Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1994, Page 4
4
FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1994
Fréttir
Reglugerð í smíðum sem gerir ráð fyrir léttari nöglum:
Gæti þýtt yf ir 200
milljóna sparnað á ári
- sparar viðhald á bundnu slitlagi en minnkar ekki öryggi
Innan dómsmálaráöuneytisins er
nú í smíðum reglugerð sem bannar
notkun þeirra nagla sem nú eru not-
aðir í hjólbarða. Reglugerðin verður
innan skamms send til umsagnar en
fyrirhugað er að hún taki gildi fyrir
næsta vetur. Þó er ætlunin sú að
menn fái að nota þau nagladekk sem
þeir eiga og slíta þeim út. Nýju nagl-
amir mega einungis vera úr áli eða
harðplasti og verða þá léttari en þeir
gömlu fyrir vikið. Með þessum hreyt-
ingum er hugsanlegt að hægt verði
að spara rúmlega 200 milljónir í við-
haldsframkæmdum á bundnu sht-
lagi á gatnakerfi Reykjavíkur og
þjóðvegum landsins.
„Sænskar rannsóknir sýna fram á
að léttari naglar spara viðhald á sUt-
lagi í þéttbýli um allt að helming.
Enn fremur þýðir þetta minni slysa-
hættu í kjölfar minni hjólfara í mal-
biki vegna naglaslits. Þá eru um-
hverfisáhrifin gífurleg. Tjara, sem
losnar við naglasht, verður níinni í
umhverfinu og loks minnkar þetta
hljóðmengun. AUt eru þetta kostir
við að takmarka naglastærð," segir
Þórhallur Ólafsson, umdæmistækni-
fræðingur Vegagerðarinnar á Sel-
fossi og formaður Umferðarráðs.
Hann bætir því við að rannsóknir
sýni fram á að umferðaröryggi sé
ekki minna þrátt fyrir minni nagla,
sem muni verða á svipuðu verði og
gömlu naglamir.
Samkvæmt upplýsingum hjá Vega-
gerðinni var 440 miUjónum varið tfi
viðhaldsframkvæmda á bundnu sUt-
lagi á þjóðvegum landsins á þessu
ári. ÞórhaUur fullyrðir að þann
kostnað mætti lækka um 20 til 30
prósent eöa um rúmlega 100 miUjón-
ir. Á þessu ári var varið að minnsta
kosti 200 milljónum í viðhaldsfram-
kvæmdir á bundnu sUtlagi í Reykja-
víki. Ef kostnaður viö þaö lækkaði
um helming myndu 100 miUjónir
sparast við það. Samtals yrði þvi um
að ræða rúmlega 200 milljónir í
Reykjavík og á þjóðvegakerfi lands-
ins. Kunnugir telja þó að kostnaöur
við þjónustu myndi aukast eitthvað
en ekkert í líkingu við það sem myndi
sparast.
Kópavogur:
Lækkaðir
ítignog
fluttir til
Dómsmálaráðuneytiö hefur
ákveðið, að fenginni tiUögu sýslu-
manns í Kópavogi, að flytja að-
stoðaryfirlögregluþjón og yfirlög-
regluþjón lögreglunnar í Kópa-
vogi til í starfi. Þetta er gert vegna
þess óþolandi ástands sem skap-
ast hefur vegna deUna tveggja
umræddra manna.
Báðir voru þeir lækkaðir í tign
og mun aðstoðaryfirlögreglu-
þjónninn gegna starfi rannsókn-
arlögreglumanns hjá RLR en yf-
irlögregluþjónninn mun gegna
stöðu varðstjóra hjá lögreglunni
í Hafnarfirði.
Mennimir hafa báöir verið
leystir frá störfum en þó verið
veittur andmælafrestur. Stjórn
Lögreglufélags Kópavogs harmar
að til þessa hafi þurft að koma.
Kanadíska olíufélagiö Irving Oil:
Vantar lóðir undir
átta bensínstöðvar
Kanadíska olíufélagið Irving Oil
hefur lagt fram formlega beiðni hjá
borgaryfirvöldum um svæði undir
birgðastöð og a.m.k. 8 bensínstöðvar
á höfuðborgarsvæðinu. Fulltrúar Ir-
ving Oil áttu nýlega fund með borg-
aryfirvöldum þar sem þeim var gerð
grein fyrir að engar lóðir undir bens-
ínstöðvar væru til samkvæmt nú-
gildandi borgarskipulagi og 8 vikur
tæki með auglýsingu aö breyta land-
notkun. Eins og sjá má á meðfylgj-
andi korti eru olíufélögin þrjú, Olís,
Skeljungur og Esso, meö 41 bensín-
stöð á höfuðborgarsvæðinu og vil-
yrði er fyrir 3 lóðum til viðbótar
undir bensínstöð í Reykjavík sam-
kvæmt núverandi skipulagi.
Nýju lóðirnar, sem hér um ræðir,
eru við Gylfaflöt og Borgarveg í Graf-
arvogi og í Norðlingaholti við Rauöa-
vatn. í Grafarvogi eru allar líkur á
að Skeljungur verði með hensínstöö
á báðum stöðunum og í Noröhnga-
holti hefur Olís vilyrði um lóð eftir
að félagið varð að víkja frá fyrirhug-
aðri lóð við Vesturlandsveg.
Irving Oil í Grafarvogi?
Það kemur ekki fram á kortinu að
Hagkaup hefur úthlutaða lóð við
Borgarveg í Grafarvogi, í svokallaðri
Spöng, þar sem auk verslunarmið-
stöðvar er reiknaö með aðstöðu fyrir
bensínstöð. Eins og áður hefur komið
fram hefur DV heimildir fyrir því að
Hagkaup og Bónus séu í samstarfi
við Irving Oil um starfrækslu hens-
ínstöðva. Forráðamenn fyrirtækj-
anna neituðu því ekki eða játuðu
þannig að svo gæti farið að ein af
bensínstöðvum Irving Oil verði í
Spönginni í Grafarvogi.
Á fundi með borgaryfirvöldum
sögðu fulltrúar Irving Oil að þeir
hefðu í huga meðalstórar bensín-
stöðvar á bandarískum mælikvarða,
stöðvar sem byðu upp á ýmsar vörur
tengdar bflaþjónustu. í bréfi frá Ir-
ving Oil kemur fram að ísland sé um
margt líkt þeim norðlægu slóðum
sem félagið starfi á í Bandaríkjunum
og Kanada. í bréfinu segir ennfrem-
ur:
„Fyrirtækinu er nauðsynlegt að fá
aðstöðu fyrir starfsemi sína. í því
sambandi er rétt að benda á að nauð-
synlegt dýpi nærri aðstöðunni er 13
metrar. Einu staðirnir sem sjáanleg-
ir eru nú eru við Reykjavík og Helgu-
vík. Ljóst er að Helguvík kemur ekki
til greina vegna fjarlægðar frá mark-
aðnum enda óvíst að sú aðstaða
standi til boða. Fyrirtækiö hyggst
hefja starfsemi hægt og sígandi."
Borgarráð íjallaði um áhuga Irving
Oil á fundi sínum á þriðjudag. Ráðið
vísaði máhnu til borgarskipulags en
þangað munu fulltrúar Irving Oil
senda hugmyndir sínar um staðsetn-
ingu bensínstöðva á höfuðborgar-
svæðinu.
Óskiljanlegt athæf i
„Þetta er glænýr bíll. Það er búið
að keyra hann 14 hundruð kfló-
metra. Ég skil ekki hvað fær menn
til að gera svona lagað,“ sagði
Gunnar Beinteinsson, handknatt-
leiksmaður í FH, í samtali við DV
en bíll sem hann hafði nýlega keypt
sér var gjörsamlega lagður í rúst
fyrir utan íþróttahús FH í Kapla-
krika um síðustu helgi.
Gunnar haíði skflið bflinn eftir
fyrir utan íþróttahúsið á föstudag
og farið með félögum sínum á Hót-
el Örk í Hveragerði og ætlaði að ná
í hann daginn eftir. Einhver eða
einhverjir skemmdarvargar virð-
ast hins vegar hafa orðið fyrri til
að komast í bíl Gunnai-s og annan
bíl sem stóö fyrir utan húsið og er
í eigu frægs stuðningsmanns FH.
Allar rúöur og bæði framljós á bíl
Gunnars voru eyðilögð. Þá var gat
stungið í vélarhlíf bílsins og topp,
auk þess sem göt voru stungin á
alla hjólbarðana. Sömu sögu er að
segja af hinum bilnum
Máliö er í rannsókn hjá lögregl-
unni í Hafnarfiröi. Lögreglan biöur
hvern þann, sem telur sig geta gef-
ið upplýsingar um mannaferðir við
iþróttahúsið aðfaranótt laugardags
að hafa samband viö sig, en enginn
er grunaður um verknaðinn.
Gunnar Gunnarsson, þjálfarí Vtkings og starfsmaður tryggingafélagsins
Skandia, stendur hér vlð bil Gunnars sem eins og sjá má er mjðg illa
farinn. DV-mynd GVA
með lögreglunni og biður alla þá
sem geta gefið upplýsingar um
verknaðinn að hafa samband við
lögreglu.
Gunnar segir bflinn hafa verið í
kaskó og því takmarkist beint fjár-
hagslegt tjón hans viö sjálfsábyrgð-
ina. Hins vegar tekur hann undir
Bensínstöðvar á höfuðborgarsvæðinu
OO
o
f'i
o
Fyrirhuga^ O
r\ Fyrirhugaö
O Olís
• Esso
© Skeljungur
cP
o
8 • °
rn.it
yf..P
Hafnarfjöröur:
• Reykjavíkurv. 54
# Lækjargata 46
O Vesturgata 1
© Reykjavíkurv. 58
© Kænah v/höfnina
c9
Mosfellsbær:
0©Langitangi
# Bjarkarholt
o
Fyrirhugað
DV
Fasteignamarkaöurinn á Akureyri:
Stærri eignir hafa
lækkað um allt að 10%
- mikið framboö á markaðinum
„Það eru bara venjuleg markaðs-
lögmál sem ráða. Það er mjög mik-
ið af raðhúsum og einbýlishúsum
í sölu á Akureyri og þegar framboð-
iö er meira en eftirspurnin þá
lækkar verðið. Þetta lögmál á alveg
eins við um fasteignir og bfla,“ seg-
ir Pétrn- Jósefsson, sölustjóri hjá
Fasteigna- og skipasölu Norður-
lands á Akureyri, um verðlækkun
sem orðið hefur á stærri fasteign-
um á Akureyri að undanfómu.
Pétur segir að nú séu e.t.v. 70-80
einbýlishús og stærri fasteinir á
söluskrá á Akureyri sem sé mjög
mikið í ekki stærri bæ. Verðlækk-
un þessara eigna er umtalsverð að
undanfömu og dæmi um að rað-
hús, sem selst hefði á um 9 milljón-
ir fyrir nokkmm mánuöum, fáist
fyrir rúmlega 8 milljónir í dag. Pét-
ur sagði e.t.v. ekki fjarri lagi að
tala um 10% verðlækkun á stærri
eignum. Hann lagði þó áherslu á
að öllu máli skipti hvernig húsbréf
menn fengju sem væm að selja, en
affóll á þeim væra mjög misjöfn.
Pétur sagði að verðlækkunin ætti
reyndar við um flestar fasteignir á
markaðnum nema tveggja her-
bergja íbúðir. Kaupendahópur
slíkra íbúða væri stærri, t.d. ein-
stakhngar og ungt fólk sem er aö
stíga sín fyrstu skref í fasteigna-
kaupum.