Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1994, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1994, Page 22
22 FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1994 Sérstæð sakamál Hjálp, þeir skutu á mig Á laugardögum er mikið um að vera á Venture-kránni í vestur- hluta Bristol í Bretlandi. Hún er vinsæl, og það er einkum ungt fólk sem sækir staðinn. Til þess aö mæta kröfum unga fólksins og auka aösóknina leikur þar hljóm- sveit síðdegis þennan dag vikunnar og skiptast ýmsar rokksveitir á að taka að sér hlutverkið. Kráreigandinn, Brian King, og kona hans, Júlía, eru sammála um að hugmyndin um að láta hljóm- sveitir leika þar sé góö, en engu aö síður kýs Júlía helst að vera laus við að vera á kránni heilt laugar- dagssíðdegi því hávaðinn er þá oft meiri en hún getur með góðu móti sætt sig við. Og þar eð sérstakir starfsmenn eru ráðnir á þessum tíma grípur hún venjulega tæki- færið til að fara upp í htlu íbúðina fyrir ofan krána og taka til, en oft fer hún þó fyrst út og gerir inn- kaup. Árásin Laugardagurinn sem hér segir frá var eins og að ofan greinir. Júl- ía fór úr kránni nokkru eftir há- degi, eða um það leyti sem rokk- sveit fór að láta til sín heyra. Hún fór upp á efri hæðina, en hún fékk ekki að vera þar lengi ótrufluð. Nokkru eftir að hún fór að taka til klifruðu tveir ungir menn yfir grindverkið bak við húsið. Hávaö- inn frá sveitihni sem lék á kránni var slíkur að enginn heyröi þegar þeir brutu upp hurð efst við tröpp- umar að húsabaki. Þeir gengu síð- an upp á hæðina þar sem þeir rudd- ust inn í íbúðina og allt í einu stóöu þeir aughti til aughtis við JúUu. „Hvað eruð þið aö gera hér uppi?“ spurði hún. „Þið eigið ekkert erindi hér. Þetta er einkaíbúð." Hún hafði varla sleppt orðinu þegar hún stífnaði. Hún horfði beint inn í hlaupið á hlaupstuttri haglabyssu. Skelfd hörfaði hún nokkur skref aftur á bak, en þá hrópaöi sá af þeim tveimur sem eldri var: „Hvar era peningamir? Við viljum fá peningana. Annars skjótum við þig.“ Tólf pund „Hér eru engir peningar,“ svaraði Júlía skjálfrödduö. Henni varð þó þegar ljóst að gestirnir óboðnu trúðu henni ekki. „Ljúgðu ekki að mér, kerUng," sagöi þá sá eldri og sló hana í höfuð- ið með haglabyssunni. Svo endurt- ók hann: „Hvar eru peningarnir?" „Það sem til er er í töskunni minni," svaraði JúUa þá. Yngri maðurinn sá hvar taskan lá á sófanum. Hann þreif hana og tæmdi. í henni reyndust vera tólf pund. Hann varð bálreiöur. Það var sem báðir mennirnir tryðu því aö mikið fé væri geymt í íbúðinni. Hvorugur þeirra gerði sér grein fyrir því aö Brian, maður JúUu, geymdi þar aldrei fé, heldur fór með það í lok hvers dags í tösku sem hann lagði í geymsluhólf í banka. Sá eldri sló nú JúUu aftur með haglabyssunni og krafðist þess að fá að vita hvar peningamir væm geymdir. En hún svaraði ætíð á sömu leið, að enga peninga væri að finna þama í íbúðinni. Þá var hún slegin aftur, og svona gekk það nokkrum sinnum. Skot í kveðjuskyni Það blæddi nú úr JúUu og hún var við að missa meðvitund. Hún reyndi að hrópa, en vissi það myndi Utið þýða því ekki myndi heyrast til hennar vegna hávaðans í rokk- Júlía King. sveitinni niðri á kránni. Það skipti því engu þótt maður hennar væri svo nærri. Hann myndi ekki heyra til hennar. Loks hætti eldri maðurinn að slá Júhu. Þá var hún orðin viss um aö þeir myndu ekki skilja við sig lif- andi. „Það eru engir peningar hér,“ sagði nú sá yngri. „Komum okkur héðan.“ Sá eldri þagði augnablik en gekk svo í gtt til dyranna. Þá gerði JúUa hættuleg mistök. Hún notaði sína síðustu krafta til lyfta sér upp á olnbogann tíl að sjá hvort hinir óboðnu gestir væru í raun að fara. Vart hafði hún gert það þegar hún heyrði þungan hveU og fann tU mikUs sársauka á ýmsum stöðum ofan mittis. Sá eldri með byssuna hafði snúið sér við og skotið á hana. Hjálparvana JúUa lá á gólfinu, um sex metra frá dyrunum. Að skotið var á hana úr hlaupstuttri haglabyssu leiddi tíl þess að högUn dreifðust mjög er þau komu úr hlaupinu og því hittu tUtölulega fá þeirra hana. Klukkan var um hálftvö þegar þetta gerðist. í stundarfjórðung hafði hún verið augliti tU aughtis við ódæðismennina, en sá tími fannst henni sem heil eilífð. Nú lá hún hjálparvana á góUinu og sá enga leið tU þess að kaUa á hjálp eða vekja á sér athygU. Af og tU missti hún meðvitund, jafnframt því sem hún missti blóð. Er hún hafði verið meðvitundar- laus um stund rankaði hún skyndi- lega við sér. Hún heyrði eitthvert hljóö, en gat í fyrstu ekki gert sér grein fyrir því hvað það var. Svo varð henni ljóst að síminn var að hringja. Hún reyndi að teygja sig í hann, en sá þá að hann var svo langt í burtu að hún myndi ekki ná til hans. Henni fannst nú sem sér væru allar bjargir bannaðar. Fann ráð í nokkur augnablik lá JúUa ráða- laus á gólfinu. Þá tók hún aUt í einu eftir símasnúrinni. Hún lá á gólfinu innan seiUngar, og eftir nokkrar tílraunir tókst henni að ná í hana og toga símann ofan af borði. Um leiö fór tóUð af. Hún gat náð í það og bar að eyra sér. Þá reyndi hún að segja „HaUó?“ en varimar vom svo bólgnar og hún svo máttfarin að tvítug tengadóttir hennar, Margaret, sem var að hringja, gat ekki gert sér grein fyrir því hvað hún var að segja. „Hjálpaðu mér,“ gat JúUa loks stuniö upp, en sem fyrr gat Margar- et ekki skilið hana. Hún gerði sér þó ljóst aö eitthvað var að og þegar JúUu tókst loks að segja: „Hjálp, þeir skutu á mig!“ vissi Margaret að hjálpar var þörf í skyndi. „Ég skU,“ -sagði hún við tengda- móður sína. „Þú færð hjálp.“ Svo Brian King. Steve Henderson. Roger Marshall. Margaret King. lagði hún á og hringdi á lögreglu og sjúkrabU. „Hér erekkert að“ Tveir lögreglubílar vom sendir á staðinn. Nokkrum mínútum síðar komu tveir lögregluþjónar inn á krána. Brian, maður Júlíu, gekk tU móts við þá og spurði hvað um væri að vera. Þeir sögöu honum frá tilkynningunni. „Hér er ekkert að,“ svaraði Brian þá. „Og uppi á lofti er bara konan mín.“ Hann hafði þó varla sleppt orðinu þegar honum varð ljóst að hún kynni að vera í hættu. Hann bað lögregluþjónana að koma með sér. Þeir héldu saman að bakdyrunum, og þá varð ljóst að hurðin hafði verið brotin upp. Brian hljóp upp á efri hæðina og lögregluþjónamir á hæla honum. Á gólfmu lá Júlía, blóðug, bólgin og vart mælandi. Það eina sem hún sagði sem skildist var: „Hjálpið mér!“ Augnabliki síðar leið yfir hana og komst hún ekki aftur til meðvitundar í íbúðinni. Nú kom sjúkrabíU og var Júlía þegar í stað flutt á slsyadeUd. Þar var gerð á henni aðgerð og höghn fjarlægö úr henni, blæðingar stöðv- aðar og gert að sárum hennar. Var ljóst að hún var handleggs- og kjálkabrotin, en var að auki með ýmsa minni áverka. Hún var þó ekki í lífshættu. Haröir dómar Tæknimenn rannsóknarlögregl- unnar grandskoðuðu íbúðina fyrir ofan krána. Þar fundu þeir mikið af fingraforum á hurð, tröppu- handriði og á nokkrum öðrum stöðum. Þegar þau lágu fyrir var farið með þau í fingrafaradeUdina og gerður samanburður á þeim og fingrafórum manna sem fengið höfðu dóma. Kom þá í ljós að þau voru af tveimur ungum mönnum, Steve Henderson, sem var tuttugu og sex ára, og Roger Marshall, tutt- ugu og ijögurra ára. Báðir höfðu áður lent í höndum lögreglunnar fyrir ofbeldisverk. Leit hófst nú aö mönnunum og fannst annar þeirra, Marshall, í Bristol þremur dögum eflir árás- ina. Tveir dögum síðar fannst Henderson. Júlía var síðar látin skoða mynd- ir af þeim til segja til um hvort þetta væru ekki mennimir sem hefðu ráðist á hana og staðfesti hún það. Eftir varðhaldsvist var gefin út ákæra á hendur þeim Henderson og Marshall. Tveimur mánuðum eftir handtökuna komu þeir fyrir sakadóm í Bristol. Varð lítið um vörn af hálfu þeirra og veijenda þeirra enda erfitt að finna nokkuð sem gæti orðið sakborningunum til málsbóta. MarshaR fékk sjö ára dóm fyrir þátttöku sína í vopnuðu ráni og iilri meðferð á Júlíu. Henderson, sem var sá sem látið hafði höggin dynja á henni og skaut á hana, fékk hins vegar tíu ára dóm, enda var hann jafnframt ákærður fyrir morðtil- raun. Þannig urðu dómamir yfir mönnunum sem héldu sig geta stol- ið stórri fjárhæð í skjóli hávaða á laugardagssíðdegi en náðu aðeins í tólf pund. „Það er heldur lítið tímakaup þegar fangelisdvölin er höfð í huga,“ sagði einn þeirra sem vom viðstaddir réttarhöldin þegar hann gekk út úr dómssalnum. Og vafalaust verður þaö ungum mönnum umhugsunarefni eins og fleira sem tengist þessu árásarmáli sem hefði getað fengið enn verri endi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.