Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1994, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1994
13
Breytingar
á kosningalögum
Nú þegar Jón Baldvin hefur kné-
sett Davíð Oddsson og látið hann
hætta við haustkosningar hefur
vaknað umræða um breytingar á
kosningalögum.
Núverandi kosningalög voru sett
í samkomulagi milli stjórnarflokk-
anna. Þau eru vel brúkleg og gæta
fyllsta jafnvægis milh stjómmála-
flokkanna en þar sem þeim var
einnig ætlað að varðveita nokkurt
misvægi atkvæða milli kjördæma
eru þau flókin og ógegnsæ. Það
stafar af flóknum reglum um út-
hlutun jöfnunarsæta en hvert kjör-
dæmi leggur til uppbótarsæti, eitt
eða fleiri.
Misvægi atkvæða
Misvægi atkvæöa milli kjör-
dæma hefur aukist mjög vegna
búsetubreytinga frá setningu lag-
anna og er eðlilegt að athugað sé
hvernig það megi leiðrétta án þess
að gjörbylta kosningareglum eða
kjördæmaskipan. Mikilvægt er að
um breytingar náist samkomulag
aUra flokka.
Ekki er líklegt að samkomulag
verði um fækkun þingsæta. Núver-
andi kjördæmaskipun er orðin föst
í sessi og óUklegt að samkomulag
verði um breytingar á henni. Ekki
þýðir að tala um röskun á vægi
miUi flokka. Ég tel að markmið sem
reynandi væri að ná samkomulagi
um væri jöfnun vægis milli kjör-
dæma og í öðru lagi að auka áhrif
kjósenda á val þingmanna.
Eins og málum er háttað Uggur
fyrir að á næsta kjörtímabili verði
meirihluti þingmanna úr R kjör-
dæmunum en þar búa 2/5 kjósenda.
Hugsanlegar breytingar
Misvægið má lagfæra með eftir-
KjaHaiinn
Páll Pétursson
alþingismaður
farandi hætti: Úthluta kjördæma-
sætunum samkvæmt reglu D.
Hont, fjölga kjördæmakjörnum
þingsætum um tvö í Reykjavík og
eitt á Reykjanesi og kjördæmis-
binda flakkarann. Nú eru uppbót-
arþingmennirnir kjördæma-
bundnir. Ef kjördæmabandið væri
leyst og jöfnunarsætum úthlutað
samkvæmt atkvæðaöflun féllu þeir
í hlut fjölmennustu kjördæmanna.
Hefði þessi regla gilt um síðustu
kosningar hefði útkoman orðið sú
að 26 þingmenn hefðu verið í fram-
boði í dreifbýliskjördæmunum og
hefðu ca 2500 atkvæði að baki sér
til jafnaðar en 37 þingmenn hefðu
boðið sig fram í R kjördæmunum
og hefðu 2850 atkv. a bak við sig til
jafnaðar. Þetta er leiðrétting sem
telja verður viðunandi og ætti að
vera ásættanleg fyrir alla stjórn-
málaflokka.
Þess ber að geta að þetta hefði
ekki raskað að marki þingmanna-
tölu flokkanna frá því sem varð
samkvæmt gildandi lögum.
Aukið valfrelsi kjósenda
Varðandi aukið persónukjör þyk-
ir mér finnska kosningakerfið álit-
legast. Þar bera flokkarnir fram
óraðaða lista en kjósandi verður
að merkja við þann frambjóðanda
sem hann vill helst á þeim lista er
hann kýs. Þar með ákvarðast röð
fulltrúa á listanum í kjörklefanum
samkvæmt þeim krossafjöida sem
hver frambjóðandi hiýtur. Þar með
yrðu prófkjör úr sögunni.
Páll Pétursson
„Núverandi kjördæmaskipun er orðin
föst 1 sessi og ólíklegt að samkomulag
verði um breytingar á henni. Ekki þýð-
ir að tala um röskun á vægi milli
flokka.“
Ólafur Ragnar fer á ball
Kjallarinn
að mögulegt framboð Jóhönnu Sig-
urðardóttur tók miklu meira fylgi
af bæði Alþýðubandalaginu og
Sjálfstæðisflokknum en til dæmis
Alþýðuflokknum. Og nú uppgötv-
aði Ólafur Ragnar allt í einu að
hann var staddur á vitlausu balli.
Á einum degi skipti hann um
skoðun og þar með dansfélaga.
Björn Bjarnason var ekki lengur
heppileg dama og var kastað eins
lætur ekki taka sig á löpp af gæjum
sem daðra bara í fjölmiðlum en
gleyma að senda boðskortið á ball-
ið,
Ólafi Ragnari hefur að vísu tekist
að skyggja á Jóhönnu með því að
gera hana að aukanúmeri á ballinu
og sjálfan sig að eins konar Sæma
rokk hinnar nýju hreyfingar. En
um leið hefur hann breytt ballinu
í hálfgildings líkvöku þar sem eng-
„Ólafi Ragnari hefur að vísu tekist að
skyggja á Jóhönnu með því að gera
hana að aukanúmeri á ballinu og sjálf-
an sig að eins konar Sæma rokk hinnar
nýju hreyfmgar.“
Þegar í ljós kom við síðustu
þingkosningar að fyrri ríkisstjórn
hélt meirihluta sínum greiddi ég,
ásamt Sigbirni Gunnarssyni og
Gunnlaugi Stefánssyni atkvæði
gegn því að mynda ríkisstjórn með
Sjálfstæðisflokki. Aðrir voru á
annarri skoðun, meðal annars Jó-
hanna Sigurðardóttir sem á þeim
tíma gat ekki hugsað sér að starfa
aftur með Ólafi Ragnari Grímssyni.
Ólafi Ragnari gramdist það eðli-
lega; hann var - a.m.k. þá - sömu
skoðunar og ég, að framvindan
myndi að lokum leiða flokka okkar
beggja í sama farveg.
Það kom því mörgum á óvart
þegar Ólafur Ragnar hóf að bjóða
Sjálfstæðisflokknum upp í dans
með tilþrifum sem minntu helst á
stegg ónefndrar andategundar að
vori. Hann samdi stefnuskrá í at-
vinnumálum sem Morgunblaðið
lýsti sem atvinnustefnu hægri
sinnaðs miðjuflokks. Hann hætti
að vera á móti Nató og tók upp þá
skoðun Bjöms Bjarnasonar að
Nató væri í rauninni eins konar
friðarbandalag.
í kjölfarið skrifaði Björn Bjarna-
son sig á danskortið hjá formanni
Alþýðubandalagsins og í sölum al-
þingis hófst varfærið tilhugalíf
þeirra félaga, sem minnti helst á
unglinga sem voru ekki alveg viss-
ir um að þeir væru ástfangnir.
Á vitlausu balli
Dansæfingar vinanna leiddu til
Össur Skarphéðinsson
umhverfisráðherra
þess að í sumar hóf Ólafur Ragnar
að hrósa Davíð Oddssyni á hvert
reipi en réðst harkalega að Alþýðu-
flokknum. Hina vel æfðu sam-
kvæmisdansa átti svo að frumsýna
í kjölfar haustkosninga, þegar
Bjöm og Ólafur Ragnar hugðust
koma á samstarfi flokka sinna um
stjórn landsins. - Alhr vita hvernig
því lyktaði; hin „hannaða atburða-
rás“ sprakk með hvelli, það urðu
engar haustkosningar.
En um leið gerðist það að skoð-
anakannanir settu alvarlegt strik í
framtíðardans formanns Alþýðu-
bandalagsins. Þær sýndu nefnilega
og tusku út í horn. Nú vildi for-
maður Alþýðubandalagsins bara
rokka með Jóhönnu Sig. í „sam-
fylkingu félagshyggjuaflanna".
Sæmi rokk
félagshyggjunnar
GalUnn var bara sá að Jóhanna
viU ekki vera ein í þessu komp-
ann. Hún vUl helst hafa Alþýðu-
flokkinn með en það vUl Ólafur
Ragnar ekki. Hún vUl ekki heldur
láta sjá sig á sama balh og formaö-
ur Alþýðubandalagsins nema þar
sé Uka siðgæðislögga í gervi
Kvennalistans. En Kvennalistinn
inn mun aö lokum dansa þó rokk-
arinn standi gleiður og bjóði mönn-
um upp. Áhugamenn um samstarf
félagshyggjuafla geta svo pælt f því
hvert er líkið.
En með leyfi að spyrja: Hvar ætl-
ar Ólafur Ragnar að bera niður
næst? Hann hefur endursent Sjálf-
stæðisflokknum boðskortið, hafn-
að Alþýðuflokknum, fengið upp-
sögn hjá Kvennó og PáU Pétursson
hlær að honum. - Skyldi formaður
Alþýðubandalagsins ekki þekkja
söguna um Dansinn í Hruna?
össur Skarphéðinsson
Svalbarðadeilan fyrir Al-
þjóðadómstólinn
Óþolandi
óvissuástand
„Ég tel að
Norðmenn
hafibrotið al-
þjóðalög þeg-
ar þeir
klipptu á
togvíra
Hegranessins
í Barentshafi
á alþjóðlegu ®s ®van ^ nat!s'
hafsvæði og S°n’ (iufrð-tjÓri
ógnuðu Skagfirðmgs hf,
Drangey með tilraun fil ásigling-
ar. í framhaldi af þessum atburð-
um tel ég rökrétt aö stefna Norð-
mönnum fyrir Alþjóðadómstól-
iim og fá úr því skorið hver er
raunverulegur réttur þeirra á
þessu hafsvæði og hvaða lögsögu
þeir hafa þar.
Það er auðvitað ekki ijóst hver
hefur rétt fyrir sér fyrr en niður-
staða fæst fyrir dómstólnum. Við
sem stöndum í þessu núna erum
bara venjulegir fiskimenn og höf-
um engan áhuga á því að standa
í þeim átökum sem þarna hafa
staðið þar sem Norðmenn eru að
hóta’ okkur því að sprengja í
sundur togvíra. Ef þaö verður
álit Alþjóðadómstólsins að Norð-
menn hafi allan yfirráðarétt á
þessu svæði þá munurn viö að
sjálfsögðu hlýta þeim úrskurði.
Samkvæmt mati okkar lög-
fræðings og annarra sem hefur
verið leitað til þá er þetta alþjóð-
legt hafsvæði. Á þeim grundvelli
höfum víð veitt þarna. Það er
óþolandi óvissuástand sem felst í
þ\i að vera heftir til veiða á svæði
sem færustu lögfræðingar telja
að sé alþjóðlegt, Við verðum að
fá úr þessu skorið."
ekki verður
samnings-
flötur
„Við erum
að ná upp afla
á svæðinu
sem við þurf-
um vissulega
á að halda,
Við myndum
okkurásama Guðjón A. Krist-
tíma afla- lánsson, forseti
reynslu. Farmanna- og fiski-
Ástandið er mannasambands
þannig í Nor- íslands.
egi vegna kosninganna um ESB
að þeir eru ails ekkert á þeim
buxunum að fara í samninga við
okkur. Þegar þeir sjá hve stór-
tækir við getum veriö á svæðinu
munu þeir sjá sér hag í því að
semja við okkur.
Við eígum aö halda áfram að
veiða á þessum svæðum eins og
við teljum okkur hafa efni og
burði til, á nákvæmlega saroa
hátt og þeir eru að veiða útJiafs-
karfa á Reykjaneshrygg.
Okkur liggur ekkert á, við eig-
um að sjá þetta ár líða áður en
við tökum ákvörðun um lögsókn
á hendur Norðmönnum. Viö eig-
um að sjá hvort ekki kemur upp
samningsfiötur þegar þeir eru
búnir að afgreiða jiessar kosning-
ar sínar, Það skiptir verulegu
máli hvernig niöurstaða þjóðar-
atkvæðagreiðslunnar verður.
Eru þeir inni í ESB eöa verða
þeir áfram utan bandalagsins?
Okkar óvissa er yissulega mik-
il, cn ég held að þeirra sé ennþá
meiri.“