Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1994, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1994, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1994 Neytendur Áttatíu bifreiðaverkstæði annast endurskoðun: Misvandaðir aðilar standa í svona rekstri - segir Karl Ragnars hjá Bifreiðaskoðun íslands „Það eru um 80 fyrirtæki sem hafa útbúið sig sérstaklega til þess að taka bíla í endurskoðun. Önnur bifreiða- verkstæði á landinu skipta eflaust hundruðum og eins og víða eru það misvandaðir aðilar sem standa í þessum rekstri. Maður heyrir alls konar sögur frá fólki sem telur sig hafa verið hlunnfarið og sérstaklega er það svarta starfsemin sem er var- hugaverð," sagði Karl Ragnars hjá Bifreiðaskoðun íslands þegar hann var spurður hvort hver sem væri mætti gefa sig út fyrir að „gera bíl kláran" fyrir aðalskoðun og að taka bíla í endurskoðun. Töluverð brögð eru að því að fólki finnist á sér brot- ið hjá bifreiðaverkstæðum vítt og breitt um landið. Neytendasíðunni berast kvartanir og fólki finnst það vera varnarlaust gagnvart háum reikningum og á stundum ófullnægj- andi viðgerð. 80 þúsund króna viðgerð „Maður hefur ekki vit á því sem verið er aö gera og neyðist til þess aö borga það sem upp er sett hversu svívirðilegt sem manni kann að þykja það,“ sagöi einn viömælandi DV. Hann sagðist hafa fariö með bíl- inn sinn í viðgerð til þess að hann kæmist í gegnum skoðun, borgað 80 þúsund krónur fyrir það og samt ekki fengið skoðun vegna þess að ekki voru til tilskilin bremsumæling- artæki á verkstæðinu. „Mér var ekki sagt aö þeir gætu ekki gert allt sem gera þurfti og mér finnst ástæða til þess að vara fólk við þessu. Fólk áttar sig kannski ekki á því að Bifreiðaskoðun er t.d. með sérstök mælitæki til þess að kanna bremsur. Ef þau eru ekki til staöar „Maður hefur ekki vit á því sem verið er að gera og neyðist til þess að borga það sem upp er sett hversu svi- virðilegt sem manni kann að þykja það,“ sagði einn viðmælandi blaðsins. á verkstæðum skil ég ekki í því að þau geti gefið sig út fyrir að taka bíla í slíkt tékk.“ Jóhannes Gunnarsson hjá Neyt- endasamtökunum sagðist ekki kann- ast við að til væru reglur um hvað mönnum væri heimilt að gera í slík- um tilvikum en sagði hins vegar að ef fyrirtæki auglýstu eitthvað sem þau gætu ekki staðið við varðaöi það við lög. Allir mega gera klárt fyrir skoðun: Þarf ekki sérstakt leyfi - segir Jónas Þór Steinarsson hjá Bílgreinasambandinu „Nýjar reglur hafa verið settar um það hveijir megi taka bíla í endur- skoðun. Þau fyrirtæki, sem hafa gert það hingað til, hafa leyfi til þess áfram til næstu áramóta. Að þeim tíma hðnum þurfa þau að hafa geng- ið í gegnum sérstakt námskeiö sem við höldum fyrir þessi verkstæði. Síðan þurfa þau að standast úttekt hjá löggildingarstofu," segir Jónas Þór Steinarsson, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins. Hann segir hins vegar að hver sem er geti tekið bíl í gegn fyrir skoðun og þarf ekki til þess sérstakt leyfi. „Þú nefnir bremsur og hingað til hafa menn getað gert við þær án þess að hafa þar til gerð mælitæki. Fáir eru með græjur til þess að mæla bremsuhæfni og auðvitað getur eitt- hvað verið að þótt menn telji sig hafa gert við. Þessir hlutir eru að þróast mjög hratt þessa mánuðina og við eigum eftir að sjá mun fullkomnari verkfæri á fleiri verkstæðum á næst- unni,“ segir Jónas. Islenskar rófur H Hæsta 0 Næst □ Lægsta lægsta Hagkaup 120% Verslanlr I könnuninni Hagkaup(99) Bónus (45) Fjaröarkaup (74) Garðakaup (78) Nóatún (49) 10-11 (98) Kjöt og fiskur (89) ■ —miá Áskriftargetraun DV: Ómögulegt að fá ekki blaðið - segir vinningshafi „Þetta á svo sannarlega eftir að koma sér vel,“ sögðu Guðfinnur Jónsson og Helga Dagmar þegar þau tóku á móti verðlaunum í áskriftar- getraun DV. Dregnir voru út 6 heppnir áskrifendur og hver og einn hlýtur 30 þúsund króna úttekt í 10-11. „Þetta er enn ánægjulegra í ljósi þess að við sögðum blaöinu upp í vetur en eftir einn mánuð fannst okkur ómögulegt að fá ekki blaöiö sent heim. Við höfum aldrei fengið vinning af þessu tagi áður og erum í sjöunda himni." Guðfinnur og Helga Dagmar taka hér við skjalinu ásamt dótturinni Lovísu Dagmar. DV-mynd BG Grill- rétta- sam- keppn- in Hér birtast uppskriftimar sem lentu í 4. og 5. sæti í grillupp- skriftasamkeppni Nýrra eftirlæt- isrétta, DV, Bylgjmmar, Shell, Bílaleigu Akureyrar, Ferðaþjón- ustu bænda og SS en þær sem lentu í 1.-3. sæti voru birtar fyrr í vikunni. Það var Guöríður Pálmadóttir, Hraunbæ 16 í Reykjavík, sem lenti í 4. sæti með „fyllingar í pítubrauð" og Jóhann G. Gunn- arsson, Litlabakka á Egilsstöð- um, sem lenti í 5. sæti með „grill- pylsur í vafningi.“ Báðar eru upp- skriftirnar frumlegar og afar bragðgóðar. Fyllingar i pítubrauö 4 pítubrauð 3 bananar 1 Vi tsk. karrí 200 g ostur Sneiöið banana, skerið ostinn í litla bita og blandið öliu saman við karrí. Setjið í pítubrauð og grillið í stutta stund á báðum hliðum. 4 pítubrauð 8 skinkusneiðar 200 g ostur 4 tómatar 1 gul paprika Sneiðið tómatana og skerið pa- prikuna, skinkuna og ostinn í litla bita. Blandið öllu saman, setjið í pítubrauð og grillið í stutta stund á báðum hliöum. Grillpylsur í vafningi Deig fyrir u.þ.b. 20 pylsur: 5 dl heilhveiti 2 tsk. sykur 2 Vj tsk. þurrger 2 dl volgt vatn 2 msk. ólífuolía Hnoðiö öllu saman og setjiö í plastskál meö loki og látið lyfta sér í u.þ.b. 10 minútur í vel volgu vatni. Fletjið svo deigið út og skerið í passlegar lengjur sem síðan eru smurðar meö blað- lauksosti og vafðar utan um pyls- umar. Grillið í u.þ.b. 5-10 minút- ur en gott er aö smyrja grillgrind- ina meö oliu áður en grillað er. Pylsurnar eru borðaðar einar sér eða skornar í bita sem pinnamat- ur. Gómsætur eftirréttur Ef afgangur er af deiginu úr uppskriftinni hér að ofan má nota hann í gimilegan eftirrétt og slá þannig tvær flugur í einu höggi. Vefjið því utan um banana og setjiö plötu af After eight súkkul- aði með. Setjið á grillið og berið fram með þeyttum ijóma eða ís. Mjög Ijúffengt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.