Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1994, Page 4
26
MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 1994
Bílar
400-línanfráVolvomeð 1800-vél:
Dugar vel fyrir þennan bíl
Engin útlitsbreyting er á 95-árgerð af Volvo 460 - nema nýir hjólkoppar.
Fallegur frágangur og góður búnaður eru einkenni 400-línunnar frá
Volvo. DV-myndir ÞÖK
í fyrra var farið að bjóða upp á
400-linuna frá Volvo með 2 lítra
vél, eftir að hún hafði lengst af ver-
ið með vélar með 1700 rúmsentí-
metra rúmtaki. Þessi tveggja lítra
Volvo kom afar vel út, samanber
reynsluakstur DV-bíla í apríl síðast
liðnum.
Nú eru þessir bílar, Volvo 440 og
460, einnig boðnir með 1,8 lítra vél
og var sú útfærsla kynnt hjá um-
boðinu Brimborg nú um helgina.
Þessi 1800-vél er, eins og 2000-vélin,
ættuð frá Renault með einhverjum
breytingum frá Volvo. Aö grunni
til er þetta sams konar vél og boðin
er í Renault 19 1,8 en hjá Volvo fær
hún út 90 hestöfl, á móti 95 hjá
Renault, en snúningsvægi 140 Nm
við 2500 sn. mín. á móti 135 Nm v.
3000 sn. min. í Renault 19. Þetta eru
um margt sambærilegir bílar þó að
Volvoinn sé ívið lengri og ástæða
til að harma það rétt einu sinni að
Volvo og Renault skyldu ekki gera
alvöru úr því að sameinast - úr því
hefði orðið heijans góður og metn-
aðarfullur framleiðandi.
Grunnbúnaður
alltaf eins
DV-bílar hafa nú haft undir hönd-
um í nokkra daga Volvo 460 með
1800-vélinni. Hún er eins og við var
að búast ágætlega skemmtileg og
dugar þessum bíl vel til að gera
hann skemmtilegan þótt hann sé
ekki eins ljónijörugur með henni
og 2000-vélinni. Upp gefin meðal-
eyðsla samkvæmt Áutokatalog er
7,9 á minni véhnni, á móti 8,0 á
stærri vélinni, svo eyðslumunur er
ekki umtalsverður. 1800-vélin hef-
ur gott snúningsvægi og bíliinn
nýtur þess vel í öllum gírum, er
lipur og notadijúgur og vel úr garði
gerður.
Með 95-árgerðinni tekur Volvo
upp þann háttinn að öll boddí eru
eins, sama hvaða vél og drifbúnað-
ur er látinn í þau. Þannig er sama
boddíútfærsla fáanleg án tillits til
þess hvort bíllinn er með minni eða
stærri vélinni. Af helsta grunnbún-
aði má telja vökvastýri, samlæs-
ingu, veltistýri, hæðarstillanleg
upphituð sæti ökumanns og far-
þega frammi í, vasa aftan á sætun-
um, kippibelti með sjálfidrkri hæð-
arstillingu, dagljós, fellanleg aftur-
sætisbök, litaða stuðara, hliðar-
spegla sem eru stillanlegir innan
frá, ljós við ræsi (sviss), læst bens-
ínlok, sílsahlífar, litað gler, pluss-
áklæði, heila hjólkoppa og varahjól
í fullri stærð. - Við þessa grunn-
gerð má svo bæta ýmsum auka-
hlutum eða „pökkum" sem í boði
eru og fela í sér tiltekna kippu af
aukahlutum. Þannig er auðvelt fyr-
ir hvem og einn að fá bílinn með
þeim búnaði sem honum hentar.
100 þúsund
krónum ódýrari
Að öðra leyti er ekki miklu að
bæta við umsögnina frá því í apríl
- rétt að minna á að Volvoinn er
mjög vel búinn frá öryggissjónar-
miði, bæði hvað snertir virkt ör-
yggi og óvirkt, m.a. með SIPS hlið-
arhöggvörninni sem kynnt hefur
verið ítarlega.
Volvo 460 1,8 er að sjálfsögðu
ódýrari heldur en 460 2,0. Miðað
við grunngerð er verðmunurinn
100 þúsund krónur. 1,8 kostar
1.498.000 krónur en 2,0 kostar
1.598.000 krónur. Hver og einn
verður að sjálfsögðu að gera það
upp við sig hvers hann metur þann
mun í hestöflum og snúningsvægi
sem felst í þessum mismunandi
vélum. En hvom kostinn sem hann
velur getur hann verið viss um að
fá prýðilega skemmtilegan og dug-
andi bíl.
S.H.H.
Vantar þig
ódýran bít?
I skólann
eða snattið?
Kíktuþá
á úrva/ið!
Opið 10-18
virka daga og
12-16 laugard.
Lada station
1991, 2 eintök.
Verð frá kr. 290.000.
Lancia skutla
1987, ek. 54 þús., fínn
konubíll. Aðeins kr. 240.000.
BMW 520ÍA
1984. Tilboðsverð kr. 290.000.
BMW 3201
1983. Gott eintak, aðeins
kr. 450.000.
Ford Sierra
1986, topplúga, aðeins
kr. 290.000.
Renault 19 GTS
1990, góður bíll á mjög góðu
verði, kr. 590.000.
Citroén AX
1987,3 eintök, frá kr. 220.000.
Mazda 323
1986/1987, 4 eintök, frá
kr. 250.000.
Dodge Aries
1987, ek. 93 þús.
Góð kaup, kr. 430.000.
Peugeot 405
1988, ek. 118 þús. Stór og
góður bíll, aðeins kr. 470.000.
Subaru 1800 st.
1985, ek. 130 þús.
Tilboð kr. 450.000.
Fiat Duna
1988, ek. 85 þús.
Kr. 250.000.
Einnig á staðnum
m.a.:
BMW520ÍA
Ford Econoline
BMW316
Chrysler Le Baron 6TS
Renault 19 GTS
BMW318Í
Chevy Monza
Renault11
Mazda 626
Skoda Favorit
Peugeot205 XL
Arg. Stgr. Tiib.
verð
1987 750.000 690.000
1987 1.800.000 1.250.000
1988 750.000 690.000
700.000 590.000
680.000 590.000
690.000 520.000
340.000 250.000
Tilbkr. 190.000
Tilbkr.
1988
1990
1987
1987
1984
1987
1991
1988
490.000
360.000 295.000
420.000 350.000
Euro og Visa
raðgreiðslur
Skuldabréf til
alltað36mán.
Renault 5 Campus
1988, ek. 73 þús. Toppbíll.
Aðeins kr. 280.000.
VW Jetta
1986, sjálfsk., ek. 130 þús.
Kr. 270.000.
Peugeot 205
1988, ek. 70 þús. Kr. 350.000.
Nissan Cherry
1983, skoðaður '95.
90.000.
Bílaumboðið hf. Krókhálsi 1, Reykjavík, sími 876633 ÐílBSSlðn KrÓkhálSÍ, Krókhálsi 3, Sími 676833