson, sem nýlokið hefur BA-prófl
í stjórnmálafræði, í niðurstöðum
lokaverkefnis síns við Háskóla ís-
lands sem heitir „Fríverslun íslands
og Norður-Ameríku“.
Til þess að svara þeirri spurningu
hver hagur íslands yrði við gerð frí-
verslunarsamnings við Bandaríkin
eða vegna aðildar að NAFTA (frí-
verslunarsamningi Norður-Amer-
íku) eru í ritgerðinni skoðuð við-
skipti íslands við aðildarríki NAFTA
og önnur Ameríkuríki, líklegar
áherslur íslenskra stjórnvalda born-
ar saman viö ákvæði NAFTA og
hugsanlegur ávinningur íslands
metinn. Niðurstöður þessara atriða
reyndust í öllum tilvikum jákvæðar
út frá efnahagslegum forsendum.
„Ef tekið er mið af viðskiptum ís-
lands við Bandaríkin og þeim auknu
tækifærum sem virðast vera fyrir
hendi í mörgum ríkjum Rómönsku
Ameríku virðist þaö vera álitlegur
kostur fyrir ísland að beina viðskipt-
um í auknum mæli vestur á bóginn.
Tollfrjáls aðgangur að stærsta mark-
aði heims, Bandaríkjunum, og aukin
samvinna við Mexíkó og jafnvel önn-
ur ríki Rómönsku Ameríku á sviði
sjávarútvegs hlýtur að vera kostur
sem Island verður að íhuga gaum-
gæfilega. Niðurfelhng tolla og ann-
arra viðskiptahindrana með fríversl-
unarsamningi myndi skapa svigrúm
til þess að tryggja markaðsaðgang
fyrir íslenskar vörur og þjónustu í
enn frekari mæh en nú er fyrir
hendi,“ segir Viggó.
Höfundur kemst að þeirri niður-
stöðu að stofnanauppbyggingin og
samstarfið í NAFTA er langt frá því
að vera eins viðamikið og bindandi
og innan Evrópusambandsins. Segja
megi að meginmunur NAFTA og
ESB felist m.a. í því að í NAFTA sé
ekki um framsal á ríkisvaldi að ræða,
frjáls flutningur vinnuafls sé ekki
leyfður innan aðildarríkja NAFTA
nema um viðskiptamenn sé að ræða,
NAFTA sé ekki tollabandalag og í
NAFTA sé ekki ráðgert að viðhafa
sameiginlega stefnu í málum eins og
sjávarútvegs- og landbúnaðarmál-
um.
Höfundur telur að viðbrögð banda-
rískra stjórnvalda við hugmyndum
um nánara samstarf við ísland á við-
skiptasviðinu gefi til kynna að frí-
verslunarsamningur við Bandaríkin
geti verið raunhæfur möguleiki. Þó
sé ljóst að ef ákveðið yrði að leita
eftir gerð fríverslunarsamnings við
Bandaríkin gætu samningaviðræður
ekki hafist fyrr en 1995.
Þýsk hjón í hringferð á vélhjóli
Jóhann Jóhaimsson, DV, Seyðisfirði:
Hún heitir Irena M. Pinneberg frá
Hamborg og kom hingað til íslands
ásamt eiginmanni sínum. Þau voru
á heimleið, þegar fréttaritari DV hitti
þau á fömum vegi. Hún talar aðeins
þýsku en eiginmaðurinn er ensku-
mælandi. Tímann hér höfðu þau not-
að til hringferðar um landið á vél-
hjóli sem þau höfðu meðferðis.
Þetta var fyrsta heimsókn þeirra
til íslands en þau höföu aflað sér
fróðleiks um land og þjóð fyrir ferð-
ina með lestri og á annan tiltækan
hátt.
Landið brást ekki vonum þeirra.
Flest reyndar eins og þau höfðu búist
við, svo sem veðrátta og landslag.
Þau bjuggu í tjaldi og skoðuðu allt
vandlega. Þeim fannst íslendingar
samt heldur fálátir og ekki tilbúnir
til samræðna eða annarra sam-
skipta. Tungumálaerfiðleikar kunna
að hafa valdið einhverju um en þetta
var þó á annan veg en þau væntu.
Að öllu ööru leyti voru þau ánægð
með ferðina og kynnin við land og
þjóð og þau hlakka til að koma hing-
að aftur.
Húsbréf
Irena hin þýska og vélhjólin.
DV-mynd Jóhann
Eiginkonan af lar ekki
minna en skipstjórinn
Júha Imsland, DV, Höfii:
„Þetta hefur verið mjög lélegt í
sumar. Viö höfum veriö með lúðu-
línu og erum ekki búin að fá nema
500 kg af lúðu í heildina. við vorum
að taka upp og ætlum að stoppa þar
til í ágúst að ýsuveiði byrjar og ná
þá því litla sem er eftir af kvótan-
um,“ segir Páll Guðmundsson á Von
SF.
Páll segir að nú hefði verið betra
að vera með krókaleyfi en þar sem
bátur hans er 9 tonn á hann ekki
kost á því. Þar er sex tonn hámarks
viðmiðun.
„Þegar nýtt kvótatímabil hefst 1.
september fæ ég úthlutað 18 'A tonni
af þorski en hafði 70 tonn í viömiöun
þegar kvótinn var settur á. Svo á ég
ýsu- og ufsakvóta líka.“
Dagný Rögnvaldsdóttir, eiginkona
Páls, hefur róið með honum síðan í
apríl og sagði Páll að hún stæði sig
mjög vel. Erfitt væri að segja hvort
þeirra veiddi meira. Dagný segist
kunna vel við sig á sjónum og lítið
hafa fundið fyrir sjóveiki.
Páll og Dagný nýkomin í höfn. Þau seldu lúðuna úr róðrinum á 305 kr.
kílóið hjá Fiskmarkaði Hornafjarðar. DV-mynd Júlia
Innlausnarverð
húsbréfa í
1. flokki 1991
3. flokki 1991
1. flokki 1992
2. flokki 1992
1. flokki 1993
Innlausnardagur 15. júlí 1994.
1. flokkur 1991: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.386.887 kr. 138.689 kr. 13.869 kr.
3. flokkur 1991: Nafnverð: 1.000.000 kr. 500.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.234.062 kr. 617.031 kr. 123.406 kr. 12.341 kr.
1. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 6.077.271 kr. 1.215.454 kr. 121.545 kr. 12.155 kr.
2. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 5.981.897 kr. 1.196.379 kr. 119.638 kr. 11.964 kr.
1. flokkur 1993: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 5.509.017 kr. 1.101.803 kr. 110.180 kr. 11.018 kr.
Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands
Suðurlandsbraut 24.
cSd HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANOSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • SÍMI 69 69 00