Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1994, Blaðsíða 32
F R ÉTTAS KOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
3.000 krónur.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 632700
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1994.
Gullskipiö:
Leitin kost-
" aði skatt-
greiðendur
103 milljónir
Enn á að hefja leit að gullskipinu
í Skaftafellsfjöru í vor. Um er að
- ræða hollenska kaupfarið Het Vapen
van Amsterdam sem strandaði hér
við land á 17. öld og leitað hefur ver-
ið að frá 1962. Björgun hf. mun standa
að leitinni sem verður fjármögnuð
af einkaaðilum.
Til þessa hefur leitin kostað skatt-
greiðendur um 103 milljónir króna á
núverandi verðlagi. Var 92 milljóna
króna lán til Gullskipsins hf. afskrif-
að 1991 en það fyrirtæki var stofnað
um uppgröft þess sem menn héldu
að væri gullskipið en reyndist togari.
Leitarsvæðið er um 50 ferkílómetr-
ar en eftir er að leita á 5 ferkílómetra
svæði.
Konaísnjóflóði:
Hafði engan
tíma til að
verða hrædd
„Ég náði að snarbremsa en þrátt
fyrir það fór bíllinn hálfa bíllengd
eða svo inn í skaflinn. Þetta gerðist
afar snögglega," segir Jóna Vilhelm-
ína Héðinsdóttir, ung kona frá Ólafs-
firði sem lenti í snjóflóði á bifreið
sinni í Ólafsfjarðarmúla í gærkvöldi.
Jóna var ein í bílnum á leiðinni frá
Ólafsfirði til Akureyrar. Hún segist
hafa verið komin suður undir Sauða-
nes, sem er Dalvíkurmegin jarðgang-
anna, þegar ósköpin dundu yfir.
„Það var myrkur og snjókoma og
skyggni því afar lítið og þess vegna
ók ég haegt. Þegar flóöið varð sá ég
fyrst koma snjóköggla niður og yfir
veginn og síðan dundi þetta yfir,
mikið kóf og útsýnið varð ekkert,"
segir Jóna.
Hún segist hafa stöðvað bílinn
nærri jaðri flóðsins. „Bíllinn fór þó
tæpa lengd sína inn í flóðið og festist
í snjónum. Ég fór strax út til að reyna
að losa bílinn og hugsaði bara um
að reyna að koma mér í burtu. En
ég gat ekki losað bílinn, hann var
alveg fastur. Það kom fólk að flóðinu
Dalvíkurmegin frá óg ég hljóp yfir
snjóinn eftir hjálp. Það tókst hins
vegar ekki að losa bflinn fyrr en tveir
gámabílar frá Ólafsfirði komu þama
að og annar þeirrra dró mig út.
Ég hafði engan tíma tfl að verða
hrædd. Ég var líka heppin og má
þakka fyrir að ekki fór verr.“
Akranes:
Fjárdráttur
hjá æskulýðs-
fulltrúa
bæjarins
Bæjarráð Akraness ákvað á fundi
sínum síðastliðinn mánudag að gefa
íþrótta- og æskulýðsfulltrúa staðar-
ins kost á að segja upp starfi sínu
vegna gruns um töluverðan fjárdrátt
úr bæjarsjóði. Æskulýðsfulltrúinn
varð fyrri til og sagði starfinu lausu.
Samkvæmt heimildum DV fundaði
bæjarráðið tvisvar um þetta mál á
mánudag. Á seinni fundinum var
ákveðið að æskufýösfulltrúinn yrði
að víkja. Fjárdrátturinn á að hafa
verið umtalsverður en æskulýðsfull-
trúinn mun hafa gert upp þessa fjár-
hæð við bæjarsjóð við starfslok.
Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akra-
nesi, sagði að fjárdrátturinn hefði
komist upp fyrir um tveimur vikum.
Þá heföi farið af stað rannsókn á
vegum bæjarins. Niðurstaða þeirrar
rannsóknar lá fyrir á bæjarráðsfund-
inum sl. mánudag þegar grunur um
fjárdrátt var staðfestur. Samkomu-
lag var gert við æskulýðsfufltrúann
um að hann greiddi bæjarsjóði til
baka það sem hann tók. Fulltrúinn
hafði starfað hjá Akraneskaupstað f.
15 ár og sagði Gísli þetta hafa verið
„þungt og viðkvæmt" mál að taka á.
Akureyrarflugvöllur:
„Rörið" þvers-
um í lendingu
Metró skrúfuþota Flugfélags Norð-
urlands, sem gengur undir nafninu
„Rörið“, rann til í lendingu á flug-
brautinni á Akureyrarflugvelli í gær
og sat föst í snjóskaili er hún stöðvað-
ist.
í vélinni voru 5 farþegar á leið til
Keflavíkur. Skömmu eftir flugtak
kviknaði aðvörunarljós sem gefur til
kynna að að vélin smyrji sig ekki og
var þá ákveöið að lenda strax aftur.
Tveir starfsmenn FN, sem DV ræddi
við í morgun, gerðu lítið úr málinu,
sögðu að engin hætta hefði verið á
ferðum og farþegar tekið þessu
óhappi með stillingu.
Verðmætum
símum stolið
Brotist var inn í verslunina Há-
tækni við Ármúla í nótt. Þjófarnir
höfðu á brott með sér töluvert magn
af símtækjum, farsímum og svoköll-
uðum GSM-farsímum. Verðmæti
hins stolna er töluvert en þjófarnir
höfðu ekki náðst þegar lögreglan var
á vettvangi í morgun.
Börnin í Vesturbæjarskóla í Reykjavík kunna vel að meta snjóinn sem kyngdi niður i vikunni. Hver frístund frá
skólaamstri er nýtt til leikja og ærsla. Hraði og spenna fylgir hverri bunu og því ábyrgðarhluti að vera snjóþotustjóri.
DV-mynd GVA
Eina leiðin er
að óska eftir
auka landsþingi
„Það eina sem hægt er að gera
er að óska eftir auka iandsþingi.
Þar yrði síðan lýst vantrausti á
stjómina. Ég veit að visuekki hvort
þetta stenst samkvæmt lögunum
en ég geri ráö fyrir aö þetta verði
reynt,“ segir Reynir Ragnarsson í
Vík sem var annar þeirra tveggja
sem skipaðir voru í sáttanefnd
vegna brottreksturs Hálfdans
Henryssonar frá Slysavamafélagi
íslands.
Gunnar Tómasson, varaforseti
Slysavamafélagsins, sendi i gær
frá sér yfirlýsingu sem hann undir-
ritar fyrir hönd Slysavamafélags-
ins. Þar er gerð grein fyrir meint-
um samstarfsörðugleikum milli
Hálfdans og framkvæmdastjóra fé-
lagsins. Þar segir m.a. að ekki hafi
lengur verið hægt að þola einleik
Hálfdans og skort á samstarfsvilja.
Reynir segist vera mjög undrandi
á því að þessi greinargerð skyldi
send út á sama tíma og samninga-
umleitanir stóðu yfir. Þeir tveir
sem stóðu að sáttatilraunum hafi
ekki haft hugmynd um að slíkt
væri á leiðinni.
„Við vorum aö ræða við Hálfdan
síðast í gærdag og höfðum ekki
hugmynd um að þetta væri á leið-
inni. Þá kom reyndar fram hjá
stjórninní að þeir væru hættir við
aö bjóða honum nýtt starf innan
félagsins. Þeir voru tilbúnir að
liðka til eða útvega honum starf
annarsstaðar, sem manni fannst
hálfskrítið," segir Reynir.
Hálfdan Henrysson sagði i morg-
un að hann hefði enn ekki fengið
skýrsluna í hendur en hefði rekið
augun i hana í Morgunblaðinu.
„Mér skilst að þeir hafi boðsent
þetta til fjölda fólks í gær. Ég ósk-
aði eftir því fyrir hálfum mánuði
að fá að sjá greinargerð frá þeim.
Þetta er það fyrsta sem ég sé og það
kemur i blöðunum,“ segir Hálfdan.
Gunnar Tómasson segir ljóst að
Hálfdan snúi ekki aftur til starfa
innan Slysavarnafélagsins meðan
núverandi stjórn sitji. Aftur á móti
hafi stjórnin verið að leita leiða til
að útvega honum starf annarsstað-
ar.
„Það er ekki þar með sagt að þó
hann geti ekki unnið með okkur
geti hann ekki unníð annarsstað-
ar,“ segir Gunnar.
LOKI
Svo segja menn að skattsvik
borgi sig ekki!
Veðrið á morgun:
Hæg
breytileg
átt
Á morgun verður austangola
eða hæg breytileg átt. Léttskýjað
um mestallt land en skýjað syðst
á landinu er líður á daginn. Frost
0-8 stig.
Veðrið 1 dag er á bls. 36