Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1994, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1994, Side 27
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ1994 43 „ísland, sækjum það heim með fullar hendur fjár,“ tautaði Nökkvi læknir á ferð sinni um landið. Á sóðaleg- um bensín-hamborgarastað hitti hann roskna konu með beinþynningu. Beinþynning, kalk og konur Nökkvi læknir hlýddi kalli lúð- urþeytara úr heimi auglýsinganna og sótti ísland heim fyrir nokkru. Hann þeysti glaður af stað á skítug- um smábíl til að kanna hvort land- ið væri ennþá fagurt og frítt og fannhvitir jöklanna tindar. Nökkvi virti fyrir sér fjöll út um bílglugga, skoðaði fossa með einbeittum Þjóð- verjum og gamlar kirkjur með elli- lífeyrisþegum á ferðalagi. Á kvöld- in lagðist hann þreyttur til hvílu á gistiheimili í rúm sem smíðað hafði verið fyrir örmjóa (50 kg) og smá- vaxna (168 sm) unglinga. Sums staðar voru herbergin eins og hvít- málaðir fangaklefar með óhugnan- legum flúrósentljósum í loftinu. Á laáknavaktiiini Fullur af bjartsýni og trú á landið sitt lagði hann sér tii munns það sem íslenska þjóðin seldi honum við vegkantana; pylsur, ömurlegar samlokur og andstyggilega kjúkl- ingabita sem löðruðu í þrárri feiti. Hann greiddi það sem upp var sett sem venjulega var langt yfir gang- verði matvæla í hinum siömennt- aðaheimi. „ísland, sækjum það heim með fuílar hendur fiár,“ tautaði hann fyrir munni sér meðan hann greiddi fyrir gistinótt í skólahús- næði andvdröi hótelherbergis á Manhattan. Á sóðalegum bensín- hamborgarastað hitti hann fyrir þybbna roskna konu með rósótta svuntu við afgreiðslu. Hún hrærði kæruleysislega í stórum potti með frönskum kartöflum og sneri við hamborgararæfli á hitaplötu meö hinni hendinni. Hún kveinkaði sér við þessar hreyfingar og sagði þá: „Ég er orðin svo slæm í bakinu og þoli varla lengm: að standa við af- greiðslu." „Hvað er að þér?“ spurði læknirinn og tuggði gúmmíkennd- ankjúkhngaleggafáfergju. „Á síð- ustu árum,“ sagði konan, „er eins og ég hafi skroppið saman. En fyrir 6 mánuðum fékk ég skyndilega mikinn verk í mjóbakið. Læknir- inn sagði mér að samfall hefði orð- ið á einhverjum hryggjarhðum vegna úrkölkunar í beinum. Þetta er orðið ansi slæmt.“ Verndandi áhrifkvenkyns- hormónsins „Já,“ sagðiNökkvi. „Úrkölkun beina eða osteopórósa eins og ástandið kallast á erlendum málum er býsna algengt fyrirbæri, sér- staklega hjá konum yfir ákveðnum aldri. Öll bein líkamans eru lifandi vefur í stöðugri endurnýjun. Kalk og fosfór bindast saman í örsmáum beinkristöllum sem eru meginefni beinanna. Líkaminn þarf því stöðr ugt bæði kalk og D-vítamín til við- halds og endurnýjunar. Talið er að dagsþörf fullorðinna sé tæplega eitt gramm af kalki. Við tíðahvörfin skreppa eggjastokkarnir saman, rýrna og hætta að framleiða kven- kynshormón. Þetta hefur mikil áhrifá kalkbúskapinn. Östrogen hraðar frásogi kalks úr melting- unni, hægir á útskilnaði kalks gegnum nýrun og er nauðsynlegt fyrir eðliiega beinmyndun. Þegar dregur úr östrogenframleiðslu konunnar nýtir hún verr kalkið í fæðunni og missir kalk út úr líkam- anum í þvaginu. Þetta verður til þess að beinmassinn þynnist og beinin veröa stökk og brothætt við minnsta hnjask. En fleira kemur til en östrogenskorturinn einn. Margt bendir til þess aö nútíma- konur fái ekki nægilega mikið af kalki í fæðunni. Mjólkurneysla fullorðinna og unglinga hefur minnkað mikið á síðustu árum en mikið er af kalki í mjólkurafurð- um. Á seinni árum hafa margar ungl- ingsstúlkur farið aö drekka alls konar diet-drykki í staðinn fyrir mjólkurvörur. Þetta getur haft al- varlegar afleiðingar síðar á ævinni sakir þess að þær byggja ekki upp kalkforðann í beinunum. Margar konur hreyfa sig htið en öll líkams- hreyfing styrkir beinagrindina og hindrar beinþynningu. Miðaldra konur eru oft í megrun sem gengur á kalkbirgðimar. Endurteknar þunganir ganga á kalkforðann. Þegar allir þessir þættir leggjast á eitt er skiljanlegt að mjög margar miðaldra og eldri konur verði fyrir beinbrotum og þær virðast minnka í ellinni vegna þess að hryggsúlan gengur saman. Ástæðan er sú að kalkmagn beinanna minnkar og þau standast ekki þunga og álag daglegslífs." Meðferð Nökkvi þagnaði um stund og fékk sér lúkufylh af frönskum. Þær voru brimsaltar og löðurfeitar. Hann kyngdi og hélt síðan áfram: „Það er erfitt að beita einhverri meðferð þegar beinþynning er orðin veru- leg. Ýmiss konar verndandi að- gerðir koma til greina. Östrogen- meðferð eftir tíðahvörf kemur í veg fyrir beinþynningu. Margir vilja láta gefa konum aukakalk svo að þær fái í sig minnst 1,5 g daglega. Það er auðveldast með kalktöflum en best er að auka verulega neyslu á kalkríkum mat eins og léttmjólk eöa mysu. Foreldrar ættu að sjá til þess að unglingsstúlkur drekki undanrennu eða léttmjólk en ekki kalksnauða gosdrykki. Ég ráðlegg auk þess öhum konum að auka lík- amshreyfingu og æfingar th mik- iha muna, enda styrkir slíkt beina- grindina mjög.“ „Já,“ sagði konan og velti hamborgaranum við einu sinni enn. „Þetta eru svipuð ráð og þeir gáfu mér fyrir sunnan. En þetta er erfitt.“ Hún skenkti manni á disk og kom síðan aftur til Nökkva. Hann dró upp veskið sitt og borgaði fyrir matinn það sem upp var sett. (Kjúkhngar með frönskum og sósu plús bragðlaust gos úr gosvél; 2000 kr.) Fitubragðið af kjúklingunum hvarf ekki fyrr en hann var kominn langleiðina th Reykjavíkur. „Næst hef ég með mér nesti, sefítjaldiogfer um landið á hjóli," sagði hann við sjálf- an sig. „Hin margrómaða íslenska gestrisni er orðin svo ótrúlega dýr. Svona er feðranna frægð, fallin í gleymskuogdá.“ ^ NESJAVALLAVIRKJUN Gestamóttaka í Nesjavallavirkjun verður lokuð frá kl. 17.00 föstudaginn 29. júlí til kl. 10.00 þriðjudaginn 2. ágúst nk. Hitaveita Reykjavíkur Vinningstölur .... miðvikudaginn: 27, lul' 1994 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING [| 6af6 4 47.572.500 CJt 5 af 6 LÆ+bónus 0 880.814 E1 5 af 6 8 86.508 3 4af6 529 2.081 f=|| 3 af 6 CÆ+bónus 2.080 227 ntl/inninaur: lor 111 "me9S (2) og Sviþióðar p). Aðaltölur: Heildarupphæð þessa viku: 193.435.887 á isi.: 3.145.887 UPPLÝSjNGAR, SÍMSVARI 91- 68 15 11 LUKKULINA 99 10 00 - TEXTAVARP 451 BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR HVAM5VÍK VciHiliiiiariiiuiiualid^iii í Hvammsvik Ameríkuferð 30 merktum fiskum verður sleppt í vatnið frá 28. júlí til 29. september. Dregið verður úr merktum fiskum. Sá heppni hlýtur flugfar til einhvers af áfangastöðum Flugleiða. Veiðið fiskinn og grillið á staðnum. •HHI ♦ G»l.l ♦ vUUVHtA Næg tjaldstæði. Inni- og útigrill. Golf og hestar. Upplýsingar í síma 667023. Smáauglýsingadeild //////////////////////////// Verslunarmannahelgin Opið: föstudag frá kl. 9-22. Lokað: laugardag, sunnudag og mánudag. Næsta blað kemur út þriðjudaginn 2. ágúst. Akið varlega og góða ferð! smáauglýsingadeild Þverholti 11 - sími 632700

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.