Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1994, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1994
33
Afmæli
Margrét
Hannesdóttir
Margrét Hannesdóttir húsmóöir,
Langholtsvegi 15, Reykjavík, er ní-
ræð í dag.
Fjölskylda
Margrét fæddist á Núpsstað í Vest-
ur-Skaftafellssýslu og ólst þar upp.
Hún giftist 20.9.1930 Samúel Krist-
jánssyni, f. 8.10.1899, d. 1965, sjó-
manni. Hann er sonur Kristjáns
Péturssonar, sjómanns í Grunnavík
og á ísaflrði, og Stefaníu Stefáns-
dótturhúsfreyju.
Börn Margrétar og Samúels eru
Hanna Þ. Samúelsdóttir, f. 22.3.1932,
búsett í Borgamesi, gift Hauki
Gíslasyni en hún á fjögur börn með
fyrri manni sínum, Hreggviði Guð-
geirssyni; Jón Valur Samúelsson, f.
21.8.1933, búsettur í Kópavogi,
kvæntur Lovísu Gunnarsdóttur og
eiga þau þijá syni; Elsa Samúels-
dóttir, f. 23.11.1935, búsett í
Garðabæ og á hún þrj ú börn með
fyrrv. manni sínum, Hreini Árna-
syni; Auður Helga Samúelsdóttir, f.
20.12.1941, d. 15.1.1993, var búsett í
Hafnarfirði, var gift Sverri Lúthers
og eignuðust þau sex börn; Margrét
Samúelsdóttir, f. 11.3.1944, búsettí
Kópavogi, gift Sveini Sveinleifssyni
og eiga þau þrjá syni. Langömmu-
börn Margrétar eru nú tuttugu og
þrjú talsins.
Systkini Margrétar: Dagbjört
Hannesdóttir, f. 29.10.1905, búsett á
Bíldudal; Eyjólfur Hannesson, f.
21.6.1907, búsettur á Núpsstað;
Margrét Hannesdóttir.
Fihppus Hannesson, f. 2.12.1909,
búsettur á Núpsstað; Margrét Hann-
esdóttir, f. 23.12.1910, búsett á
Kirkjubæjarklaustri; Jón Hannes-
son, f. 14.11.1913, búsettur í Reykja-
vík; Málfríður Hannesdóttir, f. 17.12.
1914, búsett í Reykjavík; Sigrún
Hannesdóttir, f. 7.1.1920, d. 1.6.1982,
búsett á Húsavík; Jóna A. Hannes-
dóttir, f. 30.3.1923, búsett í Reykja-
vík; Ágústa Þ. Hannesdóttir, f. 4.8.
1930, búsett í Hafnarfirði.
Foreldrar Margrétar voru Hannes
Jónsson, f. 13.1.1880, d. 29.8.1968,
bóndi og landpóstur á Núpsstað í
Vestur-Skaftafellssýslu, og Þóranna
Þórarinsdóttir, f. 14.5.1886, d. 8.9.
1972, húsfreyja.
Margrét verður með kaffi í safnað-
arheimili Áskirkju kl. 18.00 í dag.
Tapað fundið
Læða tapaðistfrá
Frostaskjóli
Hvít læða með svört eyru, svart skott og
svarta flekki á baki tapaðist frá Frosta-
skjóli um 28. júní sl. Hún var nýílutt í
vesturbæinn og gæti hafa villst. Hún er
eyrnamerkt R 4H073. Ef einhver hefur
séð hana eða veit hvar hún er niðurkom-
in er hann vinsamlegast beðinn að
hringja í hs. 10122 eða vs. 73550.
Tónleikar
Sumartónleikar á
Norðurlandi
3. röð tónleika Sumartónleika á Norður-
landi veröur haldin helgina 15. til 17. júlí.
Þaö eru tónlistarmennirnir Ann Wall-
ström fiðluleikari og Ulf Soderberg, org-
elleikari frá Svíþjóð, sem flytja verk frá
ýmsum tímum. Tónleikar verða í Húsa-
víkurkirkju í kvöld kl. 21, í Reykjahliðar-
kirkju á laugardagskvöld kl. 21 og í Akur-
eyrarkirkju á sunnudag kl. 17.
Sumartónleikar í
Skálholtskirkju
Laugardaginn 16. og sunnudaginn 17. júlí
verða haldnir tónleikar í Skálholtskirkju
Á efnisskránni þessu sinni verða ein-
göngu verk eftir meistara. Flytjendur eru
Bachsveitin í Skálholti ásamt átta söngv-
urrnn undir stjórn Laurence Dreyfus. Á
laugardag kl. 13.30 heldur Laurence
Dreyfus fyrirlestur um kantöntur J.S.
Bach, BWV 5 og 42. Aðgangur á tónleik-
ana ókeypis.
Tilkynningar
Tombóla
Nýlega héldu þessir krakkar, sem heita
Kristófer Jarosz, Alexandra Jarosz og
Viðar Örn Ágústsson, tombólu til styrkt-
ar hjálparsjóði Rauöa kross íslands. Alls
söfnuöu þau 514 krónum.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú verð-
ur á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10. Nýlagað molakaffi.
Sumarhátíð varnarliðsmanna
Varnarhðsmenn halda árlega fjölskyldu-
hátíð sína með „karnival“-sniði laugar-
daginn 16. júli. Hátíöin fer fram í stóra
flugskýlinu næst vatnstanki vallarins og
gefst gestum kostur á aö njóta þar fjöl-
breyttrar skemmtunar fyrir alla fjöl-
skylduna kl. 11-17. Aðgangur er ókeypis
og allir velkomnir.
Lungnabíllinn á ferð
um Island
LungnabíU Samtaka gegn astma og of-
næmi verður staddur í Borgamesi e.h. í
dag, á laugardag á Blöndósi f.h. og Sauö-
árkróki e.h. og á sunnudag á Akureyri.
Samtökin eru 20 ára á þessu ári og vílja
minnast tímamótanna með því að vekja
athygli á starfsemi sinni. í lungnabílnum
eru tæki til lungnamælinga og fleira.
Fjölskylduvika á
Austfjörðum
Þessa dagana er 48 manna hópur ungl-
inga og fullorðinna frá Norðurlöndunum
staddur á Austflörðum að skemmta fólki
með söng, dansi og vitnisburðum. Þessi
hópur er hluti af kristilegu starfi sem
kallar sig King’s Kids International (Kon-
ungsbörn). í dag kl. 14.30 verður útimark-
aður á Egilsstöðum, á laugardag kl. 15
verður sumarmarkaður við Andapollinn
á Reyðarfirði, á sunnudag kl. 16 við
Neistaflugsplanið í Neskaupstað, kl. 11
fjölskyldusamvera í Egilsstaðakirkju og
kl. 16 í Atlavík í Hallormstaðarskógi.
Félag eldri borgara
í Reykjavík og nágr.
Göngu-Hrólfar fara frá Risinu kl. 10 á
morgun í Mosfellsbæ.
Þingvellir-fræðsla
og samverur
Á laugardag og sunnudag efnir Þing-
vahaþjóðgarður til lengri og skemmri
gönguferða, bamasamvera og guðsþjón-
ustu. Þátttaka er ókeypis og öllum heim-
U. Starfsmenn í þjónustumiðstöð veita
upplýsingar.
Félag eidri borgara
Kópavogi
Spiluð verður félagsvist og dansað í fé-
lagsheimih Kópavogs í kvöid kl. 20.30.
Þöh og hljómsveit skemmta. Húsiö öhum
opið.
Fréttir
Það eru timamót þegar veiðimenn veiða maríulaxinn
sinn. Hann Pétur Pétursson veiddi sinn fyrsta lax í
Norðlingafjóti á Devon fyrir skömmu. Fyrst er veiðiugg-
inn bitinn af.
En veiðiugginn er vondur eða segjum bara að hann
smakkist alls ekki vel en maður lætur sig hafa það.
DV-myndir Pétur Gunnarsson
HafQaröará:
250 laxar
komnir á þurrt
„Á þessari stundu hefur Haffjarð-
ará geflð 250 laxa og hann er 16 punda
sá stærsti," sagði okkar maður á
bökkum Haffjarðarár í gærkvöld.
„í ánni er mikið af fiski og smálax-
inn er mættur í þónokkrum mæli.
Útlendingar, sem voru í síðustu viku,
veiddu 100 laxa. Þó veiðimenn veiði
vel hafa margir laxar sloppið á flug-
urnar. Flestir eru laxarnir frá 12 upp
í 16 punda,“ sagði okkar maður. í lok-
in.
Veiddu 11 laxa
í Norðlingafljóti
„Þetta var hörkuveiðitúr í Norð-
hngafljót, við fengum 11 laxa og hann
var 15 punda sá stærsti,“ sagði Pétur
Gunnarsson en hann var að koma
úr Borgarfirðinum fyrir skömmu.
„Við fengum níu á Devon og tvo á
maðk, það er mikið af fiski þarna.
Það er gaman þegar krakkarnir
veiða maríulaxinn sinn. Pétur sonur
minn veiddi maríulaxinn sinn, 11
punda fisk á Devon,“ sagði Pétur.
Veiddi betur en pabbi hans
„Þetta hefur verið góð veiði síðustu
daga, þaö hafa veiðst yfir 20 laxar og
hann er 12 punda sá stærsti," sagði
Símon Sigurmonsson í Görðum á
Snæfellsnesi í gærkvöld.
„11 ára veiðimaður veiddi fjóra
laxa í Lýsuvatni fyrir fáum dögum,
þetta var Haukur Óskar Hafþórsson
en pabbi hans veiddi einn lax. Það
er mikið af fiski komið á svæðið. Sil-
ungsveiðin hefur verið htil það sem
af er veiðitímanum en fiskurinn er
stærri," sagði Símon i lokin.
Veiðivon
Gunnar Bender
Stóra-Laxá í Hreppum
hefur gefió100 laxa
„Stóra-Laxá í Hreppum er komin
með 100 laxa og hann er 21 pund sá
stærsti, svæði fjögur hefur gefið
best,“ sagði Jón Gunnar Borgþórs-
son, framkvæmdastjóri Stangaveiði-
félags Reykjavíkur, í gærkvöld.
„Veiðimenn, sem voru að koma úr
Miðá í Dölum, veiddu 10 laxa og 3
bleikjur en áður en þeir komu á
svæðið var kominn einn lax á land.
Norðurá í Borgarfirði hefur gefið
630-640 laxa,“ sagði Jón Gunnar í .
lokin.
Fundu spúnna í Flókadalsá
„Það er mikih lax í Flókadalsá en
hann tekur mjög hla, sérstaklega
maðkinn,” sagði Ingvar Ingvarsson á
Múlastöðum í gærkvöld.
„Það eru komnir 70 laxar á land
og hann er 14 punda sá stærsti enn-
þá, Helgi Sigurðsson veiddi fiskinn.
Við höfum fundið spúnna á tveimur
stöðum í ánni, á Pokabreiðu og í
Hjálmfossi. Það er skrítið því spúnn
er alveg bannaður í Flókadalsá. Við
hjónin vorum fyrir skömmu við veið-
ar og settum í tíu laxa en náðum
aðeins tveimur. Ég var meö tvo lax-
ana á í 15 mínútur en þeir sluppu af,
blessaðir. Guðmundur Svavarsson *
er hérna við veiðar núna og er búinn
að veiða fimm laxa áðan, fjóra á
maðk og einn á flugu,“ sagði Ingvar.
Rangámar:
19 laxar og 19 punda
„Það er sama fjörið hjá okkur á
bökkum Rangánna, í morgun veidd-
ust 19 laxar og hann var 19 pund sá
stærsti," sagði Þröstur Elliðason á
bökkunum í gær.
„Núna eru komnir á land 250 laxar
og það er sama góða veiöin áfram
hjá okkur. Veiðimenn sem voru
hérna í morgun veiddu 9 laxa í beit,“
sagði Þröstur.
Stangafestingar á bíla
(sogskálar)
Góðar Neoprenevöðlur, kr. 13.900
LAUGAVEGI 178, SÍMAR 16770 - 814455, FAX 813751
markaðstorg
tækifæranna