Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1994, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1994, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1994 9 Utlönd Karl Bretaprins og Díana hittust við brúðkaupsvígslu: Karl vildi ekki hitta lafði Diönu Karl Bretaprins og Díana mættu opinberlega á sama staðinn í fyrsta sinn í langan tíma þegar þau komu til kirkjuathafnar við brúðkaup lafði Sarah Jones úr konungsfjölskyld- unni og listamannsins Daniels Chatt- os. Díana mætti fyrst í kirkjuna og Karl kom aðeins tveimur mínútum síðar. Fjölmiðlum var ekki tilkynnt um komu þeirra nema meö nokkurra mínútna fyrirvara og vákti nærvera þeirra mun meiri athygli heldur en nærvera brúðhjónanna sjálfra. Eng- inn varð var við að Karl og Díana svo mikið sem heilsuðust við athöfnina. Er Díana kom til kirkju veifaði hún til fagnandi mannfjöldans og hélt svo Karl Bretaprins forðaðist að hitta Diönu prinsessu. Simamynd Reuter beint til síns sætis í kirkjunni. Karl stóð hins vegar drykklanga stund á kirkjutröppunum og ræddi við fjöl- skyldumeðlimi áður en hann hélt inn til athafnarinnar. Getum er að því leitt að það hafi verið gert til að kom- ast hjá því að mæta Díönu. Drottn- ingarmóðirin, Elísabet drottning og aðrir úr konungsfjölskyldunni sátu saman í kirkjunni. Lafði Sarah Jones er systurdóttir Elísabetar Bretadrottningar, dóttir Margrétar prinsessu og Snowdons lávaröar. Sarah Jones er þrettánda í röðinni meðal erfingja krúnunnar. Hún er 30 ára gömul en eiginmaður hennar, listamaðurinn Daniel Chatto, er 37 ára gamall. Reuter Þýskir herbílar fóru um breiðgötuna Champs Elysées i gær á Bastilludeginum, þjóðhátiðardegi Frakka, og voru margir landsmenn lítt hrifnir, minnugir hernámsáranna. Simamynd Reuter Páfiágóðrileið meðaðverða moldríkur Jóhannes Páll páfi 2. hef- ur gert samn- ing við banda- riska útgáfu- fyrirtækið Alf- red A, Knopf umútgáfuárit- geröum sínum og fær að sögn margar milljónir dollara fyrir. í blaðinu New York Times í gær sagði að ritgeröasafhið yrði gefið út um heim allan i haust. Nafn bókarinnar verður: Farið yfir þröskuld vonarinnar. í bókinni fjallar páfi um ka- þólskuna og tengsl hennar við nútímalíf. Gleymdiafmæli tengdóogmissti eiginmanninn Maður nokkur í Suður-Kóreu hefur fengið leyfi dómstóla til að skilja við eiginkonu sína þar sem hún hafi valdið fjölskyldu hans óhamingju með þvi að vera ekki lún „fullkomna kóreska eigin- kona“. Og hvað gerði konugreyið svo af sér? Jú, hún gleymdi að fara í heimsókn til tengdaforeldra sinna á afmælisdögum þeirra og' hefðbundnum kóreskum frídög- um. Þá sýndi hún ekki minnsta þakklætisvott þegar tengdafor- eldrar hennar komu og réttu hjálparhönd við húsverkin. Þess í stað sat hún inni í herbergi og hlustaði á tónlist. Allt eru þetta fullgildar ástæður fyrir skilnaði, segja dómarar í Suður-Kóreu. Beckett ætlar að berjast gegn vonleysinu Margaret Beckett sagöi í gær að hún ætlaði sér aö kofivarpa vonleysisstefnunni sem íhalds- flokkurinn hefur fylgt í fimmtán ára stjórnarsetu sinni ef hún yrði kvenkyns forsætisráðherra Verkamannaflokksins. Hún viðurkenndi þó að slæmar minningar manna í Verka- mannaflokknum um formennsku nöfnu sinnar Thatcher í íhalds- flokknum gæti gert vonir sínar að engu. Margaret Beckett tók við stjórn Verkamannaflokksins til bráöa- birgða við fráfall Johns Srniths i maí. Húnmun keppa um embætt- ið við þá John Prescott og Tony Blair þegar atkvæði verða greidd þann 21. júlí. Rannsókná morðiColosios ekkiennlokið Carlos Sa- linas de Gort- ari, forseti Mexíkó, vék yf- irmanni rann- sóknarinnar á morðinu á for- setíiframbjóð- andanum Luis Donaldo Colosio úr starfi í gær til að reyna aö bínda enda á grun- semdir manna um að veriö sé að hylma yfir staðreyndir málsins. Yfirmaður rannsóknarinnar sagði í fyrstu að um viðamikið samsæri hefði verið að ræða en síðastliðinn þriðjudag sneri hann við blaðinu og sagöi að morðing- inn hefði veriö einn að verki. „Málinu hefur ekki verið lokað og rannsóknin hefur heldur ekki veriö til lykta leidd,“ sagöi Sa- linasísjónvarpsávarpi. Reuter Mandelakominn heimeftirað- Nelson Mandela, for- seti Suður-Afr- íku, brosti sínu blíðasta i gær þegar hann yf- irgaf sjúkraliús i Jóhannesar- borg þar hann gekkst undir skurðaðgerð á vinstra auga. Læknar fjarlægöu ský á auganu og var Mandela með lepp fyrir því þegar hann fór heim. Tára-' göngin voru einnig löguð þar sem þau skemmdust mikið þegar Mandela var að brjóta grjót í þrælkunarbúðum á Robben eyju undan Höfðaborg. Boraðeftðrsinki ínyrsta hluta Grænlands Kanadisk-grænlenska fyrir- tækið Platinova ætlar að verja sem svarar um eitt hundraö milljónum íslenskra króna í ár til aö bora eftir sinki á Peary Land í nyrsta hluta Grænlands. Áform eru um að bora átta þúsund metra í fimmtíu borholum fyrir ágústlok. Rannsóknir á Peary Land krefj- ast sérstakra ráðstafana vegna þess hve aískekktur staðurinn er. Flutt voru 190 tonn af vörum og 200 þúsund litrar af eldsneyti frá Svalbarða út á ísinn fyrir norðan Peary Land þar sem gerð var flugbraut. Ekki verður ljóst fyrr en á næsta ári hvort sinknám verður stundað þarna. Aldar fl órðungur frá fyrstu tunglgöngunm: Neil Armstrong lætur húll- umhæið framhjá sér fara Neil Armstrong, fyrsti maðurinn til að ganga á tunglinu, býr á bóndabæ í Ohio, er með óskráðan síma og tekur engan þátt í öllum hátíðahöldunum til að minnast tunglgöngunnar fyrir 25 árum, þann 20. júlí 1969. „Hann er mesti einsetumaður þeirra allra. Howard Hughes komst ekki í hálfkvisti við hann,“ segir Dave Garrett, fyrrum talsmaður bandarísku geimvísindastofnunar- innar, NASA, sem vann með Armstr- ong. Tólf bandarískir geimfarar hafa drepið fæti niöur á tunglið en þar sem Armstrong varð fyrstur til þess hefur almenningur verið forvitnari um hann og hagi hans en hinna und- anfarinn aldarfjórðung. Armstrong er ekkert um allt um- stangið gefið og þegar íbúar heima- bæjar hans, Wapakoneta í Ohio, tóku sig til og fóru í skrúðgöngu síðastlið- inn laugardag lét hann ekki sjá sig. Hann hefur einnig látið þau boö út ganga aö hann muni ekki taka þátt í hátíöahöldunum í Washington við hlið hinna geimfaranna. Ekki hefur Armstrong þó alltaf verið svona þögull um þessa frægu göngu sína því hann tók þátt í blaða- mannafundi í beinni útsendingu í Tunglferjan Örninn snýr aftur i geimfarið með þá Neil Armstrong og Edwin jAldrin eftir vel heppnaða lendingu á tunglinu. í baksýn má sjá jörðina rísa upp yfir sjóndeildarhring mána. Simamynd Reuter sjónvarpinu þegar haldið var upp á tuttugu ára afmæli geimferðarinnar árið 1989. Hann sagði að vísu ekki mikið. Þegar Armstrong var spurður hveraig honum litist á tilhugsunina um að fótspor hans yrðu sjáanleg á yfirborði tunglsins næstu árþúsund- in sagði hann: „Ég er nú að vona að einhver fari þangað upp á næstunni tilaðafmáþau." Reuter Finnskirkarlar eiga metið í hjartaáföllum Karlmenn, sem búa í Noröur- Karilíu í Finnlandi, eru tólf sinn- um líklegri til að fá hjartaáfall en kynbræður þeirra í Peking. Þetta kemur fram í rannsókn sem gerð var á vegum alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar, WHO, og gerð var opinber í gær. Þetta er stærsta rannsókn á hiartaá- fólium sem gerð hefur verið og náöi hún til 75 þúsund tilfella á árabilinu 1985 til 1987. Samkvæmt könnun þessari eru konur frá spænska héraðinu Ka- talóníu í minnstri hættu en konur í Glasgow í mestri. Myndlistarmenn vinnaígræn- lensktbjarg islensku listamennimir Öm Þorsteins- son og Páll Guðmundsson eru meðal tólf norrænna myndlistar- manna sem hafa verið aö vinna myndir í fjall eitt við bæinn Qaqortoq á suður- hluta Grænlands. Sýningin hetur hlotið nafhið Steinn og maður og er búist við að hún prani laða ferðamenn til bæjarins. Verkefnið hófst síðastliðið sum- ar og því lýkur nú í ár. Fjölmarg- ir sjóðir hafa styrkt þaö, þar á meöal hefur Norræni menning- arsjóðurinn lagt fram um tvær og hálfa milljón íslenskra króna. Sýningunni er m.a. ætlað aö brjóta menningarlega stöðnun og einangrun Grænlands. Vinnan er öll tekin upp á myndband og verður gerð sjónvarpsmynd fyrir danska sjónvarpið. Reuter, Ritzau

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.